Morgunblaðið - 24.02.1998, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998
ERLENT
FBI þykir
hafa hlaupið
á sig
Washington. Reuters.
MENNIRNIR tveir sem bandaríska
alríkislögreglan (FBI) handtók með
látum sl. fímmtudag og sakaði um að
hafa verið með sýklablöndu tíl
vopnagerðar í fórum sínum reyndust
vera með skaðlaust dýralyf. Þykir
FBI hafa hlaupið á sig vegna máls-
ins.
Mennirnir tveir voru handteknir í
þaulskipulögðu og fjölmennu áhlaupi
vopnaðra lögreglusveita. Málið þykir
hið vandræðalegasta fyiir FBI en
stofnunin hefur beðið hvern álits-
hnekkinn af öðrum á undanförnum
árum. Bobby Siller, talsmaður FBI,
reyndi að verja aðgerðina og sagði
betra að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Hann sagði stofnunina haft rök-
studda ástæðu til að ætla að þjóðfé-
laginu stafaði hætta af mönnunum
tveimur. Annar þeirra væri tengdur
nýnasistasamtökum sem bendluð
hefðu verið við samsæri um hryðju-
verk. Sá sat enn í varðhaldi í gær og
átti yfir höfði sér yfirheyrslu enda á
skilorði eftir að hafa hlotið dóm fyrir
að svíkja út svartadauðahakteríur.
Hinn var látinn laus sl. laugardag.
-----------------------
Skýrsla um Svínaflóa-
hneykslið birt
Sökin alfar-
ið CIA
BANDARÍSKA leyniþjónustan CIA
hefur gert opinbert eitt best varð-
veitta leyndarmálið úr kalda stríðinu,
skýrslu sem leiðir í Ijós að hin mis-
heppnaða hernaðaraðgerð Banda-
ríkjamanna á Svínaflóa á Kúbu var á
ábyrgð leyniþjónustunnar, að því er
The Times greindi frá í gær.
Samkvæmt skýrslunni, sem gerð
var fyrir 36 árum, mistókst innrás
Bandaríkjamanna á Kúbu 1961
vegna hroka, vankunnáttu og getu-
leysis leyniþjónustunnar. Tekinn er
af allur vafi um að þessir ágallar hafi
verið „grundvallarforsenda þess hve
illa fór“. Ástæðan hafí ekki verið sú
að John F. Kennedy, þáverandi for-
seti, hafi látið undfr höfuð leggjast
að senda flugherinn innrásarliðinu til
fulltingis.
Skýrslan var niðurstaða rannsókn-
ar er gerð var innan leyniþjónust-
unnar af Lyman Kirkpatrick, en olli
yfirmönnum hennar slíkri skapraun
að öllum tuttugu eintökunum af
henni nema einu var eytt.
Þetta eina eintak sem eftir var sat
á hillu í læstum peningaskáp á skrif-
stofu yfirmanns leyniþjónustunnar
þar til nýverið að það var gert opin-
bert á grundvelli laga um upplýs-
ingaskyldu að kröfu samtaka sem
birta fyrrverandi leyniskjöl stjóm-
valda.
STUÐNINGSMENN Janataflokksins í Nýju Delhí mótmæla á laugar-
dag ákvörðun ríkisstjórans í Uttar Pradesh sem setti sfjórn ríkisins af.
Geta þeir tekið gleði sína á ný því í gær úrskurðaði dómstóll að sljórn-
inni bæri að halda völdum.
Tugir deyja
í kosninga-
ofbeldi á Indlandi
Nýju Delhf. Reuters.
SJÖ manns að minnsta kosti
biðu bana í gær í ofbeldisað-
gerðum tengdum ríkis- og þing-
kosningunum á Indlandi en á
sunnudag munu 34 hafa týnt lífi
af sömu sökum.
Þingkosningamar á Indlandi
hófust 16. febrúar og standa
fram í mars en í gær hófst
þriðja lota þeirra er kjörstaðir
vom opnaðir í rfkjunum Naga-
land og Manipuir í norðaustur-
hluta Indlands.
Þar biðu 16 manns bana í
gær og fyrradag en ríkið er
plagað af þjóðernisátökum og
ættbálkaerjum. Stjómarand-
stöðuflokkar hvöttu kjósendur í
ríkinu til að sniðganga kosning-
arnar og sögðu að meira varð-
aði að fundin yrði friðsamleg
lausn á bardögum hersveita og
aðskilnaðarsinna.
Að minnsta kosti fimm her-
lögreglumenn biðu bana og 26
slösuðust er þeir vom á heim-
leið frá skyldustörfum við kjör-
staði í ríkinu Andra Pradesh.
Atvikið átti sér stað við borgina
Dichpally sem er 130 km norð-
ur af Hyderabad, höfuðstað rfk-
isins. Maóistar em sagðir hafa
komið sprengjunni fyrir.
í ríkinu Uttar Pradesh, hinu
fjölmennasta á Indlandi, deila
helstu stjórnmálafylkingar
hart um völd. Dómstóll úr-
skurðaði í gær að ríkissfjórn
hindúa skyldi sett til valda á
ný en öllum á óvart setti ríkis-
stjórinn Romesh Bhandari
hana af á laugardag. Mun Ka-
lyan Singh, héraðsleiðtogi
Janataflokksins, því taka við
starfi forsætisráðherra Uttar
Pradesh á ný.
Reuters
Sri Lanka
Tugir
felldir
Colombo. Reuters.
TALIÐ var í gær að a.m.k. 47 sjóliðar
og hermenn hefðu beðið bana í árás-
um tamílskra uppreisnarmanna á tvö
herskip við strönd Jaffna-skaga í
norðurhluta Sri Lanka á sunnudags-
kvöld.
Talsmenn hersins sögðu að kviknað
hefði í skipunum eftir að bátar hlaðn-
ir sprengiefni hefðu siglt á þau.
í öðru skipanna voru 17 sjóliðar og
68 hermenn, sem voru á leið til
Jaffna-skaga eftfr að hafa verið í leyfi.
Hitt skipið var að koma úr viðgerð og
í því voru átta sjóliðar og 22 hermenn.
Talsmenn hersins sögðu að 58 her-
mönnum og sjóliðum hefði verið
bjargað og 47 væri enn saknað.
Herskip sökktu átta bátum upp-
reisnarmanna og talið var að a.m.k.
20 uppreisnarmenn hefðu beðið bana
í átökunum.
Þúsundir hermanna og uppreisn-
armanna hafa fallið í átökum á
Jaffna-skaga frá því í maí á liðnu ári
þegar herinn hóf mikla sókn þar til
að endurheimta mikilvægan þjóðveg.
Herinn hefur þurft að nota skip og
flugvélar til að flytja hermenn á
svæðið þar sem vegurinn er á valdi
uppreisnarmanna, sem hafa barist
fyrir sjálfstæðu ríki Tamíla í norður-
og austurhluta landsins frá 1983.
Bill Clinton talinn vera að einangrast vejafna máls Monicu Lewinsky
Hefur slest upp
á vinfengið
við Jordan?
Washington. Reuters, The Daily Telegraph.
ÝMIS ummæli vina og samstarfs-
manna Vernons Jordans, lögmanns
og trúnaðarvinar Bills Clintons,
þykja benda til þess að slest hafi
upp á vinfengi hans og bandaríska
forsetans vegna máls Monicu
Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í
Hvíta húsinu. Robert Strauss, sam-
starfsmaður Jordans, sagði t.a.m. í
sjónvarpsviðtali að takmörk væru
fyrir því hversu langt lögfræðingur-
inn gæti gengið til að bjarga forset-
anum.
Clinton hefur verið sakaður um að
hafa haldið við Lewinsky og fengið
hana til að bera ljúgvitni um sam-
band þeirra með hjálp Jordans. Vin-
ir og samstarfsmenn Jordans segja
að þegai- Clinton hafi beðið lögfræð-
inginn um að útvega Lewinsky nýtt
starf hafi forsetinn látið hjá líða að
skýra honum frá því að Lewinsky
hefði verið stefnt til að bera vitni
vegna máls Paulu Jones, sem sakar
um forsetann um kynferðislega
áreitni. Vinir Jordans segja að hann
sé gramur yfir því að forsetinn skuli
hafa leynt þessu.
„Vernon er dyggur og traustur vin-
ur,“ sagði Strauss í fréttaþætti CBS.
„En Vemon er ekkert fífl. Og hann er
ekki maður sem gerir hluti sem hann
veit að eru hugsanlega annaðhvort
ólöglegir eða ótilhlýðilegir."
Strauss sagði að Jordan myndi
standa með vini sínum ef hann gæti
það, en væri ekki tilbúinn að fórna
sér til að bjarga forsetanum.
Nokkrir vinir Jordans sögðu að
það væri mikilvægt fyrir hann að
gera hreint fyrir sínum dyrum vegna
ásakana um að hann hefði reynt að
útvega Lewinsky nýtt starf í því
skyni að fá hana til að þegja yfir
meintu ástarsambandi sínu við for-
setann.
Ýmsir áhrifamiklir demókratar í
Washington hafa komið fram í sjón-
varpi og lýst yfir stuðningi við Jord-
an. Þykir það benda til þess að for-
setinn sé að einangrast og að áhrifa-
miklir menn í höfuðborginni snúist á
sveif með Jordan þurfi þeir að velja
milli hans og forsetans.
Lögfræðingur Lewinsky, William
Ginsburg, hvatti til þess á sunnudag
að stofnaður yrði söfnunarsjóður til
að standa straum af lögmannakostn-
aði hennar vegna málsins. Ginsburg
er gamall vinur Lewinsky-fjölskyld-
unnar og kvaðst sjálfur hafa tekið á
sig hluta kostnaðarins þar sem faðir
Lewinsky hefði „takmörkuð fjárráð".
Ginsburg gaf einnig í skyn að
Lewinsky kynni að skrifa bók um
málið þegar málaferlunum lýkur en
neitaði því að hún hefði þegar hafist
handa við skrifin.
Lögfræðingurinn áréttaði ummæli,
sem ísraelskt dagblað hafði eftir hon-
um, um að stefna forsetans í málefn-
um fsraels væri ein af ástæðum þess
að hann vildi ekki að Clinton léti af
embættinu vegna málsins. Hann
bætti við að deilan um vopnaeftirlitið
í írak væri miklu mikilvægari en
rannsókn Kenneths Starrs saksókn-
ara á málum Clintons.
MORGUNB LADIÐ
Fylgi
flokks Nyr-
ups eykst
STUÐNINGUR við Jafnaðar-
mannaflokkinn í Danmörku
hefur aukist frá því Poul Nyr-
up Rasmussen forsætisráð-
hen-a ákvað í síðustu viku að
rjúfa þing og boða til kosn-
inga, samkvæmt skoðana-
könnun Gallups. Samkvæmt
henni nýtur flokkurinn fylgis
34,8% kjósenda en var 31,6 í
sambærilegri könnun viku áð-
ur. í könnuninni mældist fylgi
Venstre, flokks Uffe
Ellemanns-Jensens fyrrver-
andi utanríkisráðherra, 25,6%.
Afneita leyni-
viðræðum
BRESKA stjómin neitaði því í
gær að eitthvað væri hæft í
fréttum argentínska blaðsins
Clarin um að bresk og argent-
ínsk stjórnvöld ættu í leynileg-
um viðræðum um
Falklandseyjar sem löndin tvö
hafa deilt um yfirráð á og
leiddi til 10 vikna styrjaldar
milli þeirra árið 1982.
Hafa trú á
Bondevik
ÞRÍR af hveijum fjórum
Norðmönnum gera ráð fyrir
því að minnihlutastjórn Kjells
Magne Bondevik verði við
völd fram að næstu þingkosn-
ingum, sem eru á dagskrá árið
2001. Auk þess nýtur forsætis-
ráðherrann meira persónulegs
fylgis meðal kjósenda en dæmi
eru um.
Sjálfsvíg
vegna vinnu-
álags bætt
DÓMSTÓLL í Japan úrskurð-
aði í gær fjölskyldu manns,
sem svipti sig lífi vegna vinnu-
álags, fjárbætur. Er Kawasaki
stáliðjunni gert að greiða fjöl-
skyldunni 52 milljónir jena,
jafnvirði 30 milljóna króna,
fyrir að láta Junichi Watanabe
standa óhóflega langar vaktir
hvíldarlaust. Watanabe, sem
var 41 árs, stökk út um glugga
af sjöttu hæð byggingar, eftir
að hafa unnið hálft ár hjá
stálfyrirtækinu. A þeim tíma
hafði hann einungis fengið tvo
hvfldardaga.
Skaparar
Dolly ein-
rækta kálf
BRESKU vísindamennimir
sem einræktuðu ærina Dollý
skýrðu frá því í gær að þeir
hefðu jafnframt aðstoðað við
einræktun kálfs. Hefur sá
skjöldótti verið nefndur Herra
Jeffersson í tilefni þess að
honum var kastað á degi for-
setans í Bandaríkjunum, 16.
febrúar.