Morgunblaðið - 24.02.1998, Síða 48

Morgunblaðið - 24.02.1998, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Þrír íslenskir Norðurlanda- meistarar SKAK IVorrtáljo, Svfþjóð, 20.-22. febrúar NORÐURLANDAMÓTí SKÓLASKÁK Þeir Jón Viktor Gunnarsson, Bragi Þorfínnsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson sigruðu í sínum aldursflokkum á Norður- landamótinu í skólaskák, ein- staklingskeppni. ÍSLENDINGAR eignuðust færri en þrjá Norðurlanda- meistara um síðustu helgi. Þetta gerðist á Norður- landamótinu í skólaskák, sem fram fór í Norrtalje í Svíþjóð 20.- 22. febrúar. Jón Viktor Gunnarsson varð Norður- landameistari í aldurs- flokknum 1978-80, Bragi Þorfínnsson í flokki 1981-82 og Guðjórv. Heiðar Val- garðsson í flokki 1985- 86. Þetta er besti árangur ungra ís- lenskra skák- manna um árabil í þess- ari keppni og einn sá besti frá upphafí. Teflt var í fimm aldurs- flokkum og samanlagt náðu hin- ar Norðurlandaþjóðimar því að- eins tveimur meistaratitlum. Sigurvegarar í einstökum flokk- um voru þessir: A 78-80 Jón V. Gunnarsson 5 v. B 81-82 Bragi Þorfínnsson 4% v. C 83-84 Magne Sagafos, Noregi 5 v. D 85-86 Guðjón H. Valgarðsson 5 v. E 87-Victor Nithander, Svfþjóð 5 v. Tefldar voru sex umferðir, en tólf þátttakendur voru í hverj- um flokki og því tóku samtals sextíu skákmenn frá öllum Norðurlöndum þátt í mótinu. íslendingar voru nálægt fjórða meistaratitlinum, því Guðmundur Kjartansson, ný- bakaður Islandsmeistari í bamaflokki, hafnaði í öðm sæti í E-flokki. Guðmundur var jafn sigurvegaranum með fimm vinninga, en lægri á stigum. Aðrir íslenskir keppendur vora Einar Hjalti Jensson, sem varð fimmti í A-flokki með þrjá vinninga, og Bergsteinn Einars- son, sem varð í fjórða sæti í B- flokki með 314 v. í C-flokki kepptu þeir Hjalti Rúnar Ómarsson, sem varð í 7. sæti með 3 v., og Sigurður Páll Stein- dórsson, sem varð í 8. sæti með 2!4 v. Björn ívar Karlsson varð níundi í D-flokki með 2V4 v. og Dagur Amgrímsson varð níundi í E-flokki með 2 v. Miðað við þennan frábæra ár- angur þarf ekki að koma á óvart að Islendingar urðu einnig efstir í liðakeppninni með 36 vinninga, en Finnar höfnuðu í öðra sæti með 34 v. Gestgjaf- amir Svíar komu þriðju með 3314 v. Árangur Braga er athyglis- verður að því leyti, að þetta er í fyrsta skipti frá 1989 að íslend- ingar sigra í B-flokki, en það ár varð Þröstur Amason Norður- landameistari í þessum flokki. Linares-mótið hafið Fyrsta umferðin á ofurmót- inu í Linares á Spáni fór fram á sunnudaginn. Keppendur era sjö talsins og era meðalstigin 2.752. Mótið nær því 21. styrk- leikaflokki FIDE. Indverjinn Anand var sá eini sem náði að vinna skák sína í fyrstu umferð. Hann vann Aleksei Shirov með svörtu í 55 leikjum. Önnur úrslit urðu þau að Vladímir Kramnik og Vasílí ívansjúk gerðu jafn- tefli í 58 leikjum og sömuleiðis Rússamir Peter Svidler og Gary Kasparov í 52 leikjum. Búlgarinn Veselin Topalov sat yfir í fyrstu umferð. Anand vann varnarsigur á Shirov, sem tefldi fulldjarft til sóknar og sat uppi með peða- veikleika. Indveijinn nuddaði þá skemmtilega af honum í enda- tafli með tveimur hrókum gegn drottningu: Hvítt: Shirov, Spáni Svart: Anand, Indlandi Caro-Kann-vöm 1. e4 - c6 2. d4 - d5 3. e5 - Bf5 4. Rf3 - e6 5. Be2 - c5 6. Be3 - cxd4 7. Rxd4 - Re7 8. c4 - Rbc6 9. Rc3 - Rxd4 10. Bxd4 - dxc4 11. Bxc4 - Rc6 12. Bb5 - Be7 13. 0-0 - 0-0 14. Bxc6 - bxc6 15. Re2 - c5 16. Bc3 - Db6 17. Rg3 - Bg6 18. Dg4 - Had8 19. h4 - h6 20. h5 - Bh7 21. f4 - c4+ 22. Kh2 - Bb4! 23. f5 - exf5 24. Rxf5 - Bxf5 25. Hxf5 - Bxc3 26. bxc3 - De6 27. Hafl - Hfe8 28. Hlf4 - Hd5 29. He4 - He7 30. Df4 - Hc7 31. Hxc4 31. - Dxf5 32. Dxf5 - Hxc4 33. Dbl - Hd8 34. Db7 - Hxc3 35. Dxa7 - Hcc8 36. a4 - Ha8 37. Dc7 - Hdc8 38. Db7 - He8 39. Dc6 - Hac8 40. Dd7 - Hcd8 41. Dc7 - Hd5 42. a5 - Hdxe5 43. a6 - H5e7 44. Dc6 - Hf8 45. Kh3 - Ha7 46. g4 - Hfa8 47. Kh4 - Hxa6 48. Db7 - Ha5 49. Dc6 - Hf8 50. Db6 - Hg5 51. Db3 - Kh8 52. Db4 - He8 53. Da4 - Hd8 54. De4 - f5! 55. gxf5 - Hf8 og Shirov gafst upp því hann tapar báðum peðum sínum. Hraðskákmót Islands Þau leiðu mistök urðu við rit- un skákþáttarins í laugardags- blaðið að Hraðskákmót íslands var sagt fara fram á röngum degi. Hið rétta er að mótið fer fram sunnudaginn 8. mars, dag- inn eftir að deildakeppni Skák- sambandsins lýkur. Lesendur era beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. Margeir Pétursson Daði Orn Jónsson hvorki fleiri né Guðjón Heiðar Valgarðsson Bragi Þorfinnsson Jón Viktor Gunnarsson í DAG VELIAKAJMDl Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakkir til Frétta- stofu Sjónvarps MIG langar að þakka Fréttastofu Sjónvarps fyrir frábæran Kastljós þátt um þunglyndi okkar Islendinga. Þátturinn var tímabært innlegg í um- ræðu um þessa vanlíðan sem hrjáir mai'gan Islend- inginn. Ég dáist að hrein- skilni Árna Tryggvasonar leikara og svo sannarlega trúi ég að hann hafi með því að koma fram gefið þeim Islendingum sem eiga við þennan sjúkdóm að etja, ákveðið þor til að takast á við hann. Mér langar einnig að þakka þessum unga fréttamanni sem stjórnaði þættinum fyrir hversu vel þátturinn var uppbyggður efnislega. Það er greinilegt að hann hefur lagt sig allan fram. Þá fannst mér einnig skemmtilegt hvernig hann var myndaður. Ég legg til að þessi þáttur verði end- ursýndur. Hann á fullt er- indi til okkar allra og ég og margir sem ég hef rætt við myndu vilja sjá hann aftur. Enn og aftur bestu þakkir til Fréttastofu Sjónvarps. Hrefna Jóhannesdóttir. Skattpíning eldri borgara MIG langar að láta í ljós óánægju og undrun yfir að fólk á efri árum skuli vera látið borga háan eignaskatt af fasteignunum sínum og fjármagnsskatt af inni- stæðum í bönkum. Við höf- um lagt okkur íram til að leggja fyrir og eignast smá upphæðir í bönkunum til að geta lifað nokkurn veginn áhyggjulausu lífi á efri ár- um. Við flest okkar reynum að vera í íbúðunum okkar sem lengst og höfum borg- að öll okkar gjöld skilvís- lega í gegnum árin og lagt okkur fram um að standa á eigin fótum án hjálpar. Ekki gátum við sent bömin okkar á baraaheimili og fengið þá hjálp sem unga fólkið fær í dag svo sem löng fæðingarorlof og m.fl. En okkur langar að geta stutt við bakið á fjölskyld- um okkar og lifað síðustu æviárin með reisn án þess að hafa fjárhagsáhyggjur og eiga svo fyrir útförinni. Látið fleiri í ykkur heyra. Eldri borgari Athugasemd VILHJÁLMUR hafði samband við Velvakanda og vildi hann gera athuga- semd við aðsenda grein sem birtist í Morgunblað- inu föstudaginn 20. febrú- ar er nefndist Veiðigjald og menntun: Reynsla Falklendinga eftir Þorvald Gylfason. Var hann ekki sammála höfundi þar sem hann segir: „Plássið er sem sagt á stærð við Gr- indavík." Vilhjálmur segir: Hann á sennilega við höf- uðborgina Stanley í því sambandi en eyjarnar sjálfar eru aðeins stærri en Vestfjarðakjálkinn. Og einnig segir hann að í við- bót við 2.000 manna íbúa- tölu sé herlið breta á eyj- unum um 2.500 manns og að rollur hafi verið um 750.000 fyrir ca. 3—4 árum. Vilhjálmur Alferðsson. Tapað/fundið Eyrnalokkur tapaðist LANGUR gulleyrnalokk- ur með þremur rákum, tapaðist ofarlega á Lauga- vegi sl. miðvikudag. Finn- andi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 587 0838. íþróttataska og rúskinnsjakki týndust BRÚN leðuríþróttataska með sundfötum í og svart- ur rúskinnsjakki hurfu úr bíl við Eggertsgötu. SKil- vís finnandi hafi samband við Unni í síma 552 0610. Fundarlaun. Dökk sjóngleraugu týndust DÖKK sjónleraugu týnd- ust laugardaginn 7. febrú- ar, sennilega á Laugaveg- inum. Skilvís finnandi hafi samband í síma 561 1445. Fundarlaun. BRIDS Umsjón Guðmundur l‘áll Arnarsnn SPIL dagsins er frá und- anúrslitaleik íslensku og bresku sveitanna um NEC- bikarinn í Yokohama í Jap- an. Austur gefur; allir á hættu. Norður A875 VÁK2 ♦ D43 *KD62 Vestur *DG4 V3 ♦ ÁG1098 *ÁG107 Austur * 1093 VG1074 ♦ 76 *9853 Suður *AK62 VD9865 ♦ K52 *4 í opna salnum spilaði Bjöm Eysteinsson tvö lauf dobluð í austur og fór einn niður. John Armstrong í suður hafði opnað á hjarta, sem gat verið fjórlitur, og Paul Hackett redoblaði síðan opnunardobl Karls Sigur- hjartarsonar í vestur. Bret- arnir ráku svo flóttann í tvö lauf og uppskáru 200. I lokaða salnum nennti Þorlákur Jónsson ekki að eltast við Hackett-bræðurna og stökk beint í fjögur hjörtu eftir sömu byijun: Vestur Norður Austur Suður Jason Þorl Justin Sævar Pass 1 hjarta Dobl 4hjörtu ADirpass Sævar Þorbjömsson var við stjómvölinn og fékk út spaðadrottningu. Hann tók slaginn og spilaði strax laufi. Jason drap á ásinn og hélt áfram með spaðann. Sævar tók slaginn og spilaði hjarta þrisvar og endaði x blindum. Hann henti tveimur spöðum niður í laufhjónin og tromp- aði lauf. Spilaði því næst smá- um tígli að drottningu blinds. Við því átti vörnin ekkert svar. Ef vestur drepur á ás- inn, fríast hjónin í tígli og sagnhafi gefur aðeins einn trompslag. Og ef vestur dúkkar (sem Jason gerði), mun drottning blinds eiga slaginn og síðan fæst tíundi slagurinn á hjartaníu í fram- hjáhlaupi þegar spaða er spilað úr borði. 620 til ís- lands og 9 IMPar. HÖGNI HREKKVÍSI /lEkiki klóna þxr-losaðu okkur i/i&þser!" Víkverji skrifar... EIR sem starfa við fjölmiðla þekkja það mæta vel, að þeim eru oft gerðar upp skoðanir eða ætl- uð vinnubrögð og annarlegar hvatir, sem eru víðs fjarri öllum veraleika. Þetta á ekki sízt við um starfsmenn ritstjórnar Morgunblaðsins en er áreiðanlega reynsla flestra, sem starfa við fjölmiðla. Að einhverju leyti eru þetta leifar frá liðnum tíma, þegar flokkapólitíkin hafði mikil áhrif á meðferð fjölmiðla á mönnum og afstöðu þeirra til mál- efna. Þetta er smátt og smátt að breyt- ast. Þó er grunnt á tortryggni og grunsemdum í garð fjölmiðla eins og berlega kom m.a. í ljós í orða- skiptum, sem Víkverji átti fyrir nokkru við tvo höfunda bréfa til Morgunblaðsins, sem töldu að sjón- armið borgarstjóra ættu ekki heima í íyrirsögn á frásögn af blaða- mannafundi þess embættismanns um tiltekið málefni. Slík tortryggni er afar óþægileg fyrir starfsmenn fjölmiðla enda þykir vafalaust flestum lítt eftir- sóknarvert að vera hafðir fyrir rangri sök. Það á við um starfsfólk fjölmiðla ekkert síður en stjóm- málamennina, sem taka virkan þátt í þjóðfélagsumræðunum frá degi til dags. Á öllum fjölmiðlum eru gerð mistök. Það á líka við um Morgun- blaðið. Stundum byggjast þau mis- tök á dómgreindarskorti, í öðrum tilvikutn á hugsunarleysi eða fljót- færni. í fæstum tilvikum er um út- hugsuð og skipulögð vinnubrögð að ræða, þótt dæmi séu um slíkt. XXX HÉR ER haft orð á þessu vegna þess að í dálki Víkverja sl. mið- vikudag var gefið í skyn, að Össur Skarphéðinsson, annar ritstjóri DV, ætti á einhvem hátt þátt í því að reyna að skekkja niðurstöðu skoð- anakönnunar á vegum blaðsins um fylgi flokkanna í borgarstjórnar- kosningunum í Reykjavík næsta vor og þó sérstaklega fylgi borgar- stjóraefna R-listans og D-listans. Eftir að höfundur dálksins hafði gefið þau svör, að hann mundi kjósa D-listann var hann ekki spurður frekar, en síðar kom í ljós í DV, að þeir, sem spurðir voru um afstöðu til listanna voru síðan spurðir áfram um afstöðu til borgarstjóraefnanna. Þetta vakti tortryggni höfundar Víkverjadálksins, sem vísaði til þess að annar ritstjóri blaðsins væri bæði þingmaður Alþýðuflokksins og svili borgarstjórans í Reykjavík. xxx MENN geta haft sínar skoðanir á því, hvort sami maður geti nú til dags gegnt bæði þing- mennsku og ritstjórastarfi á dag- blaði. Hins vegar er fráleitt að ætla Össuri Skarphéðinssyni það að hafa gefið starfsfólki við skoðanakannan- ir DV fyrirmæli um að spyrja ekki um fylgi við borgarstjóraefni, ef sá sem svaraði segðist mundu kjósa D- listann. Það er einfaldlega fáránlegt að ætla öðrum slík vinnubrögð auk þess, sem spyrjendur mundu aldrei fást til þess, jafnvel þótt farið væri fram á það. Hér er auðvitað um að ræða mis- tök þeirra, sem sitja við síma og hringja út og hringja sjálfsagt í fjölda manna, hver og einn. Slík mistök hafa ekkert með að gera pólitíska afstöðu ritstjóra blaðs. Og því síður fjölskyldutengsl!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.