Morgunblaðið - 08.03.1998, Side 14
14 SUNNUDAGUR 8. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
|
Heimsmetið í stangarstökki innanhúss enn einu sinni tekið af Bartovu
George fór
yfir 4,47 m
Astralska stúlkan Emma George
bætti heimsmetið í stangar-
stökki innanhúss aðfaramótt laug-
ardagsins að íslenskum tíma þegar
hún stökk yfir 4,47 metra á móti í
Adelaide í heimalandi sínu. Hún fór
yfir þessa hæð í fyrstu tilraun.
Tékkneska stúlkan Daniela Bartova
bætti heimsmetið á móti í Berlín í
Þýskalandi á föstudagskvöldið þeg-
ar hún fór yfir 4,46 metra en það
met stóð sem sagt aðeins í fáeinar
klukkustundir.
Emma George, sem er 23 ára, er
besti stangarstökkvari heims í
kvennaflokki; á nú heimsmetið bæði
innan- og utanhúss, en úti hefur hún
stokkið hæst 4,57 metra. Hún bætti
einmitt heimsmet sitt utanhúss um
tvo cm á móti í Auckland á Nýja-
Sjálandi fyrir tveimur vikum.
Heimsmetið í stangarstökki
kvenna innanhúss hefur fallið ört
undanfarið og er George fjórða
stúlkan sem bætir það á skömmum
tíma. George var sú fyrsta sem fór
yfir 4,40 metra innanhúss, í árslok
1996. Stacey Dragila frá Bandaríkj-
unum jafnaði það met snemma árs
1997 og það var ekki fyrr en á þessu
ári sem metið féll aftur. Og síðan
hefur það fallið jafnt og þétt, sem
hér segir:
Erfuhrt, Þýskalandi 4. fehmar:
Daniela Bartova, Tékklandi....4,41
Bielefeld, Þýskalandi, 6 febrúar:
VALA FLOSADÓTTIR.............4,42
Prag, Tékklandi 14. febrúar:
Daniela Bartova..............4,43
Eskilstuna, Svíþjóð 14. febrúar:
VALA FLOSADÓTTIR.............4,44
EM í Valencia, 1. mars: _
Anzhela Balakhonova, Úkraínu ...4,45
Alþjóðlegt mót í Berlín, 6 mars:
Daniela Bartova, Tékklandi....4,46
Adelaide Indoor Classics, 7. mars:
Emma George, Ástralíu........4,47
Athyglisvert er að í öll þrjú skipt-
in sem Daniela Bartova hefur bætt
heimsmetið á þessu ári hefur það
verið bætt aftur mjög skömmu síð-
ar. Eins og að ofan greinh- bætti
hún það fyrst 4. febrúar í Erfuhrt í
Þýskalandi, á sama móti og Vala
Flosadóttir fór yfir 4,35 m fyrst evr-
ópskra kvenna. Bartova jafnaði það
Evrópumet Völu aðeins um einni
mínútu síðar og bætti svo um betur
og setti heimsmet. Það stóð hins
vegar ekki nema í tvo daga, þar til
Vala bætti það í 4,42. Næst þegar
Bartova bætti metið stóð það hins
vegar ekki nema í um það bil hálfa
klukkustund; hún stökk í Prag en
Vala var á sænska meistaramótinu.
Fékk þangað fregnir af árangri
Bartovu og tók metið af henni strax.
Bartova bætti metið svo þriðja sinni
í fyrrakvöld en George bætti um
betur nokkrum klukkustundum síð-
ar.
Morgunblaðið/RAX
Hafa átt heimsmet
ÞRJÁR efstu stúlkurnar á Evrópumeistaramótinu í Valencia hafa allar
átt heimsmetið innanhúss á þessu ári. Frá vinstri: Daniela Bartova,
Anzhela Balakhonova og Vala Flosadóttir.
Reuters
Á heimsmetið úti og inni
EMMA George frá Ástralíu bætti heimsmetið innanhúss á móti í heimalandi sínu aðfararnótt laugardags.
Stökk þá 4,47 og bætti met Danielu Bartovu frá Tékklandi frá því kvöldið áður um einn sentímetra. George
hefur einnig stokkið hæst allra kvenna utanhúss, 4,57 m.
í
I
I
)
)
Mika fyrstur
FINNINN Mika Hakkinen á
McLaren Mercedes-Benz bif-
reið verður fremstur þegar
fyrsta keppni ársins í formúiu
1 kappakstri hefst aðfar-
arnótt sumiudags að íslensk-
um tínia í Mclbourne.
Hakkinen, sem sigraði í
fyrsta sinn á feriinum í síð-
ustu keppninni i fyrra, í Jerez
á Spáni, hélt sínu striki í gær
þegar tímataka fór fram að-
faramótt laugardagsins. Náði
þá besta tímanum, var fjórum
liundruðustu úr sekúndu á
undan samherja sínum David
Coulthard frá Bretiandi,
þannig að McLaren liðið á tvo
fremstu bflana þegar ekið
verður af stað í nótt.
Hakkinen ók hringinn á 1
mín., 30,010 sek. og meðai-
hraðinn var 212,096 km/klst.
sem er sjö hundruðustu úr
sekúndu lakari tími en
Jacques Villeneuve frá
Kanada náði fyrir þessa sömu
keppni í fyrra.
Guðjón með 500 leiki
GUÐJÓN Skúlason, landsliðs-
maður í körfuknattleik og leik-
maður Keflvíkinga, lék sinn 500.
meistaraflokksleik með liði sínu
gegn Þór frá Akureyri í Keflavík
á fimmtudaginn og var sérstak-
lega heiðraður við það tækifæri.
Þeir eru ekki margir sem hafa
náð þessum áfanga en Jón Kr.
Gíslason lék 529 meistaraflokks-
leiki með Keflavík og með sama
áframhaldi stefnir allt í að Guðjón
nái þeim áfanga og gott betur.
„Eg ætla að halda áfram á með-
an ég hef gaman af þessu og ég sé
mig ekki leggja skóna á hilluna á
næstunni," sagði Guðjón Skúlason
í samtali við Morgunblaðið af
þessu tilefni. Guðjón, sem er 31
árs, hefur leikið körfubolta síðan
1977 eða í 21 ár og hann varð ís-
landsmeistari í fyrsta sinn árið
1978 þá með Njarðvík í minni-
Srí®moistari
?3»994,1977
Morgunblaðið/Bjöni Blöndal
bolta. Hann hefur fjórum sinnum
orðið Islandsmeistari í meistara-
flokki með Keflavík, þrisvar sinn-
um bikarmeistari með Keflavík og
einu sinni bikai-meistari með Gr-
indavík.
Guðjón sagði að mikil breyting
hefði orðið á körfuknattleiknum á
þessu tímabili og þá sérstaklega á
síðustu 5-6 áraum. „Liðin eru orð-
iðn jafnari, það er miklu meiri
breidd og ég sé fjöldann allan af
ungum og efnilegum körfuknatt-
leiksmönnum sem eru að koma
upp. Eg held að við þurfum ekki
að kviða framtíðinni," sagði Guð-
jón Skúlason ennfremur.
Á myndinni afhendir Guðmund-
ur Bjarni Kristinsson, foi-maður
körfuknattleiksdeildar Keflavík-
ur, Guðjóni teikningu af honum
fyi-ir leikinn gegn Þór á fimmtu-
daginn.
i
'