Morgunblaðið - 08.03.1998, Page 48

Morgunblaðið - 08.03.1998, Page 48
SUNNUDAGUR 8. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ál Dýraglens Ég sé að Bíbí er að gera við hreiðrið sitt einu sinni enn ... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sírai 569 1100 • Símbréf 569 1329 Sagn(a)fræðing- urinn Guðjón Frá Páli Emi Líndal: HINN 28. febrúar sl. birtist í Morgunblaðinu grein eftir Guðjón Friðriksson, sagnfræðing, sem að mínu mati hefði betur aldrei farið á blað, hvað þá á prent. Guðjón fjall- ar um gagnrýni mína á skrif Karls A. Karlssonar, lektors, varðandi auglýsingar FIB, á þann máta að ekki verður hjá því skotist að koma fram athugasemdum. Gildismat Guðjóns Guðjón skrifar: „Eg man þó ekki betur en grein Karls hafí verið málefnaleg og án stóryrða.“ Um það hversu málefnaleg grein Karls var nægir að benda á greinar Þór- halls Jósepssonar og Stefáns Odds Magnússonar stjómarmanns í FÍB til að vísa skrifum Karls, og full- yrðingu Guðjóns, út í hafsauga. Má í raun líta framhjá minni grein um málið. Án stóryrða segir Guðjón. Nægir þar að grípa á nokkrum stöðum niður í grein Karls til að vísa þeirri fullyrðingu Guðjóns einnig ut í hafsauga: „Hann (inn- skot: Ami Sigfússon) hefur nú um nokkurt skeið, ... , gerst sekur um að misnota félagasamtök og félags- gjöld fólks úr öllum flokkum ... Hefur pólitísk misnotkun einhvern tíma verið jafn ósmekklega aug- ljós? ... Ámi Sigfússon (innskot: hefur) bmgðist þeim trúnaði sem honum var sýndur ... Sá sem ekki er trúr yfir litlu verður ekki yfir mikið settur.“ Skrifai- Karl lektor og gerir loks þau orð er Víkverji notaði til að lýsa misbeitingu fram- bjóðenda R-lista á opinberum íjöl- miðlum að sínum og skrifar: „Það er svo ógeðfellt að fylgjast með pólitík sem þessari...“ Finnist Guð- jóni þetta ekki vera stóryrt má hann vera undarlega innréttaður. Fræðimaðurinn hefði betur fylgt þeim gildum sem við eiga á hans fræðasviði og ekki átt að láta sér nægja að minnast þess að grein Karls hefði verið málefnaleg og án stóryrða án þess að kynna sér málið nánar. Misskilningur Guðjóns Guðjón segir að eftir því sem hann best viti sé Karl vandaður og sómakær maður. Um það fjallar málið hins vegar á engan hátt. Kjarni málsins er hvort maðurinn er trúverðugur í þeirri umræðu sem hann blandar sér í á opinber- um vettvangi, og það með gassa- gangi. Það er Karl hins vegar ekki og á það ber að benda. Kemur það tii af persónulegum vinskap við Ingibjörgu Sólrúnu, helsta póli- tíska andstæðing þess manns sem hann ræðst að, og því að sonur Karls er tengdur fyrirtæki sem fékk rekstur Iðnós í sínar hendur á vægast sagt umdeilanlegum for- sendum. Án útboðs! Líklegast er Karl hinn vænsti maður, aðeins í vondum félagsskap sem espar hann upp til slíkra skrifa. Ónákvæmni Guðjóns Steininn tekur fyrst úr þegar fræðimaðurinn Guðjón fjallar um grein mína frá 24. febrúar sl. Segir hann að ég „tali“ um fúkyrðaflaum þann er frá Karli hafí komið og spyr hvar sá fúkyrðaflaumur hafi birst. Það er rangt að ég hafí fjall- að um einhvem fúkyrðaflaum lekt- ors í bréfi mínu. Eg gerði orðaval Karls ekki að neinu umfjöllunar- efni. Eg vísaði hins vegar í bréf Þórhalls Jósepssonar er hann nefn- ir fúkyrðaflaum lektorsins. Eg get aftur á móti upplýst Guðjón, fyrst hann spyr, um að fúkyrðaflaumur Karls birtist í bréfí hans frá 30. janúar og eru dæmi tekin hér fyrr í greininni. Er það í fyrsta skipti sem ég nefni miður viðeigandi orðaval Karls lektors. Fræðimað- urinn sem gerði svo mikið úr að hann hefði leitað frumheimilda við gerð bókarinnar um Einar Beni- diktsson hefði betur rannsakað málið nánar í þetta skipti. Fram- heimildanna hér er að leita í grein Þórhalls Jósepssonar en ekki minni og fór það vart framhjá nokkram manni sem grein mína las hvert var vísað. Ekki trúi ég Guð- jón vildi sjálfur vera gerður ábyrg- ur fyrir pólitískum skrifum Einars Benediktssonar vegna þess eins að hann skrifaði bók um manninn. Ólíkindalega tekst Guðjóni upp næst þegar hann vísar í skrif mín: „Meðal annars er sagt að sést hafí til Karls í sjónvarpsþætti heima hjá Ingibjörgu Sólrúnu borgar- stjóra!" Aftur er framheimildanna að leita í skrifum Þórhalls sem ég vísa í grein minni í en Guðjón skeytir engu um. Ónákvæmni Guð- jóns er áfram söm við sig því ekki er sagt í grein minni, né grein Þór- halls sem ég vísa í, að sést hafi til Karls heima hjá Ingibjörgu í sjón- vai-psþættinum heldur að Ingi- björg hafi í þættinum sýnt myndir úr fjölskyldusafninu, og þar var mynd af Karli, í fríi með Ingi- björgu og fjölskyldu í Portúgal. Hvort Karl hafi komið heim til Ingibjargar hirði ég ekki um þó ég telji það vel trúlegt. Hvatir Guðjóns Eg kom í bréfi mínu inn á hvatir þær er drifu Karl til að skrifa bréf sitt. Eg geri vart ráð fyrir að ástæða þess að Guðjón blandi sér í þessa umræðu sé að kona hans er vinkona Ingibjargar Sólrúnar og var ráðin móttökustjóri borgarinn- ar í ársbyrjun 1997 án auglýsingar, en annar maður mátti taka pokann sinn fjTÍr vikið. Og þó. Mér sýnast öll vötn falla til Dýrafjarðar í þessu máli en at- hyglisvert er hve allir bitlingaþeg- arnir era velgjörðarkonu sinni trú- ir og vilja veg hennar í pólitískri baráttu sem mestan. PÁLL ÖRN LÍNDAL, Laugarnesvegi 69, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.