Morgunblaðið - 08.03.1998, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 SUNNUDAGUR 8. MARZ 1998
Vinnumiðlun
Skólal’ólks
lisdsrí is« íiiðrs
57,1/5
Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum
á mann í gistingu í smáhýsum
í Los Pallales í 2 vikur, miðað við
2 fullorðna og tvö börn 2-11 ára
65.000 kr.
á mann miðað við 2 fullorðna
Innifalið: Flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar.
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík
Sími: 568 2277 • Fax: 568 2274
Buxur
kr. 2*490
\
n
LADIES ONLY"
á Hótel Örk
föstudagskvöldið 20. mars
Innifalið:
Fordrykkur,
þríréttaður kvöldverður,
óvæntur glaðningur, gisting
og morgunmatur af hlaðborði.
Verð kr. 4.950
Upplýsingar og bókanir ó Hótel Örk, Hveragerði.
LYKIL
HÓTEL
Lykillinn að íslenskri gestrisni
Hveragerði - sími 483 4700, bréfsími 483 4775
MYNPBÖND
Frábært
grín
Austin Powers: Dularfulli
njósnarinn
(Austin Powers: International Man
of Mystery)________
(lamanmynd
★★★
Framleiðandi: Moving Pict-
ures/Ericls Boy. Leikstjóri: Jay
Roach. Handritshöfundur: Mike
Myers. Kvikmyndataka: Peter Dem-
ing. Tónlist: George S. Clinton. Aðal-
hlutverk: Mike Myers, Elisabeth
Hurley. 88 mín. Bretland. Capella
Int./Háskólabíó. Útgáfud: 3. mars.
Myndin er öllum leyfð.
MIKE Myers er frábær. Hann
er yndislegur grínleikari og greini-
lega með mikið hugmyndaflug því
handritið að Austin Powers er
mjög þétt, hug-
myndaríkt og fynd-
ið. Þar gerir hann
gys að 007 njósnar-
anum James Bond,
kvenhylli hans,
brögðum og hvern-
ig persónur, sið-
ferði og boðskapur
hafa breyst mikið á þessum þrem-
ur áratugum, og ekki síst þá karl-
og kvenímyndirnar. Fyrirmyndin
er myndir sjöunda áratugarins en
bæði Austin og helsti óvinur hans
dr. Illur (báðir leiknir af Mike
Myers) voru lághitafrystir árið
1967 og endurlífgaðir 1997 og eru
því ekki alveg með á nótunum.
Búningamir og leikmyndin eru
svo vel gerð að halda mætti að
myndin væri gerð fyrir 30 árum og
er það stór partur af gríninu. Tón-
listin er líka í anda tímabilsins.
Burt Bacharach fær þar svo stóran
sess að hann kemur fram í mynd-
inni. Hann er ekki sá eini sem kem-
ur á óvart, vinsælir leikarar eru í
aukahlutverkum, og yfir það heila
er sérlega skemmtilega valið í hlut-
verk myndarinnar. Michael York
hefur ekki oft sést í gamanmynd en
pg,ssar vel sem yfirmaður bresku
njósnaradeildarinnar og Richard
Wagner er náttúrulega fullkominn
sem undirmaður dr. Ills. Elisabeth
Hurley sem aðallega er fræg fyrir
að vera kona mannsins síns leikur
ungfrú Kensington, aðalgelluna í
myndinni og helsta samstarfsmann
Austins. Hún leikur ekki illa, en
hefði alveg getað verið skemmti-
legri persóna og meira lifandi mið-
að við alla aðra í myndinni.
Fáránleikinn ræður ríkjum í þess-
ari mynd sem er samt að segja eitt-
hvað skemmtilegt um leið, svona
undir niðri.
Hildur Loftsdóttir
- kjarni málsins!