Morgunblaðið - 08.03.1998, Page 40

Morgunblaðið - 08.03.1998, Page 40
40 SUNNUDAGUR 8. MARZ 1998 *---------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BJARNI ÞÓRÐARSON Bjarni Þórðarson var fæddur á Reykjum á Skeiðum 1. aprfl 1914. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 1. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Skálholtskirkju 7. mars. Bjami Þórðarson bóndi á Reykjum á Skeiðum er látinn. ifeann lést eftir stutta sjúkrahúsvist, þrotinn að kröftum eftir langan og strangan vinnudag. Foreldrar Bjama vom hjónin Þórður Þor- steinsson bóndi á Reykjum, sem fæddur var þar árið 1877 og Guðrún Jónsdóttir, fædd í Sandlækjarkoti árið 1879. Þau vora bæði uppalin í stóram systkinahópi á vel bjargálna dugnaðarheimilum og vöndust frá blautu bamsbeini vinnusemi og myndarskap í öllu heimilishaldi og þótti ágætt jafnræði með þeim, þeg- ar þau giftust og tóku við búi á Reykjum árið 1906. Bömin urðu þrettán en þrjú dóu í frambernsku - og tíu komust upp, sex synir og fjórar dætur. Þrír sonanna urðu bændur á Reykjum, tveir smiðir á Selfossi og einn starfsmaður á Hótel Sögu í Reykjavík. Dæturnar settust þrjár að á Selfossi, en ein í Reykjavík. Þessi systkini voru öll vel gerð til líkama og sálar og barnabörnin nærri 40, flest fallegt og gjörvulegt fólk og með fjölþætta hæfileika. Bjarni ólst upp í föðurgarði og var alla tíð stoð og stytta foreldra sinna, þangað til hann tók við búinu, ^þ.e.a.s. gömlu byggingunum og þriðja hluta jarðarinnar, en þeir bræður Þorsteinn, Bjami og Ingvar áttu lengi vélar og tæki í félagi og unnu mikið saman og studdu dyggi- lega hver annan meðan börnin vora að ná þroska. Bjami kvæntist árið 1946 Sig- urlaugu Sigurjónsdótt- ur bónda í Hraunkoti og Magneu Pétursdótt- ur, en þau vora bæði ættuð úr A-Skaftafells- sýslu. Börn þeirra Bjarna og Sigurlaugar urðu sex, fimm stúlkur og einn sonur. Elst er Magnea, gift Böðvari Guðmundssyni skóg- fræðingi, og eiga þau þrjú böm, önnur var Kristjana sem lést af slysforam á unga aldri, þriðja er Guðrún hjúkranarfræðingur, gift Árna Svavarssyni verslunarmanni í Reykjavík og eiga þau tvö böm, fjórða er Þórdís, hún átti einn son á unga aldri en er nú gift Ara Einars- syni bónda á Hæli, fimmta er Sig- rún Asta gift Hauki Haraldssyni bónda í St.-Mástungu og eiga þau tvö böm og svo er það sonurinn Rúnar, kvæntur Ingibjörgu Páls- dóttur frá Syðri-Gróf, en þau hófu búskap á Reykjum 1981 og eiga þrjú börn. Foreldrar Bjarna, þau Þórður og Guðrún vora bæði af hinni rómuðu aldamótakynslóð, sem upplifði í frambemsku harðindaárin á milli 1880 og ‘90, þegar uppblásturinn sópaði burt stóram hluta graslendis í Landsveit og Rangárvöllum. A Reykjum á Skeiðum magnaðist þá upp stórkostlegur uppblástur, sem hófst uppi við Stóra-Laxá og æddi svo fram yfir Reykjaheiðina í tveim- ur breiðum geirum, öðram vestan við bæinn á Reykjum og stefndi austan við Húsatóftaholt, á allt graslendið á Austur-Skeiðum, en hinn geirinn fór austan við bæinn og fram yfir réttirnar og komst fram á Heiðarbarð. Síðan komu jarðskjálft- arnir 1896 og eyðilögðu meira og minna flest mannvirki á jörðinni. t Móðursystir okkar, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR BJÖRNSON, 2914 46th Ave. S. 55406, Minneapolis, Minnesota, andaðist á heimili sínu í Minneapolis föstudaginn 6. mars. Rannveig Ingvarsdóttir, Arnfríður Ingvarsdóttir, Einar Ingvarsson, Anna Sigrfður Ingvarsdóttir, Hulda Biering, Rannveig Biering. t Dóttir mín, systir og mágkona, INGUNN THORLACIUS, Landspítalanum, Kópavogi, deild 8, andaðist þriðjudaginn 3. mars síðastliðinn. Ingunr. verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 11. mars nk. kl. 13.30. Jón Thorlacius, Edda Thorlacius, Árni O. Thorlacius, Magnþóra Magnúsdóttir, Anna G. Thorlacius, Guðmundur G. Gunnarsson. + Móðir okkar, er látin. SÓLVEIG BJÖRNSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, Sólveig Ásgeirsdóttir, Hrafnkell Ásgeirsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir. Fólkið sem ólst upp við þessi spjöll náttúrunnar, en hélt samt ótrautt út í búskapinn, hafði fengið þá herslu sem þurfti til að takast á við óblíð náttúraöflin. Þó að lífsbaráttan væri hörð hjá þeim sem hófu búskap í upphafi tuttugustu aldarinnar þá var unga fólkið bjartsýnna þá en áður hafði þekkst, og við lítil efni leituðu marg- ir sér nokkurrar menntunar og hér var það fyrst og fremst Héraðsskól- inn á Laugarvatni, eftir að hann tók til starfa, sem var fyrsta stökkbrett- ið, ef komast ætti eitthvað í mennt- un af einhverju tagi, og síðan kom Iðnskólinn á Selfossi í góðar þarfir, þegar hann tók til starfa á meðan síðari heimsstyrjöldin geisaði. En við verðum að viðurkenna að öll starfsmenntun var hér mjög lítil og fálmandi og t.d. í landbúnaðinum stóð allt fast og starfsfræðslu óvíða að fá, fyrr en eftir að heimsstyrjöld- inni lauk um miðjan fimmta áratug aldarinnar. Það var þá sem bræð- umir þrír, Þorsteinn, Bjami og Ingvar, réðust í það að skipta foður- leifðinni Reykjum á Skeiðum í þrjá hluta og stofna þar þrjú sjálfstæð býli. Fyrsta verkefnið yrði þá að byggja ný hús yfir fólk og fénað, síðan að rækta ný tún og bæta þau sem fyrir vora og ekkert af þessu þoldi bið. Ég sem held hér um pennann tók við ráðunautsstarfi um þessar mundir og fylgdist með þessum framkvæmdum og því vinnuálagi sem þetta unga fólk varð að bera. Ég minnist þess hve vinnugleðin var þama mikil og ég veit að þetta átak, að þrefalda búskaparmöguleikana á Reykjum á fáum áram hefði aldrei tekist, ef þetta unga fólk hefði ekki kunnað að vinna saman eins og með þurfti, til þess að hámarksnýting á vélum og hjálpartækjum næðist. Ég minnist þess að ég kynntist því eitt sinn á þessum áram, hvað þessi samvinna og samhjálp hafði mótað framkomu og gerðir bræðranna þriggja. Þannig vildi til að ég var að flytja eitthvað um eitt tonn af sem- enti, sem ég ætlaði að nota uppi í Hrepp, en þá eyðilagðist fyrirvara- laust annað dekkið undir kerrunni, og í ljós kom að varadekkið mitt passaði ekki undir kerrana. Þar sem óhappið vildi til á móts við bæinn á Reykjum, þá gekk ég heim að bæn- um til að ná í síma ef einhver ráð fyndust til að ná í dekk sem passaði. Ég hitti þannig á að bræðumir þrír vora í samvinnu um votheysgerð og unnu þama af þeirra alkunna kappi rennsveittir og langt komnir með að fylla tóftina. Eg sagði þeim frá mín- um ófórum, en þeir töldu nú ekki mikinn vanda að ráða fram úr því. Þeir gætu alveg eins hætt hirðing- unni þegar þeir hefðu losað af vagn- inum, og það var sama hvað ég sagði, þeir tóku annað hjólið undan vagninum og hjálpuðu mér svo að koma því undir, og sögðu að ég gæti svo sent það daginn eftir með mjólk- urbílnum og þá væri kannski komið eitthvert borð á súrheysgryfjufjand- ann, sem tæki alltof lítið. Þessum greiða hef ég nú aldrei getað gleymt og aldrei getað borgað eins og vert væri, en í hvert sinn sem ég hugsa til þessa vinarbragðs fer um mig hlýr straumur þakklætis til bræðr- anna þriggja, sem höfðu lært að hjálpa öðram að leysa þeirra vanda og var tamt að láta eigin hag víkja ef nauðsynlegt væri. Ég veit að enn í dag ef einhverja erfiðleika ber að höndum á Reykja- bæjunum era allir tilbúnir að hjálpa og njóta þess að veita þá hjálp. Bjarni var vel í meðallagi á hæð, með góðlegan svip og fast handtak. Hann var þreklega vaxinn og verk- maður ágætur og hlífði sér aldrei þegar hann var í hópvinnu. Ég minnist þess að það var stundum gert sér til skemmtunar á sumar- skemmtunum á Álfaskeiði að grannsveitimar, Hreppar og Skeið, SÓFUS EMIL HÁLFDÁNARSON +Sófus Emil Hálf- dánarson fædd- ist í Stykkishólmi 25. júnf 1904. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 2. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Málfríður Valentínusdóttir og Hálfdán Eiríksson. Varð þeim sjö sona auðið. Þeir eru: Sóf- us Emil, Valentínus, látinn, Gunnar, Karl, látinn, Grómundur, látinn, Þórhallur og Davíð. Árið 1937 kvæntist Sófus, Sylvíu Guðbjörgu Halldórsdótt- ur, f. 23. mars 1917, d. 17. ágúst 1966. Foreldrar hennar voru Helga Jónsdóttir og Halldór Magnússon. Börn Sylvíu og Sófusar eru Þórarinn Karl, f. 4. október 1938, Gústav, f. 22. júní 1940, og Helga, f. 17. ágúst 1950. Sófus fór átta ára gamall frá Stykkis- hólmi að Hæli í Gnúpverjahreppi og ólst upp hjá Mar- gréti Gísladóttur og Gesti Einarssyni. Hann dvaldi þar til ársins 1924, er hann fór til náms í Flens- borgarskólanum í Hafnarfirði. Ári síð- ar fer Sófus til sjós á togara og er til sjós til ársins 1974 er hann hætti vegna slyss sem hann varð fyrir. Frá 1980 hefur Sófus dvalið á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Útför Sófusar fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 9. mars, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hann afi minn er dáinn. Þegar maður hugsar til baka rifjast upp að við áttum margar góðar stundir sam- an. Alltaf var gaman að fara með pabba til afa á Hrafnistu, sjá hann spila með vinum sínum eða sem var fKWWVwp * -. 2 1 2 1 5 1 2 I Fersk blóm og skreytingar við öll tœkifœri Opið til kl.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, sími 568 9120 O 1 5 Í 2 I 3 1 nú algengast að sjá hann vinna í kjall- aranum við hnýtingar og ýmsa neta- gerð. Ég leit alltaf á Sófus afa sem vin. Hann tók alltaf þátt í mínum æv- intýram hvort sem það var hér heima eða erlendis. Þegar ég var að bytja í grunnskóla sagði ég afa mínum að mig langaði að verða þyrluflugmaður. Hann tók því vel og spurði mig reglu- lega hvenær ég ætlaði að byrja og nú fyrir nokkram vikum sagði hann mér að nú væri rétti tíminn. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Oisen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 • Sírni 581 3300 Allan sólarhringinn. reyndu með sér í reiptogi. Eftir að Skeiðamenn fundu upp á því að setja Bjarna á Reykjum í endann á kaðlinum unnu þeir reiptogið, því að Bjarni var eins og akkeri sem hagg- ast ekki ef það nær í botn. Og Bjarna varð sjaldan aflfátt. Bjarni var góður bóndi, átti góða gripi og fór vel með þá og var áhugamaður um ræktun þeirra og góður félagsmaður í ræktunarfélög- um allra búfjártegunda. En í bú- skapnum var það þyngst á metun- um hve samhent þau vora Bjami og Sigurlaug um búskapinn og heimil- ishaldið og bömin reyndust vel vinnandi og gott heimilisfólk. Saga sandgræðslunnar hefst að nokkra leyti á Reykjum á Skeiðum, en það var þar sem Gunnlaugur Kristmundsson hóf sitt stórmerka sandgræðslustarf. Honum tókst að vekja áhuga Skeiðamanna og fólks- ins á Reykjum og þar var byrjað á því að stöðva sandfokið með mörg- um samhliða grjótgörðum, sem hlaðnir vora með nokkra millibili þvert á aðalvindáttina. Glíman við uppblásturinn hjá Reykjum stóð í marga áratugi og henni lauk með al- gerum sigri gróðuraflanna, og þá sögu ætti að kenna í öllum bama- skólum landsins, því að saga þeirrar orrastu er svo falleg, því að þar tap- aði enginn en gróðuröflin sem sigr- uðu svartan sandinn hlutu sigur- launin, sem era fyrst og fremst Reykjabýlin þrjú, þar sem gjöful tún og akrar breiða sig nú út yfir gömlu uppblástursgeirana og töðuilmurinn fyllir nú vitin á hirð- ingardögum á þessum góðbýlum. Um leið og ég þakka Bjama hans góða og óeigingjama ævistarf þá þakka ég konu hans henni Sigur- laugu hennar góða húsmóðurstarf við hans hlið og sendi allri fjölskyld- unni mínar innilegustu samúðar- kveðjur nú þegar hann Bjarni kveð- ur okkur. Hjalti Gestsson. Alltaf fékk hann að frétta allt frá mér fyrstur. Ég sagði honum frá frumburðinum, frá trúlofuninni og hann hitti meira segja hana Sollu mína á undan mömmu og pabba. Og nú síðast þá sagði ég honum frá væntanlegri giftingu í september en þar verður hann með mér í hugan- um. Afi var alltaf vel inni í öllum frétt- um og fyldist vel með jafnt hér heima sem erlendis. Hann fylgdist vel með börnunum sínum sem barnabörnum og veit ég að ég get sagt fyrir okkur öll að við munum sakna hans stórlega. Afi tók einnig vel á móti barnabarnabörnunum sín- um þegar þau komu í heimsókn og hún Sara mín var alltaf til í að heim- sækja hann langafa sinn. Hún fékk að prófa stafinn hans, skoða í skúff- urnar og í ísskápinn en þar var alltaf til kók. Það minnti mig mikið á mig þegar ég fór í heimsókn með pabba mínum. Að lokum vil ég senda þakkir til alls starfsfólks á Hrafnistu í Hafnar- firði fyrir að hugsa svo vel um hann afa minn. Við minnumst hans með söknuði og hlýju og vonumst til að minningar um hann færi fjölskyldu og vinum styrk. Bless, bless, afi. Sófus Gústavsson og Qölskylda. Elsku afi. Nú er langri ævi lokið og komið að kveðjustund. Minning- arnar streyma fram frá öllum okkar samverastundum í gegnum árin. Sérstaklega minnumst við þess er við bjuggum hjá þér bæði á Hvaleyr- arbrautinni og á Akranesi, hvað það var gott að hafa þig hjá sér. Alltaf gátum við gengið að þér og beðið þig að spila við okkur sem þú gerðir með glöðu geði og endalausri þolinmæði. Seinni árin þegar þú bjóst á Hrafn- istu í Hafnarfmði var alltaf ánægju- legt að koma til þín. Þú varst alltaf svo glaður og ánægður að sjá okkur. Sérstaklega lagnar okkur að þakka fyrir að þú fékkst að kynnast börn- unum okkar. Þeim fannst alltaf óskaplega gaman og spennandi að heimsækja langafa á Hrafnistu. Við þökkum þér, elsku besti afi, fyrir allt. Minningin um þig lifir áfram í hjarta okkar. Hvíl í friði. Sylvía og Fanney.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.