Morgunblaðið - 26.04.1998, Side 1
112 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
93. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Starað framan í óvættina
Reuters
HINN eins árs gamli Kohei Inami starir framan í grímuklæddan
dómara í upphafí áriegrar grátkeppni japanskra barna í Sensoj-
musterinu í Tókýó í gær. Yfír 70 smábörn, sem öll eru fædd á
árinu 1997, tóku þátt í keppninni, þar sem þau börn sem grétu
fyrst og grenjuðu hæst unnu til viðurkenninga. Hin hefðbundna
grátkeppni er haldin árlega um allt Japan, en að baki henni
liggur sú forna trú Japana að þátttaka í henni tryggi börnunum
heilbrigðan þroska.
Horfur á að verkfall 400.000 verkamanna hefjist í Danmörku í nótt
Lamast danskt þjóðfélag?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Skipbrots-
manna leitað
VÉÐTÆK leit var hafín í gærmorgun að
fímm manna áhöfn brezks flutningaskips,
sem talið er að hafí sokkið í Norðursjó, um
30 km undan strönd N-Englands. Neyðar-
kall var gefið út frá skipinu, sem er 1.000
lesta og skráð í Belize, á öðrum tímanum
aðfaranótt laugardags. Það var á leið með
grjótfarm frá Berwick á Skotlandi til
Hollands. Er áliðið var morguns hafði
ekki fundizt annað en björgunarbátur á
hvolfi, eitt eða tvö björgunarbelti á floti
og lítilsháttar olíubrák. I febrúar sl. höfðu
eftirlitsmenn brezkra yfirvalda haldið
skipinu í fimm daga siglingabanni vegna
athugasemda við haffærni þess og örygg-
isbúnað.
Lítil kjörsókn
FLESTIR kjósendur í Nígeríu virðast hafa
farið að áskorun stjórnarandstöðunnar
um að sniðganga þingkosningar sem fram
fóru í þessu fjölmennasta nki Afríku í
gær. Kjörsókn var mjög dræm og því útlit
fyrir að kjósendur styddu mótmæli stjórn-
arandstöðunnar gegn Sani Abacha, leið-
toga lierforingjastjómarinnar, sem verið
hefur við völd síðan 1993.
Kaþólikki myrtur
UNGUR kaþólikki fannst myrtur nærri
járnbrautarstöð í þorpi norðan Belfast í
gærmorgun. Óttast var að hann væri síð-
asta fórnarlambið í átökum öfgamanna úr
röðum andstæðra fylkinga kaþólikka og
mótmælenda á Norður-Irlandi, sem hafa
ekki látið af ofbeldisverkum þrátt fyrir
sögulegt friðarsamkomulag sem undirrit-
að var fyrr í þessum mánuði og kosið
verður um í þjóðaratkvæðagreiðslu 22.
maí. Samkvæmt frásögn sjónvarpsstöðv-
arinnar Sky handtók lögregla tvo menn
vegna morðsins í gær.
Óvænt úrslit
JOSE Borrell, fyrrverandi ráðherra í rík-
isstjórn spænskra sósíalista, þakkaði í gær
flokksmönnum sínum stuðninginn við sig
sem forsætisráðherraefni
fiokksins, en hann sigraði
óvænt frambjóðanda
flokksforystunnar í próf-
kjöri sem fram fór í
fyrradag.
Borrell hefur farið sín-
ar eigin leiðir á pólitísk-
um ferli sínum og haldið
sig fjarri arfleifð Felipe
Gonzalez, fyrrverandi
flokksleiðtoga og forsætisráðherra, og því
kom á óvart að hann skyldi slá út núver-
andi leiðtoga flokksins, Joaquin Almunia,
sem einnig sóttist eftir útnefningunni. Sig-
ur Borrells þýðir að hann mun mæta Jose
Maria Aznar, núverandi forsætisráðherra
og leiðtoga Lýðfiokksins, í næstu þing-
kosningum, sem væntanlega fara fram
snemma á árinu 2000.
„ÞETTA getur ekki verið satt,“ sögðu margir
Danir í gær, þegar spádómar fjölmiðla um það
hvernig verði umhorfs í landinu eftir viku-
verkfall eða svo fóru að birtast.
Utlit er fyrir að fátt geti afstýrt þvi að verk-
fall hefjist í nótt hjá um 400 þúsund manns
sem starfa við flutninga, iðnaðarstörf og þjón-
ustustörf eins og hreingerningar. Það tekur að
öllum líkindum innan við viku að koma öllu
þjóðlífinu á kné ef af verkfallinu verður, því
áhrifin breiðast hratt út, auk þess sem samúð-
arverkföll og verkbönn bætast við. Landið ein-
angrast þar sem flug leggst niður og í gær
funduðu SAS-starfsmenn vegna verkbanns
sem á þá verður sett svo seinkun varð á utan-
landsflugi. Flugleiðavélar fara í dag tvær
aukaferðir frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur,
klukkan 23 og svo í nótt.
Jafnt stjórnmálamenn sem blaða- og frétta-
menn vöknuðu upp við vondan draum á föstu-
dagsmorgun þegar það spurðist út að nýgerð-
um samningum hefði verið hafnað í atkvæða-
greiðslu, en slíkt hefur ekki gerst síðan 1956,
þegar mjög hörð verkfallsátök sigldu í kjölfar-
ið. Svarið var skýrt. Tæplega sex af hverjum
tíu höfnuðu samningunum.
Eftir að úrslitin urðu ljós eru fulltrúar
vinnuveitenda jafnharðir á að frekari kostir
séu ekki til umræðu. Forsvarsmenn launþega
hafi samþykkt samningana og verði nú að
leysa vanda sinn sjálfir gagnvart launþegum
og hafa atvinnurekendur neitað að taka aftur
upp samningaviðræður.
Fræðilega séð getur stjórn Jafnaðarmanna
og Róttæka vinstriflokksins gripið strax í
taumana með því að setja gerða samninga í
lög, en ekki þykir líklegt að hún geri það
strax, því það gæti þótt ögrandi gagnvart
verkalýðshreyfingunni. Vinstriflokkarnir
myndu standa gegn slíkri atlögu og hægri-
flokkarnir segja ekki koma til greina að setja í
lög neitt annað en samninginn. Anders Fogh
Rasmussen, formaður Venstre, segir ekki
koma til greina að launþegum verði komið upp
á að þeir fái meira út úr bráðabirgðalögum en
samningum og fleiri taka í sama streng.
Áhrifín víðtæk
Mjólk og aðrar nauðsynjavörur voru víðast
hvar uppurnar í gær og vart hefur sést önnur
eins örtröð í kjörbúðum, þar sem fólk hamstr-
ar einkum klósettpappír, pasta og niðursuðu-
vörur. Flutningar í búðir lamast vegna verk-
fallanna, svo búðirnar hafa aðeins þær vörur
sem fyrir eru. Bensínstöðvum verður ekki
lokað, en þegar bensínið þrýtur þar verður
ekki hægt að fylla á geymana. Hluti almenn-
ingsvagna gengur, en mun stöðvast þegar
bensínið er búið og sama verður með leigu-
bíla.
I góðærinu á
að búa í haginn
BYGGJUM
Á LANGRI
REYNSLU
Dýrasta
heilbrigðisvanda
mál í heimi