Morgunblaðið - 04.06.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 53
FRÉTTIR
Niðjamót í
Reykjanesi við
Isafj arðardjúp
NIÐJAMÓT verður haldið í
Reykjanesi við ísafjarðardjúp
dagana 26.-28. júní nk. Þar koma
saman niðjar Ólafs Jónssonar
bónda í Lágadal og Reykjafírði
við Djúp og eiginkvenna hans,
Salvarar og Evlalíu Sigríðar Kri-
stjánsdætra.
Ólafur fæddist hinn 12. júlí 1847
í Lágadal, sonur hjónanna þar,
Jóns Jónssonar og Margrétar
Ólafsdóttur (af Kirkjubólsætt).
Ólafur var bóndi í Lágadal
1871-1890 en fluttist þá með fjöl-
skyldu sína að Reykjafirði og bjó
þar til um 1920. Hann lést 28. okt.
1942. Ólafur var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Salvör Krist-
jánsdóttir, f. 14. sept. 1850, d. 20.
apr. 1884. Hún var dóttir Krist-
jáns Bjarnasonar frá Kambsnesi
og k.h. Guðrúnar Guðmundsdótt-
ur (af Eyrardalsætt). Þau áttu sex
börn, af þeim komust þrjú á legg;
Ki-istján Bjarni bóndi og sjómað-
ur, Jón Andrés trésmiður og Ólaf-
ur bóndi í Skálavík við Djúp.
Seinni kona Ólafs hét Evlalía
Sigríður Kristjánsdóttir, f. 1. apr.
1857, d. 17. júní 1940, systir fyrri
konu. Þau eignuðust tíu börn, en
af þeim lifðu þrjú; Salvar bóndi í
Reykjarfirði, Gróa ljósmóðh- og
Guðrún húsmæðrakennarí. Af-
komendur þeh'ra hjóna munu
vera um 300.
Gert er ráð fyrir að mótsgestir
komi á staðinn á fóstudag, 26.
júní, en formleg setning ættar-
mótsins fer fram á laugardag.
Fjölbreytt dagski'á verður í boði,
sameiginleg máltíð á laugardegi
og dans á eftir, leikir og létt gam-
an. Möguleiki er á bátsferð í Vig-
ur á sunnudegi.
Hægt er að tilkynna þátttöku til
Gróu Salvars og panta hjá henni
gistingu, sömuleiðis tjaldstæði og
svefnpokapláss, eða hjá Ferða-
þjónustunni í Reykjanesi.
Minnisvarði afhjúp-
aður á Akranesi
Fjallað um EES-rétt
og undirbúning
lagasetningar
TIL AÐ minnast þess atburðar í
sögu Akraness og heiðra minningu
þeirra sem fórust með sex manna
farinu Hafmeyjunni 17. september
árið 1905 við Suðurflös, yst á Akra-
nesi, hefur Kiwanisklúbburinn
Þyrill látið gera minnisvarða sem
Bjarni Þór Bjarnason, bæjarlista-
maður á Aki'anesi, hefur hannað.
Með bátnum fórstu 11 manns, í
þeim hópi voru fimm systkini frá
bænum Kringlu og þrír bræður frá
bænum Innsta-Vogi.
Minnisvarðanum hefur verið val-
inn staður við gamla vitann á Suð-
urflös, rétt við þann stað þar sem
Hafmeyjan fórst.
Biskupinn yfir íslandi, Karl Sig-
urbjörnsson, mun afhjúpa minnis-
varðann og sr. Eðvarð Ingólfsson,
prestur á Akranesi, flytja minning-
arorð. Þessi athöfn verður við minn-
isvarðann laugardaginn 6. júní, dag-
inn fyrir sjómannadag, og hefst kl.
14. Á eftir er boðið til veitinga í húsi
Kiwanis á Vesturgötu 48, Akranesi.
/
Attugasta
þing stór-
stúkunnar
STÓRSTÚKUÞING, það áttug-
asta frá upphafi, verður í
Templarahöllinni 4.-6. júní nk.
Það hefst með unglinga-
regluþingi fímmtudaginn 4.
júní kl. 10 árdegis.
Um kvöldið kl. 20 er boðið til
opins stúkufundar í Templara;
höllinni og hefst hann kl. 20. Á
þann fund eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfír. Verður
þar rætt um áfengismál og
vímuvarnir. Einnig verða flutt
skemmtiatriði.
Sjálft stórstúkuþinghaldið
hefst svo á föstudegi með guðs-
þjónustu í Hallgrímskirkju kl.
10.30 árdegis. Þar prédikar sr.
Eðvarð Ingólfsson á Akranesi.
I lok þinghaldsins er fulltrúum
boðið til móttöku í Höfða á
laugardag 6. júní kl. 16.
AÐALFUNDUR Hringsins var
haldinn 16. apríl sl. á Grand
Hóteli. Hringurinn var stofnaður
árið 1904 og er því 94 ára. Félagið
hefur alla tíð starfað að líknarmál-
um. Öll vinna innan félagsins er
sjálfboðavinna, segir í fréttatil-
kynningu, og styrkir til félagsins
renna óskertar í Barnaspítalasjóð
Hringsins.
Á árinu 1997 báiust áheit og
gjafir sem hér segir: Styi’kur frá
minningarsjóði Jóhönnu Bjarna-
dóttur og Jónasar Jónassonar
100.000 kr., styi'kur frá NN 96.500
kr., styrkur frá Guðríði Stefáns-
dóttur 5.000 kr., gjöf vegna afmæl-
is Jóns Tryggvasonar 10.000 kr.,
styrkur frá Björgu Jónsdóttur
EES-RÉTTUR og landsréttur og
Undirbúningur lagasetningar á AI-
þingi eru heiti á umræðuefni mál-
þings Lögmannafélags íslands og
Dómarafélags íslands sem fram fer
á Hótel Valhöll á Þingvöllum föstu-
daginn 5. júní nk.
Þessi málefni hafa verið töluvert
til umræðu í þjóðfélaginu og fjöl-
miðlum undanfarin misseri.
Skemmst er að minnast nýlegs álits
umboðsmanns Alþingis um ann-
marka sem eru á birtingu tilskipana
og reglugerða hér á landi sem eiga
að gilda á öllu Evrópska efnahags-
svæðinu (EES).
Er meðferð lagafrumvarps
markviss?
Félögin hafa haldið sameiginleg
málþing mörg undanfarin ár þar
sem tekin eru til umfjöllunar mál-
efni er tengjast þessum tveimur
stéttum og varða réttarfar og dóm-
stóla landsins. Að þessu sinni verða
umræðuefnin tvö en á milli þeirra
eru tengsl. Á undanfórnum misser-
um og ekki síst á síðustu vikum hef-
ur verið mikið rætt um störf Al-
þingis, undirbúning að gerð laga-
frumvarps og meðferð þeirra á
þinginu. Margar spurningar hafa
vaknað í þeirri umræðu eins og t.d.:
Samræmist það kenningunni um
þrískiptingu ríkisvaldsins að fram-
kvæmdavaldið hafi svo mikil áhrif á
löggjafarstarfið sem nú er? Er Al-
þingi um of háð sérfræðiþekkingu
framkvæmdavaldsins þegar kemur
að samningu Iagafrumvarpa? Er
meðferð lagafrumvarpa innan
þingsins nægilega markviss og
vönduð? Er réttaröryggi þjóðfé-
lagsþegnanna stefnt í hættu með
óvönduðum undirbúningi? Þessi
umræða um undirbúning lagasetn-
ingar er ekki einskorðuð við ísland
heldur fer hún nú fram víða um
3.000 kr., gjöf frá Evu Vernharðs-
dóttur 500.000 kr., styrkur frá Hf.
Eimskipafélagi íslands 2,5 millj.
kr., styi'kur frá Austurbakka hf. í
tilefni 30 ára afmælis fyrirtækisins
250.000 kr., styi'kur frá Hafdísi
Sigurðardóttur 30.000 kr. og áheit
frá Andrési Ásmundssyni 4.000
krónur.
Á árinu 1997 veitti Hringurinn
nokkra styrki til sjúkra barna og
afhenti jólagjafir til barna sem
lágu yfir jólin á Barnaspítala Hr-
ingsins. Þá voni ýmis lækninga-
tæki gefin á árinu, þar á meðal óm-
skoðunartæki til kvennadeildar
Landspítalans að upphæð
5.160.000 krónur.
lönd eins og til dæmis á Norður-
löndum.
EES-réttur og landsréttur
Á málþinginu verður fjallað um
EES-rétt og landsrétt fyrir hádegi.
Björn Friðfinnsson, ráðuneytis-
stjóri, mun fjalla um hlutverk Eftir-
litsstofnunar EFTA og EFTA-dóm-
stólsins varðandi framkvæmd EES-
samningsins. Því næst mun Davíð
Þór Björgvinsson, lagaprófessor,
fjalla um EES-rétt sem réttarheim-
ild í íslenskum rétti. Þá mun Hall-
dór Ásgrímsson, utanríkisráðherra,
ávarpa ráðstefnugesti.
Undirbúningur
lagasetningar á Álþingi
Eftir hádegi verður fjallað um
undirbúning lagasetningar á Al-
þingi. Hrafn Bragason, hæstarétt-
ardómari, fjallar um gerð lagafrum-
varpa. Helgi Bernódusson, aðstoð-
arskrifstofustjóri Alþingis, talar um
löggjafarhlutverk Alþingis, meðferð
lagafrumvarpa og samanburð við
löggfjafarstarf í nágrannaríkjunum.
Að lokum mun Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, hæstaréttarlögmaður,
gera grein fyrir hugmyndum um
hvemig bæta megi löggjafarstarfið.
Fundarstjóri á málþinginu verður
Ásgeir Thoroddsen, hæstaréttar-
lögmaður.
----------------
Sjö sækja
um stöðu for-
stjóra Holl-
ustuverndar
SJÖ umsóknir um stöðu forstjóra
Hollustuverndar ríkisins bárust
umhverfisráðuneytinu áður en um-
sóknarfrestur rann út. Staðan verð-
ur veitt 1. júlí nk. af umhverfisráð-
herra.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Anna Kjartansdóttir, Björgvin
Leifsson, Davíð Egilsson, Hermann
Sveinbjörnsson, Jón Gíslason, Ólaf-
ur Oddgeusson og Þuríður Gísla-
dóttir.
----------------
Tréskurðar-
menn sýna í
Skógarhlíð
HIN árlega sýning Félags áhuga-
manna um tréskurð verður haldin í
húsnæði Skógræktar ríkisins í
Skógarhlíð 38 dagana 5.-7. júní.
Opnunartími alla daga er frá kl.
14-18.
Sýningin er fjórða sýning félags-
ins en markmið sýningarinnar er að
auka áhuga fólks á tréskurði með-
sýningu á verkum félagsmanna og
annarra tréskurðarmanna. Að
þessu sinni sýnir Sveinn Einarsson,
myndskurðarmeistari, verk sín á
sýningunni sem sérstakur heiðurs-
gestur.
------♦♦♦-------
LEIÐRÉTT
Portretmyndir
Ágústs Petersen
í MYNDLISTARDÓMI Jóns,
Proppé í blaðinu í gær misritaðist
lokatími sýningarinnar. Sýningin
stendur til 5. júlí. Einnig var sagt
að sýningarskrá kostaði 500 ki'ónur,
en hún kostar 600 og loks er vitnað
til inngangs í sýningarskrá, sem er
grein um listamanninn og verk
hans. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum. A
Aðalfundur Hringsins
Gáfu ómskoðunartæki
til kvennadeildar