Morgunblaðið - 21.06.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 21.06.1998, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Bjarni Ármannsson, Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, um kaupin á Hagkaupi Væntanlegur ávinningur talinn nokkuð viðunandi FORSTJÓRI Fjárfestingarbanka atvinnulífsins segir að meðal mark- miða bankans sé að þjóna íslensku atvinnulífí þar sem tækifærin gefíst og arðvænlegt sé talið fyrir hluthafa og séu kaupin á Hagkaupi liður í því. Forstjóri Kaupþings segir að áhugi fjárfesta á hlut í nýju fyrir- tæki um rekstur fyrirtækja Hag- kaups og Bónuss sé vakinn og margir hafi þegar á fóstudag lýst áhuga á kaupum án þess að hafa nokkrar upplýsingar um verðmat. „Markmið Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins er að veita íslensku at- vinnulífí víðtæka þjónustu við öflun, hreyfingu og stýringu á fjármagni. Okkur er ætlað að þjóna íslensku atvinnulífi þar sem tækifærin gefast og álitið er arðvænlegt fyrir hlut- hafa,“ sagði Bjami Armannsson, forstjóri FBA, aðspurður um helstu ástæður kaupa bankans á hlut í Hagkaupi. Að sögn Bjama hefur áhætta bankans vegna lánveitinga í versl- unarrekstri verið afar lítil. Mestur hluti eigna FBA liggi eðlilega í lán- veitingum til fyrirtækja í sjávarút- vegi og iðnaði. „Við höfum verið að dreifa áhættunni og farið meira út í verkefni hjá sveitarfélögum, fjár- málafyrirtækjum, og fyrirtækjum í þjónustu og verslun. Jafnframt höf- um við verið að takast á hendur flóknari verkefni sem þarfnast yfir- legu, sérfræðiþekkingar og fjár- magns. Fjárfesting sem þessi er auðvitað alltaf áhætta en við teljum einnig væntanlegan ávinning nokk- uð viðunandi í þessu tilviki,“ sagði Bjami. Hann sagði það þó að sjálf- sögðu ekki ætlunina að eiga hlutinn í Hagkaupi til langframa. Fjárfestingarbanki atvinnulífsins og Kaupþing unnu saman að samn- ingum við eigendur Hagkaups um kaupin og hyggjast fyrirtækin eiga áfram nána samvinnu við undirbún- ing stofnunar nýs fyrirtækis Hag- kaups og Bónuss. Hlutafé verður síðar á árinu boðið á almennum markaði, einstaklingum sem fag- fjárfestum. Segir Bjarni að þessi undirbúningur muni taka að minnsta kosti þrjá til fímm mánuði og muni FBA og Kaupþing verða samstiga við sölu hluta sinna. Hann segir markmið FBA að selja allan hlut sinn, það verði aðeins spuming um tíma. Bjami segir það tvimælalaust kost að allur eignarhlutur stofnenda Hagkaups skuli hafa verið keyptur í einu lagi; það sé ekld síst góður kostur fyrir nýja fyrirtækið að þess- ar eigendabreytingar hafi gerst hratt og að síðar verði eignarhlutn- um dreift meðal almennings. Eigið fé FBA er ríflega 8 millj- arðar króna og segir Bjami bank- ann því vel standa undir þessari fjárfestingu. „Við teljum þetta álit- legt verkefni sem þarfnist fyrirtæk- is eins og okkar því það er hlutverk okkar að hjálpa fjölskyldufyrirtækj- um, ríkisfyrirtækjum, samvinnufyr- irtækjum og öðrum fyrirtækjum með þröngt eignarhald að komast inn á hlutabréfamarkað. Það er þró- unin hérlendis sem annars staðar að fyrirtækin em að komast í almenn- ingseign og eigu fagfjárfesta og em skráð á almennum markaði. Það eykur líka kröfur um upplýsinga- gjöf og aðgang að fjármálamark- aðnum og gerir þau ekki jafnháð hefðbundinni bankafjármögnun." Áhugi Qárfesta strax vakinn Eigið fé Kaupþings er kringum einn milljarður og sagði Sigurður Einarsson forstjóri fyrirtækið vel geta staðið undir þessari fjárfest- ingu enda væri það stærsta fyrir- tæki landsins á sviði hlutabréfa- miðlunar. Hann segir Kaupþing ekki hafa í hyggju að hasla sér sér- staklega völl á sviði verslunar, markmiðið sé fyrst og fremst að vera milligönguaðili til þess að fyr- irtækið komist á markað. „Hins vegar er verslunarrekstur mjög heppilegur kostur núna því það er ekkert verslunarfélag á Verðbréfa- þinginu og tímasetningin er því góð,“ sagði Sigurður. „Aðalsjónarmiðið er líka það að hér verður að verðmeta mjög vand- lega og vera sannfærður um að við- komandi fjárfesting sé góður kost- ur, menn geti búist við góðum arði. Við teljum þetta góðan kost og það hafa strax haft samband við okkur fjárfestar og lýst áhuga á kaupum án þess að hafa séð nokkurt verð- mat. Það væri því trúlega hægt að selja fyrirtækið strax í vikunni framundan,“ sagði Sigurður. og kvaðst ekki hafa orðið var við slíkan áhuga áður. Hann lagði áherslu á að undirbúningur sölunnar tæki nokkra mánuði. Sigurður vildi líka vekja athygli á samvinnunni við FBA, fyrirtækin væru í mikilli sam- keppni en gætu auðveldlega átt samstarf um sérstök verkefni. Hjörleifur Guttormsson Merki Al- þýðubanda- lagsins falli ekki HJÖRLEIFUR Guttormsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, varar, í grein í Morgunblaðinu í dag, eindregið við afleiðingum þess ef Alþýðubandalag býður ekki fram undir eigin merkjum í þingkosning- um næsta vor. Hjörleifur segir í grein sinni að sameiginlegt framboð jafngildi að flokkarnir sem standi að framboðinu verði lagðir niður og að hann sé „því algjörlega andvígur að fella merki og málstað Alþýðu- bandalagsins". Hjörleifur gagnrýnir einnig í greininni forystu Alþýðubandalags- ins fyrir að hafa farið út í könnunar- viðræður við Alþýðuflokk og Kvennalista vegna þeirra ólíku for- sendna sem flokkamir höfðu í þeim, af hálfu Alþýðubandalags hafi ein- göngu verið um að ræða könnunar- viðræður en Alþýðuflokkurinn hafí haft sameiginlegt framboð flokk- anna að fyrirfram skilyrði. Hjörleifur, sem sat í nefnd um umhverfis-, atvinnu- og efnahags- mál, skilaði séráliti og segir að ágreiningur hafí verið um ýmis grundvallarmál þ.á m. afstöðu til Evrópusambandsins og EES, einkavæðingu, auðlindagjald, fjár- festingar í sjávarútvegi, orkumál og landbúnaðar- og byggðamál. ■ Málefnabarátta/30 ------♦♦♦------ 50 <5ku of greitt við Blönduós FIMMTÍU manns voru stöðvaðir og sektaðir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á Blönduósi á föstudag. Að sögn lögreglu voru ökumenn á allt að 130 kílómetra hraða á þjóð- veginum, en lögregla hefur undan- farið tekið upp hertar aðgerðir vegna hraðaksturs. Svigkapp- ar í lax- veiði NORSKI ólympíumeistarinn í svigi, Hans-Petter Buraas, hefur dvalið hér á landi í nokkra daga á vegum franska fyrirtækisins Rossignol, sem framleiðir skíðaút- búnað. Með honum í för eru Krist- inn Björnsson og Frakkinn Pat- rick Bourgeat og mynda þeir svigliðið „B-in þrjú“ hjá Rossignol. ítalinn Alberto Tomba hefúr verið helsta auglýsingavopn fyrirtækisins undanfarin tíu ár en er hættur keppni. Fyrirtækið veðjar því á Buraas, Björnsson og Bourgeat. Tilgangurinn með fs- iandsferðinni var að þremennin- arnir kynntust betur og eins að taka af þeim auglýsingamyndir í íslensku umhverfi. Kapparnir voru við laxveiðar í Soginu í gær. ■ Hvar er... / 14-15 Morgunblaðið/RAX Lögreglan í Reykjavík Ahyggjur af ungmennum MIKILL fjöldi ungmenna safnað- ist saman í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Lögregla segir að kvöldið hafi farið rólega af stað en eftir klukkan fjögur hafi ástandið verið mjög slærat og að meðalaldur hafi verið mun lægri en vanalega. í greinargerð lögreglu segir: „Almennt var ástandið í miðborg- inni gott fram til klukkan 04.00, þrátt fyrir að fjöldi gesta sækti skemmtistaði heim. Það er að sjá að ungt fólk leggi leið sína í mið- borgina eftir að skemmtistöðum er lokað, og er hugsanlegt að þessi aldur sé frá 15 ára til 18 ára, og komi frá heimahúsum úr partíum og safnist saman við dómshúsið. Stór hluti af þessu fólki virðist ekki hafa neitt fyrir stafni annað en að drekka landa og annan óþverra og leitar uppi vandræði og slagsmál. Þetta fólk bíður eftir því að geta lent í átökum við lögreglu eins og við urðum varir við þessa nótt og að undanfómu. Það hefur uppi skrílslæti og er að ögra lögreglu en vegna fámennis okkar ber að fara varlega í sakirnar við þetta lið, en þó er full ástæða til að fara að skoða þetta ferli og grípa til að- gerða.“ ► 1-56 Öryggismál undir HvalfirAi ►Standast Hvalfjarðargöng stóra jarðskjálfta? Hvað gerist, ef eldur kviknar? /10 Börn „skítuga strfðsins" ►Hundruð barna voru tekin frá mæðrum sínum og fengin vildar- vinum herforingjastjórnarinnar í Argentínu. /12 Trúmaður í musteri Mammons ►Helgi S. Guðmundsson, formað- ur bankaráðs Landsbanka fslands hf., komst skyndilega í kastljós fjölmiðlanna á liðnu hausti. /24 B ► 1-20 Lífsstíll flakkarans ►Slegist í för með Berglindi Áma- dóttur flugfreyju til Havana á Kúbu./1-2 & 10-11 Rós til Steingríms ►Steingrímur Hermannsson seðlabankastjóri og fyrrverandi forsætisráðherra lætur senn af opinberum störfum. /4 í kastölum krossfar- anna og stærsta úti- leikhúsi heims ►í Sýrlandi er sagan er ekki að- eins við hvert fótmál heldur einnig undir hveiju spori. /8 C FERÐALOG ► 1-4 Ósnortnir skógar og falleg fljót ►I gönguferð um náttúruparadís i Síberíu. /2 ísland er náttúruleg hellsulind ►Ungverskur læknir hvetur ís- lendinga til að byggja upp heilsu- bótarferðaþjónustu. /2 D BILAR ► 1-4 IMý mótatækni ►Ný mótatækni var notuð við gerð XTREMER jeppans. /1 Reynsluakstur ►Toyota Land Cruiser 100 - eng- inn venjulegur bíll. /4 E ATVINNA/ RAÐ/SMÁ ► l-20 Metallurg keypt ►Fjárfestingarfélagtengt íslandi kaupir hlut í þýsku málmiðnaðar- fyrirtæki. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42 Leiðari 28 Stjömuspá 42 HelgispjaU 28 Skák 42 Reykjavíkurbréf 28 Fólk I fröttum 46 Skoðun 30,12b Útv./sjónv. 44,54 Minningar 32 Dagbók/veður 55 Myndasögur 40 Mannl.str. 13b Bréftil blaðsins 40 f dag 42 Dægurtónl. 16b INNLENDAR FI 2-4-8-BAK ÉTTIR: ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.