Morgunblaðið - 21.06.1998, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Auðveldara að skilja
Einstein en Bach“
Morgunblaðið/Jim Smart
ÍSRAELSKA tónskáldið og píanóleikarinn Gil Shohat.
TÓNVERK Gils Shohats hafa ver-
ið flutt víða í Evrópu og Banda-
ríkjunum og eru á efnisskrám
helstu hljómsveita Israels. Fyrir
tveimur árum bauðst honum að
ganga til liðs við hið virta ítalska
útgáfufyrirtæki Ricordi, sem nú
hefur gefið út tíu af tuttugu verk-
um tónskáldsins. „Eins og allir fal-
legir hlutir í lífinu er þetta ein-
skær heppni,“ svarar Gil af stök-
ustu hógværð þegar hann er
spurður hveiju hann þakki vel-
gengnina. Á tónleikum sem hann
hélt hér á landi á vegum Evrópu-
sambands píanókennara og Tón-
listarskólans í Reykjavík lék Gil
Partítu nr. 6 í e-moll eftir J.S.
Bach og útlistaði verkið frá ýms-
um hliðum auk þess að kynna
nokkur verka sinna. Síðari tónleik-
ar hans hér voru á vegum ísra-
elska sendiráðsins og þar fékk Gil
til liðs við sig íslensku sópransöng-
konuna Hallveigu Rúnarsdóttur,
sem söng nokkur hebresk lög tón-
skáldsins.
Gil Shohat hóf nám í píanóleik
sex ára að aldri. Þegar hann var tólf
ára samdi hann sitt fyrsta tónverk
og upp frá því var hann staðráðinn í
að verða tónskáld. Gil lauk prófum í
tónsmíðum og píanóleik með hæstu
einkunn frá Tónlistarháskólanum í
Tel-Aviv og stundaði framhaldsnám
við Santa Cecilia-tónlistarháskólann
í Róm hjá tónskáldinu Azio Corghi.
Loks var hann eitt ár við nám í
Cambridge á Englandi. Hann býr
nú í Lundúnum, vinnur að doktors-
gráðu í faginu og ferðast víða og
heldur fyrirlestra og tónleika þar
sem hann fjallar um verk gamalla
meistara og leitast við að bregða á
þau nýju ljósi.
✓
Israelska tónskáldið
og píanóleikarinn Gil
Shohat hefur skipað
sér í röð fremstu tón-
skálda heimalandsins
bótt hann sé aðeins
25 ára að aldri.
Hulda Stefánsdóttir
hitti Gil að máli beg-
✓
ar hann heimsótti Is-
land nýverið fyrir til-
stilli ræðismanns
*
Israels vegna 50 ára
afmælis ísraelsku
bjóðarinnar.
Höfundarverk Gils eru af ýms-
um toga; píanóverk, kammerverk,
píanókonsert og fiðlukonsert, sin-
fónía, sönglagaflokkar og tvær
kantötur. „Það er mjög erfitt að
lýsa eigin tónsmíðum," segir Gil.
„Tónlistin mín myndi flokkast und-
ir svokallaða nútíma-klassík en
hún er undir sterkum rómantísk-
um áhrifum og ég er ekki hræddur
við að semja melódísk verk eins og
nútímatónskáld virðast svo oft
vera.“ Helstu áhrifavalda sína seg-
ir hann án efa vera „hina heilögu
þrenningu“ Bach, Beethoven og
Mozart. „Af þeim þremur er Bach
eins og eitthvert óútskýranlegt
mennskt fyrirbæri," segir Gil. „Þó
að ég sé ekki í aðstöðu til að full-
yrða neitt um það þá held ég að
það sé auðveldara að skilja Ein-
stein en Bach. Verk hans búa yfir
óendanlegri dýpt og hver nóta er
sem hreinir töfrar. Eg gæti nefnt
ótal tónskáld á þessari öld, s.s.
Stravinsky, Prokofieff, Bartók,
Ravel, Debussy og Chopin. Af
samtímatónskáldum lít ég helst til
skálda eins og kennara míns Azio
Corghi og ekki síst fyrrrennara
hans í starfi við Santa Cecilia í
Róm, tónskáldsins Luciano Perio.“
Ópera byggð á myndum Munchs
Gil er í sinni fyrstu ferð um
Norðurlöndin en hingað til lands
kom hann frá Noregi þar sem
hann hélt tónleika í Osló, heimsótti
listasöfn - og féll kylliflatur fyrir
verkum Munchs. „Um þessar
mundir er ég að vinna að sinfóníu
en næst hyggst ég taka til við að
semja mína fyrstu óperu sem verð-
ur frumflutt árið 2002. Óperuna
ætla ég að byggja á litógrafíunum
Alpha og Mega eftir Munch,“ segir
Gil. „Ég hef lengi hrifist af nor-
rænni list. Yfirbragð verkanna er
Ijóðrænt og hæglátt en undir niðri
kraumar brjálæðið, eins og per-
sónumar búi yfir innra eldfjalli.
Myndaröðin Alpha og Mega skír-
skotar til Adams og Evu og tilfinn-
inga sem allir þekkja; ástar og af-
brýði, kynþroska og fullorðinsára.
Og svo er það þessi hreinleiki sem
heillar mig, sami hreinleiki og tón-
listin býr yfir og mér finnst að tón-
verk eigi að skírskota til. Ég er
ósamþykkur þvi að óperur sam-
tímans eigi að vísa til hversdags-
leikans. Þeirri þörf fullnægjum við
með kvikmyndunum en þegar ég
fer í óperuna er ég að leita eftir
annars konar upplifun, - bæði
dýpri og sterkari tilfinningum."
SÝNINGU á höggmyndum og frottage-myndum Max Ernst
lýkur senn í Listasafni íslands.
Max Ernst - næstsíð-
asta sýningarhelgi
SÝNINGU á höggmyndum og þrykks frá dada-tímabilinu 1917. Þá
frottage-verkum eftir Max Emst í
Listasafni Islands lýkur eftir rúma
viku. Sýningin hefur farið víða um
lönd og gist nokkur helstu listasöfn
Evrópu og var hún framlag safnsins
til Listahátíðar í Reykjavík.
Á sýningunni era 60 bronsskúlpt-
úrar frá áranum 1930-74 og 32
þrykkmyndir unnar með svokallaðri
frottage-aðferð úr myndaröðinni
Náttúrasaga frá 1926 auk stein-
era á sýningunni yfir 100 ljósmynd-
ir eftir kunna og óþekkta höfunda
sem varpa ljósi á ævi og störf lista-
mannsins. Myndband um ævi Max
Ernst verður sýnt í kjallara safns-
ins á laugardag og sunnudag, kl. 12
og kl. 15.
Listasafn íslands hefur gefið út
upplýsingarit um listamanninn með
sýningunni og safnaleiðsögn verður
sunnudaginn 28. júní kl. 15.
200 ára afmælis Sigurð-
ar Breiðfjörðs minnst
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
HINN 17. júní var opnuð í
Norska húsinu í Stykkishólmi
sýning sem helguð er 200 ára af-
mæli Sigurðar BreiðQörðs. Sig-
urður fæddist 4. mars 1798 og
var afmælis hans minnst með
ýmsu móti í Reykjavík í mars sl.
Þessi sýning er sú fyrsta sem
er tileinkuð honum út á landi og
vel við hæfi að það sé gert í
Stykkishólmi, því margt tengir
Sigurð Breiðljörð við Stykkis-
hólm. Hann fæddist í Rifgirðing-
um á Breiðafirði og átti heima á
æskuárum sínum á Helgafelli,
Þingvöllum og Bíldsey sem eru
staðir í nágrenni Stykkishólms.
16 ára gamall siglir hann til
Kaupmannahafnar með stuðn-
ingi frænda síns, Boga Bene-
diktssonar í Stykkishólmi.
Tvítugur að aldri kemur hann
aftur heim og hefur vinnu sem
beykir við verslun Ólafs Thor-
laciusar á Isafirði. Var hann þá
mikið á ferðinni milli Stykkis-
hólms og ísafjarðar. Þá tekst
mikill vinskapur milli hans og
Árna Thorlaciusar kaupmanns í
Stykkishólmi. Ámi tekur Sigurð
undir sinn vemdarvæng um
tíma og gefur hann út
Númarímur árið 1835 og Sig-
urður tileinkaði honum þær.
Sýningin í Norska húsinu er
tvískipt. Annar hluti sýningar-
innar sýnir lífshlaup Sigurðar
BreiðQörðs í myndum og úrval
úr rímum hans límt á myndirn-
ar. Það er Jón Svanur Pétursson
listamaður í Stykkishólmi sem
hefur málað myndir sem minna
á helstu staði er Sigurður Breið-
ljörð kom við á æviskeiði sínu.
I hinum hluta sýningarinnar
koma til sögu núlifandi lista-
menn. Leitað var til þeirra og
þeir beðnir um að minnast Sig-
urðar Breiðfjörðs á þessum
tfmamótum og var hverjum og
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
SIGRÚN Ása Jónsdóttir forstöðumaður Norska hússins stendur fyrir
framan mynd eftir Jón Svan Pétursson sem minnir á tímabilið 1830-
1834 í lífi Sigurðar Breiðfjörðs.
LJÓÐ og bækur um og eftir
Sigurð Breiðfjörð eru þarna til
sýnis á sýningunni.
einum úthlutað svæði sem er
50x70 sm á stærð. Á þann hátt
vilja aðstandendur sýningarinn-
ar tengja Sigurð við nútímann.
Frá Dagnýju Kristjánsdótt-
ur kemur fyrirlestur sem hún
flutti um skáldið á vegum Fé-
lags íslenskra fræða. Þórar-
inn Eldjárn sendir örrímur
sem hann flutti 4. mars sl. í
hófi sem Rithöfundasamband
íslands hélt til minningar um
skáldið. Magnús Þór Jónsson,
Megas, sendi leiðbeiningar
um verkið „Hommage 'a Sig-
urður BreiðQörð".
Um koddagerð sá Þuríður
Hjartardóttir, en Anna S.
Gunnarsdóttir um aðra út-
færslu. Frá Atla Heimi
Sveinssyni kom mynd af and-
litsdráttum skáldsins fléttuð
nótum og Breiðafirði.
Það eru starfsmenn Norska
hússins sem höfðu veg og
vanda að sýningunni ásamt
Jóni Svani Péturssyni.
Gestum er velkomið að
skoða sýninguna í sumar þeg-
ar Norska húsið í Stykkis-
hólmi er opið, en það er dag-
legafrákl. 11-17.
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
)
>
>
>
>
>
>
>
>