Morgunblaðið - 21.06.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 31 .
FRÉTTIR
Dregið í brúðkaupsleik Morgunblaðsins
„Viljum ekki missa
af íslenska sumrinu“
.. MorgunblaðiÆ/Björn Björnsson
KRISTBJORG Guðbrandsdóttir, umboðsmaður Samvinnuferða/Landsýn-
ar á Sauðárkróki, afhenti tilvonandi brúðhjónum, Kristjönu Jónsdóttur og
Guðmundi Svavarssyni, flugmiða til Dyflinnar ásamt þremur gistinóttum.
NÖFN tilvonandi brúðhjóna bárust í
hundraðavís vegna Ieiks sem kynnt-
ur var í sérblaði Morgunblaðsins um
giftingar í maí. Vegleg verðlaun voru
í boði fyrir tvenn tilvonandi hjón og í
þetta sinn fóru báðir vinningamir út
á land. Morgunblaðið þakkar þátt-
tökuna og óskar öllum brúðhjónum
ársins gæfu í hnappheldunni.
„Hingað hringdi maður og tjáði mér
að ég og maðurinn minn tilvonandi
hefðum unnið brúðkaupsferð. Eg
sagði að hann hlyti að hafa valið
skakkt númer, við hefðum ekki tekið
þátt í neinum leik,“ sagði Kristjana
Jónsdóttir, á Sauðárkróki, en hún
hreppti ásamt unnustanum Guð-
mundi Svavarssyni flug til Dyflinnar
og gistingu í þrjár nætur á fjögurra
stjömu hóteli. „Móðir mín og systir
sendu inn nöfnin okkar án þess að
spyrja kóng né prest en þær bjugg-
ust að sögn ekki við að það bæri
svona vænan ávöxt.“ Kristjana og
Guðmundur höfðu enga brúðkaups-
ferð á prjónunum og því kom Ir-
landsferðin sér vel. „Við ætium þó
ekki að fara fyrr en með haustinu því
við viljum ekki missa af íslenska
sumrinu," sögðu þau, en hvorugt
hefur komið til Dyflinnar.
Ekkert pífubrúðkaup
Stóri dagurinn rennur upp þann 4.
júlí en þann dag á brúðurin einmitt
þrítugsafmæli. Gift verður í Sauðár-
krókskirkju og að athöfn lokinni
fylkja gestir liði út fyrir bæinn að fé-
lagsheimilinu Ljósheimum þar sem
veislan fer fram. „Þetta verður
frjálslegt hjá okkur og frekar einfalt
í sniðum - ekkert pífubrúðkaup,“
sögðu þau Kristjana og Guðmundur
brosandi. „Boðið verðm- upp á pinna-
mat og léttvín og það er búið að
panta gott veður. Við höfum sinnt
undirbúningi undanfamar vikur,
svona eftir vinnu, og hefur gengið
prýðilega.“
Fyrir sjö áram lágu leiðir þeirra
saman í höfuðborginni en Guðmund-
ur er Skagfirðingur og Ki-istjana
kemur frá Ólafsvík. „Skagfírðingar
eru jú þannig að þeir þrífast ekki
nema á heimaslóð og því varð ég
annað hvort að fara með Guðmundi
norður eða gleyma honum,“ útskýrði
Kristjana kímin. Síðan era nokkur ár
og nú starfar Kristjana á skrifstofu
Kaupfélags Skagfirðinga en Guð-
mundur er smiður hjá Trésmiðjunni
Yr. Saman eiga þau soninn Björn
Anton sem er fimm ára og bíður
hann eflaust spenntur eftir brúð-
kaupsdegi foreldranna.
Brúðkaupsferð innan
borgarmarkanna
Morgunblaðið/Arnaldur
HJÓNAEFNIN Guðrún íris Valsdóttir og Hafsteinn
Halldórsson tóku á móti verðlaununum ásamt dóttur
sinni, Guðrúnu Birtu. Til vinstri við þau stendur Sig-
rún Sigurðardóttir, markaðsstjóri Flugleiðahótela hf.
sem afhenti gjafabréfið.
„VIÐ vorum rétt að enda
við að panta og borga
hótelgistingu fyrir brúð-
kaupsnóttina," sögðu
þau Hafsteinn Halldórs-
son og Guðrún fris Vals-
dóttir þegar þau mættu
til þess að taka við gjafa-
bréfinu sem þau hlutu í
brúðkaupsleik Morgun-
blaðsins. Bréfið hljóðar
upp á næturgistingu í
brúðarsvítu Hótels Loft-
leiða, þríréttaðan kvöld-
verð og morgunverðar-
hlaðborð.
„Nú eigum við pantað
á tveimur stöðum og er-
um að hugsa um að nota
okkur það til þess að
framlengja brúðkaup-
sævintýrið. Brúðkaups-
nóttinni eyðum við á
Hótel Islandi og flytjum
okkur þá yfir á Hótel
Loftleiðir. Brúðkaupsferðin verð-
ur því farin innan borgar-
markanna, á milli hótela," sögðu
hjónaefnin og kváðust hlakka mik-
ið til. Móðir Hafsteins sendi þátt-
tökuseðil í leikinn og kom vinning-
urinn því skemmtilega á óvart.
Hafsteinn og Guðrún Iris höfðu
hag gestanna í huga þegar þau
völdu stað fyrir athöfnina. „Gift
verður í Reykjavík þar sem flestir
ættingjar okkar búsettir. Það yrði
dýrt og fyrirhafnarsamt fyrir
áttatíu manns að leggja leið sína
austur á Djúpavog þar sem við er-
um búsett."
Hafsteinn er alinn upp í Breið-
holti og því varð Fella- og Hóla-
kirkja fyrir valinu en veislan fer
fram í safnaðarheimilinu. „Undir-
búningnum hefur undið fram á
ótrúlegum hraða. Á ein-
um degi í febrúar redd-
uðum við til dæmis kjól,
presti, veislu og kirkju,"
sagði Guðrún Iris en
bætti við að síðustu vik-
urnar fram að giftingu
myndu þau dvelja í
borginni til þess að
ganga frá ýmsum smáat-
riðum.
I sumar taka svo við
flutningar því Hafsteinn
hefur verið ráðinn skóla-
sljóri Grunnskóla Fá-
skrúðsfjarðar og þar
hefur litla fjölskyldan
fundið sér húsnæði. Guð-
rún íris mun kenna und-
ir stjórn eiginmannsins
en þau kynntust einmitt
í Kennaraskólanum. Að
þeirra mati er giftingin
eðlilegt framhald af
samveru liðinna ára og
því ástæðulaust að vera með flug-
eldasýningu 4. júlí. Brúðkaupið
verði látlaust en hátíðlegt.
Hafsteinn klæðist íslenska há-
tíðarbúningnum og Guðrún Iris
hefur leigt kjól sem unnustinn má
að sjálfsögðu ekki sjá strax. „Það
er allt í lagi, ég kann að bíða,“
sagði Hafsteinn sposkur. „Ég hef
aldrei viljað vita fyrirfram hvað
ég fæ í jólagjöf."
ven
kr. 447.000
staðgreitt
Sportbúð - TÍtan • Seljavegi 2
SÍMI 551 6080 • Fax 562 6488
• Rúmgóóar geymsluhirslur • Rúmgóðir skápar
• Tveggja hellna gaseldavél • 50 mm kúlutengi
• Svefnptáss fyrir 6+ • 12 volta rafkerfi
• Varadekk, festing og varadekkshlíf
• Ljósabúnaður skv. EES staðli
• Skrúfaðir undirstöðufætur
• Lokaður lyftubúnaður
• Ryðvarinn undirvagn
• og margt fteira
Hafðu samband -
ýmsir lánamöguleikar
RS.vl
' Súiusfaðtn Akureyri:
Vétar og þjónústa hf
Sími 461 4040
TITAN
frábært úrval af nýjum efnum
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði, og
Suðurlandsbraut 50 v/ Fákafen
Oplö 6 laugardögum kI. 10-14.