Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.06.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1998 47 - I ( ( ( ( ( ( < ( ( ( ( ( t ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( FÓLK í FRÉTTUM Woods hjá ► GOLFMEISTARINN ungi Tiger Woods var í sjónvarpsvið- tali á dögunum hjá hinum vin- sæla Larry King á CNN-sjón- varpsstöðinni. Larry King Þetta var fyrsta alvöru sjón- varpsviðtal í beinni útsendingu sem kappinn hefur fengist til að koma í og því mikil stund fyrir báða aðila. Fögnuður í spari- sjoðafjol- skyldunni FLESTIR sparisjóðsstjórar ís- lands og fulltrúar fleiri fyrirtækja úr „sparisjóðafjölskyldunni" ásamt Geir H. Haarde fjármálaráðherra og fleiri gestum fögnuðu með stjómendum Kaupþings hf. þegar verðbréfafyrirtæki þess í Lúxem- borg hóf starfsemi, en það er fyrsta íslenska verðbréfafyrirtækið erlendis. Formleg opnun Kaupthing Lux- embourg S.A. fór fram við móttöku í Evrópusal Hótel Inter- Continental. Auk Sigurð- ar Einarssonar forstjóra Kaupþings hf. og Magnús- ar Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra fyrirtækis- ins í Lúxemborg ávörpuðu Goebbles ráðherra í Lúx- emborg og Geir H. Haarde fjármálaráðherra samkom- una og lýstu mikilli ánægju með framtakið. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason GEIR H. Haarde fjármálaráðlierra; Guðmundur Ilauksson, sparisjóðs- stjóri SPRON og sljórnarformaður Kaupþings hf.; Siggi Kristinsson, varaforstjóri eignastýringar hjá Credit Lyonnais - PK Airfinance; og Eyjólfur Hauksson, bróðir Guðmundar, framkvæmdastjóri hjá Cargolux í Lúxemborg. Sparisjóðsstjórar að vestan, Eiríkur Finnur Greipsson á Flateyri og Steinn Kjartans- son í Súðavík og Þór Gunn- arsson sparissjóðsstjóri í Hafnarfirði sem jafnframt er formaður Sambands ís- lenskra sparisjóða. MYNPBÖNP Hasar fyrir unglinga Meistararnir (Masterminds)______ Spennumynd *V2 Framleiðendur: Robert Dudelson og Floyd Byars. Leikstjóri: Roger Christian. Handritshöfundur: Floyd Byars. Kvikmyndataka: Nic Morris. Tónlist: Anthony Marinelli. Aðalhlut- verk: Patrick Stewart og Vincent Kartheiser. (120 mín.) Bandarísk. Skífan, júnf 1998. Myndin er bönnuð börnum innan 12 ára. Vandræðaunglingurinn Ozzie Paxton á í erjum við foreldra sína og hefur vepið rekinn úr skóla. Hann ver því mestum tíma sínum í tölvugi’úsk og innbrot í tölvu- kerfí. Þegar Ozzie er sendur að fylgja stjúpsystur sinni í skólann lendir hann í óvæntri at- burðarás. Glæpa- menn leggja hald á skólann og krefja auðuga foreldra bamanna lausnar- gjalds. Höfuðpaurinn er fyrrum yfir- maður í sérsveitum breska hersins og því ekkert lamb að leika við. Hann stjórnar vandlega úthugsuðum að- gerðum í gegnum öflugt tölvukerfí og getur lögreglan ekkert gert í málinu. Ozzie, sem staddur er innan veggja skólans, tekur til sinna ráða gegn ræningjunum með hugvit sitt og tölvuþekkingu að vopni. Tvennt er vel gert í þessari mynd. Annars vegar öruggur leikur Patrick Stewarts, sem þó stingur í stúf, sér- staklega við forvitnilega lélegan leik yfirlögreglustjórans. Hins vegar sviðsmyndin sem minnir á tölvuleik og tengir frammistöðu Ozzies við færni hans í tölvuleikjum. í „Meist- urunum" er helstu efnisþáttum hasarmynda skeytt saman og búin til mynd sem kalla mætti „Die Hard“ fyrir unglinga. Þannig er reynt að sameina barna/unglingamynd og gróðavænlegt hasarmyndaformið. Það reynist aðstandendum myndar- innar hins vegar torsótt og má sjá hvernig handritið kreistir fram ástæður til að búa til sprengingar og önnur einkennismerki „alvöru" spennumynda. Þá eru menn hvergi drepnir, aðeins rotaðir eða hent ofan í drullupytt. Þannig er reynt að forð- ast ofbeldi innan ofbeldismyndar. Þetta gengur hreinlega ekki upp. Niðurstaðan er slöpp spennumynd. Heiða Jóhannsdóttir LEVI’S DAGAR í SAUTJÁN Komdu og fáðu Levi’s 501 gallabuxur frítt! Komdu á Levi's daga og prófaðu í leiðinni Levi's „Shrink to fit“ gallabuxurnar. „Shrink-to-fit“ er jafn- gömul uppfinning og fyrstu Levi's buxurnar sem voru saumaðar árið 1853. Þá voru allar gallabuxur „hráar“ og óþvegnar. Maður fór í þær í baði og var í þeim þangað til þær þornuðu. Þannig fékk maður gallabux- ur sem pössuðu fullkomlega og voru sérstaklega slitsterkar. Nú getur þú prófað þetta sjálf(ur).Dagana 11,—20.júní verðum við með í búðinni Levi's baðkar oa tvo sérstaka Levi's burrkara. þannig að nú getur þú fengið alveg hráar og óþvegnar Levi's gallabuxur frítt. Skelltu þér í baðið og síðan í þurrkarann og stuttu síðar færðu Levi's gallabuxur frítt. Laugavegi 91 sími 511 1720 m' 2.900,- 3.500,- Levi s Donr Levi's peysur Levi's hettupeysur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.