Morgunblaðið - 03.07.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.07.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 147. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS * Tíu kaþólskar kirkjur á Norður-Irlandi skemmdust illa af fkveikjum Allt kapp lagt á lausn Drumcree-deilunnar Belfast. Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom í óvænta heimsókn til Belfast á N-írlandi í gær til að stuðla að lausn harðrar deilu um göngu Oraníureglunnar næstkom- andi sunnudag. Deilan magnaðist enn frekar í fyrrinótt þegar öfgafullir sam- bandssinnar kveiktu elda í tíu kaj)- ólskum kirkjum víðsvegar á N-Ir- landi í reiðikasti yfir ákvörðun „göngunefndar" breskra stjórn- valda sem ákvað á mánudag að Oraníumenn fengju ekki að ganga fylktu liði í gegnum hverfi kaþ- ólskra í Portadown eftir að hafa sótt guðsþjónustu í Drumcree-kirkju. Blair lét það verða sitt fyrsta verk að heimsækja eina af kirkjunum sem skemmdust í bruna í fyrrinótt og sagði hann við blaðamenn á eftir að kirkjubrunamir þýddu alls ekki endalok friðarferlisins sem hann hefur beitt sér mjög íyrir síðan hann tók við embætti forsætisráð- herra. „Þessi skemmdarverk sem ber hér fyrir augu okkar tákna hið liðna I sögu N-Irlands. Við höfum einbeitt okkur að því að reyna að gefa fólki framtíð þar sem svona villimennska heyrir sögunni til.“ Blair ætlaði í ferð sinni til Belfast að heimsækja þingið nýja, sem tók til starfa á miðvikudag, og hitta helstu stjórnmálaleiðtoga á N-ír- landi. Paisley fordæmdi íkveikjurnar Talið var ólíklegt í gær að Blair kæmi til Belfast nema líkur væru á að lausn væri í sjónmáli á Drum- cree-deilunni. I gærkvöld leit hins vegar enn ekki út íyrir að þetta yrði að veruleika þótt talsmaður Davids Trimble, sem tók við embætti for- sætisráðherra n-írska heimastjórn- arþingsins á miðvikudag, segði að leitað væri allra leiða. „Við erum staðráðnir í að leysa þetta vandamál í eitt skipti fyrir öll,“ sagði hann en undanfarin tvö ár hafa skollið á óeirðir við sama tækifæri. Allir helstu stjórnmálaleiðtogar á N-írlandi höfðu fyrr um daginn for- dæmt íkveikjurnar en þrjár kirkn- anna skemmdust mjög illa. Sagði Trimble að það væri fyrirlitlegt at- hæfi að ráðast að samfélagi kaþ- ólskra með þvi að vanvirða það sem þeim stæði næst hjarta. Ian Paisley, hinn umdeildi leiðtogi sambands- flokksins DUP, fordæmdi einnig íkveikjurnar og kvað hvem þann sem teldi sig hafa framið þessi verk í nafni mótmælendatrúar vaða reyk. Reuters DAVID Trimble, forsætisráð- herra N-Irlands, heimsótti í gær rústir kirkju heilags Jak- obs í Aldergrove, nærri Belfast, sem skemmdist illa í íkveikju í fyrrinótt. Með honum í för voru leiðtogar þriggja helstu kirkju- deildanna á N-írlandi. Kíríjenkó eflir skattheimtuna Gazprom þvingað til að borga Moskvu. Reuters. GAZPROM, rússneska jarðgass-ein- okunarfyrirtækið, hét í gær að borga himinháa skattareikninga, sem það hafði fram að þessu komizt upp með að greiða ekki. Talsmenn Gazprom greindu frá þessu eftir að ríkis- stjórnin hóf aðgerðir til að taka eign- ir fyrirtækisins upp í skattaskuldirn- ar, en meðal eignanna voru lysti- snekkjur og veiðihús. Sergei Kíríjenkó, forsætisráð- hema Rússlands, fyrirskipaði eigna- upptökuna eftir að tilraunir ríkis- stjórnai'innar til að fá stærstu fyrir- tækin í landinu til að gi'eiða skatta höfðu ekki borið árangur. Stjórninni er nú mikið í mun að ná sýnilegum árangri í að bæta skatt- heimtuna, þai- sem á því veltur hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) veitir henni fleiri lán, sem hún telur lífsnauðsynlegt vegna hins ofurerfiða efnahagsástands í landinu. Gazprom, sem heldur því fram að óskilvísir gasnotendur skuldi fyrir- tækinu meira en það skuldar í skatta, mun greiða fjóra milljarða rúblna (yfir 40 milljarða króna) á mánuði frá 1. júlí, átta sinnum hærri upphæð en það greiddi í júní. Þjarmað að fleiri stórfyrirtækjum Stjórn Kíríjenkós kaus að láta til skarar skríða gegn Gazprom, stærsta fyrirtæki í Rússlandi og stærsta gasfyrirtæki í heimi, til að sýna fordæmi sem stjórnendur ann- arra stórfyrirtækja í landinu tækju mark á, en þeir hafa líka komið sér í stórum stíl undan því að greiða skatta. Dúman, neðri deild rússneska þingsins, samþykkti í gær eftir fyrstu umræðu um helming þeirra neyðarráðstafana, sem ríkisstjórnin hyggst grípa til í efnahagsmálum. Sprenging í Búdapest FJÓRIR létust þegar öflug bfl- sprengja sprakk í miðborg Búdapest í gær. Að sögn lög- reglu er ekki ljóst hverjir komu sprengjunni fyrir né hvort atvik- ið er liður í glæpaöldu sem gengið hefur yfír Ungverjaland og tengist skipulagðri glæpa- starfsemi. Hér bera sjúkraliðar lík eins fórnarlambsins burt af vettvangi. Sprengjan sprakk laust fyrir hádegi í ijölförnu verslana- og veitingahúsahverfi. Að minnsta kosti tuttugu og fímm slösuðust og að sögn lækna em tveir þeirra enn í lífshættu. Lögreglan telur sig hafa vissu fyrir því að ætlunin hafi verið að ráða rúmlega fertugan veitinga- mann, Tamas Boros, af dögum, en hann var einn hinna látnu. Að sögn lögreglu hafði lífi hans ver- ið ógnað áður og hann meðal annars særst í skotárás. Reuters Bandaríkjaforseti í Hong Kong Rætt við stjórnar- andstöðu- leiðtoga Hong Kong. Reuters. BILL Clinton Bandaríkjaforseti kom í gær til Hong Kong, síðasta viðkomustaðarins í níu daga opin- berri heimsókn hans til Kína. Gert var ráð fyrir að hann ræddi m.a. við Tung Chee-hwa, æðsta emb- ættismann borgarinnar, og frammá- menn í kaupsýslulífi en myndi jafn- framt eiga einkafund með Martin Lee, sem er einn helsti leiðtogi lýð- ræðissinna og hefur gagnrýnt Pek- ingstjórnina ákaft. Rúmur tugur manna í Hong Kong brenndi bandaríska fánann opinberlega í gær áður en Clinton kom til borgarinnar. Talsmaður hópsins sakaði Clinton um að hliðra sér við að spyrna gegn mannréttindabrotum í Kína. Veita aðstoð við mengunarvarnir Forsetinn ferðaðist fyrr um dag- inn um Guilin-hérað ásamt eigin- konu sinni og dóttur en þar er mik- il náttúrufegurð. Clinton skýrði frá því að stjórn sín hygðist veita Kín- verjum aðstoð við að vinna bug á loft- og vatnsmengun sem er vax- andi vandamál í Kína vegna iðn- væðingarinnar. „Mengunarþoka veldur því að sumar borgir í Kína sjást ekki lengur á gervihnattamyndum og sjúkdómar í öndunarfærum eru helsta heObrigðisvandamál lands- ins,“ sagði Clinton. Hann minntist á gróðurhúsa- áhrif og sagði umhverfisvandann vera alþjóðlegan. Kínverjar hafa sett sig á móti hugmyndum um takmarkanir á losun gróðurhúsa- lofttegunda í löndum þriðja heims- ins á þeirri forsendu að aðgerðirn- ar myndu tefja fyrir hagvexti land- anna. Kofí Annan nær samkomulagi við herforingjastjórn Nígeríu Allir pólitískir fangar verða leystir úr haldi Abuja. Reuters. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að herforingjastjórnin í Nígeríu hefði fallist á að leysa alla pólitíska fanga sína úr haldi. Háttsettur embættismaður í Abu- ja, höfuðborg Nígeríu, sagði að sam- komulag hefði náðst um að þekktasti fanginn, Moshood Abiola, félli frá til- kalli sínu til forsetaembættisins til að greiða fyrir því að hann yrði leystur úr haldi. Abiola, sextugur auðkýfingur, var handtekinn árið 1994 fyrir að gera tilkall til forseta- embættisins eftir kosningar sem voru ógiltar árið áður. Heimsókn Annans þykir til marks um að Sameinuðu þjóðirnai' og leið- togar margra ííkja telji að Abdulsalam Abubakar, nýr leiðtogi herforingjastjórnarinnar, sé reiðu- búinn að koma á borgai'alegri stjóm. Abubakar tók við af Sani Abacha einræðisherra, sem lést 8. júní. Mörg ríki hafa notað tækifærið til að bæta samskiptin við Nígeríu, fjöl- mennasta land Afríku, sem versnuðu vegna tregðu Abacha til að virða mannréttindi og koma á lýðræði í landinu. Stuðningsmenn Abiola fullir efasemda Annan sagði að herforingjastjórn- in myndi tilkynna síðai' hvenær fangarnir yrðu leystir úr haldi en nefndi ekki Abiola sérstaklega í því sambandi. Hann sagði þó að Abiola teldi ekki lengur að hann gæti gert tilkall til forsetaembættisins. Hann væri við góða heilsu en hefði kvartað yfir því að vera úr tengslum við um- heiminn og stuðningsmenn sína. „Með því að falla frá kröfunni hef- ur Abiola greitt fyrir því að hann verði leystur úr haldi,“ sagði hátt- settur embættismaður í Abuja. „Það gæti gerst mjög bráðlega." Olisa Agbakoba, leiðtogi forystu- hreyfingar stjórnarandstöðunnar, UAD, sagðist í gærkvöldi enn bíða þess að heyra það frá Abiola sjálfum, að hann hefði fallið frá tilkallinu til að setjast í forsetastólinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.