Morgunblaðið - 03.07.1998, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 9
FRÉTTIR
Álit hóps um áhrif Efnahags- og myntbandalags Evrópu
Áhrif einkum á
fj ármálastofnanir
Morgunblaðið/Golli
FINNUR Ingólfsson, Davíð Oddsson og Ólafur Davíðsson á blaða-
mannafundinum í gær.
EKKI er talin ástæða til að hafa
áhyggjur af stofnun Efnahags- og
myntbandalags Evrópu, EMU, og
upptöku nýrrar Evrópumyntar, evru
eða evrós, hjá 11 Evrópuþjóðum um
næstu áramót, að mati samráðshóps
um áhrif Efnahags- og myntbanda-
lags Evrópu á íslenskt efnahagslíf
sem skilaði áliti sínu í gær. Hópurinn
var skipaður af líkisstjórn Islands í
framhaldi af skýrslu sem Seðlabank-
inn birti á síðasta ári um sama efni.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneytinu og formaður
hópsins, Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, og Þórður Frið-
jónsson, ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu, kynntu álits-
gerð samráðshópsins á biaðamanna-
fundi í forsætisráðuneytinu í gær.
Stofnun myntbandalagsins mun
ekki krefjast skjótrar stefnubreyting-
ar í gengismálum að mati hópsins en
talið er að stofnun bandalagsin geti
bæði haft í för með sér jákvæða og
neikvæða þætti íyrir ísienskt efna-
hagslíf.
Helstu viðskiptalönd Islands í Evr-
ópusambandinu, Svíþjóð, Danmörk
og Bretland, ætla ekki að taka upp
sameiginlegan gjaldmiðil strax að
minnsta kosti og er það meðal annars
ein ástæða þess að ekki er talið að
þörf sé á að hafa áhyggjur af banda-
laginu sem stendur. Ef löndin hins
vegar ganga í EMU eftir árið 2002,
sem búist er við að gerist, þegar evr-
an verður orðin lögeyrir í þeim 11
löndum sem taka sameiginlega upp
gjaldmiðilinn, er að sögn Davíðs
Öddssonar forsætisráðherra ástæða
til að endurskoða afstöðu Islands til
EMU. „Ef þessi ríki kæmu til með að
vera í myntbandalaginu snemma á
næstu öld þá má segja að þunginn í
okkar utanríkisviðskiptum sem eiga
sér stað innan myntbandalagsins sé
orðinn helmingi meiri en við núveandi
aðstæður. Það er ljóst að ef löndin
ganga í myntbandalagið, þá hefur
stofnun myntbandalagsins gengið vel
og þar með er ástæða fyrir okkur að
endurskoða okkar afstöðu, það væri
heimskulegt að gera það ekki,“ sagði
Davíð Oddsson.
Ólafur Davíðsson sagði að með
þátttöku þessara þjóða myndu hugs-
anlega verða skoðaðar einhliða og tví-
hliða tengingar íslensku krónunnar
við evruna. „Þá verður reynsla komin
á evruna og einnig komin reynsla á
hvernig Islendingum hefur gengið að
haga efnahagslífi sínu í nýju um-
hverfi.“
Þægilegft að eiga við stóra heild
Með tilurð myntbandalagsins munu
10 myntir 11 ríkja hverfa af vettvangi
og eftir stendur ein mynt og ein sam-
eiginleg gengisstefna hjá löndunum 11.
Þar með geta neytendur í löndunum til
dæmis borið mjög auðveldlega saman
verð á vörum auk þess sem stofnun
bandalagsins getui- stuðiað að vaxta-
lækkun og stöðugleika í löndunum.
I niðurstöðum samstarfshópsins
segir að jákvæð áhi-if sem stofnun
myntbandalagsins muni hafa, ef vel
tekst til, sé að viðskiptakostnaður ís-
ienskra fyinrtækja muni minnka og
aukin hagkvæmni í viðskiptum innan
myntbandalagsins mun að einhverju
marki skila sér til íslenskra neytenda.
Væntanlegrar framieiðsluaukningar
innan myntbandalagsins munu Islend-
ingar njóta í formi lægra innflutnings-
verðs. „Sameiginleg mynt leiðir tii
sparnaðai’ hér í byrjun, leiðir til lækk-
andi vöruverðs og lækkandi innflutn-
ingsskatts. Það gefur augaleið að það
er þægilegra að eiga viðskipti við
svona stóra heild í einum gjaldmiðli og
það leiðir einnig til einföldunar og hag-
ræðingar hjá íslenskum fyrirtækjum.
Það er augljós kostur,“ sagði Davíð
Oddsson.
Neikvæð áhrif af myntbandalaginu
gætu orðið að samkeppnisstaða ís-
lenski’a fyrirtækja gagnvart evrópsk-
um keppinautum getur versnað meðal
annars. Tekjur banka af gjaldeyrisvið-
skiptum munu minnka og möguieikum
á spákaupmennsku mun fækka.
Ahrifa EMU mun einkum gæta hjá
fjármálastofnunum og tekjur þeirra
gætu minnkað.
Áhrif verða einnig mikil hjá fjrir-
tækjum sem flytja vörur út til Evr-
ópu, og einnig hjá þeim fyrirtækjum á
innanlandsmarkaði sem eru í sam-
keppni við evrópsk fyrirtæki, að mati
samráðshópsins. Minnst yrðu þau hjá
þeim fyrirtækjum sem eru eingöngu
á innanlandsmai’kaði.
„EMU snýst um gengis- og pen-
ingamál fyrst og fremst og því mun
áhrifanna einkum gæta hjá fjármáia-
stofnunum," segir Óiafur Davíðsson.
„Eins og nú horfir með þátttöku þess-
ara 11 ríkja sem taka þátt í mynt-
bandalaginu frá næstu áramótum þá
verða ekki þær breytingar í okkar
gengismálum að það kaili á sérstakar
aðgerðir. Gengisstefnan hefur skiiað
okkur góðum árangri að undanförnu,
stefna stöðugs gengis. Hins vegar
verða menn að búast við því að frekari
sveiflur geti orðið í gjaldeyrismálum.
Við þurfum að styrkja okkar gjaldeyr-
issjóð og okkar efnahagsstjóm og við
þurfum að fara yfir okkar stjómtæki í
peningamáium," sagði Ólafur.
Engin kollsteypa
Að sögn Davíðs hafa þessi um-
skipti, sem er mikilvægasta breyting
á gjaldeyriskerfi heimsins um langt
skeið, verið vel undirbúin hjá yfir-
völdum hér á landi.
Þeir segja að skoða verði betur ým-
is tæknileg atriði, eins og tii dæmis
það sem gert verður í Svíþjóð, að
leyfa fyrirtækjum að færa bókhald
sitt í evmm.
„Við höfum verið að gera ýmsar
breytingar á fj ármagn smarkaði og
höfum verið að búa okkur undir þess-
ar breytingar hægt og bítandi og því
verður ekki um neina kollsteypu að
ræða,“ segir Finnur Ingólfsson.
Islensk stjórnvöld hafa ekki á
stefnuskrá sinni að sækja um aðild að
Evrópusambandinu og í skýrslunni
segir að á meðan sú stefna sé óbreytt
komi þátttaka í myntbandalaginu
ekki til álita.
Leiðir í gengismálum á næstu ár-
um velta mjög á afstöðu stjórnvalda
til aðildar að ESB og efnahgaslegra
tengsia við Evrópu. I álitinu segir
einnig að ef stjórnvöld telji ESB-aðild
koma tii greina að uppfyiltum
ákveðnum skilyrðum, kunni að vera
skynsamlegt að styrkja tengsl krón-
unnar við það gjaldmiðiasvæði sem
iíkiegt væri að iandið tiiheyrði í fram-
tíðinni.
Aukin tengsl við evm er að mati
samráðshópsins ekki raunhæf fyrr en
fleiri ríki en þau 11 sem taka munu
þátt í upphafi hafa fengið aðild að
myntbandalaginu. Þá er einkum átt
við stærsta viðskiptaland ísiands á
sviði vöruviðskipta, Bretiand.
Fjórir kostir
Fjórh’ eftirfarandi kostir vom
ræddir að því er varðar tengsl við
evrusvæðið en í þeim felast mismun-
andi leiðir til að framkvæma fast-
gengisstefnu með tengingu við evru: í
fyrsta lagi einhliða tenging sem felur
í sér einhliða yfirlýsingu íslenskra
stjórnvalda um að halda gengi krón-
unnar föstu gagnvart evm. I öðru lagi
tvíhliða tenging sem hefði í för með
sér nokkum ávinning að mati sam-
ráðshópsins hvað varðar trúverðug-
leika og er að því leyti vænlegri kost-
ur. Samkomulag yrði gert við Seðla-
banka Evrópu um að verja gengi
krónunnar gagnvart evm innan
ákveðinna marka.
I þriðja lagi yrði svokallað myntráð
róttækara skref í átt til sterkari teng-
ingar en með myntráði er innlendur
gjaldmiðill einungis gefinn út í skipt-
um fyrir erlendan gjaldmiðii. I fjórða
og síðasta lagi er síðan bent á notkun
evru sem lögeyris en það kæmist
næst beinni þátttöku í myntbandalag-
inu hvað trúverðugleika áhrærir.
Þetta yrði ÞÓ ekki mögulegt fyrr en í
fyrsta iagi eftir að evruseðlar og
evrumynt fara í umferð árið 2002.
Hagfræðistofnun hefur unnið að
skýrslu um myntbandalagið og ís-
lenskan vinnumarkað. Niðurstaða
stofnunarinnar er að svo virðist sem
tenging krónunnar við evm í eitt
skipti fyrir öll gæti leitt til meira at-
vinnuleysis en ella undir ákveðnum
kringumstæðum og benti forsætis-
ráðherra sérstaklega á þennan þátt í
áliti samráðshópsins á fundinum.
Oskum viðskiptavinum olÁap
qóárap lielqap.
Lokaá á mopcjun,
lauqapdaq 4. júlí.
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Sumartilboð
Opiö virka daga 9—18,
laugardaga 10—14.
TGSS
neðst við Dunhaga,
sími 562 2230.
Ný sending af hinum frábæru stretsbuxum
Útsala
á ölluin öðrum vörum
hjáXý&afhhildi
^ Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Silfurpottar í Háspennu, dagana 18. til 29. júní 1998
Dags. Staður Upphæð
18. júní Háspenna, Hafnarstræti 180.844 kr.
19. júní Háspenna, Hafnarstræti 171.844 kr.
20. júní Háspenna, Kringlunni 58.066 kr.
24. júní Háspenna, Hanarstræti 451.417 kr.
26. júní Háspenna, Laugavegi 56.408 kr.
26. júní Háspenna, Hafnarstræti 135.730 kr.
29. júní Háspenna, Hafnarstræti 111.360 kr.
29. júní Háspenna, Hafnarstræti 50.818 kr.
Laugavegi118 Hafnarstræti 3 Kringlunni 8