Morgunblaðið - 03.07.1998, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.07.1998, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998 19 Airbus semur við US Air um sölu á 30 vélum París. Reuters. AIRBUS Industrie hefur seilzt inn á umráðasvæði keppinautarins Boeing Co. og skýrt frá því að bandaríska flugfélagið US Airways Group Inc. hafi pantað allt að 30 breiðþotur af gerðinni A330. Samningurinn ber vott um vax- andi mátt hinnar evrópsku flugiðn- aðarsamsteypu, sem kveðst hafa fengið 52% allra pantana á áætlun- arflugvélum í heiminum á fyiTa árs- helmingi 1998 - sem er bezta frammistaða í 28 ára sögu fyrirtæk- isins. US Air sagði eftir margi-a vikna togstreitu Airbus og Boeing að fé- lagið fengi fyrstu A330 vélarnar af- hentar í árslok 1999 og það mun gera því kleift að auka umsvif sín á leiðum yfir Atlantshaf. „Flugvélafloti okkar verður að langmestu leyti skipaður Airbus eftir aðeins nokkur ár,“ sagði aðal- framkvæmdastjóri US Air, Stephen Wolf, á blaðamannafundi. US Air er sjötta stærsta flugfélag Bandaríkjanna og mun að sögn Wolfs greiða lægi'a verð fyrir hinar 30 flugvélar én listaverð þeirra, sem er 3,7 milljarðar dollara. Félagið kaupir sjö A330 fyrst í stað, sjö pantanir verða ítrekaðar og bersýnilegt er að nýttur verði réttur til að kaupa 16 flugvélar að auki. „Sannleikurinn er sá að við hyggjumst kaupa allar flugvélarnar 30,“ sagði Wolf. U.S. Air verður fyrsta bandaríska flugfélagið sem fær til afhendingar flugvélar af gerðinni A330, sem taka 335 farþega og hafa 10.200 km flug- þol. Viðræður við hreyflaframleið- endur hefjast bráðlega. Annar stóri samningurinn Petta er annar meiriháttar samn- ingur U.S. Air í Virginíu og Airbus í Toulouse - fyrir tveimur árum samdi U.S. Air við Airbus um kaup á allt að 400 vélum af gerðinni A320, sem er minni, og verður sú fyrsta tekin í notkun í október. Sem stendur notar félagið 12 —:—------------- Fjórðungur greiðir aldamóta- kaupauka London. Reuters. ÓLÍKT því sem almennt er talið hafa flest brezk fyrirtæki ekki í hyggju að greiða tölvunarfræðing- um kaupauka til að halda þeim þeg- ar aldamótin ganga í garð. Samkvæmt athugun Computer Weekly ætlar aðeins fjórðungur fyrirtækja að greiða tölvusérfræð- ingum þóknun fyrir að starfa til 2000. Birzt hafa margar fréttir þess efnis að tölvustarfsmönnum hafi verið boðnar gífurlegar launahækk- anir og bónusgreiðslur til að tryggja að þeir vinni að endurforrit- un og komi í veg fyrir hrun tölvu- kerfa 31. desember 1999. Á báðum áttum Mörg fyrirtæki eru á báðum átt- um og munu ekki borga, ef þau þurfa þess ekki, samkvæmt frétt- inni. Þar sem kaupauki er í boði er hann hár. Þriðjungur fyrirtækja, sem ætla að greiða bónus, segja að upphæðirnar séu 35-50% af árs- launum. Nær engar greiðslur eru þó fyrirhugaðar fyrir 2000. Ti-yggingafélög eru rausnarleg- ust. Næst koma matvæla-, drykkj- arvöru- og tóbaksfyrirtæki og tölvu- þjónustur. Boeing 767-200 vélar á leiðum yfir Atlantshaf. Að sögn Wolfs sann- færðu nokkur atriði hann um að semja um nýjar vélar frá Airbus - meðal annai-s meira farþegarými og meiri flutningsgeta, hagstæðai'i kjör og skjótari afhending. Ólíkt Boeing hefur Airbus ekki orðið fyrir barðinu á Asíukreppunni að ráði. Fyrr á þessu ári ákvað Iberia að kaupa 50 Airbus vélar til flugs á styttri leiðum og tryggja sér rétt á 26 í viðbót. Air France hefur ítrekað pöntun á 20 Airbus A320 með rétt til að kaupa 20 í viðbót. Airbus hefur einnig borið sigur- orð af Boeing í Suður-Ameríku, þar sem LanChile, Taca í E1 Salvador og TAM í Brasilíu pöntuðu í marz 90 A320 og A319 þotur að verðmæti 4 milljarðar dollara. Samkvæmt fjölmiðlafréttum hyggst British Airways snúa baki við Boeing og kaupa Airbus vélar í fyrsta skipti fyrir um tæpan einn milljarð dollara. FORSTJÓRAR US Air og Airbus, Stephen Wolf (t.v.) og Noel Forege- ard, skýra frá því að bandaríska flugfélagið hafi pantað 30 Airbus A330 breiðþotur. (aðeins í Blómaval, Reykjavík) Þýsk PFEIFFER garðhúsgögn. Borð, bekkur og tveir stólar Kr. 37.000,- ruivjLi j v/ v í J ruiv. Minni kr. 39.990,< stærri kr. 39.990,- HÖNNUN ODDI HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.