Morgunblaðið - 03.07.1998, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1998
ERLENT
MORGUNB LAÐIÐ
ÚR VERINU
RÆKJU landað úr Skutli ÍS 180, 120 tonnum,
sem hann fékk fyrir norðan.
Menn muna
ekki eftir öðru
eins moki
Einn maður með allt að sex
tonn í stuttum róðri
ísafirði. Morgunblaðið.
VEL hefur gefið á sjó fyrir smá-
báta á norðanverðum Vestfjörðum
í allt sumar, að síðustu viku undan-
skilinni. Þorskur er um allan sjó og
aflabrögð litJu bátanna hafa verið
með slíkum eindæmum, að jafnvel
Vestfírðingar eiga tæpast orð til að
lýsa því.
Þrátt fyrir brælu á miðunum í
síðustu viku var glaðasólskin á Isa-
firði alla daga, „reiðaralogn" og
Pollurinn eins og spegill. Síðan gaf
aftur um síðustu helgi og hefur
verið gott síðustu daga. Það heitir
reiðaralogn, þegar reiðarinn situr
heima í blíðalogni og skilur ekkert
af hverju kallinn er ekki á sjó.
Margar
rækjulandanir
Allmiklu hefur verið landað af
rækju á ísafirði. Togarinn Skutull
kom með 120 tonn sem hann fékk
fyrir norðan land, Framnesið kom
með 30 tonn, Sólbakur landaði 16
tonnum og Gunnbjörn 10 tonnum.
Stakfellið frá Þórshöfn kom á
mánudag með 200 tonn af frosinni
rækju af Flæmingjagrunni. Erling-
ur landaði á þriðjudag 15 tonnum
af rækju og Guðmundur Péturs 14
tonnum.
Rækjan sem kemur á land á Isa-
firði fer öll til vinnslu í Básafelli,
nema hvað Framnesið veiðir fyrir
Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal og
Súðavík.
Rækjuveiðin við Vestfirði hefur
ekki verið neitt sérstök að undan-
fömu en eitthvað virðist þó vera að
lifna yfir henni.
ísfisktogarinn Stefnir kom til
ísafjarðar á mánudaginn með 60
tonn af blönduðum afla, einkum
ýsu og kola, og sama dag kom Páll
Pálsson með 90 tonn af blönduðu.
Þá kom hér flutningaskip og tók
nokkur tonn af frystum gulllaxi til
útflutnings, sem Júlíus Geirmunds-
son og Stefnir höfðu fengið.
GÆÐA MÚRVÖRUR
Á GÓÐU VERÐI
SlDAH 1972
MÚRFLEX Á SVflLIR 0G ÞÖK
!■ steinprýði STANGARHYL 7, SIMI 567 2777
Hefst ekki undan
á Suðureyri
Rúm 1.100 tonn komu á land á
Suðureyri í júnímánuði, nær ein-
göngu þorskur og eingöngu af
smábátum, en engir stærri bátar
eða togarar leggja þar upp. Fjöldi
smábáta sem rær frá Suðureyri er
mjög breytilegur, frá um 50 og upp
í um 80, enda mikið um að menn
komi þangað með báta úr öðrum
landshlutum. Aflinn fer í ýmsar
áttir til vinnslu, enda vantar mikið
á að hægt sé að anna honum öllum
á Suðureyri en þar eru tvær salt-
fiskverkanir.
Aflabrögðin í sumar hafa verið
,alveg frábær“, eins og þeir segja á
hafnarvoginni á Suðureyri. I júní-
mánuði komu á land í Bolungarvík
873 tonn af færabátum, línubátum
og dragnótabátum, nánast allt góð-
ur þorskur, en einnig lítilsháttar
stembítur eins og sagt er upp á
vestfirsku og ýsa. Um 55 bátar
hafa róið frá Bolungarvík í sumar,
þar af um 15 aðkomubátar.
Fiskur uppi um
allan sjó
Tíðin til sjósóknar hefur verið
einmunagóð í allt sumar ef síðasta
vika er undanskilin. Aflinn hefur
líka verið svo góður, að elstu menn
muna ekki annað eins mok og hafa
ekki spumir af svo miklum þorski í
sjónum á þessari öld. Mjög stutt er
að sækja fiskinn, rétt út undir
Stigahlíðina eða út í Djúpkjaftinn.
Iðulega fær einn maður á báti 3-5
og jafnvel upp í 6 tonn í stuttum
róðri og þykir sumum að bátamir
séu stundum nokkuð mikið hlaðnir,
en á móti kemur að lengstum hefur
verið rjómalogn og mjög gott í sjó-
inn.
Engin stærri skip eða bátar
leggja upp í Bolungarvík en tveir
aðkomubátar veiða fyrir rækju-
vinnslu Þorbjarnar hf. og eru þar í
föstum viðskiptum. Ymsir era
búnir eða að verða búnir með
kvótann, enda þótt menn haft
keypt viðbótarkvóta eins og þeir
hafa getað. Mikill hugur er í ung-
um mönnum í smábátaútgerð í
Bolungarvík og hafa bátar verið
keyptir þangað að undanförnu á
mjög háu verði.
,Þeir hafa gert það helvíti gott“,
eins og það var orðað á hafnarvog-
inni. Nú bíða Bolvíkingar eftir
loðnunni en í fyrra kom fyrsti
loðnufarmurinn til bræðslu hjá
Gná hf. þann 8. júlí.
Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins
Skæruliðar í Kosovo
stunda hryðjuverk
Moskvu, Belgrad, Búkarest, Pristina, Bonn. Reuters.
TALSMAÐUR rússneska utanrík-
isráðuneytisins, Vladímír Rak-
hmanín, sagði í gær á blaðamanna-
fundi að Rússar teldu ekki að full-
trúar KLO, vopnaðra uppreisnar-
manna í Kosovo-héraði, ættu að
taka þátt í friðarsamningum milli
albanskra íbúa Kosovo og stjórn-
valda Serba. Bandaríkin, Þýskaland
og fleiri ríki mæla með þátttöku
uppreisnarmanna.
„Við teljum að hið svonefnda
KLO geti ekki talist stjómmála-
samtök. Hingað til hafa verið í þeim
nokkrir skæruliðahópar sem oft
skortir sameiginlega yfirstjóm og
hafa staðið fyrir hryðjuverkum í
Kosovo,“ sagði Rakhmanín.
Helsti leiðtogi Kosovo- Albana,
Ibrahim Rugova, hefur verið and-
vígur því að reynt verði að beita
vopnavaldi til að losna undan yfir-
ráðum Serba en fylgi hans hefur
minnkað að undanfómu. KLO hefur
að sama skapi vaxið ásmegin.
Haft var eftir Richard Hol-
brooke, sem nýlega var skipaður
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sa-
meinuðu þjóðunum, í gær að skæru-
liðar í Kosovo fengju fé og nýliða
frá nokkrum vestrænum löndum.
Nefndi hann sérstaklega Þýska-
land, Sviss og Danmörku. Um 1.000
Kosovo-Albanar búa í Danmörku.
Utanríkisráðherra Ítalíu, Lam-
berto Dini, hvatti á miðvikudag að-
skilnaðarsinna af albönskum upp-
runa í Kosovo til að leggja áherslu á
kröfu um sjálfræði í eigin málum
héraðsins.
Dini sagði lausnina á deilunum í
héraðinu vera umtalsvert sjálfræði
fyrir héraðið en aðskilnaðarsinnar
þar njóta stuðnings Albana í móður-
landinu. Hundrað manna hafa fallið
undanfarnar vikur og tugþúsundir
flúið heimili sín. Eitthvað hefur
flóttamannastraumurinn minnkað
síðustu daga vegna bardaga á
landamærunum en að sögn tals-
manns Sameinuðu þjóðanna í gær
er talið að alls 76.000 manns hafi
orðið að flýja. Flestir íbúar héraðs-
ins eru af albönskum stofni en það
tilheyrir Serbíu er nam úr gildi lög
um sjálfræði héraðsins árið 1989.
„Svo virðist sem stjórnvöld í
Belgrad hafi samþykkt þessar hug-
myndir. Það er mikilvægt að
Kosovo og Albanía samþykki þær,“
sagði Dini sem var í heimsókn í
Rúmeníu sem á landamæri að
Kosovo.
Reuters
RYUTARO Hashimoto, forsætisráðherra Japans, hneigir sig fyrir
kjósendum á kosningafundi í Usunomiya, norðan við Tókýó, í gær.
Kosið verður tii efri deildar þingsins 12. júlí.
Kláfferjuslysið á ftalíu
Flugmenn
fari fyrir
herdómstól
Jacksonville. Reuters.
HERDÓMARI
mælti með því í
gær að flugmaður
og aðstoðarflug-
maður bandarískr-
ar herflugvélar, er
olli dauða 20 skíða-
manna í kláfferju í
ítölsku Ölpunum í
febrúar síðastliðn-
um, verði leiddir
fyrir herdómstól.
Æðsti yfirmaður
landgönguliðs
bandaríska flotans
mun taka endan-
lega ákvörðun um
hvort herréttar-
höld fari fram.
Herdómarinn lagði
til að flugmaður
vélarinnar, Ric-
hard J. Ashby, og aðstoðarflugmað-
ur, Joseph P. Schweitzer, yrðu sóttir
til saka fyrir manndráp af gáleysi,
fyrir að valda tjóni á eignum hersins
og einkaeignum, og fyrir að brjóta í
bága við skipanir.
Tveir aðrir landgönguliðar voru
um borð í flugvélinni þegar slysið
átti sér stað, en dómarinn mæltist til
þess að kærur á hendur þeim yrðu
Iátnar niður falla.
-----------------
Schweitzer
Uppstokkun banka
áætluð í Japan
Tókýó. Reuters.
STJORN Japans samþykkti í gær
áætlun um stofnun sérstakra banka,
sem eiga að taka við hlutverki banka,
sem verða gjaldþrota vegna slæmra
lána, og hlaupa undir bagga með fyr-
irtækjum, sem hafa staðið í skilum og
teljast lánshæf, næstu árin.
Áætlunarinnar hafði verið vænst
lengi og hún er svar japönsku
stjórnarinnar við gagnrýni ráða-
manna í Bandaríkjunum og víðar á
japanska bankakerfið.
„Við þurfum að afskrifa slæm lán
og söðla um frá slæmum lántakend-
um til góðra,“ sagði Ryutaro Has-
himoto, forsætisráðherra Japans, í
ræðu fyrir fund stjórnarinnar.
í skýrslu nefndar, sem samdi
áætlunina, sagði að gert væri ráð
fyrir að bankakerfið yrði endur-
skipulagt með sameiningu banka og
fleiri ráðstöfunum, m.a. gjaldþrots-
meðferð ef þörf krefur.
Háttsettur embættismaður í fjár-
málaráðuneytinu sagði þó að ekki
væri búist við því að margir bankar
yrðu gjaldþrota.
Fjármálasérfræðingar sögðu þó
að áætlunin væri ekki allra meina
bót fyrir bankakerfið og yrði ekki að
miklu gagni ef einhver af stóru
bönkunum yrði gjaldþrota. „Þeir
verða örugglega álitnir of stórir til
að verða gjaldþrota, óháð því hvort
það er siðferðilega eða hagfræðilega
rétt,“ sagði einn þeirra.
Daginn áður höfðu japönsku
fjármálamarkaðirnir rétt nokkuð
úr kútnum vegna væntinga, sem
gerðar voru til áætlunarinnar, en
gengi hlutabréfa og jensins lækk-
aði aftur í gær þegar ljóst var að
engar aðrar ráðstafanir yrðu til-
kynntar, t.a.m. skattalækkanir sem
margir hagfræðingar hafa vonast
eftir.
Erbakan ekki
sóttur til saka
Ankara. Reuters.
SAKSÓKNARI í Tyi-ldandi hefur
ákveðið að lögsækja ekki Necmettin
Erbakan, fyrrverandi forsætisráð-
herra landsins, vegna ræðu sem
hann flutti í pílagrímsför til Mekka.
Saksóknarinn vísaði til fyrningar-
laga þegar hann tilkynnti að fallið
yrði frá ákæru á hendur Erbakan,
sem varð fyrsti leiðtogi íslamsks
stjórnmálafiokks til að gegna emb-
ætti forsætisráðherra árið 1996 en
lét af embættinu í fyrra. Erbakan
hafði verið sakaður um að „kynda
undir hatri“ þegar hann ávarpaði
tyrkneska pílagríma í Mekka árið
1993. Hann á yfir höfði sér aðrar
ákærur, sem tengjast herferð gegn
íslömskum heittrúarmönnum eftir að
samsteypustjórn hans féll.
Erbakan hefur verið ákærður fyr-
ir að vanvirða dómsvaldið en mætti
ekki fyrir rétt þegar málið var tekið
fyi-ir í vikunni. Stjórnlagadómstóll
leysti flokk hans upp í janúar og
bannaði honum að gegna forystu-
störfum í stjórnmálum í fimm ár.