Morgunblaðið - 11.07.1998, Side 2
2 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ágreiningur um gildi reglugerðar er heimilar ökuleyfíssviptingu
Svipting lögreglu til
bráðabirgða dæmd ógild
SVIPTING ökuleyfis til bráða-
birgða, sem ökumanni var gert að
sæta af hálfu lögreglunnar í
Reykjavík í gærmorgun, var felld
úr gildi í Héraðsdómi Reykjavíkur
síðdegis í gær. Var niðurstaða
dómsins að ágreiningur væri um
gildi reglugerðar nr. 280/1998 að
því er varðar heimild til sviptingar
ökuréttar og ekki verði séð að
reynt hafi á gildi hennar fyrir dómi.
Málsatvik eru þau að lögreglu-
menn mældu kl. 8.55 í gærmorgun
hraða bíla sem óku suður Njarðar-
götu að Sóleyjargötu. Hraði öku-
tækis mældist 64 km/klst. en á
þessum vegarkafla er hámarks-
hraði 30 km/klst. Mælt var með
radar í kyrrstæðum lögreglubíl.
Ökumaður kvaðst ekki hafa ekið
hraðar en 40 til 50 km en að lokinni
skýrslutöku hjá lögreglu var hon-
um kynnt ákvörðun aðalvarðstjóra
um bráðabirgðasviptingu ökuréttar
í einn mánuð. Þessu undi ökumað-
urinn ekki. Krafðist hann þess að
sviptingin yrði felld úr gildi og var
málið tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Ökumaður sótti málið sjálfur
ásamt Tómasi Jónssyni hrl. Kröf-
Rimlar fyrir gluggum
una um ógildingu sviptingarinnar
byggja þeir á því að reglugerð frá
því í maí, nr. 280/1998, hafi ekki
lagastoð að því leyti sem hún mæli
fyrir um sviptingu ökuréttar þegar
hraði sé orðinn 30 km yfir leyfileg-
um hámarkshraða. Vitnað er til
101. greinar umferðarlaga nr.
50/1987 þar sem segir að meginskil-
yrði fyinr ökuleyfissviptingu sé að
ökumaður hafi gerst sekur um
mjög vítaverðan akstur eða ef telja
verður með hliðsjón af eðli brotsins
eða annars framferðis ökumanns að
varhugavert sé að hann stjómi vél-
knúnu ökutæki. Telja þeir að akst-
ur á 64 km hraða niður Njarðar-
götu á þurrum vegi í björtu veðri
geti ekki talist vítaverður.
Dómvenja um sviptingu við
50 km yfir hámarkshraða
Sækjandi heldur því og fram að
dómvenja hafi skapast fyrir því að
ökumenn verði ekld sviptir ökurétt-
indum fyrr en hraði þeirra nemi
meira en 50 km yfir leyfðum há-
markshraða. Reglugerð nr. 280/
1998 feli í sér verulega breytingu
frá gildandi réttarframkvæmd og
verulega þyngingu refsinga við
hraðakstursbrotum. Telur sækjandi
varhugavert að svipta menn öku-
réttindum meðan mál þeirra séu í
rannsókn enda kveði dómstólar upp
úr um sekt og ákvörðun viðurlaga.
I niðurstöðu dómsins segir að
ágreiningur sé uppi um það hversu
hratt sækjandi hafi ekið. Einnig sé
ágreiningur um gildi reglugerðar-
innar nr. 280/1998. „Ljóst er að
reglugerðin breytir dómvenju sem
myndast hefur um það hvenær
sviptingu ökuréttar er beitt þegar
um of hraðan akstur er að ræða. Þá
leikur vafi á að sóknaraðili teljist
hafa gerst sekur um mjög vítaverð-
an akstur sannist að hann hafi ekið
á 64 km hraða.“
Guðjón Magnússon, lögfræðingur
hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík,
sem var talsmaður vamaraðila,
tjáði Morgunblaðinu í gær að ekki
lægi fyrir hvort þessum dómi yrði
áfrýjað. Ekki væri heldur hægt að
segja á þessari stundu hvort dómur-
inn myndi breyta starfsaðferðum
lögreglunnar. Sagði hann nauðsyn-
legt að fá ákæru og efnisdóm sem
reyna myndi á gildi nýju reglugerð-
arinnar hvað varðaði sviptingu öku-
réttar.
UNA María og Hermann passa
Mósa frá Múlakoti sem bróðir
þeirra, Guðmundur Óskar Unn-
arsson, hafði nýlokið við að
keppa á á landsmóti hesta-
manna á Melgerðismelum.
Landsmótið er ekki aðeins fyrir
Yfir sjö þús-
und manns á
landsmóti
Morgunblaðið/Ásdís
hestamenn heldur getur Qöl-
skyldan notið góðrar skemmt-
unar í heilnæmu umhverfí. Veð-
ur fór kólnandi á Melgerðismel-
um í gærkvöld.
■ Landsmótið/25/26
Dætur Sophiu og Halims eru nú
á unglingsaldri. Dagbjört er 17 ára
en Rúna er 15 ára og verður 16 ára
í haust. Stúlkumar ganga í skóla
strangtrúaðra múslima í Istanbúl
og gengur vel, en að sögn Sigurðar
fengu þær sérstök verðlaun í vor
fyrir að hafa verið hæstar yfir skól-
ann. Næsta vor útskrifast þær sem
stúdentar frá skólanum.
Sophia útskýrði fyrir Sigurði
símleiðis í gær hvernig gæslu væri
háttað í þorpinu, en hún er mjög
ströng. Að hennar sögn vaka lög-
regla, hermenn og óeinkennis-
klæddir lögreglumenn yfir henni og
dætnmum. Mæðgurnar hittast á
heimili Halims, en að sögn Sophiu
eru rimlar fyrir öllum gluggum á
heimili hans. Nágrenni Divrigi og
næsta stóra borg, Sivas, er eitt höf-
uðvígi heittrúaðra múslima, en þeir
hafa enga tilburði haft, að sögn Sig-
urðar, til að ógna Sophiu.
Aðspurður um hvað mæðgurnar
hefðust að á fundum sínum sagði
Sigurður að þær hefðu ákveðið að
dvelja innan dyra, skoða myndir og
ræða saman.
Sophia og dætur hennar hittast
síðan aftui- í dag á heimili Halims Al.
^ Morgunblaðið/Halldór
Utsölurnar hafnar
SUMARÚTSÖLUR eru hafnar í eða á bilinu 20-50% en dæmi eru
flestum verslunum. Kaupmenn eru um allt að 90% afslátt.
ánægðir og segja verslun mikla. ________________________-
Afsláttur er svipaður og í fyrra ■ Sumarfatnaður/22
Sinnaskipti
Halims A1 vekja
undrun fjölmiðla
SOPHIA Hansen hitti dætur sínar,
Dagbjörtu og Rúnu, á heimili
Halims Al, fóður þeirra, í fjalla-
þorpinu Divrigi í Tyrklandi eftir
hádegi í gær. Að sögn Sigurðar
Péturs Harðarsonar stuðnings-
manns hennar er Sophia ánægð
með það sem hefur áunnist 1 henn-
ar málum en hún hefur nú hitt dæt-
ur sínar í einrámi þrjá daga í röð en
svo lengi hafa þær ekki verið sam-
vistum í mörg ár.
Andrúmsloftið á milli þeirra
Sophiu og Halims hefur ekki verið
betra í annan tíma og hagar hann
sér nú óaðfinnanlega, að sögn Sig-
urðar. Hann segir umfjöllun fjöl-
miðla í Tyrklandi nú einkennast af
umfjöllun um sinnaskipti Halims A1
og spyrja menn sig hvað hafi gerst,
að hans sögn.
Veitingastaðir í
Reykjavík
Afgreiðslu-
tíminn
frjáls frá
21. júlí?
AFGREIÐSLUTÍMI veit-
ingastaða í Reykjavík verður
gefinn frjáls, sennilega frá og
með 21. júlí næstkomandi,
verði tillögur nefndar sem
fjallar um afgreiðslutíma veit-
ingahúsa samþykktar.
Samkvæmt núgildandi regl-
um mega veitingastaðir hafa
opið milli ldukkan sex á
morgnana og til klukkan þrjú
að nóttu. I undantekningartil-
feUum getur borgarráð heim-
ilað annan afgreiðslutíma.
Vínveitingar áfram
óheimilar eftir klukkan 03
Eftir sem áður verða vín-
veitingar bannaðar eftir
klukkan þrjú að nóttu, en að
sögn Helga Hjörvar borgar-
fulltráa er stefnt að því að það
bann verði fellt úr gildi frá og
með 1. september.
Tvær umræður þurfa að
fara fram um tillöguna í borg-
arstjóm og jafnframt þarf
hún að fá staðfestingu dóms-
málaráðuneytis.
16SÍBUR
ÁLAUGARDÖGUM
Gulltár Zagallo, hins litríka
þjálfara Brasilíu / B2
Grasið Stade de France-
leikvanginn í París selt/B1