Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hjónin á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd opnuðu Búgarð
Húsdýra- og
fjölskyldugarð-
ur í sveitinni
BÚGARÐUR sem Inga Árna-
dóttir og Stefán Tryggvason,
ábúendur á Þórisstöðum, opn-
uðu fyrr í sumar nýtur mikilla
vinsælda og hafa fjölmargir
lagt þangað leið sína. Þar gefst
kostur á að skoða kýr og hesta
úti á túni, en heima við hefur
verið komið upp húsdýragarði,
þar sem eru fuglar; hænur,
gæsir, endur og kalkúnar, kan-
ínur, kálfar, kindur og kett-
lingar. Þau Inga og Stefán
eiga fjóra syni og dóttur sem
flutt er að heiman. Elstu strák-
amir, 14 og 16 ára, vinna við
Búgarð en hinir eru yngri, 2ja
og 6 ára.
Mjaltabásinn
til í haust
í fyrrasumar hófu þau að
byggja mjaltabás við fjósið og
ákváðu í framhaldi af því að
stækka byggingunaog bæta
veitingastofu við. „Ég hugsa
ýmislegt í fjósinu, þegar mað-
ur er að spjalla við kýrnar
dettur manni margt í hug,“
sagði Stefán um upphaf þess
að farið var út í framkvæmdir.
Þau Stefán og Inga bjuggu í
tíu ár á Kjalamesi, fremur litlu
búi, en fluttu til Akureyrar
fyrir nokkmm árum og voru
þá jafnframt að leita að hent-
ugri jörð, nægilega stórri til að
hægt væri að hafa af henni
góðar tekjur. Eftir tveggja ára
leit keyptu þau Þórisstaði á
Svalbarðsströnd þar sem þau
hafa búið síðustu ár. Mjalta-
básinn sem þau byijuðu á í
fyrra verður tilbúinn með
haustinu. Með tilkomu hans
gefst gestum Búgarðs kostur á
að fylgjast með mjöltum í fjós-
inu úr veitingastofunni, en hún
tekur um 30 til 40 manns í
sæti. Gestimir geta einnig tek-
ið með sér sitt kaffi sjálfir og
neytt þess í skjólgóðum reit.
„Fyrst við vorum að fara út í
byggingaframkvæmdir fannst
okkur tilvalið að bæta veit-
ingastofunni við,“ sagði Inga,
en þegar þau bjuggu á Kjalar-
nesi tóku þau gjarnan á móti
skólabörnum af höfuðborgar-
svæðinu sem vildu kynna sér
lífið í sveitinni. „Það var mjög
gaman að taka á móti bömun-
um og við höfum haldið því
áfram hér fyrir norðan," sagði
Inga, en á rúmum tveimur vik-
um í vor heimsóttu um 900
skólaböm staðinn.
Margvíslegir
möguleikar
Framkvæmdir standa enn
yfir, en m.a. er verið að útbúa
gerði framan við veitingastof-
una, gróðurtorg þar sem fólk
getur setið í ró og eins er verið
að útbúa gönguleiðir um skóg-
arreit svo fólk geti notið hans
betur. Þá er hugmyndin einnig
að koma upp eins konar galler-
u en húsbóndinn nýtir veturinn
til að útbúa muni sem gerðir
era úr birki úr skógarreitnum.
„Möguleikarnir era margvís-
legir og við ætlum að nýta
okkur þá,“ sagði Stefán, en
meðal hugmynda er að efna til
sýninga í veitingastofunni,
bjóða upp á tónlist eða nám-
skeið svo eitthvað sé nefnt.
Þá er fyrirhugað samstarf
milli Búgarðs, Safnasafnsins
og Laufáss undir merkjum al-
þýðumenningar við Eyjafjörð
og verður menningin, náttúran
og sagan þar í brennidepli.
Fram til þesáa hafa fá tækifæri
gefíst fyrir ferðalanga að
staldra við á þessum slóðum,
en nú er ætlunin að vekja á
þeim athygli.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
STEFÁN Tryggvason og Inga Árnadóttir í veitingastofunni
við Búgarð.
HÆNURNAR vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið þegar systkinin Vala og Teit-
ur Guðmundarbörn komu þrammandi.
REYNIR ÖRN og Védís Áslaug skoða
kettlingana.
INGÞÓR Björnsson, Árni Steinar Stefánsson og
Gunnar Björn Jónsson að skoða nýfæddan kálf,
en kýrin GuIIa bar eftir hádegið í gær.
BRÚSI sem Stefán býr til úr
birki.
ÞAÐ er gott að fá sér ís eftir að hafa skoðað dýralífið á Búgarði,
eins og þau gerðu Teitur og Vala sem heimsóttu garðinn f gær.
Vegleg skilti með upplýs-
ingum um Eyjafjarðarsveit
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
STEFÁN Árnason hjá Eyjafjarðarsveit og Halldór Jóhannsson lands-
lagsarkitekt sem hannaði skiltið.
Bæjarstjóri um álit
Samkeppnisráðs
Farið verður
yfír stöðuna
KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á Akureyri segir að viðbrögð
Akureyrarbæjar við áliti Sam-
keppnisráðs vegna kvörtunar
Stálsmiðjunnar um opinberan fjár-
stuðning til Slippstöðvarinnar
verði þau að rætt verði við for-
svarsmenn Slippstöðvarinnar og
síðan metið hvemig við verður
brugðist.
Samningur um leigu Slippstöðv-
arinnar á upptökumannvirkjum
Akureyrarbæjar gildir til ársins
2005 og sagði bæjarstjóri að ekki
væri ástæða til að rifta við honum.
Kristján vildi ekki tjá síg um álit
Samkeppnisráðs, sagði að fyrir
lægi niðurstaða þess í málinu og
reynt yrði að vinna úr henni eins
vel og unnt væri.
Taldi Kristján að niðurstaða
Samkeppnisráðs myndi kalla á
ákveðna skoðun og breytingar á
vinnubrögðum hjá öðmm skipa-
smíðastöðvum, en víðar en á Akur-
eyri væra ríkisstyrkt upptöku-
mannvirki. „Ég held að forsvars-
menn annarra slippstöðva þurfi að
skoða stöðuna hjá sér, ég held að
það verði óhjákvæmilegt“.
í EYJAFJARÐARSVEIT hafa
verið sett upp tvö vegleg skilti,
annað við útsýnisstað við þjóð-
veginn hjá Húsabrekku og hitt
skammt frá bænum Hvammi við
Eyjafjarðarbraut eystri. Halldór
Jóhannsson, landslagsarkitekt
hjá teiknistofunni Teikn á lofti,
hannaði skiltin.
Skiltin em tvískipt. Annars
vegar er kort af Eyjafjarðarsveit
þar sem getið er um öll lögbýli í
sveitinni sem og eyðibýli, ár eru
merktar inn á kortið og fjöll og
getið um hæð þeirra auk þess
sem sýnd er gönguleið um ós-
hólma Eyjafjarðarár og reiðleið
frá Akureyri að Melgerðismel-
um. Einnig er þar af fínna ítar-
legar upplýsingar um áhuga-
verða staði í sveitinni, óshólm-
ana, Leyningshóla og kirkjur og
er texti bæði á íslensku og ensku.
„Við vonumst til þess að þessar
aðgengilegu upplýsingar örvi
ferðamenn til að aka um þessa
fögru sveit,“ sagði Halldór.
Þjónustutafla
Á hinu kortinu er þjónustu-
tafla, þar sem m.a. er greint frá
gisti- og veitingastöðum, við-
gerðarþjónustu og öðru sliku
sem er að finna í Eyjafjarðar-
sveit. Þá er sagt frá helstu við-
burðum í sveitinni á töflunni og
nú má þar finna upplýsingar um
Landsmót hestamanna á Mel-
gerðismelum en að því loknu
verða upplýsingar um sýninguna
Handverk ‘98 hengdar upp.
Allir þeir sem efna til ein-
hverra viðburða í sveitinni geta
fengið pláss á töflunni til að til-
kynna um þá, m.a. um leiksýn-
ingar, tónleika eða dansleiki svo
eitthvað sé nefnt.
Til stendur síðar að setja upp
sérstök söguskilti á tveimur stöð-
um í Eyjaíjarðarsveit, við kirkju-
staðina á Saurbæ og Grund.
Borgarbíó sýnir
Armageddon
Þrjár sýning-
ar um helgina
BORGARBÍÓ á Akureyri sýnir stór-
myndina Armageddon á þremur
sýningum daglega um helgina. „Við
höfum verið að boða heimsendi alla
vikuna og nú er komið að þessu,“
sagði Jóhann Norðfjörð fram-
kvæmdastjóri Borgarbíós, en hann
sagði að stemmningin fyrir sýningu
myndarinnar væri afar góð.
Myndin var frumsýnd í gær, föstu-
dag, og sýnd þrisvar, en í dag, laug-
ardag, og á morgun, sunnudag,
verða sýningar kl. 17, 21, og 23.45. I
næstu viku verða tvær sýningar á
dag en ef viðtökur verða góðar sagði
Jóhann að sýningum yrði fjölgað að
nýju um aðra helgi.
Gott bíósumar
Borgarbíó hefur boðið gestum sín-
um upp á íslandsfrumsýningar aðra
hvora viku í allt sumar og hefur það
mælst vel fyrir, að sögn Jóhanns.
Nokkur deyfð virtist koma yfir
bíófara eftir Titanic-æðið sem gekk
yfir í upphafi árs. „Þá fengum við alla
þá gesti sem að jafnaði koma einu
sinni á ári í bíó, en ég geri ráð fyrir
að marga af þeim fýsi að fara aftur
nú sjá þessa risamynd," sagð Jóhann,
en það sem af er sumri hefur aðsókn
að kvikmyndahúsinu verið góð.