Morgunblaðið - 11.07.1998, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
finnur hitann
frá Frakklandi á Fótboltavef mbl.is
Á Fótboltavef Morgunblaðsins finnur þú allt um HM í Frakklandi.
Nýjar og heitar fréttir daglega, leikirnir, leikmennirnir, staðan,
riðlarnir, sagan og ótal margt fleira áhugavert.
www.mbl.is/boltinn
Erlendur
skuldabréfa,-
sjóður í ís-
lenskum
krónum
STJÓRN Hávöxtunarfélagsins hf.,
dótturfyrirtækis Kaupþings, hefur
breytt fjárfestingarstefnu Einingar-
bréfa 5, sem er ein af sjóðsdeildum
félagsins. Breytingarnar tóku gildi
um mánaðamótin og felast, að sögn
Páls Arnasonar hjá Kaupþingi, í því
að sjóðurinn mun framvegis gera
minni kröfur um lánshæfismat þeirra
skuldabréfa sem hann fjárfestir í.
Þarmeð eykst áhætta, en að sama
skapi eru möguleikar á hærri ávöxt-
un. Þá hafa lágmarkskaup í sjóðnum
lækkað úr 10 milljónum króna í 200
þúsund krónur og sjóðurinn mun
framvegis eiga fleiri flokka bréfa en
áður.
Eldri fjárfestingarstefna Eininga-
bréfa 5 var svohijóðandi: „Eininga-
bréf 5 eru alþjóðlegur skuldabréfa-
sjóður sem fjárfestir á erlendum
verðbréfamörkuðum. Lágmarkskaup
í sjóðnum eru 10 milljónir. Sjóðurinn
fjárfestir aðallega í mjög öruggum
skuldabréfum með lánshæfi AAA, AA
og A á verðbréfamörkuðum víðs veg-
ar um heim (íslenska ríkið er með
lánshæfi AA). Sjóðurinn á að jafnaði
um 15-20 flokka bréfa. Fjárfest er í
bréfum í ýmsum myntum en sjóður-
inn er varinn fráviki („hedged") í
verðgildi einstakra gjaldmiðla gagn-
vart dollar með framvirkum samning-
um („forward contracts") og vilnun-
um („options").
Nýja fjárfestingarstefnan er
þannig: „Sjóðurinn fjárfestir aðallega
í skuldabréfum með lánshæfi BBB,
BB og B á verðbréfamörkuðum víðs
vegar um heim (íslenska ríkið er með
lánshæfi á bilinu A-AA). Sjóðurinn á
að jafnaði a.m.k. um 40 flokka bréfa.
Fjárfest er í bréfum í ýmsum mynt-
um en sjóðurinn er varinn fráviki í
verðgildi einstakra gjaldmiðla gagn-
vart íslensku krónunni með fram-
virkum samningum og vilnunum.
Þannig er skuldabréfasjóðurinn er-
lendur skuldabréfasjóður í íslenskum
krónum.“
Páll segir að reynslan sýni að
áhætta varðandi greiðslufall á skulda-
bréfum með lánshæfi BBB, BB og B
sé lítil. „Þessi breyting er gerð til að
mæta óskum fjárfesta, sem eru aðal-
lega stofnanafjárfestar," segir hann.
Fótboltavefur mbl Allt um HM og Islandsmótið í knattspyrnu.
Tap breytist í hagnað hjá
Fiskiðjunni Skagfirðingi
REKSTUR Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings hf. á Sauðárkróki skilaði lið-
lega 61 milljónar kr. hagnaði fyrstu
átta mánuði yfirstandandi rekstr-
arárs sem hófst 1. september sl. Er
það gjörbreytt afkoma frá því sem
verið hefur því tæplega 39 milljóna
króna tap var á rekstrinum síðustu
átta mánuðina þar á undan.
Fiskiðjan gerir út fimm togara
og rekur bolfiskverkun á Sauðár-
króki og rækju- og hörpudisk-
vinnslu í Grundarfirði. Reksturinn
hefur gengið erfiðlega síðustu ár
og fyrir tveimur árum var starf-
semin í landi á Sauðárkróki dregin
mikið saman. Undanfarna mánuði
hefur starfsemin aftur verið aukin.
A Sauðárkóki sérhæfir fyrirtækið
sig í frystingu þorskflaka sem sög-
uð eru niður og sett í poka. Flökin
eru seld til verslanakeðja í Þýska-
landi og Belgíu. Jón Eðvald Frið-
riksson framkvæmdastjóri segir að
þessi framleiðsla gangi vel og fyrir
liggi pantanir á allri framleiðslu til
næstu áramóta. Hráefnið í fram-
leiðsluna kemur af ísfisktogara fyr-
irtækisins sem landar vikulega.
Einnig er nokkuð unnið að sölt-
un en sá fiskur er keyptur á fisk-
mörkuðunum.
Hækkað afurðaverð og minni
útgerðarkostnaður
Jón segir að afkoma vinnslunnar
hafi gjörbreyst á stuttum tíma. Af-
urðaverð hafi hækkað verulega.
Nefnir Jón að dæmi séu um 20%
hækkun verðs á ákveðnum afurð-
um á einu ári. Hann segir að það
hafi einnig mikil áhrif á afkomuna
að miklu auðveldara sé að veiða
þorskinn. Togararnir nái þorsk-
skammtinum á tveimur til þremur
dögum, í stað viku áður, og geti síð-
an notað það sem eftir er vikunnar
til að veiða aukategundir. Aukaafl-
inn sé seldur á fiskmörkuðum og
það skili áhöfninni og fyiártækinu
góðum tekjum.
Mikið hefur verið unnið að hag-
ræðingu í Fiskiðjunni Skagfirðingi
hf. eftir það sameiningarferli sem
fyrirtækið gekk í gegnum. Hún
felst meðal annars í því að vinnslan
á Sauðárkróki hefur verið færð
saman í eitt hús, frystihús Fiskiðj-
unnar, en áður var hún á nokkrum
stöðum. Þannig hefur saltfiskverk-
unin verið færð þangað og nú er
unnið að því að færa pökkunarstöð-
ina úr frystihúsi Skjaldar yfir í
Fiskiðjuhúsið og gera með því
vinnsluferilinn einfaldari og eðli-
legri. Jafnhliða hefur verið unnið
að endurbótum á rekstri rækju-
verksmiðju fyrirtækisins í Grund-
arfirði.
Þrjú skip á
úthafskarfa
Vinnsla verður stöðvuð á Sauð-
árkróki í einn mánuð í sumar, lok-
að er frá 10. júlí til jafnlengdar í
ágúst. Fólkið tekur sér sumarfrí og
á meðan er unnið að endurbótum
og viðhaldi á húsnæði.
Fiskiðjan Skagfirðingur gerir
þrjú skip út á úthafskarfa, frysti-
skipið Málmey og tvö ísfiskskip
sem landa á fiskmarkaði, og að
sögn Jóns lítur vel út með það að
kvótinn náist. Fyrirtækið á 3.700
tonna úthafskarfa og er búið að
veiða um 2.700 tonn af honum.
Nýr hugbúnaður
Heldur utan
um hluta-
bréfaeign
HAFIN hefur verið dreifing á nýju
tölvuforriti, „Safnið 1.0.“, sem ætl-
að er að aðstoða einstaklinga við að
halda utan um eign sína á hluta-
bréfum.
Forritið er hannað af hugbúnað-
arfyrirtækinu Tölvumyndum í
samstarfi við nokkur verðbréfafyr-
irtæki.
Að sögn Omars Arnar Jónsson-
ar, starfsmanns sölu og markaðs-
deildar Tölvumynda, er fonitið
tengt fjármálatorginu sem gerir
fólki mögulegt að fylgjast með
gengi hlutabréfa sinna á hverjum
tíma. Forritið má nálgast á heima-
síðum Verðbréfadeildar Búnaðar-
bankans, Fjárvangs og Lands-
bréfa, án endurgjalds.
Pharmaco
semur við
Búnaðar-
bankann
LYFSÖLUFYRIRTÆKIÐ
Pharmaco hf. hefur gengið frá
lánsfjármögnun við Búnaðar-
banka Islands, samtals að fjárhæð
500 milljónir króna. Meðfylgjandi
mynd er frá undirritun samninga.
Frá vinstri: Árni Oddur Þórðar-
son, forstöðumaður markaðsvið-
skipta Búnaðarbankans, Sindri
Sindrason, forstjóri Pharmaco,
Jón Adólf Guðjónsson bankastjóri
og Árni M. Emilsson, útibússtjóri
Búnaðarbankans f Garðabæ.
Annars vegar er um að ræða
300 milljóna króna erlent lán til
fimm ára og hins vegar 200 millj-
óna skuldabréfaútboð. I tilkynn-
ingu frá Búnaðarbankanum segir
að við vaxtakjör erlenda lánsins
sé tekið mið af íslensku myntkörf-
Morgunblaðið/Golli
unni og kjörin séu hagstæðari en
Pharmaco hafi áður borist.
Skuldabréfin eru seld til lífeyris-
sjóða og annarra stofnanafjár-
festa fyrir milligöngu bankans og
eru þau til sex ára með 5,50%
ávöxtunarkröfu eða um 0,70% yfir
ávöxtun spariskírteina ríkissjóðs.