Morgunblaðið - 11.07.1998, Page 23

Morgunblaðið - 11.07.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SPU RT E R m/F' 18 mHm 18 H m m w Hvað er pýrrhosar- sigur? MENNING - LISTIR 1. Þekktur franskur heimspeking- ur sem oft hefur verið kenndur við póstmódernisma lést nýlega. Hvað hét hann? 2. Nýlega kom út bókin Hetjan og höfundurinn - brot úr íslenskri menningarsögu. Eftir hvem er hún? 3. Frægur gamanþáttaleikari kom til landsins og skemmti lands- mönnum í vikúnni. Hvað heitir hann? SAGA 4. Indónesar innlimuðu Austur- Tímor árið 1975, sama ár og þjóðveldishreyfíngin Fretilin lýsti yfir sjálfstæði nýlendunnar. Hvaða tvær Evrópuþjóðir ríktu áður á eyjunni í krafti nýlendu- valds og hvor þeirra réð yfir Austur-Tímor? 5. Hvar var gríski stærð- og eðlis- fræðingurinn Arkimedes stadd- ur þegar hann hrópaði upp yfir sig „Evreka!“ og hvað merkir orðið? 6. Hvenær var Milljónafélagið svo- kallaða stofnað og hvað var við- fangsefni þess? LANDAFRÆÐI 7. Bærinn Roquefort í S-Frakk- landi er þekktur fyrir vissa landbúnaðarafurð. Hver er hún? 8. Hvað heitir höfuðborg eyjunnar Jamaíku og í hvaða hafi er hana að finna? 9. Milli hvaða tveggja jökla liggur Fjallabaksvegur syðri á Mæli- fellssandi? ÍÞRÓTTIR 10. Feðgar mættust í fyrsta skipti í leik með úrvalsdeildarliðum í 20. ELDFJALLIÐ á myndinni er það nyrsta í heimi. Hvað heitir það og eyjan sem það stendur á? knattspyrnu er KR vann Val í bikarkeppni KSÍ. Hvað heita þeir? 11. Hvaða tveir leikmenn Englands misnotuðu vítaspyrnur sínar í vítaspyrnukeppni við Argentínu í HM, sem Argentínumenn unnu 4:3? 12. Danir komust í 8-liða úrslit HM. Hverja lögðu þeir að velli? ÝMISLEGT 13. Fjallkonan er eins og allir vita tákn eða persónugervingur Is- lands. í hvaða kvæði var hún fyrst nefnd til sögunnar og hver samdi það? 14. Hvað er pýrrhosarsigur? 15. Hvaða dýr er Auðhumla í nor- rænni goðafræði og hvern nærði hún? 16. Hvað kallast sú að iðja að standa á sviði fyrir framan áhorfendur og ryðja út úr sér bröndurum og gamanmálum? 17. Hvað heitir eyjan sem höfuð- staður Færeyja, Þórshöfn, stendur á? 18. Um hvaða land rennur fljótið Pó og hvaða sérstöðu hefur það? 19. Hvað er litanía? ■ueAeiAi uer je uelAs 6o 6jequejeeg jipsiq giney '02 'Jegeujes 6o sjssjd jiijtu ixia e ufiuns uæg '61. 'ni|e)j )ofi) e)s6ue| je 9d '81 'AoluAsj)s egs ‘Aeiunej)s '/j '„Apeujoo dn-pue)s“ j| -jAj ‘pue)S|ddn '9) 'iuuis >119(10 g iuja uuiunjof igjæu unq 6o ujndojpujuq jn e6epje j |i) qjba uies ih\ je 'v '9) 'IQJSa njAp jo jn)dAe>| je uies jn6uejy p) uesuejejoiji eujefg s piojesj B|UJe6pg '£) ■uusiunus6iN zJ 'A))eg piAea 6o eou| ineg ■) j ussuiiolgno ueúis Jnea 6Ó joújv '0 J 'úgjou i s|rí>igfepoi 6o ugns i s’|n>|g[s|epjA|A| |j||UJ jn6&| uuunösA '6 'jeqeqije» 'U0)s6u|>j '8 >||o(ujegnes jn jn)son|6Auje|q js jnjsopojenboý •/ 'gjs6)n gw )s>|>(ej 6o usssusp jojji 6o !uAssu|S)SJoqi T !J)Sd je /06) gué geujojs jba iai '9 '„gecj gipunj jjsq 63“ JigAej gigjo 60 igeq 1 jnppejs jba -y '9 '9/6J Q!J? jouun-v ?jj moj npujsujegjs J©d 'J!ie6npod 60 je6uipus||0H 'V 'Pisjuiss '8 'uose6|SH |JB>| uop z pjejoA-) sioóuejg-uesr ' J :joas Hástemmdir draumar DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns Mynd/Kristján Kristjánsson DRAUMARNIR leita hátt þegar hugur fylgir máli. Á HÁTÍÐIS- og tyllidögum verða margir upphafnir í anda og þjóð- legir í hjarta, stórar stundir í lífi þjóðar gera mennina meyra og miklir straumar vakna af lit fán- ans og þjóðsöng. Hátimbraðar hugsanir leita á og draumsýnir birtast. Draumurinn um æðra sjálf þjóðarinnar í frelsi og friði fer sem leiftur um skynfærin og í þesum' draumkennda veruleika verður draumur draumsins virkur. Hátt skal haldið í fjallasal fleygra orða um hillingar fjarlægra heima til fræðara draumsins. Draumarnir stóru sem fleygja þjóðum fram á braut sinni birtast oft á há- stemmdum stundum. Þá koma til vitundarinnar boð um merka menn sem stíga munu á stall, um uppgötvanir í vísindum, mikla tón- list, listræna framvindu og læknis- fræðilegar lausir. Einn slíkan draum dreymdi mig iyrir nokkrum árum sem var eitthvað á þessa leið. „Mér fannst ég hitta bróður minn fullan og gekk hann framhjá ryðgaðri vélasamstæðu með vín- flösku og fullt vínglas af ljósu víni (berjavíni) í hendi, þegar hann gengur framhjá samstæðunni slett- ist úr glasinu á hluta vélarinnar. Ég stend álengdar og fylgist með og sé að þar sem vínið slettist á vél- arhlutann, gerðist nokkuð merki- legt, hluturinn líkt og endumýjast, ryðið hverfur og hluturinn verður glampandi sem nýr.“ Fyrst eftir að mig dreymdi drauminn, skildi ég hann ekki og hugsaði því lítt um hann lengi vel, en nú tel ég að í honum geti falist lausn á ráðgát- unni um vágestinn eyðni eða HIV- veirana sem herjar á þjóðir jarðar um þessar mundir. I draumnum sá ég bróður minn sem tákn meðbróð- ur, ryðguðu vélina sem gangverk mannsins og vínið sem náttúrulega lausn á miklum vanda. Draumar „Sölku“ . I. Ég er stödd við göng niður í jörðina, sem ég þarf að fara ofan í. Göngin eru á einhvern hátt á veg- um foreldra minna. Það er beygur í mér en ég verð að fara í göngin sem eru rökkvuð, skítug og ónota- leg. Ég fer niður í þau í opinni lyftu og á leiðinni kemur grár köttur hvæsandi og ætlar að ráð- ast á mig. Ég bregst skjótt við, hasta á hann og banda til hans höndunum. Hann gerir tvær til þrjár tilraunir en kemst ekki að mér. Þegar niður er komið kem ég í sal eða geymslupláss sem ég geng í gegnum, við enda hans er brattur stigi og uppi yfir stiganum er op út í dagsbirtuna og þar stendur faðir minn (hann lést fýrir 5 árum). Ég fer upp til hans, glöð að sjá hann en hann er frekar daufur í bragði og alvarlegur. Hjá honum stendur einhver sem hann er að tala við en ég veit engin deili á og ég fer. Næst kem ég hlaup- andi inn í eitthvert herbergi ásamt manneskju sem heldur á riffli okk- ur til varnar. Við fleygjum okkur upp í hjónarúm í öllum fótum, dæsum af ánægju að vera komin í öruggt skjól. Þá verður mér litið út um gluggann og sé föður minn koma gangandi. Ég sprett upp. „Nú er pabbi kominn." Ég er glöð að sjá hann, hann kemur inn, þá sprettur manneskjan með riffilinn upp og setur sig í viðbragðsstöðu. Ég lít hálf hissa á hana og hugsa „Hvað, þetta er bara pabbi.“ Ég segi við pabba í spurnartón: „Þú hefur komið við á hinum staðnum“ og var að vísa til opsins við lyftu- göngin. Hann er áfram alvarlegur og svarar: „Ég hitti þig þar.“ II. Ég er stödd á æskustöðvum (í sveit) foður míns ásamt honum og systursyni. Ekki veit ég hvað við vorum að gera þarna en mér leið afskaplega vel. Ég er alsæl og ánægð að systursonur minn er með. Hann var ánægður að sjá og ég faðmaði hann, hélt utan um hann miðjan og lagði höfuðið upp að maganum á honum eins og lítil böm gera (ég var greinilega líka lítU). Næst er ég að segja systram mínum frá þessu, ég var yfir mig hrifin og þær hrifust með, en móð- ir mín stóð álengdar með efasemd- arsvip. Ég lagði mig fram um að sannfæra þær og lýsti því að fóður- amma mín hefði verið þarna og tvö systkyni pabba. III. Ég er með systur minni, hún situr á stól og ég horfi á höf- uðið á henni og sé að það er „grá- lúsugt“. Reyndar var allt morandi í litlum hvítum kúlum sem ég var viss um að væri nit. Ég varð skelf- ingu lostin, tók hárkamb og fór að kemba hárið á henni. Eg náði þessu úr. En ég var hrædd um að þetta kæmi aftur og hafði því gæt- ur á henni. Ráðning Draumarnir þrír era á sinn hátt samtengdir og fjalla um þig, per- sónu þína og tengsl við umhverfi, vini og vandamenn. Fyi-sti draumurinn lýsir ferð um tímabil i lífi þínu. I draumnum sækirðu aftur til fortíðar (göngin niður í jörðina) og skoðar hug þinn (geymsluplássið) varðandi sam- skipti þín og þinna nánustu (faðir þinn) í þessari fortíð. Draumurinn talar um að þau samskipti hafi byggst á hvössum aðgerðum (maðurinn með riffilinn) eða eng- um (faðir þinn var daufur og fálát- ur). Þessi fyrram samskipti virð- ast hamla þér í dag og nú hefur þú með draumi þínum ákveðið að komið sé nóg af því góða og tími til kominn að gera upp hug sinn. Seinni draumurinn lýsir þeim ánægju sem þú upplifir við þessi sinnaskipti (fyrsti draumur), þá sátt og þann frið sem þú fínnur koma til þín (ég var svo glöð og faðmaði fóður minn, hélt utan um hann miðjan og lagi höfuðið upp að maganum á honum eins og lítil börn gera). Þessi innri ánægja vekur hjá þér þörf til að deila henni með öðrum (systur), þeim til góða en hjá sumum vekur það efa- semdir (móðir) í staðinn, þrátt fyrir góðan hug (fóðuramma og systkini pabba þíns en nöfn þeirra standa fyrir jafnlyndi í eifiðleik- um) sem fylgir þér. En í þriðja draumnum virðist þú hafa haft erindi sem erfiði að koma fyrrnefndum jákvæðum skilaboðum til skila (nitin) og upp- skerð ríkulega (systir þín var grá- lúsug og lús er bráðsmitandi). •Þe/r lesendur sem vilja fá drnuma sína birta og ráðna sendi þá með fullu nafni, fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og dulnefni til birtingar til: Draumstafir Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.