Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. S AMGÖN GUB YLTIN G HVALFJARÐARGÖNG verða opnuð almennri um- ferð í dag. Akvegur milli Akraness og miðbæjar Reykjavíkur styttist um 60 km. Verður álíka langur og leiðin frá Reykjavík til Hveragerðis eða Reykjanesbæj- ar, rúmir 40 km. Göngin tengja og landshluta betur saman, stytta akveg vestur og norður um 42 km. Þau styrkja og umferðaröryggi. Hvalfjörður er fögur byggð, sem gleður augu allra sem um hann ferðast, ekki sízt á björtum sumardögum, en þar geta leynzt slysagildrur, einkum á vetrum. Fátt ef nokkuð er nútíma þjóðarbúskap mikilvægara en góðar samgöngur. Það á ekki sízt við um fámenna eyþjóð í stóru og strjálbýlu landi. Góðvegir eru æðanet samfélagsins. Þeir tengja saman landshluta, byggðir og fólk, - atvinnulega, félagslega og menningarlega. Þeir eru og á okkar tímum forsenda hagræðingar, samstarfs og sameingar fyrirtækja og sveitarfélaga, sem talið er æskilegt til að styrkja byggð og samkeppnisstöðu í strjálbýli. Enn lifir fólk sem man Island nánast vegalaust. A morgni 20. aldarinnar, sem senn kveður, voru engir vegir hér á landi, sem rísa undir því heiti í nútímaskiln- ingi orðsins vegur. Á landi var hesturinn eina „sam- göngutæki“ fólks bæja og byggða á milli, eins og verið hafði frá landnámi. Hér voru heldur engar hafnir, utan þær sem voru náttúrusmíð. Og flugið var framtíðar- draumur. Á þessari öld, reyndar á tíma sem er litlu lengri en meðalævi íslendings á seinni hluta 20. aldar, hafa samgöngur, innanlands og við umheiminn, breytzt svo mikið að tala má um samgöngubyltingu. Þróunin í flug- og landsamgöngum á síðustu áratugum er ævin- týri líkust. Islenzk kaupskip sigla um öll heimsins höf. En eftirsjá er að farþegaskipum, sem voru flaggskip flotans fyrr á tíð. Eftir þúsund ára byggð í landinu við vegleysur var farið að ryðja fyrir vegum á síðari hluta 19. aldar. Skipuleg vegagerð hófst þó ekki fyrr en um aldamótin. Fyrstu vegirnir voru afar frumstæðir, sem vonlegt var, með þeirra tíma tækni. Á fjórða áratugnum var samt sem áður akfært að kalla milli helztu héraða landsins. Malarvegir þess tíma þættu þó vart boðlegir í dag. Valdimar Kristinsson, viðskiptafræðingur, sem mikið hefur ritað um samgöngumál, segir í grein í Fjármála- tíðindum 1984: „í lok styrjaldarinnar [heimsstyrjaldar- innar síðari] rann hins vegar upp jarðýtuöld á Islandi, og þá var farið að leggja hærri vegi en áður, eða „upp- úr snjónum" sem kallað var, og bæta þannig skilyrðin fyrir vetrarumferð.“ Hann segir ennfremur: „Lagning bundins slitlags á þjóðvegi hér á landi á sér ekki langa sögu og hefst raunar ekki að marki fyrr en með lagn- ingu nýrrar Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur, sem steypt var á árunum 1962 til 1965.“ Síðan hefur íslenzkri vegagerð miðað hratt áfram. Hr- ingvegurinn er að mestu leyti bundinn slitlagi sem og flestir vegir í þéttbýli. Jarðgöng tengja byggðir og stytta leiðir: Strákagöng, Oddskarðsgöng, Múlagöng, Vestfjarðagöng og nú síðast göng undir sjávarbotn Hvalfjarðar, sem opnuð verða almennri umferð í dag, sem fyrr segir. Bílum hefur fjölgað mjög mikið undanfarið, vegir hafa batnað, leiðir stytzt. Þessar bættu samgöngur hafa geysimikil áhrif, efnahagsleg og félagsleg. Byggð- ir, sem áður voru aðskildar, renna saman í atvinnu- og þjónustusvæði, styrkjast og eflast. Þær bæta og stöðu ferðaþjónustu, sem verið hefur vaxtarbroddur í at- vinnulífinu. Bættir vegir lengja og endingartíma bif- reiða og draga úr eldsneytiskostnaði. Og síðast en ekki sízt auka þær umferðaröryggi. Nýjasta stórvirki í íslenzkri vegagerð, Hvalfjarðar- göngin, eru íslendingum mikið fagnaðarefni. Ástæða er til að óska öllum landsmönnum, og ekki sízt stjórnend- um og starfsmönnum Spalar hf., til hamingju með af- rekið. Hvalfjarðargöngin eru á hinn bóginn ekkert lokaskref í samgöngubyltingu þjóðarinnar. Mörg brýn verkefni bíða á vegferð hennar inn í nýja öld. Nefna má tvöföldun Reykjanesbrautar, sem tengir höfuðborgar- svæðið við Flughöfn Leifs Eiríkssonar, gangagerð við Héðinsfjörð, sem tengja mun Siglufjörð og Eyjafjörð, og gangagerð á Austfjörðum, sem styrkja mun byggð í Austfirðingafjórðungi - á sama hátt og Vestfjarðagöng hafa styrkt atvinnu-, félags- og menningarlíf á Vest- fjörðum. HM í KNATTSPYRNU Á þeim hvíla augu heimsins Búist er við að allt að fjórðungur mannkyns, 1,4 milljarðar, muni fylgjast með beinni sjónvarpsútsendingu frá úrslitaleik Heims- meistaramótsins í knattspyrnu milli Frakka og Brasilíumanna annað kvöld. Er mótið til- efni hugleiðinga Orra Páls Ormarssonar en að leik loknum er ævintýrið úti. Jörðin fer aftur að snúast! Reuters TÁKNRÆNAR myndir fyrir leikinn annað kvöld. Reynsluleysið skín úr and- liti Frakka sem leika nú í fyrsta sinn til úrslita um heimsmeistaratitilinn i knatt- spyrnu. Brasilíumenn hafa á hinn bóg- inn marga fjöruna sopið, eru ferfaldir heimsmeistarar og leika nú til úrslita í sjötta sinn. En verður franski haninn, tákn landsliðsins, jafn berskjaldaður í leiknum á morgun og kjúklingur Brasil- íumannsins eða munu heimamenn fagna á Champs Elysees eins og þeir gerðu eft- ir sigurinn á Króötum í undanúrslitum? OSKAPLEGA stóðu Danir sig vel,“ segir tengdamóðir mín, sem ég hef ekki í ann- an tíma heyrt tala um knattspyrnu - hef raunar aldrei sett hana í samhengi við knattspymu. Heima hjá mágkonu minni koma „Danirnir" saman til að horfa á Ieik- inn. Vænir menn en ekki vissi ég að þeir hefðu danskt blóð í æðum. í vinnunni er þessu eins farið. Konan á næsta borði spyr mig hvort mér hafi þótt brottvísun Þjóðverjans Wörns gegn Króatíu réttmætur dómur og hvort ekki sé líklegt að taugar Frakkanna bili í úrslitaleiknum. Handan við þilið heyri ég síðan menn dást að tilburðum Thurams hins franska, Bergkamps frá Hollandi, Króatans Sukers og Ronaldos hins brasilíska. „Miklir kappar það.“ Það er bara konan mín sem sýnir engin merki um áhuga. Hún tilheyrir aftur á móti fámennum minnihlutahópi sem verður einfaldlega að kyngja því að í rúmar fjórar vikur á fjögurra ára fresti snýst lífið um knattspymu - HM fer fram. Reyndar sýnir hún málinu meiri skilning með hverri keppninni sem líður og núorðið ryksugar hún aðeins fyrir leik og eft- ir eða í hléi. Lifandis ósköp virkar lýðræðið vel þegar maður er í meiri- hluta! Svo til allir hafa skoðun á HM - til sjós og lands. Dagskrá ólympíu- leikanna í eðlisfræði var meira að segja hliðrað til svo keppendur gætu svalað knattþorsta sínum - og klætt sig upp á í sæmræmi við til- efnið. Og hver var fyrsta spurning júgóslavnesku innflytjendanna við komuna til landsins? „Hvar er sjón- varpið?“ Manni skilst meira að segja að lífríki sjávar sé óhult fyrir mannlegri íhlutun meðan leikir standa yfir. Sá sem ekki hefur skoð- un á HM hlýtur að vera úti á hinni víðáttumiklu þekju þar sem tveir menn eða fleiri taka tal saman, hvað þá í samkvæmum! Það sem meira er allir virðast fylgja ákveðnum liðum að málum. En af hverju stjómast val fólks á „sínum mönnum“? Seint verðum við íslendingar með lið í lokakeppni HM, þannig að róa verð- ur á önnur mið. Frændrækni okkar eyjarskeggja er annáluð og þar sem við eigum ekki sjálfir hlut að máli leitum við jafnan fyrst að Dönum. Gömlu kynnin gleymast ei! Eins og gefur að skilja spillir gott gengi aldrei fyrir og þar sem frammistaða dönsku leikmannanna á þessu móti var til mikils sóma voru þeir að sönnu „strákamir okkar". Síðan em Danir bara svo góðir menn, eins og sagt var í minni sveit í gamla daga, þegar annar hvor fjósamaður í Eyja- firði var danskur. Það er önnur saga. Niðurdrepandi Norðmenn Aðrir frændur, Norðmenn, tefldu líka fram liði í Frakklandi og vísast hafa einhver íslensk hjörtu slegið örar er þeir piltar geystust um gmndir. Fæstir höfðu þó hátt um stuðning sinn við þá enda hafa Norð- menn ekki notið mikillar hylli hér heima eftir að þeir fóm að abbast upp á okkur norður í Smugu. Þar fyrir utan leikur norska liðið al- veg dæmalaust leiðinlega knatt- spymu. Illa er ég svikinn ef allstór hópur Islendinga hefur ekki verið á bandi Englendinga í keppninni enda hefur ensk knattspyma verið snar þáttur í íþróttamenningu þjóðarinnar undan- fama áratugi. Þökk sé sjónvarpinu. Virðist þessi uppmnalega útgáfa greinarinnar ætla að halda velli þótt Bjami Fel sé nú, illu heiUi, fjarri góðu gamni og Enska knattspyman heiti orðið Enski boltinn í íslensku sjón- varpi. Umgjörðin mun þó seint spUla innihaldinu. Enn aðrir velja sér lið alfarið á fagurfræðilegum forsendum. Hjá þeim voru Italir um tíma í miklum metum enda var okkar afskekkta ey- ríki í eina tíð talin trú um að þar í landi væri tilþrifamesta knattspyrn- an leikin. Annað kom á daginn þegar beinar útsendingar hófust frá A- deildinni um árið. Þá snemst einhverjir á sveif með Argentínumönnum eftir að Diego Armando Maradona og Guð almátt- ugur tóku höndum saman um að Þ’yggja þein-i tilfinningaheitu knatt- spyrnuþjóð heimsmeistaratitilinn í Mexíkó árið 1986. Eftir að sama lið drap nærri því knattspyrnuheiminn úr leiðindum á Ítalíu fjómm ámm síðar minnkuðu vinsældir Argent- ínumanna veralega. Brasilíumenn breyttir Frændur þeirra, Brasilíumenn, hafa lengi verið ofarlega á blaði hjá fagurkerum. Kunnasti knattspyrnu- kappi sögunnar, Pelé, er frá Brasih'u og hver, sem kominn er til manns, man ekki eftir Zico, Sókratesi, Eder og félögum á HM á Spáni 1982? Þeir Þjóðin vill sig- ur, hvað sem það kostar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.