Morgunblaðið - 11.07.1998, Page 37

Morgunblaðið - 11.07.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 37 MINNINGAR + Ólafur Guðjóns- son var fæddur í Rifshalakoti í Ása- hreppi 5. apríl 1918. Hann lést á heimili sínu í Vesturholtum í Þykkvabæ 5. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðjón Einarsson, f. 25. júní 1884, d. 16. júlí 1966, og Margrét Guð- mundsdóttir, f. 27. september 1888, d. 25. janúar 1980. Börn þeirra auk Ólafs eru: Páll Óskar, f. 6. sept- ember 1911, d. 11. september 1966, Guðrún, f. 4. ágúst 1912, Guðmundur, f. 5. mars 1916, d. 15. september 1962, Guðríður, f. 26. febrúar 1917, Ragnar, f. 27. febrúar 1920, d. 27. júní 1982, Þórður, f. 14. apríl 1921, Skarphéðinn, f. 25. júní 1924, Hermann, f. 22. nóvember 1927, og Ágúst, f. 1. ágúst 1929. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Anna Markúsdóttir, frá Dísukoti í Þykkvabæ, f. 2. nóv- ember 1913. Þau giftu sig 12. desember 1942. Börn þeirra eru Sigrún, f. 18. júní 1940, gift Sigurði Óskarssyni, Margrét, f. 5. júlí 1942, gift Gunnari Guð- Nú er hann afí minn allur. Eg get ekki með orðum lýst hve þyrmdi yfir mig síðasta sunnudag, þegar hún mamma sagði mér frá því. Hann hafði hnigið niður fyrir fram- an stólinn sinn þar sem hann sat svo oft, var dáinn bara rétt sisona. Áð hann afi væri dáinn, hann sem vissi allt, hann sem gat allt, hann sem var búinn að vera mér stoð og styrkur allt mitt líf. Mér fmnst það hafa verið mikil forréttindi að hafa alist upp hjá afa mínum og ömmu, í þessu yndislega, kærleiksríka og heilbrigða um- hverfí, umhverfi sem þau höfðu skapað þar sem ég naut hverrar stundar með þeim. Ég var alltaf að koma með rút- unni austur um helgar. Afí hafði hvíslað að mér að ef ég ekki kæmist með rútunni, myndi hann bara koma að sækja mig í bæinn. Viti menn, það gerðist. Rútan var farin og ég ekki í henni, en það var allt í lagi, ég hringdi bara í hann afa og hann var kominn eftir slétta tvo tíma að sækja piltinn til Reykjavík- ur. Þá fannst litlum dreng hann vera afa sínum mikils virði, eins og svo oft áður. Auðvitað var spíttað í nokkra snjóskafla á nýja Bronco-in- um á leiðinni niður í Þykkvabæ. Einu sinni langaði mig óskaplega í vörubfl eins og allir hinir strákam- ir áttu, bíl sem er dreginn í bandi. Nú hvað haldið þið? Hann afí bara smíðaði einn. Enginn vörubfll var jafnflottur og minn. Seinna eignaðist ég mótorhjól og fór auðvitað með það beint í sveit- ina. Það var nú reyndar alltaf hálf- bilað, en það var allt í lagi, hann afí bara lagaði það. Ekki alls fyrir löngu fjárfesti ég í vélarlausum bát. Aðstoðar var þörf við að setja í hann vél, drif og til- heyrandi. Nú voru góð ráð dýr, ég kunni bara ekkert á þetta. Hver haldið þið að hafi birst eftir stutt símtal? Nú, auðvitað hann afi minn, hann reddaði bara málinu í hvelli. Báturinn var sjósettur tíu dögum seinna. Ég átti að vísu ekki alveg nógu margar krónur fyrir fram- kvæmdunum, þá reddaði hann því bara líka. Þær stundir sem við áttum sam- an fyrir fjórum árum, þegar ég fór með honum afa mínum í netaveiðina inn á afrétt, eru ómetanlegar fyrir mig. Hann sagði oft að hann væri orðinn svo gamall og mikill ræfill að hann gæti ekkert orðið gert. En það var nú öðru nær að mér fannst, hann lagði netin, hann dró netin, leysti hnútana og hnýtti þá, sem ég persónulega hefði aldrei getað, svo jóni Baldurssyni, Óskar, f. 7. febrúar 1944 kvæntur Sig- ríði Valdimarsdótt- ur, Guðjóna, f. 28. júli 1945, gift Har- aldi Gunnarssyni, Ármann, f. 13. októ- ber 1948, kvæntur Bjarnveigu Jóns- dóttur, Svanhildur, f. 22. júní 1951, Anna ÓLöf, f. 16. júní 1953, _ gift Garðari Óskars- syni, og Hulda Katrín, f. 24. sept- ember 1956. Fyrir átti Anna soninn Sigmar Karl Óskarsson, f. 1. júlí 1932 sem giftur er Ingimundu Þorvaldsdóttur. Af- komendur Ólafs og Önnu eru nú 74. Á unglingsárum stundaði Ólafur hin ýmsu störf til sjós og lands en árið 1941 gerðist hann bóndi í Vesturholtum. Einstaka ár stundaði Ólafur ýmis störf meðfram búskap, m.a. sjó- mennsku og smíðar. Ólafí voru falin trúnaðarstörf fyrir sveit sína og sat hann m.a. í hrepps- nefnd Djúpárhrepps 1962-1986. Útför Ólafs fer fram frá Þykkvabæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. krókloppinn vai- ég orðinn á hönd- unum. Áð lokum þvoði hann öll net- in einsamall í jökulköldu vatninu. Ég spurði hann aldi-ei að því, hvað honum fyndist þá um mig, tæpum fimmtíu árum yngri, ef honum fynd- ist hann orðinn svona mikill ræfill. Aldrei vantaði neitt uppá það að hann afi hrósaði mér í hástert fyrir vel unnin verk og aldrei skildum við illir, hann sá um það. Afi var einstaklega mikill barna- karl. Börnin hændust að honum hvar sem hann var. Þegar við kom- um í heimsókn í Vesturholt, var ekki liðin löng stund þar til börnin mín voru byrjuð að nuðast á þeim gamla, sitjandi í stólnum sínum, þá leið honum vel. Ég varð þeirrar ánægju aðnjót- andi að vera með þér, afi minn, þeg- ar þú fékkst nýja bílinn á áttræðisaf- mæli þínu. Þú varst hreinlega að springa úr gleði og ánægju þegar við tókum við lyklunum af umboðinu, og sátum hljóðir um stund og virtum fyrir okkur gripinn. Við renndum við hjá mömmu til að sýna hann og gast þú ekki beðið eftir að fara á honum heim til að sýna henni ömmu og strákunum þínum í sveitinni. Á tveimur mánuðum keyrðir þú fimm þúsund kílómetra en þar stoppaði mælirinn. Nú er elsku karlinn minn dáinn og eftir sitja minningarnar óteljandi. En eins og hann Helgi litli í sveitinni sagði: „Nú er hann afi dáinn og nú skulum við hugsa um hana ömmu, nú er hún orðin ein.“ Og elsku afi minn, ég skal svo sannarlega gera allt sem ég get til þess að aðstoða hana ömmu mína. Þremur dögum áður en afi dó hitti ég hann hjá mömmu og minn- ingin er ynaisleg þegar hún Elín litla hljóp til hans, stökk upp um hálsinn á honum og faðmaði hann og kyssti. Við áttum stutt spjall saman fyrir utan húsið og svo fór hann af stað austur í síðasta skipti. Ég sakna þín svo sárt, elsku afi minn. Nú er komið að mér að gefa mínum bömum það sem þú gafst mér og ef mér tekst það þarf ég ekld að kvíða neinu. Nú er komið að mér að vera stóri sterki maðurinn í þeirra augum eins og þú varst í mínum. Með söknuði kveð ég þig, afi minn, en minninguna ber ég ávallt í brjósti mínu. Þinn Ólafur Pétursson 5. júlí var fagur dagur í Þykkvabæ. Hekla, Þríhyrningur, Eyjafjallajök- ull og Vestmannaeyjar skarta sínu fegursta. Bóndinn er úti við og dytt- ar að ýmsu sem betur má fara. Sest undir vegg í blíðviðrinu með yngri bóndanum, syni sínum, ræðir um búskapinn, kjassar hundinn. Geng- ur inn til konu sinnar til að fá sér kaffisopa, fellur niður og er allur. Þannig kvaddi Ólafur Guðjónsson tengdafaðir minn í Vesturholtum þetta lff, og þannig vildi hann helst fara. Það er erfitt að minnast Ólafs í fáum orðum. Af mörgu er að taka. Ólafur var sterkur persónuleiki, duglegur, hagur vel á tré og járn, og vélaviðgerðir léku í höndum hans. Ólafur var ekki langskóla- genginn maðm-, en vel lesinn og fróður. Skóli lífsins var hans skóli og þar stóðst hann öll próf með sóma. Búskapur varð hans ævistarf, en á yngri árum stundaði hann sjó- mennsku og hafði alla tíð áhuga fyr- ir þeirri starfsgrein. Hann gat sýnst hrjúfur maður en inni fyrir sló gott hjarta. Hann var með afbrigðum barngóður, gat verið strangur, en góður uppalandi, enda löðuðust barnabörnin mjög að honum. Hann fór vel með dýr, og kindur voru hans yndi. Ólafur gerði ekki víðreist um heiminn, en afréttirnar og há- lendið þekkti hann vel. Þó fór hann eina ferð með þeim er þetta ritar á flutningaskipi til Færeyja, Eng- lands og Norðurlanda, og hafði gaman af. Ekki treysti Ólafur sér til að fara í slíka ferð og vera verklaus. Hann fékk því það embætti að ann- ast 30 hesta sem með voru í ferð- inni. Það starf annaðist hann af alúð og dugnaði svo til var tekið, þá 76 ára. Skipið kynnti hann sér vel af þeirri fróðleiksíysn sem honum var í blóð borin. Á heimleiðinni þegar vinir hans hestarnir voru ekki leng- ur til staðar, tók hann til við að líta eftir barni sem með var í ferðinni heim. Eftir fárra stunda samveru með barninu var það farið að kalla hann afa. Það var fastmælum bundið að við hjónin færum með honum upp á há- lendið næstu daga á nýja bflnum. Sú ferð verður ekki farin með hon- um því einn fór hann í ferðina löngu, sem við öll munum fara að lokum. Með þessum fátæklegu orð- um vil ég kveðja Ólaf Guðjónsson tengdafóður minn í Vesturholtum og þakka honum samfylgdina hér á jörð. Gunnar Baldursson. Síðastliðinn sunnudagur var um margt fallegur dagur, sól og blíða og allir heimavið í Vesturholtum. Á slíkum dögum var ekki óalgengt að afi færi í ferðalag og þá oftast inn á fjöll. Því meiri ástæða var fyrir hann en vanalega því glænýja Toyotan hans bauð svo sannarlega upp á slíkar ferðir. Það kom svo líka á daginn að afi valdi þennan dag til ferðalags en ekki inn á fjöll og ekki á nýju Toyotunni heldur hélt hann á vit feðra sinna öllum að óvörum. Á slíkri stundu koma upp í hug okkar bræðra margar góðar minn- ingar og söknuðurinn er mikill. Fyrst og fremst erum við þó þakk- látir fyrir að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að alast upp eins og íslendingar ólust upp öldum saman þar sem uppeldismynstrið var stórfjölskyldan. Afi og amma hafa svo sannarlega tekið þátt í uppeldi okkar og höfum við eflaust mótast vegna áhrifa frá þeim. Afi var alveg einstaklega barn- góður og lék sér við okkur á jafn- réttisgrundvelli þar sem kynslóða- bilið var víðs fjarri. Minnist t.d. elsti bróðirinn Birkir þess þegar hann, sem lítill strákur, hafði fest leik- fangavörubílinn sinn í drullu og afi kom á Subarubflnum sínum og dró hann upp aftur og aftur. Einnig er ógleymanlegt þegar hann dró okkur á snjóþotunum á bílnum sínum eða þegar hann fór með okkur í tívolí o.s.fi’v. Þannig skjóta upp kollinum minningar um frábæran afa sem einnig var góður félagi. Afi var einnig ákaflega liðlegur og var stoltur af að geta gert manni greiða ef svo bar undir. Keyrði hann okkur eldri strákana oft upp á Hellu á opin hús er við vorum í skóla þar og svo einnig upp á Laug- arvatn þar sem Guðjón og Jón hafa stundað nám. Hann sýndi líka mik- inn áhuga á því sem við vorum að gera hvort sem um var að ræða jarðarkaup, leiksýningar eða vinnu okkar utan heimilis. Afi var mikið náttúrubarn og hafði því yndi af allri útiveru þar sem hann var í tengslum við náttúr- una. Hafði hann því m.a. mikinn áhuga á veiðum og skipti þá ekki máli hvort um var að ræða refa-, minka-, sel-, fugla-, silungs-, lax- eða jafnvel músaveiðar. Var afi ekki lengi að koma okkur á bragðið og eru margar minkaveiðiferðirnar ógleymanlegar. Allt fram á síðustu daga stundaði afi minkaveiðar með okkur og kenndi okkur hvernig best væri að bera sig að. Ferðirnar upp í Tangavatn í silungsveiði eru eftir- minnilegar sem og eggjatínsluferðir og svona mætti lengi telja. En lífið er ekki bara leikur og stærstur hluti samverustunda okk- ar með afa var þegar við vorum að hjálpa honum við ýmis störf sem til falla á venjulegum sveitabæ. Var honum mikið í mun að verkin væri unnin með réttum handtökum og leti fannst honum gjörsamlega óþol- andi. Urðum við að vera duglegir og tileinka okkur þau vinnubrögð sem honum líkaði. Það var ekki sama hvort við negldum með „tútommu“ eða „fírtommu" svo dæmi sé tekið. Vettlingar voru líka afar óvinsælir vinnufélagar afa og urðum við fljót- lega varir við þá skoðun hans. Þótt afi hafi verið stífur á sínu þegar kom að vinnu lærðum við fljótlega að hans ráð og aðferðir dugðu oftast betur enda var afi ákaflega laghent- ur og úrræðagóður. Það þarf því ekki að koma á óvart að í búskapar- tíð sinni byggði hann allan sinn húsakost sjálfur og gerði við sínar vélar. Áhugi hans á búskapnum var mikill allt fram á síðasta dag og þá sérstaklega á kindunum enda sá hann um sauðburðinn nú í vor sem endranær með góðri hjálp og þá sérstaklega frá Svönu frænku sem fylgdi honum í flest verk og var hún afa mikil stoð. Á síðustu árum höfum við eldri bræðurnir gert meira af því að skreppa yfir til ömmu og afa í þeim tilgangi að spjalla, um heima og geima. Það hafa verið frábærar stundir að hlusta á sögur frá fyrri tímum og heyra viðhorf þeirra til lífsins. í því eins og öðru bættu þau svo sannarlega hvort annað upp. Á slíkum stundum opnaði afi sig og sagði frá lífshlaupi sínu. Hann sagði okkur frá þegar hann fór að heim- an, aðeins 13 ára gamall, að Lindar- bæ og síðar því þegar hann gerðist vinnumaður í Pálsnýjabæ og kynnt- ist ömmu. Hann sagði svo frá sjó- mennsku sinni og þegar hann stundaði smíðar hvað mest íýrir aðra Þykkbæinga. Hann sagði einnig frá því hvernig hann gerði jörðina sína búsældarlegri og frá því þegar hann og fleiri lögðu vatns- veituna o.s.fi'v. Oft hafði afi orð á því hvað honum þætti það mikils virði fyrir menn að fá að deyja heima hjá sér án þess að þurfa að ganga í gegnum erfiða sjúkdómslegu. Þannig fékk hann svo sjálfur að fara enda var það svo sannarlega í hans stíl. Síðustu mín- útur okkar hér saman úti á túni í Vesturholtum voru fallegar. Þar ræddum við um daginn og veginn og hann virtist sáttur við Guð og menn. Við kveðjum þig í dag, elsku afi, þig sem við hændust svo snemma að, þig sem okkur þótti svo ákaflega vænt um. Elsku amma og Svana. Guð styrki ykkur í sorginni því ykk- ar missir er mestur. Birkir, Guðjón, Jón Ólafur, Arn- ar og Helgi Ármannssynir. Elsku besti afi. í dag er komið að kveðjustund hjá okkur. Þegar hringingin barst okkur um skyndi- legt fráfall þitt, þá setti okkur hljóð- ar. Minningar um samverustundir . okkar streyma fram í hugann og þá finnst okkur sem tilfinningamar ætli að bera okkur ofurliði. Þú, sem ávallt varst svo fullur af hug, dugn- aði og lífsorku, að stundum þótti okkur sem það hálfa væri nóg. Það má segja að þú hafir valið þér þinn fráfallstíma. Þú hafðir sofið og vak- að yfir sauðburðinum, hann var lið- inn og þú varst búinn að koma lömbunum þínum á fjall. Nú gekk í hönd heyskapartíð, jörðin græn og falleg og grasið fullsprottið til slátt- ar. Elsku áfi, við þökkum þér allar ánægjustundirnar sem við höfum átt saman með þér og ömmu heima í Vestó. Það rifjast upp mörg skemmtileg bernskubrek sem eru ómetanleg i minningunni. Við vilum þakka fyrir allar jólahátíðirnar sem við áttum saman, við systumar og mamma með þér, ömmu og Svönu. Við vitum að þér líður vel og að það verður tekið vel á móti þér á nýjum íverustað. Elsku amma og Svana, megi góð- ur guð styrkja ykkur í sorginni og blessa alla tíð. Ilrafnhildur, Ilarpa Rós og Jónína Kristbjörg. + Eiginmaður minn, SIGURÐUR ARNALDS, Kleppsvegi 4, Reykjavík, lést föstudaginn 10. júlí. Ásdís Arnalds. Elskulega sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, MARGRÉT HJÖRDÍS PÁLSDÓTTIR, Fannafelli 4, Reykjavík, lést að heimili sínu fimmtudaginn 9. júlí. Kveðjuathöfn verður frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. júlí kl. 10.30. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðlaugur Ch. Guðjónsson, Alma Birgisdóttir, Elíngunnur Birgisdóttir, Runólfur Birgisson, Hólmfríður Alexandersdóttir, Kristrún Gunnlaugsdóttir, Björn Birgisson, Álfhiidur Þormóðsdóttir, Filippus Hróðmar Birgisson, Þorsteinn Birgisson, Ragnheiður Steinbjörnsdóttir, Þormóður Birgisson, Eyrún Pétursdóttir og barnabarnabarnabörn. OLAFUR GUÐJÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.