Morgunblaðið - 11.07.1998, Qupperneq 56
MOUGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ(á>MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vélarbilun í eins
hreyfils flugvél
Sveif til
nauðlend-
ingar
LITIL eins hreyfiis flugvél sveif inn
til nauðlendingar á flugvöllinn í
Stykkishólmi eftir vélarbilun skömmu
íyiTi' klukkan átta í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni var vélin stödd skammt frá
flugvellinum þegar bilunin varð.
Slökkvilið og sjúkrabíll voru kölluð
út og voru í viðbragðsstöðu þegar
flugvélin sveif inn til lendingar.
Nauðlendingin tókst vel og engar
skemmdh' urðu á flugvélinni umfi'am
það sem þegar var orðið. Að sögn
lögreglu hafði strokkur brotnað af
mótornum og er hann talinn ónýtur.
Ekki er vitað nánar um ástæður bil-
unarinnar.
----------------
Brotist inn í fyrirtæki
og sumarbústaði
Stálu tölvum
og ýmsum
varningi
ÞRJU ungmenni voru handtekin
snemma í gærmorgun efth' að sást
til grunsamlegra ferða þeirra við
Hvolsvöll. Kom í Ijós að margs konar
varningur var í bíl þeirra, tölvur og
fleira, sem reyndist vera þýfi.
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
sá glöggur vegfarandi til grunsam-
legra ferða þriggja ungmenna við
Hvolsvöll og lét lögreglu vita. Þau
voru þá komin á flótta en náðust við
Þjórsárbrú. Lögreglan á Selfossi
kom einnig að rannsókn málsins sem
telst nú upplýst.
Farið var í þrjú fyrirtæki á Hvols-
velli og stolið tölvum, einnig í nokkra
sumarbústaði í Fljótshlíð, undir
Eyjafjöllum og í Arnessýslu og stolið
þaðan ýmsum varningi.
Hvalfjarðargöngin verða opnuð við hátfðlega athöfn f dag
Verktakinn fær 300 millj-
óna króna flýtigreiðslu
HVALFJARÐARGÖNG kosta 4,9
milljarða miðað við núgildandi
engi og þegar allur kostnaður hef-
r verið færður til núvirðis, að sögn
Stefáns Reynis Kristinssonar fram-
kvæmdastjóra Spalar hf. Hann seg-
ir fjárhagsáætlun hafa staðist í öll-
um meginatriðum.
Göngunum er skilað átta mánuð-
um fyrr en ætlað var og fær verk-
takinn, Fossvirki sf., tæplega 300
milljóna króna flýtigreiðslu, en fjár-
magnskostnaður á framkvæmda-
tíma lækkar um svipaða fjárhæð.
Hvalfjarðargöngin verða opnuð
við hátíðlega athöfn sem hefst
klukkan 14 í dag við suðurmunna
.ganganna. Þau verða siðan opnuð
fyrir almenna umferð kl. 19 í kvöld.
Fasteignasalar á Akranesi segja
að fasteignasala hafi tekið fjörkipp.
Þeir þakka hana aukinni atvinnu og
einnig bættum samgöngum með til-
komu Hvalfjarðarganga. Þess munu
dæmi að Skagamenn búsettir í
Reykjavík séu fluttir aftur heim,
Jjótt þeir ætli að halda áfram að
sækja vinnu í höfuðborginni um
Hvalfjarðargöng. Þá munu fleiri
brottfluttir vera að spyrjast fyrir
um fasteignir á Akranesi.
Skiptar skoðanir um lærdóm
af brunavarnaæfíngu
Skoðanir eru skiptar um það
hvaða lærdóm megi draga af bruna-
vamaæfingu sem haldin var í göng-
unum í fyrrinótt. Talsmenn slökkvi-
liðanna í Reykjavík og á Akranesi
telja þau vanbúin til að takast á við
eldsvoða í göngunum.
Á æfingunni roftiaði fjarskipta-
samband milh slökkvihðanna tveggja
þegar það sem kom norðan að keyrði
ofan í göngin. Samband komst aftur
á þegar Reykjavíkurliðið var einnig
komið í göngin, en var þó slitrótt.
Einnig komu upp erfiðleikar
vegna þess að viftur skiptu sjálf-
virkt um stefnu á miðnætti og tóku
að blása frá suðri til norðurs.
Reykjarkóf kom þá skyndilega í
fang slökkviliðs Akraness og varð
það þá frá að hverfa.
Slökkviliðsmenn telja að til að
þeir geti brugðist við eldsvoða í
Hvalfjarðargöngunum þurfi betri
reykköfunarbúnað, hitamyndavélar,
betri þjálfun og stytta þurfi útkalls-
tíma og auka útkallsstyrk.
Bergsteinn Gizurarson bruna-
málastjóri segir að ekkert hafi
komið sér á óvart á æfingunni.
Hann telur mikilvægast að komið
verði upp viðvörunartækjum í
göngunum sem geti staðsett elds-
upptök, þannig að hægt verði að
beina viftunum í rétta átt til að
reyklosa.
Stefán Reynir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Spalar, segir að
gagnrýni á brunavarnir í göngun-
um séu undarlegt upphlaup daginn
fyrir opnun og segir hana hljóma
eins og menn sé að sækjast eftir
betri búnaði. Hann segir enga
ástæðu til að fresta opnun gang-
anna, enda séu brunavarnir veru-
lega yfir stöðlum sem lög gera ráð
fyrir. Hann segir að verið sé að
kanna hvort setja eigi upp viðvör-
unartæki sem gefi til kynna stað-
setningu elds.
Tveir menn handteknir vegna
skemmdarverka
Snemma í gærmorgun voru unnin
skemmdarverk í Hvalfjarðargöng-
unum á veggjum, merkingum, lok-
unum fyrir göngin, ökutækjum og
fleiri hlutum og voru meðal annars
notaðar til þess stórvirkar vinnuvél-
ar. Tveir menn hafa verið hand-
teknir grunaðir um verknaðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá verk-
tökum höfðu skemmdirnar að
mestu verið lagfærðar í gær. Lög-
reglan telur að tjónið nemi hund-
ruðum þúsunda króna.
Mörg slys í Hvalfirði
í sérstökum blaðauka um göngin í
blaðinu í dag kemur m.a. fram að ár-
in 1991-1995 urðu 192 umferðarslys
í Hvalfirði, þar af þrjú banaslys.
■ Opnun Hvalfjarðarganga
■ 4/6/28/29/D1-D4
Tekjur Flugleiða í
vor eru undir
rekstraráætlun
Sveiflur í
td
gengi hluta-
bréfanna
TEKJUR Flugleiða af farmiða-
sölu í millilandaflugi urðu minni í
apríl og maí en rekstraráætlun
gerði ráð fyrir. I apríl var frávik
frá áætlun 2,5% og tölur fyrir maí
benda til að frávikið verði tæplega
7%. Upplýsingar um erfiðan
rekstur Flugleiða leiddu til þess
að gengi hlutabréfa fyrirtækisins
lækkaði í gær, en þau hækkuðu
aftur þegar leið á daginn.
I gær urðu viðskipti með hluta-
bréf í Flugleiðum fyrir 12,7 millj-
ónir. Við lok viðskipta í fyrradag
var gengið 3,11, en við opnun Verð-
bréfaþingsins í gær lækkaði gengið
niður í 3,03. Það hækkaði hins veg-
ar þegar leið á daginn og lokageng-
ið var 3,11.
Sterk tilboð í
Flugleiðabréf
Nokkur sterk tilboð komu fram í
Flugleiðabréf í gær, sem vörðuðu
^.viðskipti með umtalsvert magn af
hlutabréfum. Sumir verðbréfamiðl-
arar töldu tilboðin bera þess merki
að verið væri að halda uppi verði á
bréfunum, „verið væri að setja
tappa í lækkunina," eins og einn
verðbréfamiðlari orðaði það. Aðrir
töldu að um eðlileg viðskipti væri
að ræða. Stjórnendur Flugleiða
hefðu ekki gefið miklar upplýsing-
ar um afkomu fyrirtækisins og því
ríkti mikil óvissa um rekstrarhorf-
ur þess. Viðskiptin einkenndust af
því að sumir veðjuðu á tap en aðrir
á hagnað.
■ Tekjur af/11
Akraborgin kvödd
með virktum
AKURNESINGAR kvöddu Akra-
borgina í gærkvöldi eftir dygga
þjónustu í áratugi. Mikill mann-
fjöldi tók á móti Akraborginni
þegar hún lagði að bryggju
eftir síðustu áætlunarferð sína.
Skagaleikhópurinn flutti
skemmtiatriði, ræður voru
fluttar og leikið á harmóníku.
Þegar Akraborgin kom í höfn
lauk rúmlega aldar löngum
kafla í reglulegum siglingum
með varning og farþega um
Faxaflóa. Þessi sögulega stund
var blönduð hátíðleika, gleði og
trega og heyra mátti á bæjar-
búum að Akraborgarinnar yrði
sárt saknað.
■ Við kveðjum þig/4
Skattskrár
31. júlí
ÁLAGNINGARSKRÁR
skattyfirvalda verða lagðar
fram 31. júlí næstkomandi.
Að sögn Garðars Valdi-
marssonar ríkisskattstjóra
munu skrárnar þá liggja
frammi á skattstofum.
Álagningarskrár lögaðila
verða lagðar fram 30. október.