Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ 32 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 Fóstur- dóttir í afmælisgj öf Draumur Jóhönnu Gunnlaugsdóttur varð að veruleika þegar hún heimsótti „fósturdóttur“ sína á Spáni í fyrsta sinn eftir fjögur ár - einmitt á afmælisdegi sínum. Stefán Stefánsson fékk að heyra ferðasögu hennar og um hvernig sé að heimsækja SOS-barnaþorp. SPÁNVERJAR hafa upp- lifað örar breytingar í landi sínu síðustu áratugi, flestar í átt að meiri velmegun. En gæðunum er misskipt og oftast eru það börnin, sem lenda á milli. Á áttunda áratugnum voru sam- tökin SOS-barnaþorp stofnuð í því skyni að setja upp sérstök þorp fyr- ir börn í neyð og biðlað til fólks í fjarlægum löndum að rétta hjálpar- hönd. Fólk hefur rétt fram höndina og þorpin eru nú á fjórða hund- raðið, dreift í 128 lönd. Hér á iandi hófst undirbúningur að stofnum deildar 1989 og fjórum árum síðar byrjaði starfsemin af fullum krafti. Sama ár var slíkt þorp stofnað í Villamayor í Aragonhéraðinu, um 10 kílómetra norðan við stórborg- ina Zaragossa á Spáni norðanverð- um. Þar var tekinn til gagns gamall bóndabær, sem stóð á tæplega níu ferkílómetra svæði og skyldi byggja til að byrja með tólf hús, skóla, ldrkju og sérstakan skóla fyrir böm sem eiga erfitt með að læra auk þess, sem menn dreymdi um íþróttasvæði og sundlaug. Þar sem neyðin er mest Jóhanna Gunnlaugsdóttir sat við vinnu sína á Sammvinnuferðum- Landsýn á Akureyri 1993 þegar einn vinnufélagi hennar var að skrifa bréf til stúlku, sem hann hef- ur stutt í gegnum SOS-barnaþorp- in. „Mér fannst þetta mjög góð hugmynd og langaði að leggja mitt af mörkum til að styðja bam, sem þarfnast þess svo sannarlega, svo að ég dreif í því að sækja um,“ sagði Jóhanna þegar Morgunblaðið bað hana að segja sögu sína um heimsóknina til „fósturdóttur" sinnar á Spáni. Jóhanna gat valið um mörg lönd, til dæmis Indland og Kína, en skrifaði í reitinn „þar sem neyðin er mest“ og eftir bréfa- skriftir barst svar frá samtökunum í febrúar 1994, þar sem hún var beðin að styðja og styrkja tólf ára stúlku frá Zaragossa á Spáni. Jóhanna átti reyndar ekki von á að í sinn hlut kæmi spænskt barn því hún hélt að þar væri almenn vel- megun. María frá íslandi Stúlkan heitir María Antonía Martos Gascon og á einn eldri bróð- ur en foreldrar þeirra treystu sér ekki til annast börnin þar sem móð- ir þeirra átti við geðræn vandamál að stríða og faðirinn drykkju. Reyndar er María í dag alltaf kölluð María frá Islandi. Jóhanna greiðir 1.500 krónur á mánuði þangað til María verður tvítug, sem dugar meðal annars fyrir menntun. Hægt er að greiða aukalega fyrir jólagjafir, afmælisgjafir og þess háttar. Það hefur Jóhanna alltaf gert. „Mér finnst það ekkert of mikið, öðra eins eyðir maður í óþ- arfa á mánuði. Mér fínnst líka pen- ingunum vel varið. Það er vel hugs- að um Maríu og öll aðstaða í þorp- inu til fyrirmyndar." Langaði að hitta hana „Við fóram strax að skrifast á og senda jólakort en ég fékk líka frétt- ir af henni hjá stjórnendum þorps- ins,“ sagði Jóhanna og skoðaði fyrstu myndina, sem hún fékk af Maríu, þá tólf ára. „Mig var farið að langa til að hitta hana og í sumar ákvað ég að fara með tveimur vin- konum mínum í frí til Spánar og hitta Maríu. Eg skrifaði SOS-sam- tökunum og spurði hvort það væri mögulegt og fékk strax svar þar sem sagði að ég væri velkomin hvenær sem ég vildi svo draumurinn var að verða að veruleika." Á hverju átti hún von? „Ég vissi ekkert um það en átti alveg eins von á góðum viðbrögðum frá SOS- samtökunum og ég fengi að koma í heimsókn í þorpið og staldra við í klukkutíma eða svo. Viðbrögðin voru hins vegar mun betri en ég átti von á, það var eins og ég væri ein af fjölskyldunni og hefði þekkt þau öll í mörg ár. Það bættist svo við spennuna og ég átti mjög bágt með að fara ekki að brynna músum - ég held að ég hafi aldrei upplifað annað eins.“ Dagurinn mikli Ferðin til Zaragossa tók sjö tíma auk þess, sem Jóhanna þurfti að bíða í Barcelona í fjórar klukku- stundir, þannig að þegar þangað kom seint að kvöldi var spennan mikil auk þess, sem hitinn tók sinn toll. Jóhanna hringdi því í þorpið og bað um að fá að koma morguninn eftir. Um kvöldið fór hún út að borða og það var ekki laust við að Spánverjar veltu fyrir sér hvaða kona sat og borðaði ein, þreytt, mállaus á spænsku en samt spennt. „Daginn mikla var ég snögg á fætur því komið vai- að stóra stund- inni,“ sagði Jóhanna. „Ég var kom- in í aðalstöðvar SOS klukkan níu því ég vildi nýta hverja mínútu vegna þess að ég ætlaði til baka í lok dagsins. Ungur maður tók á móti mér og bað mig að doka smástund en örfáum mínútum síðar kom for- stöðumaður þorpsins ásamt túlki. Þeir heilsuðu mér með virktum og bros á vör og spurðu mig um ferðalagið en fóru síðan með mig í bíl, því þorpið var rétt hjá. Á leiðinni inn í þorpið sló hjartað hratt. Mér fannst einhvern veginn mjög óraunverulegt að vera þama. Þessu hafði ég stefnt að í mörg ár og var mjög spennt en líka kvíðin því ég vissi ekki á hverju ég ætti von.“ „Mikið ertu með blá augu“ Þorpið reyndist 15 húsa þyrping sem í bjuggu um sextíu börn, fimm í hverju húsi. Rólegt var yfir öllu því það var frí í skólanum og krakk- arnir sváfu út, en framundan var tveggja vikna ferð til Italíu. „Við gengum að húsinu þar sem María bjó og hjartað sló hratt. Hurðin opnaðist og María, ásamt eldri konu, kom og faðmaði mig og kyssti. Konan hét Isabel og var „mamman" í húsinu en María, sem er orðin 16 ára, var farin að aðstoða hana með yngri börnin. Inni beið dúkað borð með morgunmat og var mér vísað til sætis við hlið Maríu við enda borðsins. Við horfðum hvor á aðra og brostum og tilfinningin var einstök. Hún bar silfurkross, sem ég hafði sent henni fyrir nokkrum árum. Hún kunni ekki mikið í ensku en ég hafði tekið með mér litla spænska orðabók, sem við notuðum, en fyrsta setningin sem María sagði var: „Jóhanna, mikið ertu með blá augu.“ Það var ekki laust að við tár kæmu í þessi sömu augu.“ Þær skoðuðu síðan hús Maríu. Það var rúmgott með nokkrum her- bergjum, eldhúsi, baðherbergjum og borðstofu. María deildi herbergi með þremur öðrum stúlkum og á veggnum mátti sjá á myndunum að hún væri mikill aðdáandi Spice Girls og Leonardo de Caprio leik- ara. Jóhanna hafði tekið með gjafir til Maríu, silfurhring og men með íslenskum steinum, og setti hún það strax á sig. Dugleg og hjálpsöm Rúta Jóhönnu átti ekki að fara frá Zaragossa fyrr en klukkan fjög- ur svo María og Jóhanna ákváðu að eyða deginum inni í borginni og kynnast betur. Þær skoðuðu kirkj- una við aðaltorgið og kveiktu á kertum til að minnast hinna látnu en röltu síðan í búðir og á kaffihús. „Ég sagði henni frá Islandi og henni fannst mikið til um björtu næturnar á Akureyri en átti bágt með að trúa íbúafjölda á Akureyri - hélt að hún væri eitthvað að mis- skilja mig,“ sagði Jóhanna. María á eftir að vera fjögur ár til viðbótar í þorpinu en langar eftir það að vinna við umönnun barna. Bróðir hennar, sem er eldri en hún, er far- FYRSTA myndin, sem Jóhanna fékk af Maríu Antoníu Martos Gascon, þá 12 ára. Hvað er urticaria pigmentosa? MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Spurning: Kona hringdi og vildi fá upplýsingar um sjúkdóm sem hún kallaði „urticaria pigmentosa“. Hún vildi fá að vita hvort til væri nafn yfir hann á íslensku. Hún sagðist'hafa leitað til lækna hér heima en fáir virtust hafa áhuga eða þekkingu á þessum sjúkdómi. Hún sagði að hann virkaði eins og ofnæmi og losaði um mastfrumur í líkamanum. Einkennin væra aðal- lega þau að það kæmu dökkir blett- ir á húðina. Hún biður lækninn jafnframt um að benda sér á lækni sem kann skil á þessum sjúkdómi. Svar: Urticaria pigmentosa hef- ur verið kallað litbrigðaofsakláði á íslensku. Þetta er sjaldgæfur sjúk- dómur hjá börnum og fullorðnum sem lýsir sér með útbrotum, oftast Litbrigða- ofsakláði á hálsi, handleggjum, fótleggjum eða búk. Útbrotin eru rauðbrún- leitir blettir sem hlaupa upp ef þeir eru nuddaðir eða klóraðir. Stund- um myndast blöðrur á blettunum og venjulega klæjar fólk mikið. Blettirnir innihalda mikið magn af sérstakri tegund frumna sem heita mastfrumur en ef þær verða fyrir einhvers konar ertingu losnar úr þeim efni sem heitir histamín. Histamín veldur útþotum, roða og kláða. Ekki er vitað hvers vegna mastfrumur safnast í bletti á húðinni hjá þeim sem hafa þennan sjúkdóm eða kvilla. Þegar börn fá sjúkdóminn fyrir 5 ára aldur lækn- ast hann oftast af sjálfu sér við kynþroska eða snemma á full- orðinsárum. Þeir sem fá sjúkdóm- inn eftir 5 ára aldur losna fæstir nokkurn tíma við hann. Engin góð lækning er til en venjulega er hægt er að halda einkennum í skefjum með því að forðast vissa hluti og taka lyf. Það sem ber að forðast eru lyf eins og aspirín (magnýl o.fl.), kódein, morfínlyf og einnig ber að forðast áfengi, heit böð og að nudda húðina eftir bað. Til eru nokkrar gerðir lyfja sem draga úr óþægindunum og má þar fyrst nefna andhistamínlyf. Húðsjúk- dómalæknar kunna góð skil á þess- um sjúkdómi. Sýking í ____ leggöngum Spurning: Hvers vegna kemur illa lyktandi sveppasýking í leggöng, er eitthvað annað til ráða en eilífar lyfjatökur? Á ytri kynfæri hafa myndast eins og stíflaðir fitu- kirtlar og úr þeim kemur illa lykt- andi vessi, ekki gröftur. Hvað er hægt að gera við þessu? P.S. Mér finnst ég ekki lengur geta verið innan um fólk vegna þessa. Svar: Ekki er vitað hvers vegna fólk fær langvarandi eða síendurteknar sýkingar með bakt- eríum, veirum eða sveppum nema þegar um er að ræða vissa sjúk- dóma eins og t.d. sykursýki sem veikja varnir líkamans. Síendur- teknar sýkingar geta verið merki um undirliggjandi sjúkdóm sem þá þarf að greina og lækna ef hægt er. Það eina sem ég get ráðlagt bréf- ritara er að fara hið fyrsta til kven- sjúkdómalæknis og fá á hreint hvað er að og síðan að fá viðeigandi með- ferð. Bréfritari getur örugglega fengið fulla eða a.m.k. veralega bót á ástandi sínu. •Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem þeim ligg- ur á bjarta. Tekið er á móti spurning- um á virkum dögum milli klukkan 10 og 171 síma 569 1100 og bréfum eða sfmbréfum merkt: Vikulok, Fax: 569 1222. MORGUNBLAÐIÐ M LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 33 Ki1 [ AUi iÍARIA ltefur dafnað vel og er farin að aðstoða í þorpinu en hana langar að vinna við umönnun barna i framtíðinni. inn að vinna í Zaragossa og líður vel og María heimsækir hann oft. „Eftir daginn voram við orðnar góðar vinkonur en tíminn leið alltof fljótt og hún fylgdi mér á brautar- stöðina, þar sem við kvöddumst með tárum. Ég held að samskipti okkar verði öðruvísi nú þegar við eram búnar að hittast og þekkj- umst, sambandið verður ekki eins fjarlægt. Ég veit líka að það fer vel um hana og hún er vel liðin í þorp- inu, hjálpsöm við alla hluti og dug- leg við börnin.“ Mariu langar til Islands ,Á leiðinni til Benidorm upplifði ég daginn aftur og mér kom ekki dúr á auga,“ sagði Jóhanna og ekki laust við að brygði fyrir söknuði í röddinni. Það var því afar þreytt en að sama skapi ánægð kona sem gekk upp tröppurnar á hótelinu sínu klukkan fimm að morgni þegar fimm tímar voru liðnir af þrjátíu ára afmælinu hennar - betri af- mælisgjöf var ekki hægt að fá. „Auðvitað væri frábært að geta boðið henni hingað til Akureyrar og það langar mig allra mest til að gera. Hana langar líka mikið til að koma til Islands - kannski verður það einhvern tíma önnur afmælis- gjöf.“ . $ SUZUKI SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SWIFT BALENO SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slml 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgöíu 9, slmi 402 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miðási 19, slmi 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Isafjörður: Bllagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavlk: BG bilakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 2617. SaHRSris TEGUND: VERÐ: l,3GL3d 1.140.000 KR 1,3GL 4d 1.265.000 KR l,6GLX4d 1.340.000 KR 1,6 GLX4x4 4d 1.495.000 KR l,6GLXWAGON 1.445.000 KR WAGON 4x4 1.595.000 KR Sjálfskipting kostar 100.000 aukalega VERÐ: 980.000 KR. 1.020.000 KR. VITARA TEGUND: GLS 3d GLX5d TEGUND: VERÐ: GR, VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GR. VITARA 2,5 L V6 2.589.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ • vökvastýri • 2 loftpúða • aflmiklar vélar • samlæsingar rafmagn i rúðum og spegium • styrktarbita í hurðum • • samlitaða stuðara • BALENO TEGUND: JLX SE 3d JLX SE 5d DIESEL 5d Sjálfskipting kostar VERÐ: 1.580.000 KR. 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. 150.000 aukalega BALEI GRAND VITARA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.