Morgunblaðið - 26.09.1998, Qupperneq 46
-46 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Réttarholtsskóli
N orðurlandameistari
grunnskóla í skák
SKAK
Gausdal, IVorugi
NORÐURLANDAMÓT
GRUNNSKÓLA
Réttarholtsskóli sigraði mjög
örugglega á mótinu, lagði alla
keppinautana að velli.
18.-20. september.
SKÁKSVEIT Réttarholts-
skóla vann öruggan sigur á
Norðurlandamóti grunnskóla-
sveita, sem fram fór í Gausdal í
Noregi dagana 18.-20. septem-
ber. Réttarholtsskóli fékk 141/2
vinning af 20 og var tveimur og
hálfum vinningi á undan næstu
sveit. Yfirburðir Réttarholts-
skóla sjást best á því að sveitin
sigraði í öllum viðureignum sín-
um á mótinu.
Þessi frábæri árangur byggð-
ist á jafnri og góðri frammistöðu
allra liðsmanna. Arangur þeirra
var þessi:
1. Davíð Kjartansson 3 v. af 5
2. Sveinn Pór Wilhelmsson 4 v. af 5
3. Guðni Stefán Pétursson 4 v. af 5
4. Pórir Júlíusson 3 v. af 4
1. vm. Jóhannes Ingi Ágústsson 14 v.
af 1
Þegar þessi listi er skoðaður
sést að hér eru reyndir skák-
menn á ferðinni þótt ungir séu.
Urslit mótsins:
I . ísland (Réttarholtsskóli) 1414 v.
2. Noregur-b 12 v.
3. Svíþjóð 10 v.
4. Noregur-a8v.
5. Finnland 8 v.
6. Danmörk 714 v.
Liðsstjóri Réttarholtsskóla var
Vigfús Oðinn Vigfússon.
Jón Viktor
atskákmeistari
Reykjavíkur
Jón Viktor Gunnarsson sigraði
á Atskákmóti Reykjavíkur sem
haldið var dagana 18.-20. sept-
ember. Mótið var með nýstárlegu
sniði sem leiddi til harðrar bar-
áttu um efsta sætið. Fyrst voru
tefldar sjö umferða undanrásir
samkvaemt hefðbundnu Monrad-
" kerfi. Úrslit undanrásanna urðu
þessi (skákmönnum með jafn-
marga vinninga er raðað eftir
stigum):
1 Amar Gunnarsson 6 v.
2 Bragi Þorfmnsson 514 v.
3 Jón Viktor Gunnarsson 514 v.
4 Bergsteinn Einarsson 5 v.
5 Sigurður Páll Steindórsson 5 v.
6 Davíð Ólafsson 414 v.
7 Hlíðar Þór Hreinsson 414 v.
8 Arngrímur Þ. Gunnhallsson 414 v.
9 Kristján Eðvarðsson 414 v.
10 Björn Þorflnnsson 414 v.
II Stefán Kristjánsson 414 v.
o.s.frv.
Atta efstu keppendurnir
tryggðu sér rétt til að tefla í úr-
slitakeppninni. Viðureignir í átta
manna úrslitum fóru þannig:
Amar Gunnarss. - Amgrímur Gunn-
hallss. 2-0
Bragi Þorfmnss. - Hlíðar Þ. Hreinss.
i 14-114
Jón V. Gunnarss. - Davíð Ólafsson 2-1
Bergsteinn Einarss. - Sigurður Stein-
dórss. 2-0
Sigurvegararnir fjórir tefldu
síðan í undanúrslitum:
Amar Gunnarss. - Bergsteinn Ein-
arss. 214-114
Jón V. Gunnarss. - Hlíðar Þ. Hreinss.
114-14
Það voru því þeir Arnar Gunn-
arsson og Jón Viktor Gunnarsson
sem tefldu til úrslita á mótinu.
Jón Viktor sigraði í fyrri skák-
inni og sú síðari end-
aði með jafntefli. Þar
með hafði Jón Viktor
tryggt sér titilinn
Atskákmeistari
Reykjavíkur 1998 í
fyrsta skipti.
Bergsteinn Ein-
arsson sigraði Hlíðar
Þór Hreinsson í
keppni um þriðja
sætið á mótinu.
Lokaröð efstu
manna varð því
þessi:
1 Jón Viktor Gunnars-
son
2 Amar Gunnarsson
3 Bergstein Einarsson
4 Hliðar Þór Hreinsson
Óvenjulegt fyrir-
komulag mótsins
virðist hafa fallið í góðan jarðveg
hjá skákmönnum, því þátttak-
endur voru töluvert fleiri en und-
anfarin ár eða 34. Skákstjórar
voru Gunnar Bjömsson, Þorfinn-
ur Bjömsson og Daði Öm Jóns-
son. Mótið var haldið í Hellis-
heimilinu, Þönglabakka 1 í
Mjódd, og Taflfélagið Hellir sá
um skipulagningu og fram-
kvæmd mótsins.
Firmakeppni
Taflfélags
Kópavogs
Firmakeppni Taflfélags Kópa-
vogs lauk nýlega. Keppt var í
tveimur riðlum og urðu úrslit
þessi:
A-riðill
1 Olíufélagið ESSO (Bragi Þorfínns-
son)
2 VISA ísland (Davíð Kjartansson)
3-4 Prentsmiðjan Grafík (Daði Öm
Jónsson)
3-4 Sælgætisgerðin Freyja (Jónas
Jónasson)
B-riðill
1 ALP Bílaleiga (Einar Hjalti Jens-
son)
2 Markholt (Jónas Jónasson)
3 Klukkan (Haraldur Baldursson)
Útimót
Skákfélags
Hafnaríjarðar
Mótið fór fram laugardaginn
15. ágúst. Hver keppandi dró fyr-
irtæki og keppti í nafni þess.
Tefldar vom sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi og hafði hvor kepp-
andi sjö mínútna umhugsunar-
tíma. Úrslit mótsins urðu sem
hér segir:
1 Lögfræðistofa Áma Grétars Finns-
sonar (Sævar Bjamason) 6 v.
2-4 Búnaðarbankinn (Ásgeir P. Ás-
bjömsson), Tryggvi Ólafsson úrsmiður
(Erlingur Þorsteinsson) og Kjamavör-
ur (Jón G. Viðarsson) 5 v.
5-7 Augnsýn (Þorsteinn Þorsteins-
son), Oddur bakari (Sigurður Daníels-
son) og Dekkið sf. (Amgrímur Gunn-
hallssgn) 414 v.
8-10 íslandsbanki (Einar H. Jensson),
Hafnarfjarðarapótek (Gunnar Bjöms-
son) og Bedco og Mathiessen (Guð-
mundur Sv. Jónsson) 4 v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Sig-
urbjörn J. Bjömsson.
Haustmót TR
1998
Haustmót Taflfé-
lags Reykjavíkur
hefst sunnudaginn
27. september kl. 14
og lýkur 21. október.
Fyrirkomulag verð-
ur svipað og undan-
farin ár. Keppendum
verður raðað í flokka
með hliðsjón af skák-
styrkleika og verða
tefldar ellefu um-
ferðir í öllum flokk-
um. I efstu flokkun-
um tefla allir kepp-
endur við alla en
neðsti flokkurinn verður opinn og
þar er teflt eftir Monrad-kerfi.
Umhugsunartíminn er 114 klst.
á 30 leiki og síðan 45 mínútur til
að Ijúka skákinni. Umferðir
verða að jafnaði á sunnudögum
kl. 14:00-18:30 og á miðviku- og
fóstudögum kl. 19:30-24:00.
Veitt verða þrenn verðlaun í
öllum flokkum. I A-flokki verða
veitt peningaverðlaun sem hér
segir:
1. verðlaun kr. 60.000
2. verðlaun kr. 35.000
3. verðlaun kr. 20.000
Þátttökugjald fyrir 14 ára og
yngri er kr. 1.500.- (kr. 2.000 fyr-
ir utanfélagsmenn), kr. 2.000 fyr-
ir 15-17 ára (kr. 3.000 fyrir utan-
félagsmenn) og kr. 3.000 fyrir 18
ára og eldri (kr. 4.000 fyrir utan-
félagsmenn).
Haustmótið er opið öllum.
Lokaskráning er laugardaginn
26. september til kl. 20. Einnig
má sla-á sig í haustmótið með
tölvupósti til rzÉitn.is.
Skákæfingar
hjá TR
Taflfélag Reykjavíkur heldur
skákæfingar á fimmtudagskvöld-
um kl. 20. Tefldar eru sjö um-
ferðir eftir Monrad-kerfi með sjö
mínútna umhugsunartíma. Öllum
er heimil þátttaka. I verðlaun er
matarúttekt á Dominos-Pizza.
Þátttökugjald fyrir fullorðna er
kr. 200 (kr. 300 fyrir utanfélags-
menn) og kr. 100 fyrir unglinga
(kr. 200 fyrir utanfélagsmenn).
Daði Orn Jónsson
Margeir Pétursson
Davíð Kjartansson
leiddi sigursveit
Réttarholtsskóla.
"SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Qhrntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
BRIPS
Umsjón Ariiór G.
Ragnarsson
Félag eldri borgara
í Reykjavík
FIMMTUDAGINN 17. septem-
ber spiluðu 30 pör Mitchell-tví-
menning í Ásgarði, Glæsibæ. Efstu
pör voru:
N/S
Þórólfúr Meyvantss. - Eyjólfúr Halldórss. 416
Magnús Jósefs. - Hilmar Valdimarss. 415
Helga Helgad. - Júlíus Ingibergss. 412
A/V
Júlíus Guðm.s. - Bemharð Guðm.s. 456
Albert Þorsteinss. - Jón Pálmason 414
Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Amórss. 408
Mánudaginn 21. september spil-
uðu einnig 30 pör Mitchell-tví-
menning. Árangur efstu para:
N/S
Eysteinn Einarss. - Láms Hermannss. 236
Sæbjörg Jónsd. - Þorsteinn Erlingss. 226
Albert Þorsteinss. - Alfreð Kristjánss. 211
A/V
Sæmundur Bjömss. - Magnús Halldórss. 225
Bergsveinn Breiðfjörð - Halla Ólafsd. 211
Bergljót Rafnar - Soffía Theódórsd. 209
KIRKJUSTARF
Hafnarfjarðarkirkja.
Safnaðarstarf
Blessun
Hásala
Strandbergs
HIÐ glæsilega safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju Strandberg er
nú fullbyggt eftir að meginsalar-
kynni þess Hásalir hafa verið inn-
réttaðir, aðeins er nú eftir að búa
heimilið betur húsgögnum auk þess
sem sérstök hljóðsogsklæði verða
sett upp í Hásölum á aðventunni til
þess að stýra hljómburði. Kapella
safnaðarheimilisins var vígt fyrir 3
árum og hluti þess þá tekinn í notk-
un. Aðstaða til safnaðarstarfs á veg-
um Hafnarfjarðarkirkju er nú orðin
eins og best verður á kosið og unnið
að því markvisst að gera það bæði
fjölbreytt og blessunarríkt.
Herra Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up íslands, mun blessa Hásali
Strandbergs eftir kvöldmessu í
Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn
27. september, sem hefst kl. 20.30.
Herra Karl mun prédika í messunni
og prestar kirkjunnar þjóna fyrir
altari. Dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup mun flytja helgunarbæn í
Hásölum og forystumenn safnaðar-
ins lesa ritningarorð. Eftir helgi-
stundina býður Kvenfélag kirkjunn-
ar til kirkjukaffis í hinum nýju salar-
kynnum og safnaðarheimilið verður
til sýnis. Skóflustungur voru teknar
að byggingum safnaðarheimilisins
og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
sem samtengdur er því 12. septem-
ber fyrir 6 árum eftir að dr. Sigur-
björn Einarsson biskup hafði bless-
að byggingarreitinn. Þessar bygg-
ingar eru reistar eftir fyrstu verð-
launateikningum arkitektanna og
hjónanna Sigríðar Magnúsdóttur og
Hans Olav Andersen og hafa vekið
athygli fyrir sérstæð form og list-
rænt yfirbragð.
Prestar Ilafnarfjarðarkirkju.
Fríkirkjan í
Reykjavík á
tímamótum
Á NÆSTA ári verða hundrað ár lið-
in frá stofnun Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík. Þeirra merku tímamóta
mun söfnuðurinn minnast með viðei-
gangandi hætti bæði á næsta ári svo
og árið 2000.
Tímamót eru tími endurskoðunar
og uppgjörs bæði hið ytra og innra.
Kirkjubyggingin við tjamarbakk-
ann er eitt helsta höfuðprýði mið-
borgarinnar enda saga Fríkirkjunn-
ar svo samofin mótunarsögu
Reykjavíkurborgar að ekki verðui-
þar sundur gi-eint.
Endurnýjun á ytra byrði kirkju-
byggingarinnar er að mestu lokið.
Framundan er endurnýjun á innra
byrði kirkjuhússins og munu fram-
kvæmdir fara fram í vetur þ.e.a.s. í
okt. og nóv. mánuðum og síðan í jan.
og feb. í upphafi næsta árs. I desem-
ber verður hlé gert á framkvæmd-
um og kirkjan notuð til helgihalds.
Ætlunin er að kirkjan muni skarta
sínu fegursta á vormánuðum afmæl-
isárið 1999.
Framkvæmdirnar valda óneitan-
lega vissri röskun á helgihaldi safn-
aðarins en gefa um leið tilefni til til-
rauna og nýjunga í starfi, þar sem
flestir þættir verða teknir til endur-
skoðunar.
Síðastliðna mánuði hefur orðið tö-
uverð aukning í kirkjusókn og
einnig hefur kirkjulegum athöfnum
fjölgað.
Guðsþjónustur verða áfram hvern
helgan dag. Nú sunnudaginn 27.
sept. verður fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11.00 fyrir hádegi. Predikunar-
efni verður; Hvað er það að vera
kirkja?
Fyrrihluti guðsþjónustunnar
verður á léttu nótunum og við hæfi
barna sem fullorðinna. En þegar
kemur að predikun verður börnum
fylgt yfir í Safnaðarheimilið þar sem
dagskrá verður við þeirra hæfi en
hinir fullorðnu taka áfram þátt í
helgri guðsþjónustu. Síðan samein-
ast allir í guðsþjónustulok í kirkju
kaffi og spjalli í safnaðarsal. Að
loknu kirkjukaffi veður síðan gengið
niður að tjörn og fuglunum gefið
brauð en það hefur um árabil verið
ómissandi þáttur í barnastarfinu.
Fjölskylduguðsþjónustur verða síð-
an einu sinni í mánuði kl. 11.00.
I október og nóvember og í janúar
og febrúar á næsta ári verða guðs-
þjónustur haldnar í Safnaðarheimili
Fríkirkjunnar, rétt ofan við kirkj-
una að Laufásvegi 13. Hefðbundnar
guðsþjónustur verða eins og áður kl.
14.00 að undanskildum þeim dögum
sem fjölskylduguðsþjónustur verða.
Barnaguðsþjónustur verða
kl.11.00 annan hvern sunnudag frá
og með 27. sept.
Þegar er einu námskeiði lokið í
Fermingarskóla Fríkirkjunnar en
enn er verið að skrá börn til þátt-
töku í vetrar- eða vornámskeiðum,
svo og í ferðalag. En fermingargjöld
eru engin innan Fríkirkjunnar.
I vetur verður efnt til fræðslu-
kvölda og málþings um fríkirkju-
hugsjónina. Dagsetningar verða
auglýstar síðar.
Kvenfélag Fríkirkjunnar er rót-
gróið félag sem á sér merka sögu.
Það er eitt af elstu kirkjukvenfélög-
um á landinu og hefur gefið kirkj-
unni flesta hennar dýrmætustu
gripi. Kvenfélagið fundar fyrsta
fimmtudag í hverjum mánuði og
verður næsti fundur þess í Safnað-
arheimilinu fyrsta október næst-
komandi kl. 19.30. Formaður kven-
félagsins er Ágústa Sigurjónsdóttir.
Einnig er starfandi Bræðrafélag
Fríkirkjunnar og á það sér líka
merka sögu. Bræðrafélagið fundar
laugardaginn 17. okt. kl. 12.00 og
síðan laugardaginn 14. nóv. í hádeg-
inu þar sem safnaðarprestur mun
flytja erindi um fríkirkjuhugsjónina.
Formaður Bræðrafélagsins er
Ragnar Bernburg.
Þeir sem hafa áhuga á að taka
þátt í mótun og uppbyggingu lifandi
framtíðarstarfs í stórum, frjálsum
og lýðræðislegum lútherskum söfn-
uði, í hjarta borgarinnar, hafi sam-
band við safnaðarprest sem allra
fyrst.
Allar ferskar hugmyndir eru vel
þegnar. Símar safnaðarprests eru
552 7270 og 553 9105.
Tölvupóstfang safnaðarprests er;
hj örturm @ismennt.is
Hjörtur Magni Jóhannsson,
safnaðarprestur.
Vetrarstarf Sel-
tj arnarneskirkj u
NÚ ER vetrarstarfíð í Seltjarnar-
neskirkju komið á fullt skrið. Sum-