Morgunblaðið - 26.09.1998, Page 49

Morgunblaðið - 26.09.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 49_k einhvers staðar í bæjarlæk og oftar en ekki voru mál og athuganir til grundvallar túrbínusmíða skrifaðar á bókarkápu símaskrár eða á vegg- inn við símann. Eða að bjartsýnir ferðalangar sátu fastir við Ofæru og óskuðu hjálpar afa með Z-2 sem á þeim tíma var einn fárra bfla útbún- ir með spil. Oftar en ekki komu þessar hjálparbeiðnir seint að kvöldi eða nóttu. Og um sláttinn færðist nú heldur betur fjör í leikinn. Afi reyndi sem mest hann gat að hjálpa við heyann- ir þótt búskapur hvíldi á herðum Jóns bróður hans frá því ég man eftir mér. Alloft var það svo að hann komst í teig en varð frá að hverfa vegna þess að sveitungar leituðu í smiðju með brotin heyvinnutæki af öllum gerðum. Eitt sldptið líður mér seint úr minni einn fagran dag með iðja græna töðu á velli tilbúna til hirðingar. Afí kominn í heyskap og allir sem vettlingi gátu valdið. En dýrðin stóð stutt. Pað þurfti að gera við bilaðar vélar fyrir ná- granna og er nær dró miðnætti voru fjórir bændur sem biðu með ónýt tæki og þrír farnir sinn veg með viðgerðar vélar. Já, stundum var vinnudagur langur og launin lítil. Og ekki var við það komandi annað en að koma í bæinn og fá hressingu hjá ömmu. Svo gestagangur gat á stundum verið mikill. En er fram liðu stundir og aldur færðist yfir tók fyrir virkjanir í þeirri mynd sem að framan greindi. Betri tími gafst fyrir lest- ur vísindatímarita og vangaveltur um hið óleysta. Og í því efni var fylgst með af afar mikilli eiju. Hvað eina sem í athugun var á hverjum tíma var gaumgæft og gagnrýnt. Vindorka, sólarorka, rafbílar, læknisfræði, jarðfræði, skógrækt, geimferðir, geimfarartæki o.fl. Til dæmis var brugðið á það ráð að smíða tilraunalíkan af því sem hug- urinn var að glíma við hverju sinni „upp’ í stöð“ en svo nefnist smíða- verkstæðið hans þar sem undrin urðu til. Reyndist stundum erfitt að ráða í hvað var á hönnunar- og tilraunabrautinni. En með þessu var sýnt fram á að sumt gekk upp en annað ekki. Einhverju sinni er ég var við störf við virkjanir á Tungnaársvæðinu sagði ég honum frá jarðbor sem var að afla vinnu- búðum vatns. Þetta átti hug hans allan á þeim árum og var afi búinn að verða sér úti um jarðbor frá frumbernsku jarðborana á íslandi en gripurinn reyndist ekki sem skyldi. Varð nú lærisveinninn að greina frá í smáatriðum hvernig nýmóðins tækið vann. Með þetta að leiðarljósi var farið í smiðju og bor- inn endurhannaður. Nú skyldi bor- að eftir heitu vatni í bæjargilinu. Borholan varð 43 m djúp. Og við mælingar Orkustofnunnar var þetta sú hola sem gaf bestu vís- bendingar um hita á svæðinu fyrir austan Mýrdalssand og enn að ég best veit. Árið 1981 átti afi kost á því að skoða virkjanir við Tungnaá. Þetta var ólýsanleg upplifun að sjá einn af frumkvöðlum rafvæðingar á Islandi skoða tröllaukin vatnshjól miðað við þau er urðu til í smiðju hans í mínu minni. Og eitt vakti furðu vakthaf- andi vélstjóra við skoðun á viðkom- andi vatnshjóli. Afi benti á hönnun- argalla í formi hjóls sem hann hafði eftir áralangar tilraunir breytt til betri vegar! Já, það er margs að minnast eftir langa samferð. Nú undir það síðasta var afi farinn að leita á náðir lækna- vísinda til að láta lagfæra eins og hann orðaði það eitt og annað sem elli kerling olli honum erfiðleikum með sem hann gat ekki lagfært sjálfur með svæðanuddi og grasa- lyfjum. Nú í síðust viku hringdi síminn og afi var þar kominn og bað mig að at- huga með gleraugun sín sem hann gleymdi í Svínadal. Það væri svo bagalegt að geta ekki lesið meðan hann væri á sjúkrahúsinu. En nú er komið að leiðarlokum og gleraugun koma víst ekki að gagni lengur við athuganir á hinu óleysta. Afi, - takk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Páll Steinþór Bjarnason. SÆDIS KRIS TINSDÓTTIR + Sædís Kristins- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 7. nóv. 1983. Hún lést á Landspitalanum 17. september síð- astliðinn. Foreldrar hennar eru Kristinn Björnsson og Særún Eydís Ásgeirsdóttir í Vestmannaeyjum. Systkini hennar eru Særún, f. 29. júní 1982, Hrafnhildur, f. 26. júní 1987, og Ingibjörn, f. 6. apríl 1995. Sædís fluttist með fjölskyldu sinni að Flúðum í Hrunamannahreppi tæplega fimm ára gömul og bjuggu þau þar í sjö ár. Hún fór tvisvar í hjartaaðgerð til London fyrir þriggja ára aldur en var eftir það frísk í uppvextin- um. Hún veiktist skyndilega í kennsiustund í Barnaskóla Vest- mannaeyja hinn 17. september. Utför Sædísar er gerð frá Landa- kirkju í Vestmanna- eyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. „Gísli! Viltu aðeins koma og hjálpa mér með þetta dæmi héma.“ Það var Sædís, vina mín og nem- andi, sem kallaði og bað um aðstoð. Eg fór til hennar og í sameiningu fundum við bestu lausn á dæminu sem hún var að glíma við. Ekki grunaði mig þá að þetta væri í síðasta skipti sem Sædís bæði mig um hjálp í stærðfræði og þetta væri í síðasta sinn sem ég sæi þessa fíngerðu og elskulegu stúlku í 10. G.Ó., bekknum mínum. Eg minnist vel hvernig fundum okkar bar fyrst saman haustið 1997, þá var hún að hefja nám í 9. bekk í Barnaskóla Vestmannaeyja. Sædís valdi sér sæti sem næst kennaraborðinu og fljótlega tókst með okkur góður vinskapur. Sædís var vönduð stúlka til orðs og æðis. Ég man aldrei til þess að sfyggðaryrði hafi ratað af munni hennar til bekkjarfélaga eða kenn- ara. Þar fór ungmenni með hreint hjarta. Það er huggun harmi gegn, að gegnum svartnætti sorgarinnar lýsir von. Það er von um endur- fundi. Þessi von kom fyrir frelsarann Jesú Krist. Jesús birti okkur þessa von þegar hann sagði: „Ég er upp- risan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja.“ (Jóh. 11:25.) Ég minnist Sædísar nemanda míns með hrærðum huga og sökn- uði og votta foreldrum hennar og systkinum dýpstu samúð. Gísli Jóhannes Óskarsson, umsjónarkennari 10. G.Ó. Það var sárt að heyra það að hún Sædís væri dáin, þessi unga, fallega og góða stúlka. Ég vil minnast hennar með nokkrum orð- um. Sædís tók virkan þátt í starfi æskulýðsfélags KFUM og K í Landakirkju. I starfi æskulýðsfé- lagsins var hún sterkur hlekkur og verður hennar sárt saknað í starf- inu. Sunnudagskvöldið 20. september sl. var haldinn æskulýðsfundur sem tileinkaður var minningu Sædísar. Á þeim fundi var 23. Davíðssálmur- inn lesinn. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. A grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt, þvi að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. M býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum; þú smyrð höfúð mitt með olíu; bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi drottins bý ég langa ævi. Ég vil senda bekkjarsystkinum, kennurum og vinum Sædísar sam- úðarkveðjur. Ég bið Guð að gefa foreldrum, systkinum og öðrum ættingjum styrk í sorg þeirra. Blessuð sé minning Sædísar Kristinsdóttur. Gylfi Sigurðsson, æskulýðsfulltrúi Landakirkju. Okkur vinkonurnar langar að skrifa nokkur minningarorð um Sæ- dísi Kristinsdóttur. Sædís var góð stelpa og alltaf í góðu skapi. Þegar við fréttum að Sædís væri dáin, þá fórum við að hugsa hvað hefði gerst. Hún var þarna í góðu skapi eins og alltaf. I tíma með okkur og svo var hún dáin um kvöldið. Hún á eftir að vera í minningu okkar alltaf, um alla eilífð. Við viljum votta foreldrum, systkin- um og öðrum sem tengdust henni á einhvern hátt samúð okkar. í lokin viljum við minnast Sædísar með þessum erindum: Þú varst bekkjarsystir okkar, samt þekktum við þig ekki raikið. Dauóinn, já, dauðinn aðskilur þig og okkur. A nætumar ertu hjá okkur en aðeins í draumi. Á daginn ertu hjá okkur en aðeins í huga. Við vorum aðeins unglingar er þú fórst. Við þekktum þig ekki mikið en samtverður þú í huga okkar alla tíð. Hvfldu í friði, elsku Sædís. Þínar bekkjarsystur Marta María, Irena, 4. Guðný Sigríður og Eygló. Dauðinn tók þig í blóma lífsins. Afhverju? Hverveitþað? Guðveitþað. Hvemig veit hann það? Hann tók þig frá okkur, þess vegna veit hann það. Hann hafði ástæðu, þótt við vitum ekki hver hún er og fáum aldrei að vita hana. Guð veit að okkur finnst dauðinn ekki sanngjam. Sérstaklega þegar hann tekur einhvem of fljótt Við vildum hafa þig lengur en Guð þarfnaðist þín. Við vildum kynnast þér betur ogveravinirþínir. Núna þegar þú ert farin sjáum við að okkur þótti vænt um þig, vænna en við héldum. Pú varst vinkona okkar á meðan þú lifðir. Pú ert vinkona okkar ennþá. Það verður ekki langt þangað til við hittumst aftur. Marsibil Anna Jóhannsdóttir. RAGNAR GUÐMUNDSSON + Ragnar fæddist í Asbúð í Hafn- arfirði 29. júní 1903. Hann var sonur hjónanna Guðmund- ar Sigvaldssonar út- vegsbónda og Krist- bjargar Ólafsdóttur frá Garði í Görðum. Hann var næstyngstur sex systldna og lifði hann þau öll. Hann átti uppeldisbróður, Eirík Sæmundsson, og er hann á lífi. Hinn 4. nóvember 1929 gekk hann að eiga lífs- förunaut sinn Regínu Magnús- dóttur frá Kirkjubóli. Þau eign- uðust þrjú böni. 1) Magnús, f. 30.11. 1928, d. 21.5. 1996, fyrri kona hans var Gíslina Jónsdótt- ir og eignuðust þau þijú börn: Regínu, Maríu og Sigríði. Seinni kona hans var Sigurlaug Guð- mundsdóttir og eignuðust þau fjögur börn: Sigrúnu, Magnús, Grétar og Baldur. 2) Guðbjörg, Það sem fyrst kemur upp í huga mér við andlát afa er þakklæti. Ég er þakklátur afa fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að kynnast, sjá og örlítið að upplifa þá reynslu, þekk- ingu og sýn sem afi hafði öðlast á langri æfi sinni. Afi var frá Ásbúð í Hafnarfirði, fæddur árið 1903, af þessari aldamótakynslóð Islendinga sem svo fáir eru eftir af. Sennilega hafa mjög fáar þjóðir eða einstak- lingar gengið í gegnum slíkar breyt- ingar á einni öld sem við Islending- ar á sviði menntunar, viðskipta og framþróunar í hverri mynd sem hún er svo sem fólgin í á þessari öld, í átt til aukinnar velsældar, mennt- unar og velmegunar. Þegar afi ólst upp í Hafnarfirði þá var bærinn ekki stór, fjölskyldan var stór, börn- in voru mörg, oft var erfitt að brauðfæða og gefa skjól, lífið var erfitt, tilfinningar ekki á borð bom- ar, nei, það skyldi halda sínu til þess f. 3.2. 1930. Fyrri maður hennar var Haraldur Gíslason sem nú er látinn. Þau eignuðust fjög- ur böm: Ragnar, Gísla, Margréti og Harald sem er lát- inn. Seinni maður hennar var Gunnar Bjarnason, sem nú er látinn. Þau eign- uðust tvö börn, Gunnar Ásgeir og Regínu Sólveigu. 3) Garðar Láras, f. 21.8. 1931, kvæntur Onnu Guðjónsdóttur og eiga þau þijú börn: Hlyn, Regínu og Ragnar. Afkomendur Ragnars og Regínu eru um 60 talsins. Ragnar ólst upp í Hafnarfirði og stundaði nám í Flensborgar- skólanum. Hann lauk verslunar- prófí frá Verslunarskólanum í Reykjavík. Utför Ragnars fór fram frá Hvítasunnukirkjunni Ffladelfíu 11. september. að lifa af, til þess að afkomendur gætu horft fram á við, beislað kraft- inn. Oft var lítið um peninga í um- ferð, en í staðinn enn meira af alls- konar sjávarfangi sem útvegsfólk við sjávarsíðuna hafði fangað, þetta var skiptimynt fyrir marga til að halda áfram. Svona'var lífið hjá mörgum við upphaf þessarar aldar, ég hygg að það hafi ekki verið öðra- vísi hjá afa Ragnari, nema ef vera skyldi að slík umsýsla nauðsynlegra hluta hafi markað upphaf áhuga afa á frekari viðskiptum. Afi kláraði menntun sína frá Flensborgarskóla, sem hefur þótt nokkuð gott á sínum tíma, hann lærði allvel ensku á þessum tíma, meðal annars af ensk- um togarasjómönnum, sem komu til Hafnarfjarðar, hann varð jafnvel svo vel metinn, að hann fékk að kokka ofan í mannskapinn við ein- hver tækifæri, en því hefur verið fleygt fram að aðallega var um skyrhræring og plokkfisk að ræða, og víst hefur hann bragðast vel fyr- ir hungraðan mann. Ásamt skóla- göngu sinni í Flensborg gekk afi í verslunarskóla Reykjavíkur og kláraði nám sitt þaðan. Afi var mjög lánsamur er hann kynntist ömmu minni Regínu Magnúsdóttur frá Kirkjubóli við Laugarnesveg í Reykjavík. Saman stóðu þau sem eitt allt þar til amma Iést í júlí 1991. Þau eignuðust 3 börn, Magnús, sem lést 1996, Guðbjörgu og Garðar. Afi talaði stundum um þá daga þegar hann var sölumaður hjá Nóa, Siríusi og Hreini sem þá hét, og fleirum, með skemmtilegum tón, mikið var stundum selt og greinilega hefur ekld verið slæmt að hafa slíkan brautryðjanda í fyrirtæki sem var að koma starfsemi sinni á traustan grunn. Ég efast ekki um söluhæfi- leikann, stutt var í glensið ef því var að skipta hjá afa, þá voru tímarnir einnig aðrir, sölumenn ferðuðust á skipum milli hafna landsins og seldu varning sinn, seinna komu bílarnir til sögunnar og þá var ferðast um landið með töskurnar, sýnishornin og selt fyrir næstu 3-6 mánuði, ef það vantaði í kassann við afgreiðslu þá var fyllt upp í hann. Afi stofnaði heildverslun Ragnar Guðmundsson í kringum 1940 ásamt öðrum, á milli •1940-50 reyndi hann einnig fyrir sér í útgerð sem á þeim tíma virtist vera uppgangstími en hann var ekki lánsamur í útgerðinni og erfiðir tím- ar tóku við því mikið var lagt undir. í kringum 1950 breytist margt hjá afa og ömmu. Þau öðlast frelsið, trúna á Jesú, ekki eingöngu barna- trúna, heldur lifandi daglega trú. Þegar erfiðleikamir eru sem mestir þá er hjálpin næst. Afi var stoltur af því að vera hvítasunnumaður í næm 50 ár, hann tók þátt í upp- byggingu Hvítasunnusafnaðarins Fíladelfiu alla sína tíð bæði með eig- in vinnuframlagi sem sparisjóðs- stjóri Pundsins mestallan þann tíma sem hann var rekinn af söfnuðinum- og með öðrum framlögum. Eins og nærri má geta þá var fólk sem gerðist hvítasunnumenn á miðri öldinni talið allt öðruvísi held- ur en venjulegt annað fólk. Jafnvel svo að nú á seinni tímum undrast jafnvel menn þvílíka fordóma þetta fólk, sem var brautryðjendur, þurfti að sæta. Sem betur fer eru þessir fordómar ekki jafn miklir og þeir voru þá. Að lokum, afi minn, langar mig til að þakka þér fyrir samfylgdina, góð ráð, hlýjan hug og allar bænirnar sem þú og amma lögðuð okkur til. Magnús Magnússon. Birting íifmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skiúfstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru bh-tar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.