Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 66

Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 66
. 66 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR I DAG Alþjóðlegur baráttudagur heyrnarlausra ALÞJÓÐLEGUR baráttudagur heyrnarlausra er sunnudaginn 27. september. Baráttudagur þessi hef- ur verið haldinn hátíðlegur víðsveg- ar um heim í 10 ár og þennan dag nota heymarlausir tækifærið til þess að vekja athygli á baráttumál- um sínum og menningu. -t Félag heyrnarlausra var stofnað árið 1960 og er heildarsamtök heyrnarlausra á íslands. Markmið félagsins er að bæta stöðu heyrnar- lausra og heyrnarskertra í samfé- laginu, stuðla að réttindum þeirra til jafns við aðra og rjúfa félagslega einangrun þeirra með öflugu félags- lifi, fræðslu og ráðgjöf. Einnig mið- ar félagið að því að koma upplýsing- um til almennings um heymarleysi, menningu og tungumál heymar- lausra, íslenska táknmálið. Undanfarin ár hefur Félag heyrnarlausra staðið íyrir penna- sölu í tengslum við dag heyrnar- lausra og hefur það verið mikilvæg- ur þáttur í fjáröflun félagsins. „Stuðningur almennings í landinu hefur verið ómetanlegur og gert Félagi heymarlausra kleift að standa vörð um hagsmuni félags- manna og hefur margt áunnist und- anfarin ár. En til að gera enn betur og stuðla að bættri stöðu heymar- lausra í íslensku samfélagi er áframhaldandi stuðningur nauðsyn- legur. Næstu daga munu pennarnir verða til sölu víðsvegar um land og vonast félagið eftir því að almenn- ingur taki vel á móti sölufólki," seg- ir í fréttatilkynningu. Norrænar kvikmyndir fyrir börn og unglinga alla sunnudaga BARNADAGSKRÁ vetrarins í Norræna húsinu er að byrja og verður hún með hefðbundnu sniði. Segir í tilkynningu að kvikmynda- sýningar fyrir böm og unglinga hafi verið einkar vinsælar og vel sóttar. Þær hefjist sunnudaginn, 27. sept- ember, kl. 14. Sýnd verður leikbrúðumyndin „Fyrtpjet" sem gerð er eftir ævin; týri H.C. Andersen, Eldfæranum. í þessari stuttmynd endursegir rúm- ensk-danski snillingurinn Mihail Bodica ævintýrið. Myndin hefur fengið viðurkenningar og er hún einstæð að því leyti að brúðumar sýna táknmálshreyfingar um leið og þær tala. Hún hentar því einnig heyrnarskertum. Myndin er ætluð börnum frá 6 ára aldri jafnt sem fullorðnum, segir enn fremur. Hún er með dönsku tali og er 36 mín. löng. Aðgangur er ókeypis. „Flottar báðum megin“ Nýkomnar vendi- dúnúlpur 100% dúnn Dúnúlpa Dökkblá/rauð St. S-XXL Verð 7.960 Dúnúlpa Dökkblá/blá St. 128-176 Verð 6.980 Jan-tex skíðaúlpa. Vind-/vatnsheld m/öndun. St. S-XXL Verð 9.945 ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðarmiðstöðina Símar 551 9800 og 55! 3072. Heimsíða: www.mmedia.is/sportleigan VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sjúkraskrár S.R. VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: ,AUar sjúkraskrár Sjúkrahúss Reykjavíkur opnar fyrir starfsfólk tryggingafélaga og starfs- menn örorkunefndar," segir Jóhannes M. Gunn- arsson, lækningaforstjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur. (Eru til lög og reglur sem leyfa þetta heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra?) Þetta segir hann í svar- bréfi til undirritaðs hinn 11. september. Þar segir hann að við það að óska eftir mati á tjóni vegna bif- reiðaslyss, samþykki tjón- þoli það að nauðsynlegra upplýsinga sé aflað eins og eyðublað örorkunefndar ber með sér. Sama á við um tjónstilkynningar tryggingafélaga. Hefur hann aldrei séð eyðublað örorkunefndar, en á því er vitnað í lög og reglugerðir. Þvi mun ég upplýsa hann um það hér. í svari yðar kom fram að það eru engar heilsufars- upplýsingar undanskildar til örorkunefndar og eyðu- blað örorkunefndar beri það með sér. Á eyðublaði örorkunefndar dags. 19.11. 1996 og matsbeiðandi er VIS vátrygging hf. stend- ur orðrétt: „Matsbeiðni skv. 10. gr. laga nr. 50/1993 sbr. reglugr. nr. 335/1993.“ „I 10. gr. laga nr. 50/1993 segir: Ráðherra setur reglugerð um starfs- háttu örorkunefndar." Og í reglugr. nr. 335/1993 um starfsháttu örorkunefndar er ekkert sem heimilar þeim að fara í gamlar sjúkraskrár og hvað þá að falsa þær og misnota. En í 3. gr. stendur orðrétt: „Beiðni um álit skal vera skrifleg og rituð á eyðu- blað sem nefndin lætur í té. Með beiðni skulu fylgja skýrslur um atvik að tjóns- atburði og afleiðingar hans. Einnig skulu fylgja ítarleg vottorð lækna sem stundað hafa tjónþola vegna tjóns hans.“ Og síð- ar: „Nefndin getm- að auki lagt fyrir matsbeiðanda og eftir atvikum tjónþola sjálfan að leggja fram við- bótargögn eftir þvi sem nefndin telur ástæðu til.“ Örorkunefndin getur lagt fyrir tjónþola sjálfan að leggja fram viðbótar- gögn, eins og siðaðir menn gera, en ekki æða inn i sjúkraskrár án þess að lög og reglur leyfi. I lögum og reglum um réttindi sjúklinga sem öðl- uðust gildi 1. júlí 1997 segir orðrétt: „Sjúkraskár skulu geymdar á tryggum stað og þess gætt að einungis þeir starfsmenn sem nauð- synlega þurfa hafi aðgang að þeim. Og iækni er skylt að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit sjúkraskrár, allar eða að hluta. Sama gildir gagnvart opinberam aðilum sem lög- um samkvæmt athuga kvörtun eða kæru sjúklings eða umboðsmanns vegna læknismeðferðar." Eg var ekki hjá örorku- nefnd í læknismeðferð heldur eingöngu með beiðni um endurupptöku vegna 11. gr. skaðabótalaga og því enga nauðsyn eða læknismeðferð um að ræða og íyrir utan það að lög og reglur um réttindi sjúk- linga sem öðluðust gildi 1. júlí 1997 eru hafin yfir eitt- hvert staðlað eyðublað frá örorkunefnd síðan 19.11. 1996. Einnig kemur fram í svari þínu að læknar sem leitað er til á vegum ör- orkunefndar og trygginga- félaga, eru bundnir þeim skyldum að veita rétta upp- lýsingar og meta þær á sem réttastan og heiðarleg- astan hátt. Yfirlæknir á SHR og starfsmaður örorkunefnd- ar hefur upp úr sjúkraskrá minni um rannsókn er þar var gerð 1981 fer ef til vill í aðgerð eftir helgina og að þar hafi komið fram lömun er var svo fáránleg að hún gerði veikleika í armflækju svo fjölhæfan að hann svaf (varla svefni hinna rétt- látu) í rám 11 ár í vinnu og við smíðar og framhjá bif- reiðaslysi árinu áður en í slysið 4. nóvember 1993 (þvílíkur svefn það) og vaknaði svo við slysið í nóvember 1993. (Um þetta furðulega gen þarf að upp- lýsa og ef til viU getur Kári það). Guðmundur Ingi Kristinsson. SKAK IJmsjón Margeir Fétiirsson STAÐAN kom upp á svæðamóti Norðurlandanna í Munkebo í Danmörku. Hannes Hlífar Stefánsson (2.535) var með hvítt og átti leik gegn Helga Ólafssyni (2.505). Svartur var með peð yfir en lék síðast 29. - Ha8-d8 sem gaf hvíti færi á að jafna taflið. 30. Hxg7+! - Kxg7 30. - Kf8 31. Hg6 leiðir til sömu niður- stöðu) 31. Bxf6+ - Kxfii 32. Hxd8 - Hb4+ 33. Kcl - h5 34. Hd7 - Ha4 35. Kb2 - h4 36. Kb3 - Ha5 37. c4 - Hg5 38. Hxa7 - Hxg2 39. Hh7 - Hg3+ og samið um jafntefli. Hinni kapp- skák þeirra Hannesar og Helga lauk á sama veg og varð þá að framlengja og tefla atskákir því útsláttar- íyrirkomulag gilti á mótinu. Þá hafði Hannes betur eftir miklar sviptingar. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst á morg- un í félagsheimili TR, Faxa- feni 12. Síðasti skráningar- dagur í dag. HVÍTUR leikur og tryggir sér jafntefli. Víkverji skrifar... UM ÞESSAR mundir stendur yfir viðgerð á ytra byrði Bessa- staðakirkju og er það vel að þessu merka guðshúsi, sem var vígt 1796 og er með elztu steinhúsum á land- inu, skuli vel haldið við. Víkverja finnst að nú ætti næsta skref að vera það að koma kirkjunni í sína upprunalegu mynd að innanverðu. Stórkostleg spjöll voru unnin á henni árin 1947 og 1948, þegar upp- ranalega innréttingin, smíðuð eftir teikningum G.D. Anthons, þess sama og teiknaði Viðeyjarkirkju og Landakirkju í Vestmannaeyjum, var rifin úr kirkjunni og í staðinn sett „nýmóðins" innrétting eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Þótt Víkverji sé aðdáandi Guðjóns og flestra verka hans fer ekki á milli mála að „endurbæturnar" á Bessastaða- kirkju vora mistök og yrðu ekki leyfðar í dag. En uppranalega inn- réttingin er að stærstum hluta til á Þjóðminjasafninu og fyrir skömmu fannst einnig hluti hennar á fjóslofti á Bessastöðum. Víkverji leggur til að upprunalegu innréttingunni verði komið fyrir í Bessastaðakirkju á ný og innréttingin frá fimmta ára- tugnum sett á Þjóðminjasafnið sem dæmi um mistök í byggingarlist, sem ekki era til eftirbreytni. XXX BANDARÍSKA utanríkisþjónust- an gefur út upplýsingablöð fyrir ferðamenn („consular information sheet“) um hvert einasta ríki í heim- inum. Þar er lýst aðstæðum í viðkom- andi landi, hvort ferðaþjónusta sé þróuð eður ei, hvað beri að varast og hvemig beri að hegða sér tii að kom- ast hjá vandræðum. í þessum upp- lýsingablöðum er yfirleitt tínt til það helzta, sem orðið gæti til þess að ógna lífi og limum ferðamanna. Svo dæmi séu tekin af löndunum, sem era sitt hvora megin við ísland í staf- rófsröðuðum lista utanríkisráðuneyt- isins, er varað við mannránum, ætt- bálkaerjum og vasaþjófnaði í Ind- landi og í Ungverjalandi er ferða- mönnum ráðlagt að vera á varðbergi gagnvart ránum á götum úti, þjófn- aði af hótelherbergjum og bílstuldi. xxx EN VIÐ hverju skyldi nú banda- ríska utanríkisráðuneytið sjá ástæðu til að vara bandaríska ferða- menn, sem leggja leið sína til ís- lands? Jú, eina hættan, sem er til- greind, er „óreiðan" í miðborg Reykjavíkur um helgar. Fregnir af hinu viliimannlega ástandi, sem ríkir í miðbænum á föstudags- og laugar- dagskvöldum, fara greinilega víða. Fer ekki að verða kominn tími til að hreinsa upp ósómann með samstilltu átaki borgaryfiiTalda og lögreglu? xxx * .. AOÐRUM stað í borginni ríkir fullkomin óreiða á hverjum degi, þótt af öðram toga sé en lætin í miðbænum. Hér á Víkverji við hið stöðuga umferðaröngþveiti, sem einkennir syðri hluta Skeifunnar, Faxafen og Fákafen. Skipulag þessa svæðis er svo fráleitt, að mesta furða má heita að nokkur komist út úr þessum stærsta um- ferðarhnút borgarinnar, sem einu sinni hættir sér inn í hann. Víkverji heyrði haft eftir arkitekt nokkrum að skipulag svæðisins hefði verið í sæmilegu lagi áður en stjórnmála- menn komust með puttana í það og klúðraðu því. Ætli stjórnmálamenn- imir geti gert eitthvað til að laga klúðrið sitt aftur, svo það sé hægt fyrir venjulegt fólk með takmarkað- an tíma að leggja leið sína t.d. í Hagkaup í Skeifunni?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.