Morgunblaðið - 26.09.1998, Síða 69

Morgunblaðið - 26.09.1998, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 69 FÓLK í FRÉTTUM Madívc Ulandi! Útgáfuhátíð í Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 26. sept. Þar koma fram flytjendurnir á nýjum hljómdiski sem gefinn er út til styrktar vangefnum. Morgunblaðið/Golli SIGURLIÐIÐ í utandeildinni í ár var Meló. Dauðaleit að stefnu UNDARLEGT var að fylgjast með Clinton Bandaríkjaforseta á Sýn á mánudaginn sitja fyrir svörum saksóknara í Hvíta hús- inu og tíunda þar einkamál sín frammi fyrir heiminum, þar sem leyft hafði verið að sjónvarpa seg- ulbandi þar sem svör hans birt- ust. Allt er þetta hið sérkennileg- asta mál af því svör hans voru einungis tekin upp á segulband vegna þess að einn dómarinn gat ekki mætt. Má segja að margur maðurinn hafi ekki mætt á vinnu- stað af minna tilefni. Málatilbún- aðurinn gegn Bandaríkjaforseta er með ólíkindum. Við þessa yfir- heyrslu voru að minnsta kosti þrjár konur tilnefndar; einhverjar bjöllukindur, sem ævinlega reyna að nudda sér utan í fræga menn í von um frægð og peninga fyrir „ævisögur". Mest var þó sótt að Clinton vegna Monicu Lewinski, ungr- ar, laglegrar stúlku, sem vann í Hvíta húsinu sem nemi eða lær- lingur og komst þá í kynni við for- setann. Má vera að hann hafi orð- ið helst til fjölþreifmn um hin ungu brjóst, en hveijum kemur það við nema Clinton, Monicu og Hillary forsetafrú? Repúblikanar hófu þetta mál og passa að halda þvi á lofti endalaust og myndu helst kjósa að Clinton færi frá. Sá er hængur á þessu Monicu-máli að um einkasvið í lífi forsetans er að ræða og erfitt að beita laga- krókum. Hins vegar telja aðsókn- armenn að um meinsæri sé að ræða, vegna þess að Clinton hafi svarið að hann hafi hvergi þreifað ólöglega. Þessu þrefi er svo sjón- varpað um heimsbyggðina til mikillar gleði fyrir alla sem hata Bandaríkin svo sem mú- hameðstrúarmenn og suma vinstri menn. En þeir koma engu við og þess vegna eru Kanar að reyna að eyðileggja sig sjálfir og byrja náttúrlega á forsetanum. A sunnudagskvöld sýndi Stöð 2 myndina Rauða tjaldið frá 1969, sem gerð var af Rússum og ítöl- um um frækiferð í loftbelg á Norðurpólinn undh’ stjórn ítalans Umberto Nobile. Menn sóttu mjög að pólunum á þessum árum og lentu í miklum erfiðleikum af því þeir voru vanbúnir og skorti þekkingu á aðstæðum. Sir Walter Scott fórst á Suðurpólnum eftir að hafa tapað kapphlaupinu þang- að fyi'ir Roald Amundsen og Shackelton leiddi á þriðja hund- rað manna leiðangur út úr Antar- tiku á frækilegan hátt. Norður- póllinn var á þessum ái-um vett- vangm- hetjudáða og hrakfalla, sem enduðu með dauða manna. Umberto Nobili bjó flugskip til ferðar. Hann og menn hans héldu til norðurs við fagnaðarlæti Itala, sem voru miklir flugkappar á þessum tíma og síðar, sbr. komu Balbo hingað. Eftir að hafa flogið á pólinn lentu Nobili og menn hans í ísingu og misstu loftskipið Italíu niður á ísinn, þar sem það hrundi saman. Myndin er öðrum þræði saga björgunar á þessum slóðum, þar sem rússneski ís- brjóturinn Karssin kemur við sögu. Svo fór að flestir björguðust eftir miklar þrautir. Amund- sen var kallaður til leitar og kom ekki aftur. Hann var leikinn af Sean Connery og fór vel á því. Undanfarið hefur töluvert sungið í Saurbæjareldhúsi hjá fréttastofum nú þegar Keiko er liðin saga en við er tekið hrun á mannvirkjum. Nákvæmar lýsing- ar hellast yfir landsmenn á póli- tísku heilsufaiá vinstri manna í landinu, sem eru að gamna sér við sameiningu undir forustu stórmenntaðs fólks, sem hefur gaman af að segja öðrum fyrir verkum. Fyrst kom skoðanakönn- un frá Gallup, sem menn voru óá- nægðir með. Þá fannst villa í henni, sem lagaði málið mikið þannig að þeir sem voru að sam- einast fengu spáð fleiri atkvæð- um. Síðan kom stefnuskráin, sem sumir segja að sé ekki normal nái hún ekki til allt að fimmtíu ára tímabils. Þetta er allt tíundað í fréttum. Svo kom sjálfur lands- faðirinn, sem vinstri menn eru ekki alltof hrifnh’ af, og sagði að stefnuskráin kostaði frá 40-60 milljarða kr. Þegar hér var komið sagði Vestfjarðagoði vinstri manna að það yrði að semja nýtt plagg. Og það er verið að því. En til hvers allar þessar fréttir um ekki neitt nema óskhyggju nokk- urra rugludalla um 40-60 millj- arða álögur á landslýð? Indriði G. Þorsteinsson SJONVARPA LAUGARDEGI Ragnan fagnaði sigri Meló ► UM SÍÐUSTU helgi var úr- slitaleikur í utandeildinni milli Meló og Rögnunnar. Var mikið í húfi enda hefur utandeildin stað- ið yfír í allt sumar með fjölmörg- um misspennandi leikjum, oft hörðum slag og stundum skraut- legum uppákomum. Það var Meló sem bar sigur úr býtum í leiknum og fögnuðu Rögnumenn því ákaft, hlupu sigurhring um Ieikvanginn og slógu upp gleðskap á Grandrokk á eftir. Er ekki hægt að segja annað en að þeir hafí skapað gott fordæmi fyrir úr- slitaleikinn í úrvalsdeildinni í dag á rnilli KR og ÍBV. EINAR Hannesson gegndi ábyrgðarfullu hlutverki fyrir Rögnuna. Hann var maðurinn með grillið. URSLITIN ráðin og menn farnir að hita sig upp fyrir kvöldið. Listamennimir skemmta milli kl. 22 og 24. Kynnir er Þorgeir Ástvaldsson. Eftir miðnætti verður dúndurdansleikur með Milljónamæringunum, eins og þeim er einum lagið, ásamt söngvurunum Ragnari Bjarnasyni, Bjarna Ara, Stefáni Hilmarssyni og leikkonu- kvartettinum Heimilistónum. Ágóöinn rennur til átnksins STYRKUR, VON OG STARF. Miðaverð er aðeins 1200 kr. Forsala aðgöngumiða á Hótel Sögu laugardag 26.sept. kl. 13 - 1 9 Miðasala hjá Styrktarfélaginu Skipholti SOc sími SS1 5941. -þín saga!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.