Morgunblaðið - 26.09.1998, Qupperneq 76
ÞREFALDUR 1. VINNINGUR
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Snjóflóðavarnargarðarnir á Flateyri við Önimdarfjörð vígðir í gær
SÉRA Gunnar Björnsson í Holti í Önundarfírði fór með bæn og blessaði mannvirkið.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
Deilt um
þjónustu-
gjöld
FORSVAESMENN Kaupmanna-
samtakanna segja greiðslubyrði ís-
lenskrar verslunar af greiðslumiðl-
un með kreditkortum óeðlilega háa.
Samtökin gagnrýna viðskiptabank-
ana fyrir að hafna beiðni sinni um
rannsókn hlutlauss aðila á því hvar
kostnaður og tekjur leggjast fyrir í
greiðslumiðlunarkerfmu. Pá telja
þeir óljóst hvort nokkurt hagræði
hljótist af útgáfu nýrra greiðslu-
korta sem bankar, sparisjóðir og
greiðslukortafyrirtækin tvö hyggj-
ast innleiða hér á næsta ári.
Nýju kortin eru búin svokölluð-
um örgjafa sem leysir hefðbundnu
segulröndina af hólmi.
Talsmenn íslenskra viðskipta-
banka vísa þessari gagnrýni á bug.
Þeir segja óeðlilegt að rannsaka
verðmyndun í frjálsu markaðskerfi
með það fyrir augum að ákveða
kostnaðarskiptingu. Þá fuUyrða þeir
að nýju greiðslukortin komi til með
að auka öryggi í viðskiptum auk
þess að efla rafræn viðskipti.
■ Greinir á um/20
Kostuðu um 340
millj ónir króna
ísafiröi. Morgunblaðið.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ
Vill reglur um afnám
sjávarútvegsstyrkja
UM hundrað manns voru við
formlega vígslu snjóflóðavarnar-
garðanna ofan við Flateyri síð-
degis í gær. Gerð þeirra lauk fyr-
ir nokkru og eru þeir þegar orðn-
ir grænir og grösugir eftir sán-
ingu.
Kostnaður við gerð garðanna
nemur um 340 milljónum króna,
sem er um 50 milljónum króna
lægri upphæð eu gert var ráð fyr-
ir í upphaflegri kostnaðaráætlun.
í henni var þó ekki gert ráð fyrir
uppgræðslu og gróðursetningu
tijáplantna sem unnið var við í
sumar. Leiðigarðarnir sjálfir eru
tæplega 1.200 metrar á lengd og
hæðin á þeim er 15-20 metrar. Á
milli þeirra neðst er þvergarður
sem er um 240 metrar á lengd.
I ávarpi sínu sagði Guðmundur
Bjarnason umhverfisráðherra
m.a., að vonandi yrðu mannvirki
þessi í raun aldrei „tekin í notk-
un“, þ.e. að aldrei þyrfti á þau að
reyna í alvöru. „Það má ef til vill
segja,“ sagði ráðherra, „að ríkis-
vald og sveitarfélög hafi ekki ver-
ið nægjanlega á varðbergi og
áföil sem höfðu orðið á árum áður
hafi ekki leitt til þess að á málum
væri tekið af festu á þeim svæðum
sem raunverulega bjuggu við
snjóflóðahættu. En ég leyfi mér
að fullyrða, að nú hafi orðið
breyting á.“ Ráðherra lauk lofs-
orði á verktakann og hvernig
hann skilaði verkinu af sér.
Birna Lárusdóttir, forseti bæj-
arstjórnar Isafjarðarbæjar, sagði
m.a.: „Við stöndum frammi fyrir
miklu mannvirki - mannvirki sem
verður að teijast til stærstu minn-
isvarða sem finnast, því það mun
alla tíð minna okkur og komandi
kynslóðir á atburðina í október
fyrir þremur árum.“
Vinnan við garðana hófst haust-
ið 1996 og lauk henni í júlímánuði
síðastliðnum. „Við þessa fram-
kvæmd þurfti að hreyfa hér á
svæðinu nálægt einni milljón
rúmmetra af jarðvegi, en það nem-
ur um 170.000 vörubílshlössum,"
sagði Gunnar Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Klæðningar hf.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að Island muni styðja
viðleitni til þess að semja á vett-
vangi Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar (WTO) um afnám rfldsstyrkja til
sjávarútvegs. Þetta kom fram í
ræðu ráðherrans á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í New York í
gærkvöldi.
Tryggja þarf skynsamlega
nýtingu
Utanríkisráðherra gerði sjávarút-
vegsmál að meginumfjöllunarefni
sínu og sagði í ræðu sinni að tryggja
yrði að hægt yrði að halda áfram
skynsamlegri nýtingu lifandi auð-
linda sjávar og að efnahagsleg fram-
þróun og vemd lífríkisins héldust í
hendur. „Til þess að treysta kraft-
mikinn og ábatasaman sjávarútveg
verða ríki að innleiða grundvallar-
reglur einkaframtaksins í sjávarút-
veginum og leyfa afurðum hans að
keppa á frjálsum markaði,“ sagði
Halldór.
Hann gat þess að íslendingar
hefðu náð góðum árangri í fiskveiði-
stjórnun með kvótakerfinu, sem
tryggði bæði vernd fiskveiðiauðlind-
arinnar og sjálfbæra nýtingu henn-
ar. Aftur á móti væri sjávarútvegur
víða um heim illa staddur vegna
ofnýtingar auðlindanna. Halldór
sagðist telja að þetta væri einkum
vegna þess að sjávarútvegurinn
hefði verið kaffærður með rflds-
styrkjum, sem hefðu leitt til um-
framveiðigetu og röskunar á mark-
aðnum. Engin aðgerð væri betur til
þess fallin að stuðla að sjálfbærri
þróun fiskveiða en að afnema ríkis-
styrki til atvinnugreinarinnar.
„Island myndi styðja frumkvæði í
þá átt að gera reglur um rfldsstyrki
í sjávarútvegi, helzt útrýmingu
þeirra, að sérstöku umræðuefni í
næstu lotu samningaviðræðna innan
WTO,“ sagði Halldór.
Hann gat þess að í ýmsum
skýrslum Sameinuðu þjóðanna væri
gefið í skyn að ofveiði væri alls
staðar vandamál og að strandríkj-
um hefði mistekizt að stýra auðlind-
unum í efnahagslögsögu sinni.
Þetta væri hins vegar ekki rétt.
Halldór benti á nýja skýrslu um-
hverfisverndarsamtakanna World
Wide Fund for Nature (WWF), þar
sem fram kæmi að of mikil veiði-
geta fiskveiðiflotans og ríkisstyrkir
í sjávarútvegi væru meginorsakir
ofveiði. I skýrslunni væri réttilega
bent á að ein lausn vandans væri sú
að veita útgerðarfyrirtækjum fram-
seljanleg réttindi til að veiða
ákveðna aflahlutdeild, eins og hefði
reynzt vel á Nýja-Sjálandi, Islandi
og í Ástralíu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
List í haustlitum
Beðið samþykk
is frá Moskvu
Misþyrmt á
Ingólfstorgi
LÖGREGLAN í Reykjavík krafðist
í gær gæsluvarðhaldsúrskurðar yfír
tveimur mönnum vegna líkamsárás-
ar á ungan mann á Ingólfstorgi að-
faranótt föstudags. Var þess krafist
að mennirnir yrðu hnepptir í gæslu-
varðhald til 16. október. Hafa árás-
armennirnir ekki komið við sögu
lögreglunnar áður. Þeir voru hand-
teknir um hádegisbil í gær og yfir-
heyrðir. Ekki lágu íyrir upplýsingar
um hvort Héraðsdómur hefði fallist
á gæsluvarðhaldskröfu lögreglunn-
ar um miðnætti í gær. Maðurinn,
sem ráðist var á, hlaut alvarlega
áverka á höfði og gekkst undir að-
gerð á Borgarspítalanum strax um
nóttina. Líðan hans er eftir atvikum
•góð að sögn vakthafandi læknis og
er hann ekki í lífshættu.
ÞEGAR tíð er góð á haustin og lit-
ir náttúrunnar verða skyndilega
síbreytilegir er sjálfsagt að njóta
blíðunnar og virða fyrir sér lista-
verkin þar sem þau ber fyrir augu,
Hér er ungviðið að virða fyrir sér
verk Einars Jónssonar sem heitir
Alda aldanna og er á Flúðum.
FULLTRÚAR Landsvirkjunar og
rússneska verktakans Techno-
promexport, sem vinnur við lagn-
ingu Búrfellslínu, sömdu í gær um
breytta tilhögun á launagreiðslum
til rússneskra starfsmanna fyrir-
tækisins. Er ætlunin að Lands-
virkjun haldi eftir ákveðnu fjár-
magni, sem fara átti til verktakans,
og greiði rússneskum starfsmönn-
um launin beint.
Drög að samningnum voru send
höfuðstöðvum Technopromexport í
Moskvu í gær og kvaðst Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, búast við viðbrögð-
um þaðan eftir helgina. Þorsteinn
sagði að í kjölfar óskar félagsmála-
ráðherra og verkalýðsfélaga hér,
þess efnis að Landsvirkjun tryggði
starfsmönnunum laun samkvæmt
íslenskum kjarasamningum, hefði
verið ákveðið að freista þess að ná
samningum við Technopromexport
um aðra tilhögun á launagreiðslum.
Akvæði útboðsins gerðu ráð fyrir að
laun erlendra starfsmanna erlendra
verktaka væru eftir íslenskum
kjarasamningum. Sátu fulltrúar
fyrirtækjanna á alllöngum fundi í
gær og náðu saman um drög að
samningi nokkru eftir hádegið og
voru þau þegar send höfuðstöðvun-
um í Moskvu.