Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur staðfestir úrskurð um upplýsingaskyldu Iðnlánasjóðs um styrkveitingar
Skylt að afhenda upp-
lýsingar um styrki
HÆSTIRÉTTUR staðfesti
fímmtudag niðurstöðu Héraðs-
dóms Reylqavíkur og úrskurð úr-
skurðamefndar um upplýsingamál
um að Einar S. Hálfdánarson lög-
maður ætti rétt á að fá aðgang að
upplýsingum um styrkveitingar úr
Iðnlánasjóði.
Upplýsingarnar vörðuðu fram-
lög til hagrannsókna í þágu iðnað-
arins og aðgerða sem stuðla að
þjóðhagslega hagkvæmri iðnþróun
í landinu 1990 til 1996 auk styrkja
á vegum vöruþróunar- og markaðs-
deildar á sama tímabili. Hér var
annars vegar um að ræða framlög
er námu 10% af árlegu iðnlána-
sjóðsgjaldi ráðstafað í samráði við
Samtök iðnaðarins. Hins vegar
framlög til nýrra útflutningsverk-
efna, þróunarverkefna og rann-
sókna í iðnaði.
Skylt að veita
aðgang
Iðnlánasjóður og síðar arftaki
hans, Nýsköpunarsjóður atvinnu-
lífsins, höfðuðu mál á hendur Ein-
ari til að fá úrskurð úrskurðar-
nefndarinnar frá 24. mars 1997
felldan úr gildi. Byggðist ógilding-
arkrafan einkum á því að þagnar-
skylduákvæði þau sem giltu um
sjóðinn gengju framar ákvæðum
upplýsingalaga, en enn ft-emur að
5. gr. upplýsingalaga ætti við en
hún takmarkar aðgang að gögnum
sem varða einka- eða fjárhagsmál-
efni einstaklinga eða mikilvæga
fjárhags- eða viðskiptahagsmuni
fyrirtækja.
I dómi Hæstaréttar er þessum
sjónarmiðum hafnað. Það sé meg-
inreglan samkvæmt upplýsingalög-
um að stjómvöldum sé skylt sé
þess óskað að veita almenningi að-
gang að gögnum sem varði tiltekið
mál og að aðgangur að upplýsing-
um um úthlutun fjár úr opinberum
sjóðum í formi óafturkræfra fram-
laga og styrkja sé heimill nema lög
mæli á annan veg. Akvæði laga um
viðskiptabanka og sparisjóði sem
sé undantekning frá þessari meg-
inreglu beri að skýra þröngt þegar
um sé að ræða starfsemi lánastofn-
ana sem falli undir upplýsingalög.
Verði ekki séð að hagsmunir þeirra
aðilja sem fengið hafi umrædd
framlög og styrki úr Iðnlánasjóði
vegi þyngra en réttur almennings
til upplýsinganna.
Málið fluttu Sigurður G. Guð-
jónsson hrl. og Steingrímur Eiríks-
son hdl. af hálfú Nýsköpunarsjóðs
atvinnulífsins en stefndi, Einar S.
Hálfdánarson hdl., flutti málið
sjálfur.
OpiÓ dagleqa frá kl. 12.00 - 22.00
Gífurlegt úrval af geisladiskum á hreint ótrúlegu verði
Þú finnur allar tegundir tónlistar: Rokk - Popp - Blús - Djass - Klassík -
Heimstónlist - Kántrý -Þýsk og Skandinavísk tónlist og margt, margt fleira.
Ótrúleg tilboó á myndbondum
Baetum daqleqa vió
mörgum nýjum titlum
i\iv
ÍVIV
ncn
‘
Cat Stevens
Morning Has Broken
Verð 1.299,-
Simon & Garfunkel
Sounds of Silence
Verð 1.299,-
SMKúl&í
Jimi Hendrix
The Best of
Verð 1.299,-
Irish Celebration
3 CD BOX
Verð 899,-
Enchanted
Moods
3 CD BOX
Verð 899,-
The Essential
Country Collectio
3 CD BOX
Verð 899,-
The Champions
of Opera
Verð 799,-
* * *
Pottþétt ást II
2 CD
Verð 1.699,-
Paul McCartney
Paul is Live
Verð 499,-
Ari Jónsson
Allt sem þú ert
Verð 999,-
Tammy Wynette
20 years of hits
Verð 899,-
Ýmsir flytjendur
Latin American
Holidays
Verð 699,-
■10
. .....
m5 ,
* ""
:Xty- e i ■ [l ■ -
■ h • i*
.
L.
Céline Dion
Nýjasta Platan
Verð 1.299,-
Oscar Peterson
Ljubljana, 1964
Verð 699,-
Ástarperlur
Verð 999,-
Pan Pipe Moods
Verð 399,-
Stóra barnaplatan
2 CD
Verð 999,-
Óskalögin
2 CD
Verð 999,-
Stjórn
BSRB and-
víg gagna-
grunni
STJÓRN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja varar eindregið við
að frumvarp um miðlægan gagna-
grunn verði samþykkt.
I samþykkt sem stjórnin hefur
gert segir að frumvarpið komi til
með að hafa áhrif á frelsi til rann-
sókna- og vísindastarfsemi auk
þess sem margvísleg álitamál komi
til með að vera uppi varðandi per-
sónuvemd. Þá sé ljóst að með
einkaleyfi á gagnagrunni séu öðr-
um vísindamönnum en þeim sem
starfa á vegum sérleyfishafa eða
em í viðskiptasambandi við hann
settar þrengri skorður til rann-
sókna en viðunandi geti talist.
Segir í samþykktinni að á vegum
BSRB hafi farið fram ítarleg um-
fjöllun um fmmvarp ríkisstjómar-
innar um miðlægan gagnagmnn á
heilbrigðissviði. „Umrætt fram-
varp gerir ráð fyrir að fela gagna-
gmnn um sjúkdóma, heilsufar og
upplýsingar um erfðamengi þjóð-
arinnar í hendur einkafyrirtæki
sem síðan hyggst nýta sér hann í
hagnaðarskyni. Við þetta vakna
ýmsar spumingar sem hljóta að
vera áleitnar fyrir samtök launa-
fólks.“
Ótakmarkaður
aðgangur
Þá segir að í upplýsingabæklingi
til væntanlegra viðskiptavina komi
fram að tryggingafyrirtækjum
verði boðinn aðgangur að gagna-
grannsframvarpi um sjúkdóma og
heilsufar íslensku þjóðarinnar og
segir að íslensk erfðagreining hafi
„ótakmarkaðan aðgang að upplýs-
ingum um kjörþjóð".
Telur stjórn BSRB að trygg-
ingafyrirtæki geti fjárfest í rann-
sóknum sem þau geti síðan not-
fært sér til þess að mismuna fólki.
„Þetta á vitanlega fremur við í
heilbrigðis- og tryggingakerfum
sem em rekin á viðskiptagrund-
velli, en víðast hvar í heiminum er
nú tilhneiging í þá átt að einka-
væða þessi kerfi.“
Stjórn BSRB telur að frumvarp-
ið snerti grundvallaratriði í mann-
legum samskiptum og vara sam-
tökin eindregið við því að það verði
samþykkt í óþökk hluta þjóðarinn-
ar.
Barnavagnar
Rauðarárstíg 16,
sími 561 0120.