Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 5& MINNINGAR + Björg Jóhanna Jónsdóttir, Mið- bælisbökkum, Aust- ur-Eyjaíjöllum, fæddist í Vest- mannaeyjum 2. ágúst 1924. Hún lést 2. október síð- astliðinn. Foreldrar Bjargar voru Jón Magnússon, skó- smiður á Flateyri, f. 22.4. 1895, d. 29.4. 1957, og Elín María Jónsdóttir, húsmóð- ir, f. 24.12. 1903, d. 16.11. 1977. Systkin Bjargar: 1) Guðjón, f. 1.8. 1927, d. 29.12. 1992, ekkja hans er Jó- hanna B. Snæfeld, búsett í Kópavogi, þau eignuðust fjögur börn. 2) Ásta, f. 5.7. 1926, búsett í Reykjavík, maki Sigurmundur Þóroddsson, er lést 1975, þau eignuðust fjögur börn. 3) Júlí- ana Kristín, f. 12.9. 1928, búsett á Flateyri, maki Guðni A. Guðnason, þau eiga íjögur börn. Fyrri maður Bjargar var Ósk- ar Júníusson, f. 12.9. 1922. Þau slitu samvistir. Björg giftist árið 1959 Óskari Ketilssyni á Mið- bælisbökkum, f. 5.4. 1929, d. 11.5. 1993. Hún bjó búi með Elsku Björg amraa, mér þykir svo leitt að þú ert farin. Ég vil þakka þér fyrir allar stundimar okkar saman og allt sem þú hefur kennt mér. Það var alltaf svo gott að koma og fá að kúra hjá þér í rúminu þínu. Þú hafðir svo gaman af því þegar ég kom með Kalla kanínu í sveitina. Þó að þú værir stundum lasin þegar við Birgir Óskar frændi kom- um í sveitina þá varst þú alltaf þama og svo glöð og ánægð þegar þú sást okkur. Sveitin okkar verður aldrei eins án þín, en ég veit, elsku amma, að þú ert komin til Óskars afa og nú passið þið mig og vakið yf- ir mér bæði tvö. Elsku amma mín, ég sakna þín sárt en ég veit að nú líður þér vel og ert ekki lengur veik, manni sínum frá þeim tíma, en með syni þeirra, Steinari Kristjáni, frá 1993. Þau eignuðust sam- an þijú böm: 1) Guðrún María, f. 17.7. 1959, húsmóð- ir í Hafnarfírði, trú- lofuð Garðari H. Björgvinssyni, f. 4.5. 1934. 2) Jón Ingvar, f. 25.12. 1961, raf- eindavirki í Reykja- vík. 3) Steinar Krist- ján, f. 13.10. 1965, bóndi á Miðbælis- bökkum. Guðrún María á soninn Birgi Óskar Axelsson, f. 11.4. 1989, faðir hans er Axel Sigur- geir Axelsson, f. 9.8. 1945, d. 10.8. 1993. Jón Ingvar á dóttur- ina Anitu Björgu Jónsdóttur, f. 18.3. 1993, móðir Martha Jör- undsdóttir, f. 12.11. 1969. Björg fór 15 ára úr föðurhús- um til starfa í Iteykjavík, í hús- vistum, í sfld á Siglufirði og víð- ar. Frá árinu 1959 bjó liún búi á Miðbælisbökkum undir Eyja- fjöllum. Utför Bjargar Jóhönnu fer fram frá Eyvindarhólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. nú ert þú mjúkur og fallegur engill og ert með glænýja glitrandi fallega vængi úr gulli og glimmeri. Minn- ingarnar um þig, elsku amma mín, geymi ég í hjartanu mínu og ég veit að ég get áfram sagt þér leyndar- málin mín, því ég veit að þú ert alltaf hjá mér. Vertu yfír og allt um kiing með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Þín Anita Björg Jónsdóttir. Elsku Björg, nú kveð ég þig og vil þakka þér fyrir allar samveru- stundimar sem við- áttum saman, það var alltaf svo gott og notalegt að koma að Miðbælisbökkum því móttökumar vom alltaf svo hlýjar og góðar. Elsku Björg, ég veit að Óskar hefur tekið á móti þér opn- um örmum og núna líður þér vel, eða eins og litla prinsessan okkar hún Anita Björg segir núna í dag: Mamma, hún Björg amma er þá orðin fallegur og mjúkur engill með glænýja glitrandi fallega vængi úr gulli og glimmeri, sem passar okk- ur alltaf allstaðai-. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs- ins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikm' í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Elsku Björg, nú kveð ég þig. Hvíl í friði. Martha Jörundsdóttir. í fáum orðum viljum við kveðja kæra vinkonu, Björgu Jóhönnu Jónsdóttur. Elsku Björg, þótt þú værir búin að vera slöpp til heils- unnar um langt skeið þá veldur alltaf frétt af fráfalli góðrar vin- konu alltaf trega og söknuði, en vekur jafnframt upp góðar minn- ingar frá liðnum áram. Við kynntumst þér árið 1992 þegar leiðir barna okkar lágu saman. Við viljum þakka þér fyrir yndislegar móttökur sem við feng- um er við komum í heimsókn að Miðbælisbökkum fyrst sumarið 1993 og svo aftur síðar. Við fund- um strax og sáum hvað þér þótti vænt um Vestfirði, enda alin upp á Flateyri. Þú talaðir alltaf um að koma vestur í heimsókn og skoða æskustöðvarnar og eftir að göngin komu þá talaðir þú um að fara að koma vegna þess að þú ætlaðir al- veg öragglega að fara í gengum þau. Enda fannst þér þú nú alltaf eiga pínulítið í göngunum. Elsku Björg, nú ert þú komin á þann stað þar sem þér era allir vegir færir og við vitum að þú kemur og heimsækir okkur og í huganum tökum við á móti þér eins og við biðum alltaf eftir að fá að gera. Við viljum kveðja þig með nokkrum línum úr ljóði eftir Davíð frá Fagi'askógi. Moldin er þín. Moldin er trygg við bömin sín, sefar allan söknuð og harm og svæfir þig við sinn móðurbarm. Grasið hvíslar sitt Ijúfasta ljóð á leiðinu þínu. Moidin er hljóð og hvíldin góð. Við vottum Jóni, Steinari, Gunnu, Garðari og litlu gimstein- unum tveimm' Anitu Björg og Bfrgi Óskari okkar dýpstu samúð, og megi Guð styrkja þau í sorginni. Helga og Jörundur. Æi mamma, af hverju? spurði ég þegar mamma sagði mér að Björg amma væri dáin. Hún sem ætlaði til Isafjarðar næsta sumar, eins og við Anita Björg fóram saman í sumar, en við fórum alla leið vestur á Flateyri þar sem amma átti heima þegar hún var ung. Amma var svo góð, hún kenndi mér bænir sem ég fer með á kvöldin og svo spiluðum við amma svo oft saman í tölvunni, sem hún fékk í afmælisgjöf þegar hún varð sjötug. Amma hafði sko alveg eins gaman af því að spila tölvuleiki og að hekla dúka, samt heklaði hún fulla kassa af alls kon- ar litum dúkum og prjónaði líka sokka handa mér og Steinari, hún heklaði og prjónaði svo mikið að ég veit ekki hvað. Við amma pössuð- um oft kindurnar og kálfana ef Steinar var ekki heima og ég fékk líka að hjálpa ömmu inni í bæ pínulítið stundum, og amma gaf mér verðlaun fyrir. Nú er elsku Björg amma búin að hitta Óskar afa aftur og kannski líka pabba og Gauju ömmu á himnum. Ég vil þakka elsku ömmu minni fyrir hvað hún var góð við mig, í sumar og öll sumrin þar áður, amma var svo góð við mig. Guð geymi þig elsku amma mín, alltaf. Birgir Óskar Axelsson. Haustlaufin falla, kveður sumar og vinimir með. Ég staldra við og hugsa um liðna tíma. Reglulegur partur af tilverunni er að skreppa út að Bökkunum að leika við frændsystkinin. Óskar frændi og Björg gefa sér alltaf tíma til að spjalla við okkur systkinin. Við finnum að við eram meðal vina og bindumst böndum kærleika og vin- áttu sem fært hefur styrk og yl ifi gegnum árin. Björg Jónsdóttir, sem við kveðj- um nú hinstu kveðju, var fædd og uppalin á Flateyri. Hún bar það með sér að hún var af góðu og greindu fólki komin. Hún flutti með sér í sveitina okkar andblæ byggðan á menningarheimi sjávar- þorpsins sem hún kom frá og kryddaði tilverana með sterkum persónuleika sínum. I sumar er leið lá leið mín enn á ný að Bökkunum. Ég dáðist að þessari yndislegu vinkonu minnL. sem hélt öllu sínu, þrátt fyrir erfið- an sjúkdóm. Lundin var svo leik- andi létt og manngildið í hávegum haft. Hún trúði fyrst og fremst á hið góða í mannssálinni og allir nutu sanngirni hjá henni. Nú minn- ist ég þess hversu oft hún hélt uppi vörnum fvrir þá sem minna máttu sín. Hvemig henni var einni lagið að gera gott úr hlutnum og leita leiða til að stilla öldur óvæginna dóma og fá fólk til að líta á hlutina frá öðra sjónarhorni. Ég gleðst yfir okkai’ síðustu samverastund, þar sem ég deildi með henni gleði minni yfir því sem framtíðin bæri mér í skauti sínu. Ég fann hversu einlæct _ lega hún samgladdist mér og- hversu mikinn skilning hún hafði á mannlegu eðli. Það var svo margt í fari Bjargar sem mér þótti svo vænt um. En það var fyrst og fremst mannkær- leikur hennar og jákvæði, en slíkan fjársjóð er hverjum manni lán að höndla. Einnig minnist ég þess að Björg sagði mér að það hefði verið hennai' lífshamingja að koma sem ráðskona að Miðbælisbökkum, þar sem hún síðar giftist frænda mín- um og átti þrjú mannvænleg börn sem alla tíð héldu góðu og kær- leiksríku sambandi við móður sína og vora þannig órjúfanlegur þáttur í lífshamingju Bjargar. Um leið og ég kveð Björgu með þessum fátæklegum orðum langar mig að biðja algóðan Guð að styrkja og styðja ástvini alla. Megi minning hennar lifa í huga okkar og hjarta um ókomna tíð. Ester Sveinbjarnardóttir. BJÖRG JÓHANNA JÓNSDÓTTIR + Magnea Helga Ágústsdóttir fæddist í Hemlu í Vestur-Landeyjum hinn 16. janúar 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands þann 28. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ágúst Andrés- son, f. 31. ágúst 1885, d. 16. janúar 1965 og Ingibjörg Magnúsdóttir frá Vatnsdal í Fljóts- hlíð, f. 28. mars 1885, d. 25 október 1945. Magnea á einn núlifandi bróður Andrés H. Ágústsson, f. 16. október 1923. Hann er búsettur í Reykjavík. Bróðir þeirra Magnús Óskar lést 5 ára að aldri. Árið 1949 giftist liún Ólafi Tryggva Jónssyni frá Hólmi i Áustur-Landeyjum, f. 29. maf 1922. Börn þeirra eru: 1) Ágúst Ingi, f. 2.1. 1949, bú- settur á Hvolsvelli, kvæntur Það eru forréttindi barna að fá að vaxa upp við ást og hlýju ömmu sinnar og afa eins og það er lán en ekki sjálfsagt að halda fullri heilsu ævina á enda. Ömmu Möggu þótti ákaflega vænt um barnabörnin sín og barnabarna- börnin. Hún eignaðist alls 5 barnaböm og 3 barnabarnabörn. Fátt hefði glatt hana meira en að Sóleyju Ástvalds- dóttur og eiga þau þijú börn; Sigrúnu, Óla og Magnús. 2) Ragnhildur, f. 20. 3. 1950, einnig búsett á Hvolsvelli, gift Sæmundi Svein- bjömssyni og eiga þau tvö börn; Svein- björn og Ingi- björgu. Magnea var fædd og uppalin í Hernlu. Þar bjó hún til árs- ins 1949 er hún giftist Ólafi Tryggva. Það ár fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu á Lang- holtsvegi 2 til ársins 1956 er þau tóku við búskap í Hemlu. Þar ráku þau blandaðan bú- skap til ársins 1995. Síðastliðin þrjú ár hafa Magnea og Ólafur búið í Hvolhreppi. Utför Magneu Helgu fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. fá að sjá það fjórða sem von er á í heiminn innan tíðar. Erfiður sjúk- dómur kvaddi dyra hjá henni fyrir um hálfu ári. Því fylgdi mikil sjúkrahúslega á köflum. Hún kvartaði þó lítið yfir veikindunum en fremur yfir því að þurfa að dveljast á sjúkrahúsi og geta ekki verið hjá sínum nánustu. Henni þótti notalegt að hafa mynd af honum Ævari litla langömmu- dreng við sjúkrarúmið hjá sér en hann var annars ávallt nálægur á heimili Ragnhildar dóttur hennar. Amma og afi ráku blandaðan bú- skap í Hemlu í Vestur-Landeyjum um margra áratuga skeið. Þar var fjöldi hesta og allnokkurt fé. Þeg- ar smölun var fyrirhuguð, hey- skapur eða sauðburður yfirstand- andi vorum við barnabörnin ásamt foreldrum okkar ávallt þátttakendur í bústörfunum. Lit- um við því á Hemlu sem okkar annað heimili. Tveir þeir eldri sonar- og dóttursynirnir réðu sig þar einnig snemma í vinnu- mennsku. Við höfðum öll mjög gott af því að umgangast dýrin jafnframt sem við lærðum ýmis hagnýt vinnubrögð. Amma var dugleg búkona. Hafði hún raunar meiri unun af að taka til hendinni við útiverkin en að sýsla inni við. Þótt hún sinnti eldamennsku fyrir heilan hóp, eins og oft var, var hún óðara komin út í hlöðu að færibandinu, út að rýja eða hvað- eina. Sennilega hefur það þó gefið henni mest af öllu að vera innan um fólk og dýr. Hún kenndi okkur að gefa heimalningunum mjólk úr flösku og ekki má gleyma að minnast á uppáhaldsreiðhestinn hennar, hann Loga. Það var henn- ar rauði fákur. Hann var enn í huga hennar þegar hún lá sjúkra- leguna. Amrna var mjög músikölsk. Þegar hún var fengin til að gæta okkar þegar við vorum lítil söng hún iðulega fyrir okkur vögguvís- ur Hún söng í kirkjukór Akureyj- arkirkju um nokkurt skeið og lærði ung að spila á orgel. Ekki hafði hún síður gaman af að heyra aðra spila eða æfa sig á orgelið þótt ætla megi það hafi verið mis- jafnt að gæðum hjá þeim lágvaxn- ari. Hún sagði einnig frá því að þegar hún var lítil stúlka að sópa gólfið í gamla bænum hafi hún æft danssporin við kústinn. Það staf- aði mikilli hlýju frá henni ömmu. Alltaf þegar hún hitti barnabörnin sín lét hún væntumþykju sína í ljós með einhverjum hætti. Það þurfti ekki alltaf orðin til. Það var einnig dálítið sérstakt að í hvert skipti sem við heimsóttum hana þegar veikindin vora orðin mjög erfið þakkaði hún alltaf svo inni- lega fyrir heimsóknina. Við kveðj- um elsku ömmu með söknuði og þökkum fyrir þær dýrmætu stundir sem við áttum með henni. Hvað bindur vom hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðsiu lífsins draum, en látumst þó allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi ei saka. En ástin er björt sem barnsins trú, hún blikar í ljóssins geimi; og fjarlægð og nálægð fyrr og nú oss finnst þar í eining streymi. Frá heli til lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Sigrún, Óli og Magnús, Ágústsbörn. MAGNEA HELGA ÁGÚSTSDÓTTIR Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbi.-, is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegi-i lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, mið- að við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnh- að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.