Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 19
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Gögnin
afhent
EINAR S. Hálfdánarson lögfræð-
ingur (t.h.) fékk í gær afhent
gögn um styrkveitingar til iðn-
fyrirtækja frá Iðnlánasjóði eftir
að hafa unnið mál gegn sjóðnum,
fyrst fyrir Héraðsdómi og síðan
Hæstarétti, á grundvelli upplýs-
ingalaga. Það var Steingrímur
Eiríksson héraðsdómslögmaður
sem sótti málið fyrir Hæstarétti
fyrir hönd Nýsköpunarsjóðs, sem
afhenti Einari gögnin. Einar seg-
ir að það sé góð tilfinning að fá
umbeðin gögn í hendurnar eftir
langa baráttu. Það var í febrúar
1997 sem Einar fór fyrst fram á
að fá gögnin afhent.
PABBI
Sængurgjafir fyrir mömmu og barnið
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13, sími 551 2136.
Athugasemd
UNDANFARNA daga hafa birst
greinar í Morgunblaðinu eftir þá
Brynjólf Bjarnason, Kristján Ragn-
arsson og Jón Sigurðsson þar sem
vitnað er til orða minna um kvóta-
kerfið. Þessi ummæli mín féllu í við-
tali sem birtist nýverið í Utvegi,
fréttabréfi Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna.
Ekki er víst að allir þeir sem lásu
þessar greinar hafi aðgang að Ut-
vegi. Til að fyrirbyggja misskilning
um hvað felst í orðum mínum þykir
mér rétt að sá hluti viðtalsins sem
vitnað var til sé birtur í heild sinni.
Hann hljóðar svo:
„Eg er þeirrar skoðunar að í
grundvallaratriðum sé kvótakerfið
gott kerfi. Eg held að heildartekjur
þjóðarbúsins verði hámarkaðar með
fiskveiðistjórnunarkerfi eins og við
erum með; kerfi þar sem heildarafl-
inn er ákvarðaður með skynsömum
hætti og honum skipt í framseljan-
legar aflaheimildir. Með þessum
hætti verður sóknin þannig að hver
útgerðaraðili reynir að tryggja sem
mestan arð af því að sækja fiskinn.
Hagfræðingar spá miklum arði af
vel stjórnuðum fiskveiðum, en það
er kapítuli út af fyrir sig hvernig
eigi að ráðstafa honum hvort menn
vilja uppboð á aflaheimildum, ein-
hverja sérstaka skatta eða aðrar
leiðir; umræðan snýst heldur ekki
einvörðungu um hagkvæmni heldur
einnig um réttlæti, hvernig er gefið í
spilinu. Framsalið gerir það hins
vegar að verkum, að þeir sem veiða
fiskinn með mestum arði geta fjár-
fest í auknum heimildum. Þannig
tryggir framsalið í kerfinu hag-
kvæma sókn.“
Til að hnykkja enn frekar á þessu,
þá tel ég að ekki eigi að hrófla við
þeim grundvallarþáttum fiskveiði-
stjórnunarinnar sem leiða til hag-
kvæmra veiða, þ.e.a.s. ákvörðun
heildaraflamarks og framsali veiði-
heimilda. í þessum orðum felst ekki
afstaða til deilna um það hvernig
standa á að úthlutun veiðiheimilda.
Friðrik Már Baldursson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
TILBOÐSSTANDAR
Mikið úrval af haustlaukum
á tilboðsstandinum.
Eitt verð.
J ífflm. 1 99 mm SS«skidÍ!ISÍl
-VCt
tð
\e
A649r
529
399
<S49
399
99°
Fjöldi
tegunda
á hverjum
tilboðsstandi
Túlípanar
Páskaliljur
Krókusar
Perluliljur
Stjörnuliljur
Garðhýasintur
og fleira.
-frjálst val.