Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 5S.: MINNINGAR + Þórdís Bene- diktsdóttir var fædd 13. júlí 1911 á Grænavatni í Mý- vatnssveit. Hún lést á heimili sínu 1. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sol- veig Jónsdóttir og Benedikt Guðna- son. Þórdís var elst fjögurra dætra þeirra. Systur hennar eru: Þor- gerður, f. 5.4. 1916, Þórhildur, f. 1.5. 1922, og Sigrún, f. 18.7. 1930. Þórdís giftist Kristjáni Jóns- syni 13. júlí 1936. Þau bjuggu á Grænavatni. Kristján var fædd- ur 3.9. 1900 og hann lést 25.10. 1946. Foreldrar hans voru Guð- rún Stefánsdóttir og Jón Krist- jánsson. Dætur Þórdísar og Kri- sljáns eru: Bergljót, sjúkraliði, f. 19.6. 1938, og Hrafnhildur, bóndi, f. 19.5. 1944. Bergljót var gift Kristleifi Guðna Einarssyni, rennismið, f. 23.5. 1933, þau Dísa á Grænavatni var komin heim fullnuma úr húsmæðraskólan- um á Laugum í Reykjadal þegar við Jónas bróðir vomm sendir vorið 1933 í sveit hjá frændfólkinu á Grænavatni, með sanngjamar ein- kunnir úr barnaskóla Seyðfírðinga upp á vasann og slatta af kart- öflugrasi og kargaþýfi Vopnfirð- inga í taugum frá lærdómsríkum sumardvölum í fæðingarplássinu. Vorverkum var löngu lokið og komnar heyannir og upprannin stór stund á höfuðbólinu við Grænavatn, - Þórólfúr í Baldursheimi hafði boð- að komu sona sinna tveggja þangað upp úr hádegi með nýmóðins sláttu- vél og kennslustund í nútíma bú- skaparháttum. Stórbændumir Páll afabróðir og Benedikt faðir Dísu höfðu valið túnskika norður með vatni sínu í átt að Garði, rennislétt- an og grösugan, að Baldursheims- bræðrum og maskínu þeirra væri fullur sómi sýndur. Túnið það hét A heimsenda. slitu samvistum. Dætur þeirra eru 1) Þórdís Guðrún Kristleifsdóttir, BA í íslensku, f. 29.12. 1958, gift Daða Harðarsyni, fram- kvæmdastjóra, f. 6.4. 1958. Þeirra sonur: Kristleifur, nemi, f. 7.12. 1979. 2) Guðný Kristleifs- dóttir, matartækn- ir, f. 13.10. 1972, gift Guðna Má Þor- kelssyni, tölvufræð- ingi, f. 13.1. 1971. Börn: Ásdís Lilja Hafþórsdóttir, f. 4.2. 1993, og Ámi Gunnar Guðnason, f. 22.10. 1996. Dóttir Hrafnhildar er Bergþóra Krist- jánsdóttir, matarfræðingur, f. 30.6. 1967. Þórdís var einn vetur á hús- mæðraskólanum á Laugum. Hún átti heima á Grænavatni allt sitt líf. Útför Þórdísar fer fram frá Skútustaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Þangað var haldið fylktu liði og glatt á hjalla í góða veðrinu. Við bræður gengum í takt við Dísu og hún sagði: - Það vildi ég guð gæfi að þetta ramskaði við gömlu körlunum og hristi af þeim sér- viskuhlekldna frá síðustu öld, ann- ars stöndum við eins og einhver viðundur heimskunnar eftir nokk- ur ár, og Mývatnssveitin á annað og betra skilið af okkur öllum. Dísa hafði lært á Laugum allt um garðyrkju og nytjajurtir og strengt þess heit að rækta sinn garð heima á Grænavatni og pré- dikaði fræði sín nótt og nýtan dag yfir hausamótunum á karli fóður sínum og Páli bónda, og linnti ekki látum fyrr en henni var úthlutaður jarðarpartur, - ekki þó innan eld- fornu Grænavatnsgrjótgarðanna heldur í skjólgóðum hraunbolla langt utan Heimsenda upp undir Grænavatnsbrana. Þar stóð nú allt í litskrúðugum blóma, en fuglar tístu og mýið suðaði í ilmandi garðinum og kartöflur og rófur þroskuðust á nýju meti undir grænum fingram Dísu. Úti á Heimsenda stóð sláttuvél- in úr Baldursheimi gljáfægð, og Stórirauður og Mósi bróðir hans depluðu ekki auga þegar spenntur var aftan í þá urgandi járnhlunkur, enda báðir tveir greindar hross. Svo fór allt í gang og leið ekki á löngu að Heimsendi var allur sleg- inn eftir kúnstarinnar reglum og gjöriðisvovel sögðu sláttumennirn- ir slyngu úr Baldursheimi. Græna- vatnsbændur sem höfðu ekki depl- að auga fremur en dráttarjálkar þeiira, hvesstu nú brúnir og stik- uðu formfastir út í slægjuna sína. Brátt kom þar að Bensi laut niður og sleit upp grængresisskúf sem varð á vegi hans ósleginn, en Páll skreið á fjóram fótum og tíndi sér ýlustrá sem sláttuvélinni hafði yf- irsést. Að svo búnu kváðu þeir upp sinn dóm: - Allt er þetta einkar at- hyglisvert en því miður þannig slegið að engu lagi er líkt og aug- ljóst að þessi útlenda vél er til einskis nýt hér á landi, - án þess þó að maður fullyrði neitt um harðbalana í Baldursheimi. - Að svo mæltu dró Bensi fram sitt forna orf og sýndust þrjú brýni á lofti, en Páll greip föstum tökum alúmíníumhrífuna sem hann pant- aði sérsmíðaða á Akureyri í fyrra þegar hann fékk ekki lengur valdið gömlu eikarhrífunni sinni vegna bakverja eftir látlausan barning með orfi og ljá frá barnæsku. Dísa sagði fátt en bað okkur Jónas að skreppa með sér út í garðholuna að taka upp nokkrar kartöflur í kvöldmatinn því hún ætlaði ekki að láta höfðingja fom- aldar fara með sigur af hólmi í einu og öllu. Kartöflurnar vora klappaðar upp í eldhúsinu en Bensi lét sér fátt um finnast, sagði að hingað til hefði rúgbrauð reynst best með öllum mat, þótt ekki sak- aði að hafa nokkrar glóðabakaðar flatkökur í ábæti. Sögur herma að aldrei nokkurntíma hafi kartafla komið inn fyrir hans varir. Dísa gretti sig mátulega gagn- vart þessari heittrúarstefnu rétt eins og öllum öðram sérviskutikt- úram og bábiljum. Þó var vottur af skilningsríkri meðaumkvun í bros- inu þegar ég trúði henni fyrir ógn- inni af magt myrkranna sem ágerðist með styttri sólargangi þegar leið á ágústmánuð, og draugarnir famir að ríða húsum með ferlegri veinan og góli á mið- nætti: - Nú skal ég koma með þér upp á framhúsþakið í kvöld og þá verður gaman að sjá Trygg þinn og hina hvolpana kúra sig í kring- um skorsteininn, þar endist volgr- an í torfinu langt fram í myrkur og hvuttunum finnst gaman að kút- veltast í grasinu og bítast svolítið um besta plássið. Þar með voru þakdraugarnir á Grænavatni kveðnir niður. En þessi fallega myndarstúlka hafði öðrum og alvarlegri málum að sinna, búin að gifta sig æskuvini sínum, Ki-istjáni Jónssyni á Geira- stöðum, og ungu hjónin farin að búa í gamla bænum. Var nú fjór- býlt á Grænavatni um sinn og nýir siðir og nútímagræjur settu æ meiri svip á mannlífið. Þótti því engum tíðindum sæta að þar öslaði sláttuvél um tún og útengjar fyrir 1940, en kartöflur, rófur og kál á hvers manns diski. Hvergi á land- inu stóð búfjárrækt á hærra plani og hlaut Páll bóndi þjóðarlof fyrir sauðfjárkynbætur. Ríkisstjórnin hóf hann til æðstu metorða og setti hann yfir tilraunabúið á Hesti suð- ur í Borgarfirði. Benedikt sat um kyrrt á Grænavatni enda ómissandi í Mývatnssveit fremstur allra dýralækna. Elsta dóttir hans var besti vinur allra dýra, hestam- ir bára virðingu fyrir henni, lambærnar litu upp til hennar og kýmar elskuðu hana. Dísa elskaði sveitina sína og sló í bernsku eign sinni á fegursta fjallið í grennd við Grænavatn, og hefur Bláfjall verið fjallið hennar síðan. Þegar kom fram á miðja öldina fóru að riðlast íylkingar Græn- vetninga á gamla bænum, og bjó þar síðust Þorgerður systir Dísu með manni sínum Sigurði Þóris- syni fram til ársins 1957. Kristján maður Dísu hafði fallið frá á miðj- um aldri og Benedikt bóndi löngu liðinn. Gamli Grænavatnsbærinn var settur á þjóðskrá lögverndaðra híbýla frá fyrri öldum og fær von- andi að standa á bæjarhólnum í sinni fornu tign fram á nýjar aldir. Grænvetningar lögðu ekki land undir fót en reistu sér nýbýli á gömlu landareigninni, og búa síðan í snotra þorpi umhverfis fi-ægðar- bólið sitt. Dísa fluttist með móður sinni Sólveigu í steinhúsið syðst í þorpinu og hefur búið þar síðan með sínu fólki. Solla lést í nóvem- bermánuði 1986 á nítugasta og ní-, unda aldursári. Á þessai- slóðir hefur legið leið okkar Ragnheiðar Ástu á sum- arflandri okkar um landið síðustu áratugi, og parkéraðum við þar á grandunum við grjótgarðinn í fyrra að lokinni vikudvöl í sumar- bústað starfsmannafélags Út- varpsins á Eiðum. Dísa bauð okk- ur til stofu og bar sig vel þrátt. fyr- ir heilsuleysi undanfarið og ekki bætti úr skák skilningsleysi stjórnvalda á högum smábænda sem byggju við æ meiri þrenging-. ar þrátt íyrir viljayfirlýsingar rík- isstjóma um hið gagnstæða og rómaðan bróðurkærleika ráðherr- anna sem enginn gæti efast um. Við báram saman bækur okkar í stjómvisku og læknisfræði, og kvaðst ég vera allur annar maður síðan ég hætti að nærast á afurð- um úr dýraríkinu til sjávar og sveita. Dísa skellti á mig með- aumkvunarbrosinu sem hún brákaði þegar hún kvað niður aft- urgöngurnar á framhúsþakinu forðum tíð, - dró síðan glugga- tjöldin í stofunni fyrir Mývatns- sveitarsólina og mælti: Jæja Jón minn Múli, svo þú ert þá orðinn guðspekingur. Bauð svo upp a kaffi og með því - það var rokna- stórt fat hlaðið glóðarbökuðum flatkökum með Mývatnssaltreyð og sauðahangikjöti af sömu ætt. Eg sagði nei takk en sat álengdar og kyngdi munnvatni meðan aðrir gesth- nærðust á Grænavatns- brauði og dýrðlegasta áleggi í heimi, en húsfreyja sat við háborð sitt og hló í hljóði að Grænavatns- guðspekingnum sínum hinumegin í stofunni. Svoleiðis var hún Dísa. t Þórdís Benediktsdóttir fæddist1 á Grænavatni 13. júlí árið 1911, þá var hásumardýrðin þar eins og hún verður indælust, suðvestan andvari - heiður himinn, og 16 stiga hiti um morguninn. Þórdís dó á Grænavatni fimmtudaginn 1. þessa mánaðar, þá var Mývatns- sveitin í því haustskrúði sem engu verður við jafnað á íslandi, og í austri stóð Bláfjallið heiðursvörð yfir eiganda sínum og vinkonu. Jón Múli Árnason. ÞÓRDÍS BENEDIKTSDÓTTIR + Jón Valgeir Illugason var fæddur í Reykjahlíð 11. mars 1916. Hann lést fimmtu- daginn 1. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Kristjana Friðrika Hallgríms- dóttir, f. 2. maí 1876 á Grænavatni, d 26. maí 1960, og Illugi Arinbjörn Einars- son, bóndi í Reykja- hlíð, f 7. ágúst 1873 í Svartárkoti, d. 20. apríl 1935. Börn þeirra auk Val- geirs; Óskar Jón, f. 3.8. 1910, d. 31. 3. 1911, Óskar, f. 8.8. 1913, d. 24.2. 1990. Auk þess óiu þau upp Ólaf Ilallgrím Sigurðsson frá Geirastöðum, f. 5.2. 1908, d. 22.1.1935. Valgeir gekk að eiga Guðrúnu Jakobsdóttur frá Valgeir frændi minn var fæddur í Reykjahlíð og átti heima þar alla tíð. Þar bjuggu foreldrar hans og stunduðu búskap. í Reykjahlíð bjuggu þá þrír bræður og ein syst- ir undir sama þaki í nýbyggðu steinhúsi, böm Einars Friðriks- sonar og Guðrúnar Jónsdóttur sem höfðu keypt Reykjahlíð og fluttst þangað frá Svartárkoti í Bárðardal með börnum sínum og vinnufólki 1895. Ulugi sonur Ein- Reykjarfirði í Grunnavíkurhreppi hinn 19. mars 1955. Börn þeirra eru 1) Kristjana Ólöf, f. 5.7. 1955. Sonur hennar er Pálmi Steinar Skúlason, f. 3.4. 1973, maður Kristjönu er Mark Brink, 2) Matthildur Herborg, f. 15.10. 1956, 3) Jóna Val- gerður, f. 20.8. 1959. Börn hennar eru: Fanney Dögg Guðmundsdóttir, f. 16. 12. 1989 og Andri Páll Guð- mundsson, f. 8.10. 1991, maður Jónu Valgerðar er Guðmundur Sigurðsson, 4) Guðrún María, f. 10.4. 1964. títför Valgeirs verður gerð frá Reykjahlíðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. ars gekk að eiga Kristjönu Hall- ginmsdóttur, 3. ættlið frá séra Jóni Þorsteinssyni í Reykjahlíð. Einar átti einnig ættir að rekja til Reykjahlíðar og úr Mývatnssveit. Valgeir ólst því upp í stórri fjöl- skyldu með mörgum börnum. Hann byrjaði ungur að árum að vinna öll venjuleg sveitastörf. Barnaskólinn var í þá daga far- skóli og seinna fór Valgeir í Al- þýðuskólann að Laugum. Föður sinn misstu þeir bræður Óskar og Valgeir ungir, Valgeir var þá 19 ára, þeir tóku þá við búinu og bjuggu með móður sinni þar til hún lést, og hófu að yrkja jörðina með sömu markmið í huga. I bernsku Valgeirs var notast við hesta, orf og ljái, síðar komu dráttarvélar, bflar og önnur nú- tíma landbúnaðartæki. Hann lifði vélvæðingu landbúnaðarins en einnig hnignun sauðfjárbúskapar. Natni hans við vélar var við brugðið, landbúnaðarvélar þeirra bræðra stóðu af sér margar kyn- slóðir samskonar véla í annarra höndum. Fyrstu minningar mínar um Valgeir era frá þeim tíma er ég fór að vera í sveit í Reykjahlíð, út um gluggann sá ég tvo menn ganga að báti við vatnsbakkann, það vora þeir bræðurnir Óskar og Valgeir á leið að vitja um net. Sem ungur drengur í sveit í Reykjahlíð varð ég fljótt áskynja um þá vináttu og frændsemi sem ríkti milli heimil- ana og hennar naut ég í ríkum mæli þau sumur sem í hönd fóru. í fyrstu ráningsgöngum sem ég fór í, reið ég við hlið Valgeirs af Daln- um og austur á móts við Jörand, ég var ekkert of brattur á hestin- um og fannst gott að hafa Valgeir við hlið mér fyrsta spottann. Val- geir var mikill hestamaður á yngri áram og skynjaði alla tíð þá taug sem tengir saman mann og hest. Við Jón Bjartmar, móðurbróðir minn, vitjuðum um net á vatninu flesta morgna í mörg sumur, í þeim ferðum var stundum róið á báti Óskars og Valgeirs, morgun- stund á Mývatni getur verið yndis- leg, þegar sólin er komin upp, eyj- arnar speglast í vatninu, fjalla- hringurinn blasir við og allt iðar af lífi og fuglasöng. Eftir hádegi tók við heyskapur, slegið, snúið, rakað saman, ekið heim og sett inn. Fyrr en varði var komið haust, göngur og réttir framundan, leitir á Mý- vatnsöræfum í góðu veðri eða ill- viðram og um veturinn stöðug vinna við skepnur. Síðasta sumar gengum við saman um Syðri-Höfð- ann og gættum að sprettunni og lagfærðum girðinguna. Innan fárra daga færi Valgeir að slá, síðla kvölds eða undir nóttina, eitt- hvað draumkennt fylgir því að slá að næturlagi á bökkum Mývatns. Hávaðinn frá vélinni hverfur smám saman baksviðs og fegurð umhverfísins stígur fram, fyrir vit- in leggur angan af nýslegnu grasi. Til allra þessara verka gekk Val- geir einbeittur og ákveðinn og leisti þau af hendi með festu og af ábyrgð. Þetta var hans heimur og í honum kunni hann til verka. Valgeir steig það gæfuspor 1955 að ganga að eiga eftirlifandi konu sína, Guðránu Jakobsdóttur, sem hefur staðið við hlið hans síðan og verið stoð hans og stytta. Gæfan færði honum einnig fjórar dætur og barnaböm. Hann var ljúfur í viðmóti og gott að vera í návist hans, þetta skynjuðu bæði menn og málleysingjar, ærnar gegndu nafni eins og hundar og létu strjúka sér og klappa. Við dilkinn í réttinni, á haustin, stóðu þær eldri og biðu þess að verða hleypt inn. Eftir að fastri sumardvöl minni í Reykjahlíð lauk og heimsóknir þangað urðu styttri varð það að fastri venju að heimsækja þau hjónin Valgeir og Guðrúnu, heim- sóknir sem urðu eitt af þeim erind- um sem við fjölskyldan áttum þangað norður, fyrir þær stundir og aðrar sem era okkur mikilvæg- ar minningar erum við þakklát. Valgeir var mörgum áratugum eldri en ég, á aldri við móður mína, en engu að síður þróuðust tengsl sem með árunum uxu og styrktust. Við Valgeir kvöddumst með hefð- bundnum hætti í lok sumars með fyrirheiti um endurfundi að ári. Haustið var á næsta leiti í Mý- vatnssveit, farfuglarnir að ferðbú- ast, haust í lífskeiði mannsins var ekki í okkar huga á þeirri kveðju> stund. Valgeir var alla tíð heilsuhraust- ur og vann fúlla vinnu fram á síð- asta dag. Hann var röskur til verka og endalokin voru einnig með skjótum hætti. Valgeir lagðist heill til hvflu að kvöldi en um morguninn var brottfararstundin rannin upp, án fyrirvara og án undirbúnings. Undirbúningi var þó á vissan hátt lokið, hann hafði unnið að honum allt sitt líf með gjörðum sínum og breytni í anda kristinna lífsgilda. Valgeir hafðbi stórt hjarta og vildi greiða götu allra. Ég kveð í dag frænda minn Val- geh- Illugason, hann verður lagður til hinstu hvflu í þá jörð sem hann unni og forfeður hans hafa setið um aldir. Guð blessi minningu Val- geirs frænda míns. , Sigurður Jónas Þorbergsson. ‘ ‘ JON VALGEIR ILLUGASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.