Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.10.1998, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Ný könnun um gengi fyrirtækja Flugleiðir gera samstarfssamning vlð Lufthansa Færri verða var ir við erfíðleika Styrkir stöðu félags- ins í Þýskalandi í NÝRRI könnun, sem fyrirtækið Pricewaterhouseeoopers gerði fyr- ir Morgunblaðið á því hvort fólk hefði orðið vart við erfiðleika og samdrátt í ár hjá fyrirtækinu sem það vinnur hjá, svaraði rúmlega fimmtungur aðspurðra eða 21,1% játandi. Miðað við sambærilega könnun frá því á sama tíma í fyrra er um marktæka lækkun að ræða, en þá var sambærilegt hlutfall 27,8%. Stærð úrtaksins í könnun fyrir- tækisins var 1.000 manns. Leitað var til fólks um allt land á aldrinum 18-67 ára. Alls svöruðu 693. Breytingar til batnaðar Tæplega 39% þeirra sem orðið hafa varir við samdrátt eða erfið- leika hjá sínu fyrirtæki telja að verulegar breytingar verði til batnaðar á þessu ári. Borið saman við september 1997 þá virðast menn vera bjartsýnni í ár en þá, þar sem 38,8% telja að breytingar verði til batnaðar nú á móti 37% árið 1997. Helmingur aðspurðra telur að afkoma næsta árs fyrir hann per- sónulega verði svipuð og á þessu ári. Aftur á móti telja 33,8% að af- koma næsta árs verði betri en á þessu ári. Ungir karlar bjartsýnastir Sé skoðað hvemig svörun er eft- ir markhópum sést að marktækur munur er á milli kynja og hafa konur frekar orðið varar við erfið- leika en karlar. Marktækur munur er einnig á milli elsta og yngsta aldurshópsins, þar sem eldra fólk hefur frekar en það yngra orðið vart við erfiðleika. Einnig kemur fram að hátekju- fólk virðist síður en lágtekjufólk hafa orðið vart við erfiðleika í þeim fyrirtækjum þar sem það vinnur og er þar um marktækan mun að ræða. Ungir karlar virðast vera bjart- sýnni en aðrir á framtíðina þar sem 56% þeirra telja að næsta ár verði betra en það síðasta. Konur á aldrinum 50-67 ára eru hins vegar síst bjartsýnar, því 22% þeirra telja að næsta ár verði betra afkomulega fyrir þær per- sónulega en þetta ár. FLUGLEIÐIR hf. hafa samið við þýska flugfélagið Lufthansa um samstarf í fargjaldamálum. Samn- ingurinn mun styrkja stöðu Flug- leiða á meginlandi Evrópu og sér- staklega í Pýskalandi. Flugleiðir fljúga daglega til Frankfurt og Hamborgar á sumrin og vonast forráðamenn félagsins til að sam- starfið verði til þess að straumur þýskra ferðamanna til Islands stóraukist. Samningurinn gildir frá 1. nóv- ember nk. og mun hann hafa mikla þýðingu fyrir Flugleiðir og ís- lenska ferðaþjónustu að sögn Jóns Karls Ólafssonar, svæðisstjóra Flugleiða á meginlandi Evrópu. „Þetta er tímamótasamningur og mun eflaust bæta samkeppnis- stöðu Flugleiða í Þýskalandi til muna. Með samstarfinu tengjast Flugleiðir hinu víðfeðma leiðaneti Lufthansa og það hefur ótal spennandi möguleika í fór með sér fyrir okkur. M.a. bjóðast okkur sérfargjöld hjá Lufthansa og við getum því boðið Islendingum tengiflug frá Frankfurt til flestra borga í Þýskalandi fyrir mun lægra verð en áður. A sama hátt eigum við mun auðveldara með að bjóða ferðir frá öllum svæðum Þýskalands til Islands og þannig opnast leið til að fjölga ferðum Þjóðverja til Islands enn frekar. Ekki síst mun þetta gera okkur kleift að bjóða hópferðir og pakka- ferðir frá fleiri borgum í Þýska- landi en við höfum átt kost á fram að þessu. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá þannig tækifæri til að auka enn frekar straum þýskra ferðamanna til Islands, enda dvelja þeir lengur við á land- inu og skila þannig meiri tekjum en ferðamenn frá flestum öðrum ríkjum.“ Breyttar aðstæður á Norður-Atlantshafsleiðinni Jón Karl segir að hingað til hafi Lufthansa ekki verið áfjáð í slíkt samstarf, ekki síst vegna þess að félagið hafi litið á Flugleiðir sem keppinaut á Norður-Atlantshafs- leiðinni. ,Aðstæður hafa nú að ein- hverju leyti breyst vegna þeirrar ákvörðunar Flugleiða að hætta flugi til Lúxemborgar og eins hafa flugfélög víða um heim aukið sam- starf sín á milli á síðastliðnum misserum. Aður nutum við jafnvel síðri fyrirgreiðslu hjá Lufthansa en ýmsar ferðaskrifstofur en með samstarfinu mun það breytast til hins betra.“ Flugleiðir eiga nú í formlegu samstarfi við flugfélögin SAS, British Midland, Al-Italia og Iber- ia og um næstu mánaðamót bætist Lufthansa við. Jón Karl segir að hingað til hafi SAS verið megin- stoðin í samstarfi Flugleiða við önnur flugfélög og svo verði áfram en ljóst sé að samstarfíð við Luft- hansa muni einnig skipta gífur- legu máli, ekki síst á meginlandi Evrópu. Island seðlalaust Stjórnskipulag yfirstjórnar Ó. Johnson & Kaaber hf. og Heimilistækja hf. frá áramótum 1998/1999 STJORN Forstjóri Fjármálasvið Heimilistæki hf. Markaðssvið Ó. Johnson & Kaaber hf. Stoð- Heimilistækja- deildir svið J Upplýsinga- tæknisvið - Þjónustusvið Sérvörusvið ------1----- I - Matvörusvið - Tæknisvið T Hvítar vðrur Tölvur Varahlutir Sjúkrahúsvörur Stónmarkaðir Framleiðslustýring Smátæki Jaðarbúnaður íhlutir Lyf - Matvara Framleiðsla Sjónvörp og Eftiriitskerfi Uppsetning Hjúkrunarvörur - Hreinlætisv. Lagerhald Hljómtæki Símabúnaður Eftirsöluþjónusta Efnavara Sölutumar Ljósritunarvélar Ábyrgaviðgerðir Hreinsiefni - Sælgæti Lýsingarbúnaður Alm. Viðgerðir Húsgögn Fyrir stórelhús Lækningatæki Samsetningar Kaffibrennsla Röntegenfilmur Sultugerðin Búbót innan 5 ára RAFRÆN viðskipti munu veita ís- lendingum og öðrum smáþjóðum mikil sóknarfæri á næstu árum. Þetta kom m.a. fram í ræðu Finns Ingólfssonar, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, á ráðherrastefnu OECD um rafræn viðskipti sem lauk í Ottawa í Kanada í gær. Finnur benti á að mesti vöxtur í heimsvið- skiptum væri í greinum þar sem fjarlægðir skiptu ekki máli. Einkageirinn stýri þróuninni Hann sagði íslendinga standa mjög framarlega við að nýta sér upplýsingatæknina og líklegt væri að innan fimm ára yrði ísland fyrsta seðlalausa samfélagið í heiminum. Notkun greiðslukorta væri hvergi meiri en á íslandi og aðgangur að Netinu sá næstmesti í heiminum. A Ottawa fundinum mótuðu OECD-ríkin þá stefnu að einka- geirinn eigi að stýra þróuninni í rafrænum viðskiptum og að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, nýtur stefnan fulls stuðnings sam- taka atvinnurekenda. Stefnt er að því að einkageirinn móti staðla sem gildi í rafrænum viðskiptum. Stjórnvöld munu ekki setja stein í götu þeirra með lagalegum hömlum en alþóðlegar grundvallarreglur verði engu að síður settar til að skapa traust og auka öryggi. Stjórnvöld gæti þess jafnframt að skattheimta rafrænna viðskipta hindri ekki framgang þeirra og skattareglur á þessu sviði verði samræmdar á milli landa. Þá var á fundinum einnig samþykkt ályktun um nauðsyn aukinnar samkeppni á fjarskiptamarkaði. Leiðrétting MISSKILJA mátti upplýsingar sem komu fram í töflu, sem birtist í viðskiptablaði í fyrradag, yfir breytingar á stjómskipulagi yfirstjómar O. Johnson & Kaaber hf. og Heimilistækja hf. Hér birtist taflan rétt. Búferlaflutningar í janúar-september Fleiri til höfuðborg- arsvæðisins TÆPLEGA 44 þúsund breytingar á lögheimili einstaklinga vom skráðar í þjóðskrá á fyrstu þremur fjórð- ungum þessa árs samkvæmt heim- ildum Hagstofunnar. 23.694 manns fluttu innan sama sveitarfélags, 14.109 milli sveitarfélaga, 3.075 til Iandsins og 2.922 frá því. Á tímabilinu fluttust því 153 fleiri einstaklingar til landsins en frá því. Þar af vora aðfluttir eríendir ríkis- borgarar 391 fleiri en brottfluttir, en 238 fleiri íslendingar fluttust frá landinu en til þess. Á sama tíma ár- ið 1997 var heildarfjöldi aðfluttra umfram brottflutta 61. Töluvert fleiri fluttust til höfuð- borgarsvæðisins en frá því eða 1501. í öðram landshlutum voru brottfluttir fleiri en aðfluttir. Mest fólksfækkun varð á Austurlandi, 335. Af einstökum þéttbýlisstöðum fluttust flestir í Kópavog, 910, en flestir frá Vestmannaeyjum, 127. Jólasýning í LaugardalshöII JÓLAHÖLLIN er yfirskrift sýning- ar um jólahald landsmanna sem haldin verður í Laugardalshöll dag- ana 20. til 22. nóvember næstkom- andi. Á sýningunni munu fyrirtæki kynna allt til jólanna, þ.m.t. mat- og drykkjarvörur, fatnað, úr og skart- gripi, leikföng, tölvur, hugbúnað o.fl. Á sama tíma verður hrundið af stað söfnun til styrktar hjartveikum börnum á Islandi og mun andvirði aðgöngumiða að sýningunni renna óskipt til hennar. Það er Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, sem mun annast miðasöluna og Sparisjóðirnir verða fjárgæsluaðilar söfnunarinnar að því er segir í fréttatilkynningu. Það er fyrirtækið Islensk kynn- ing ehf. sem stendur fyrir sýning- unni í samstarfi við sölufyrirtækið Markaðssókn ehf. og Samtök iðnað- arins, sem taka þátt í skipulagningu og framkvæmd Jólahallarinnar. Alla sýningarhelgina verður lif- andi jóladagskrá með ýmsum uppá- komum og skemmtiatriðum fyrir alla aldurshópa og koma m.a. fram kórar, tónlistarmenn, rithöfundar og leikhópar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.