Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Gengið frá samein-
ingu fískmarkaða
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar og Fisk-
markaður Suðurnesja í eina sæng
GENGIÐ hefur verið frá samein-
ingu Fiskmarkaðs Hafnarfjarðar og
Fiskmarkaðs Suðumesja. Sú sam-
eining kemur í kjölfar þess að hætt
hefur verið við sameiningu Faxa-
markaðar í Reykjavík og Fiskmark-
aðsins í Hafnarfirði. Sameining
Faxamarkaðar og Skagamarkaðs-
ins stendur hins vegar áfram. Með
sameiningu Fiskmarkaðs Suður-
nesja og Fiskmarkaðs Hafnarfjarð-
ar er Fiskmarkaður Suðurnesja
orðinn einn af stærstu hluthöfum
Islandsmarkaðar ásamt Faxamark-
aði.
Gengið hafði verið frá samkomu-
lagi um sameiningu fiskmarkað-
anna í Reykjavík, Hafnarfirði og
Akranesi og hafði Faxamarkaður-
inn tekið við rekstrinum og rekið
markaðinn í Hafnarfirði um nokk-
urt skeið. Við sameininguna var
miðað við fjárhags- og eignastöðu
um síðastliðin mánaðamót, en þeg-
ar 6 mánaða uppgjör fyrir þetta ár
lá fyrir, reyndist staða Fiskmark-
aðs Hafnarfjarðar mun bágari en
talið var. „Þegar þetta lá fyrir,
reyndist ekki grundvöllur fyrir
sameiningunni og það varð því að
samkomulagi að sameiningin gengi
til baka. Það eru því aðeins Faxa-
markaðurinn og Skagamarkaður-
inn sem sameinast að þessu sinni,“
segir Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, stjórnarformaður Faxa-
markaðar, í samtali við Morgun-
blaðið.
Rekstur Fiskmarkaðs Hafnar-
fjarðar verður áfram með sama
sniði og áður samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Sá markaður hef-
ur einnig verið með útibú í Sand-
gerði eins og Fiskmarkaður Suður-
nesja og er líklegt að einhverjar
breytingar verði þar á.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar um kvótakerfíð
Hámarkar heildar-
tekjur þjóðarinnar
FORSTJÓRI Þjóðhagsstofnunar,
Friðrik Már Baldursson, telur, í
viðtali við fréttabréf LÍU, Útveg-
inn, að kvótakerfið sé í grundvall-
aratriðum gott kerfí. „Eg held að
heildartekjur þjóðarbúsins verði
hámarkaðar með fiskveiðistjórn-
unarkerfi eins og við erum með,
kerfi þar sem heildaraflinn er
ákvarðaður með skynsömum hætti
og honum skipt í framseljanlegar
aflaheimildir," segir hann í viðtal-
inu.
Hrifnir af fiskveiði-
stjórnuninni
Friðrik Már segir að erlendir sér-
fræðingar séu hrifnir af fiskveiði-
stjórnun hér á landi: „Við fáum
reglulega heimsóknir frá alþjóða-
stofnunum, bæði opinberum stofn-
unum eins og OECD og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum og einnig frá
aðilum sem eru að gefa íslenzkum
skuldabréfum einkunnir. Hjá þess-
um aðilum vegur þungt að við höf-
um komið böndum á verðbólguna
og minnkað hagsveiflurnar. Við
förum í gegnum íslenzka efnahags-
kerfið með þeim og þeir hafa verið
hrifnir að því hvernig íslenzkum
sjávarútvegi er stjómað. Fyrir
hagfræðing er í raun ekki annað
hægt en að vera ánægður með með
hvemig fiskveiðimálum hefur verið
komið í lag héma. Um það held ég
að langflestir hagfræðingar hér á
landi séu sammála. Deilumar um
kvótakerfið, hvað hagfræðinga
varðar, era fyrst og fremst um
eignarréttarstöðu kvótans, hver
megi eiga kvóta og hvort skatt-
leggja eigi. Hin almenna umræða í
þjóðfélaginu hefur hins vegar verið
mjög raglingsleg og aðskildum efn-
isþáttum oft blandað saman,“ segir
Friðrik Már.
Miklum arði spáð
Hann ræðir síðan um hugsan-
legan arð af fiskveiðum og segir:
„Hagfræðingar spá miklum arði af
vel stjórnuðum fiskveiðum, en það
er kapítuli út af fyrir sig hvernig
eigi að ráðstafa honum, hvort
menn vilja uppboð á aflaheimild-
um, einhverja sérstaka skatta eða
aðrar leiðir. Umræðan hefur ekki
einvörðungu snúizt um hag-
kvæmni heldur einnig réttlæti,
hvemig gefið er í spilinu. Framsal-
ið gerir það hins vegar að verkum
að þeir sem veiða fiskinn með sem
mestum arði geta fjárfest í aukn-
um heimildum. Þannig tryggir
framsalið í kerfinu hagkvæma
sókn. Einnig geta menn valið um
að sérhæfa sig í tegundum eða
dreifa hlutdeildum sínum. Markað-
urinn fyrir greinina er allur að
færast í skynsamlegra horf og
hlutafjárvæðingin og skráning
sjávarútvegsfyrirtækja á Verð-
bréfaþing er gott dæmi um nýja
möguleika á áhættudreifingu í
þessari atvinnugrein,“ segir Frið-
rik Már Baldursson í viðtalinu við
Útveginn.
Öarðbær þorskkvóti
NÝLEGA ákvað fiskveiðinefndin
um veiðar í Eystrasalti að Pólverj-
ar mættu veiða 26.500 tonn af
þorski árið 1999 en það er 3.000
tonnum minna en í ár. Maciej
Dlouhy, forseti Fiskveiðiráðs Pól-
lands, segir skerðinguna þýða að
þorskveiðamar verði óhagkvæmar
og hagnaður af þeim ótryggur, að
því er kemur fram í dagblaðinu
Dziennik Baltycki, sem gefið er út
í hafnarborginni Gdansk. Að sögn
blaðsins verða pólskir sjómenn nú
að færa út kvíamar og veiða síld
og brisling að auki eigi þeir að
geta lifað af veiðunum. Báðar teg-
undir hafa hins vegar verið of-
veiddar í Eystrasalti á undanförn-
um áram.
Ekki er búist við að minna fram-
boð þorsks hækki verð á honum á
pólskum mörkuðum vegna and-
stöðu neytenda við verðhækkanir,
en eitt kíló þorsks kostar nú jafn
mikið og eitt kíló svínakjöts þar í
landi. Þar að auki hefur innflutn-
ingur Atlantshafsþorsks og norskr-
ar síldar farið vaxandi og aukið
samkeppni.
Þjóðverjar fengu úthlutað kvót-
um í Eystrasalti árið 1999 sem
hér segir: Þorskur 14.768 tonn,
síld 82.841 tonn og brislingur
26.299 tonn. Heildarkvóti þessara
þriggja tegunda minnkar um sam-
tals 20.825 tonn á milli ára en
þýska sjávarútvegsráðuneytið
segir tvíhliðasamninga á milli
Evrópusambandsins og Eystra-
saltsríkjanna geta haft áhrif á
endanlega skiptingu kvóta á milli
þessara ríkja.
Reuters
BILL Clinton ásamt A1 Gore varaforseta og Erskine Bowles starfsmannastjóra á fundi með fréttamönnum í
Hvíta húsinu. Um samþykkt fulltrúadeildarinnar sagði hann aðeins, að hún væri ekki í sínum höndum.
Samþykkt hefur verið rannsókn í máli Clintons en þing-
menn beggja flokka hafa áhyggjur af framhaldinu
Skriða sem ekki
verður stöðvuð?
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti í fyrradag að hefja
ótímabundna rannsókn á meintum
ávirðingum Bill Clintons, forseta
Bandaríkjanna, og kom það ekki á
óvart. Repúblikanar era í meirihluta
í deildinni en auk þess var 31
demókrati hlynntur rannsókninni,
þeirri þriðju í sögu Bandaríkjanna,
af ýmsum ástæðum. Sumir sögðust
vilja, að þessu máli lyki sem fyrst og
því yrði ekki hjá rannsókn komist en
nokkrir aðrir lýstu yfir, að þeir
teldu, að Clinton hefði brotið alvar-
lega af sér. Það eru þó ekki bara
demókratar, sem hafa áhyggjur af
þessu máli, heldur einnig
repúblikanar því á þessari stundu
veit enginn hvernig því muni ljúka
né hvaða afleiðingar það muni hafa.
Þegar til kom fór atkvæðagreiðsl-
an í fulltrúadeildinni að mestu eftir
flokkslínum en fyrir um þremur vik-
um var því spáð, að allt að 120
demókratar myndu samþykkja
ótímabundna og ótakmarkaða rann-
sókn í máli Clintons. Fyrir atkvæða-
greiðsluna í fyrradag létu demókrat-
ar leka út, að þeir byggjust við, að
um 60 þingmenn þeirra gengju úr
skaftinu og repúblikanar svöruðu
þeim áróðri með því að nefna töluna
25. Niðurstaðan var síðan 31 eins og
áður segir.
Allir nema sex þessara þingmanna
eru frá Suður- og Miðvesturríkjun-
um, menn, sem halla sér oft að
repúblikönum í efnahags- og félags-
málum, og sumir eiga fyrir höndum
mjög tvísýna kosningabaráttu í
næsta mánuði. Þeir vildu því ekki,
sem svo virtist sem þeir væru of linir
við Clinton. í tveggja klukkustunda
löngum umræðunum um tillögu
repúblikana gerðu aðeins tveir
demókratar grein í'yrir atkvæði sínu
og annar þeirra, Paul McHale frá
Pennsylvaníu, snerist beint gegn
Clinton. Hann er hins vegar um það
bil að ljúka sínum þingmannsferli.
Demókratarnir, sem studdu til-
lögu repúblikana, sögðu margir að
atkvæðagreiðslunni lokinni, að þeir
teldu ekki, að Clinton hefði unnið til
embættismissis í þessu máli en úr
því yrði ekki skorið nema með rann-
sókn og því fyrr, því betra.
Útkljáð mál?
Þótt atkvæðagreiðslan í fyrradag
hafi gengið vandræðalaust fyrir sig,
þá hafa þingmenn beggja flokka
áhyggjur af framhaldinu. Demókrat-
ar virðast sannfærðir um, að í öld-
ungadeildinni, þar sem menn eru
öllu rólegri og yfirvegaðri en í full-
trúadeildinni, muni aldrei fást nægur
meirihluti til að dæma Clinton og
það muni því að lokum þvinga fram
einhvers konai’ samkomulag í milli
forsetans og repúblikana.
„Forsetinn verður áfram í emb-
ætti,“ sagði James P. Moran, full-
trúadeildarþingmaður demókrata
fyrii' Virginia. „Það er útkljáð mál.“
Það er þó langt í frá, að eitthvað
sé fyrirsjáanlegt í þessu máli og
margir þingmenn, þar á meðal sumir
repúblikanai’, óttast, að úr þessu
verði ekki aftur snúið. Málinu geti
ekki lokið nema með því, að fulltrúa-
deildin dæmi Clinton frá embætti og
vísi síðan málinu til umfjöllunar í
öldungadeildinni. Hún gæti tekið allt
næsta ár.
Málinu gæti hugsanlega lokið með
því, að þing og þjóð yrðu ásátt um í
ljósi sannana gegn Clinton, að hon-
um bæri að víkja eins og var með
Richard M. Nixon á sínum tíma.
Hættan er hins vegar sú, að þingið
geysist áfram eins og hemlalaus bíll
á sama tíma og þjóðin er því andvíg,
að Clinton segi af sér vegna Lewin-
sky-málsins. „Þetta mál hefur alla
burði til að kljúfa þjóðina í tvær fylk-
ingai- eins og gerðist með Víetnam-
stríðið," sagði Jerrold Nadler, full-
trúadeildarþingmaður demókrata
frá Manhattan.
Vilja „sirkusinn“ inn í þingið
Á Bandaríkjaþingi eru uppi tvær
kenningar um lyktir málsins og það
mun líklega ráðast í kosningunum í
næsta mánuði, eftir aðeins rúmar
þrjár vikur, hvor þeirra reynist rétt.
Það er að segja nema Kenneth Starr
breyti stöðunni með nýjum gögnum
um sekt forsetans.
Forsenda fyrri kenningarinnar er,
að repúblikanar bæti aðeins lítillega
við sig í kosningunum í nóvember. Þá
muni þeir telja, að þeir hafi kreist
það út úr málinu, sem unnt er, og
áframhaldandi málarekstur gæti
skaðað þá í aðdraganda forsetakosn-
inganna árið 2000. Útkoman verði því
áminning en ekki embættismissir.
Hin kenningin er sú, að vinni
repúblikanar mikinn sigur í nóvem-
ber, þá muni þeir líta á það sem um-
boð til að dæma forsetann frá emb-
ætti. Slíkur sigur muni einnig verða
til að valda glundroða meðal
demókrata.
Búist er við, að rannsókn fulltrúa-
deildarinnar í máli Clintons hefjist
ekki fyrr en að loknum nóvember-
kosningunum en á bak við tjöldin
eru fylkingarnar þegar farnar að
takast á um hvernig að henni verði
staðið. Repúblikaninn Henry Hyde
og formaður dómsmálanefndarinnar
segist til dæmis ekki sjá neina
ástæðu til að kalla Monicu Lewinsky
fyrir þingið en demókratar krefjast
þess. Þeir vilja gjarnan færa þennan
„sirkus“, sem þeir kalla svo, inn í
þingsalina.
„Það er ekki hægt að komast hjá
því að kalla á sjálft höfuðvitnið,"
sagði Martin T. Meehan, demókrati
frá Massachusetts. „Monica Lewin-
sky verður að bera vitni, móðir
hennar verður að bera vitni og líka
Betty Currie og Vernon Jordan."
John Conyers, oddviti demókrata í
dómsmálanefndinni, sagði svo í
fyrradag, að demókratar myndu
vissulega krefjast þess að fá að
spyrja Kenneth Starr spjörunum
úr.
Hvað gerir Gingrich?
Hvað sem þessu líður vilja
demókratar umfram allt komast að
samkomulagi um einhvers konar
refsingu aðra en embættismissi. Sá,
sem gæti ráðið miklu um það, er
repúblikaninn Newt Gingrich, forseti
fuUtrúadeildarinnar. Það er þó ekki
víst, að hann hafi neinn áhuga á því.
Hann ætlar að sækjast eftir deildar-
forsetaembættinu að loknum kosn-
ingunum í nóvember og samband
hans við Clinton hefur verið storma-
samt, stundum hatursfullt en stund-
um með ágætum næstum því. Við
þingmenn demókrata semur honum
illa yfirleitt. Á fundi með leiðtogum
flokkanna í síðasta mánuði sagði
hann, að hann myndi verða vinsam-
legri Clinton en demókratar hefðu
verið honum þegar hann var áminnt-
ur íyrir siðferðisbrest í fjármálum og
dæmdur til að greiða 21 milljón ísl.
kr. í sekt.
Einn þingmanna repúblikana, sem
þekkir Gingrich vel, telur þó ekki
ólíklegt, að hann muni reyna að kom-
ast að samkomulagi á réttri stundu.
Þannig muni hann geta sýnt, að
hann sé yfir þetta allt saman hafinn.
Það muni þó ráðast af því, sem á eft-
ir að koma fram í málinu gegn Clint-
on.
Heimildir: New York Times, Reuters, Was-
hington Posk