Morgunblaðið - 10.10.1998, Side 46
.46 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Virðing við
neytendur
Er hægt að tryggja að fjölmiðlar Mur-
dochs fái frið til að flytja vandaðar frétt-
ir afþví sem hugsanlega kann miður
að fara hjá Man. Utd eða skipta hluta-
bréfþessa sama Murdochs meira máli?
Eftir Skapta
Hallgrímsson
Heiðarleiki er mikil-
vægasti þátturinn í
starfi blaða- og
fréttamanna. Les-
endur og hlustend-
ur verða að geta treyst því að
ekkert sem borið er á borð fyrir
þá í fjölmiðlum sé vísvitandi ekki
sannleikanum samkvæmt. Blaða-
maður má engum vera háður
nema eigin samvisku. Og hún
verður að vera hrein. Alltaf. Þess
vegna tel ég vert að velta því fyr-
ir sér hverjar geta orðið afleið-
ingar þess að fjölmiðlafyrirtæki
eignist íþróttafélög, einsog ég
minntist örlítið á í pistli á fimmtu-
UinunDE daginn. T.d. að
VIDnvnr sjónvarpssam-
steypan BSkyB
kaupi enska
knattspymufé-
lagið Manchester United.
Iþróttafréttamenn eru svoh'tið
sérstakur hópur innan blaða-
mannastéttarinnar; þeir eru sí-
fellt að leggja mat á frammistöðu
einstakra íþróttamanna og liða og
verða að gæta þess afar vel að
vera ekki hlutdrægir, draga ekki
taum neins. Enginn má hagnast á
þvi að þekkja fjölmiðlamann og
enginn má heldur gjalda fyrir
það. Gæta verður sanngimi og
hlutlægni. Ég hef fjallað um
íþróttir í Morgunblaðið í tæplega
tvo áratugi en hef nú snúið mér
að öðmm verkefnum á ritstjóm
blaðsins. Ég velti því fyrir mér, á
þessum tímamótum, hvort starfs-
bræður mínir erlendis, og jafnvel
hérlendis, geti einhvem tíma
lent í þeirri aðstöðu að samviskan
óhreinkist vegna umfjöllunar
þeirra um félag sem tengist fjöl-
miðli, sem þeir starfa fyrir, eða
yrði jafnvel í eigu hans.
Hægt er að nefna dæmi frá
litla Islandi um ákveðnar vís-
bendingar um hvað geti ráðið
fréttamati. Stöð 2, sem er í eigu
Islenska útvarpsfélagsins,
minnist t.d. ekld oft á Formúlu 1
kappakstur. Getur ástæðan verið
sú að Sjónvarpið sýnir beint frá
þeirri íþrótt? Sjónvarpið nefnir
heldur varla keppni í hnefaleik-
um. Getur ástæðan verið sú að
Sýn, sem er í eigu íslenska út-
varpsfélagsins, hefur einkarétt á
sýningum frá þeim? Enska knatt-
spyman var lengi flaggskip
íþróttadeildar Sjónvarpsins. í
fyrravetur bar svo við að þegar
úrslit erlendra knattspymuleikja
vom lesin í útvarpi allra lands-
manna var stundum „að sjálf-
sögðu“ byrjað á úrslitum úr
þýsku knattspymunni. Getur
ástæðan verið sú að Stöð 2 og
Sýn höfðu tryggt sér sýningar-
rétt á ensku knattspymunni en
RUV var farið að sýna frá þeirri
þýsku? Þetta síðamefnda er vita-
skuld ekki alvarlegt dæmi um
undarlegt fréttamat, því hver
segir að úrslitin frá Englandi eigi
að lesa á undan þeim þýsku?
Jafnvel þótt það hafi tíðkast í ára-
tugi og enska knattspyman sé
mun vinsælli hérlendis en sú
þýska. Dæmin gefa hins vegar
vísbendingu um að fréttamatið
byggist á því hvað viðkomandi
stöð sýnir. Stöðvamar sinna
„sínu“ efni betur en öðm.
Það hefur lengi tíðkast í
Englandi að götublöðin - Sun og
Daily Mirror era þau helstu -
hafi greitt fólki fyi-ir viðtöl og því
meira sem efnið telst safaríkara.
Ég man eftir góðu dæmi:
Veturinn 1983-84 birtist stór
grein í Sun þar sem Frank Wort-
hington, kunnur framherji hjá
Leicester, ásakaði Graeme Sou-
ness, fyrirhða Liverpool, um mik-
inn raddaskap. Fór ófogrum orð-
um um Souness, sagði hann gróf-
asta leikmanninn í deildinni og
þar fram eftir götunum. Skömmu
síðar birtist ámóta grein í sama
blaði, þar sem Souness svaraði
fyrir sig og fúkyrðin í garð Wort-
hingtons vora auðvitað ekki af
skomum skammti. Fólki hefur
eflaust fundist þetta athyglisvert
mál. Ég hitti Souness svo nokkra
síðar og spurði hann út í umrædd
skrif. Svarið var hálfgert reiðar-
slag: Petta var ekkert mál, sagði
hann. Wortinghton fékk vel borg-
að frá blaðinu fyrir sínar yfirlýs-
ingar, égfékk svo vel borgað fyr-
ir að svara, við erum eftir sem áð-
ur ágætis kunningjar og allir eru
ánægðir. Allir ánægðir! Nema
lesandinn auðvitað sem dreginn
hafði verið á asnaeyranum. Fólk
hefur væntanlega tekið umfjöllun
blaðsins alvarlega, en síðar kom í
ljós að þetta var allt í plati! Þetta
leit bara svo vel út á prenti!
Svona hafa skal það sem betur
hþömar-blaðamennska er auðvit-
að ekkert annað en virðingarleysi
við lesendur og vonandi ekki það
sem koma skal hérlendis. En
tíðkast raunar enn á Englandi.
Þetta dæmi, og önnur sem
hægt væri að nefna, sýna því mið-
ur að fjölmiðlar eru ekld alltaf
vandir að virðingu sinni. Lesend-
ur eiga betri skilið en slíka með-
ferð og ég óttast, að þegar fjöl-
miðlar eignist íþróttafélög, verði
aldrei tryggt að „sannleikurinn"
komist allur til skila.
Athyglisvert var að bera sam-
an forsíður tveggja áðumefndra
götublaða í Englandi, Sun og
Mirror, daginn eftir að ljóstrað
var upp um tilboð BSkyB í
Manchester United. Gold Traf-
ford var risastór fyrirsögn hjá
Sun, þar sem vitnað var til leik-
vangs félagsins, Old Trafford, og
að nú yrði það enn fjárhagslegra
sterkara en áður. Tilboð sjón-
varpsfyrirtækisins væri eins/jg
félagið hefði fundið gullæð. Á for-
síðu Mirror var hins vegar mynd
af Rupert Murdoch - aðaleiganda
Sky samsteypunnar - í líld djöf-
ulsins og fyrirsögnin var The Red
Devil; Rauði djöfullinn, og ekki
fór á milli mála að blaðinu þótti
fréttin ekki jákvæð. Þetta var
einnig orðaleikur enda lið United
jafnan kallað Rauðu djöflamir.
Getur hugsast að muninn á for-
síðum Sun og Mirror megi rekja
til þess að hið fyrmefnda er í eigu
Ruperts Murdoch en hitt helsti
samkeppnisaðili þess á götu-
blaðamarkaðnum? Er því von að
spurt sé: er hægt að tryggja að
umfjöliun Sun, The London
Times, sem einnig er í eigu Mur-
dochs, og Sky sjónvarpsstöðvar-
innar, verði hlutlæg ef eigenda-
skiptin verða að veraleika. Verð-
ur hugsað meira um vandaðar
fréttir af því sem hugsanlega
kann miður að fara í herbúðum
Manchester United, heldur en
gengi hlutabréfa Ruperts Mur-
dochs í félaginu?
NEYTENDUR
Verðkönnun hjá efnalaugum á höfuðborgarsvæðinu
Þjónustan hefur hækk-
að um 2% á einu ári
í byrjun október kannaði Sam-
keppnisstofnun hvað kostar að láta
hreinsa nokkrar algengar gerðir
fatnaðar og gluggatjöld. Kannað
var verð hjá 27 efnalaugum á höf-
uðborgarsvæðinu. I könnuninni var
hvorki lagt mat á þjónustu fyrir-
tækjanna né gæði hreinsunarinnar
heldur var eingöngu um verðsam-
anburð að ræða.
Sambærileg könnun var gerð í
október á síðastliðnu ári. Ef borin
er saman könnunin þá og nú kemur
í Ijós að þjónusta efnalauga á höf-
uðborgarsvæðinu hefur hækkað að
meðaltali um 2%. Þá vekur það at-
hygli að veralegur verðmunur er á
miili efnalauga fyrir hreinsun á flík-
um eins og silkiblússum og peysum.
I skýringum sem fylgdu með
verðkönnun Samkeppnisstofnunar
var tekið fram að hreinsun á pilsi
miðaðist við þröngt pils og hreins-
un á kvenblússu miðaðist við fína
blússu eins og silkiblússu en oft
mun vera ódýrara að láta hreinsa
aðrar blússur.
I júní árið 1993 felldi samkeppn-
isráð úr gildi opinberar ákvarðanir
á verði í ýmsum þjónustugreinum.
Þar á meðal var verð á þjónustu
efnalauga. Jafnframt gaf sam-
keppnisráð út fyrirmæli sem kváðu
á um bann við sameiginlegri útgáfu
verðlista einstakra þjónustugreina.
Auk þess var fyrirtækjum, þar á
meðal efnalaugum, gert skylt að
hafa verðlista á áberandi stað svo
að neytendur ættu auðvelt með að
kynna sér verð þjónustunnar áður
en til viðskipta kæmi.
I lokin má geta þess að í upplýs-
ingum frá Samkeppnisstofnun
kemur fram að meðalhækkun
gjaldskrár frá 1993 þar til nú er
um 15%. Er það í samræmi við al-
menna hækkun vísitölu neyslu-
verðs.
Verðkönnun hjá efnalaugum
Efnalaug Arbæjar, Hraunbæ 102, Rvík
Efnalaug Garðabæjar, Garöatorgi 3, Garöabæ
Efnalaugin Aksjón, Eiöistorgi 15, Seltjarnarnesi
Efnalaugin Björg, Háaleitisbraut 58-60, Rvík
Efnalaugin Fönn, Skeifunni 11, Rvík
Efnalaugin Geysir, Dalvegi Kópavogi
Efnalaugin Glifra, Rauöarárstíg 33, Rvík
Efnalaugin Glæsir, Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði
Efnalaugin Glæsir, Hverafold 1-3, Rvík
Efnalaugin Grímsbæ, Efstalandi 26, Rvík
Efnalaugin Holts-Hraðhreinsun, Dalbraut 3, Rvík
Efnalaugin Hraði hf., Ægisíðu 115, Rvík
Efnalaugin Hreinn, Hólagarði, Lóuhólum 2-6, Rvík
Eínalaugin Hreint og klárt, Nýbýlavegi 26, Kóp.
Efnalaugin Hvíta Húsið, Kringlunni 8-12, Rvík
Efnalaugin Katla, Laugarásvegi 1, Rvík
Efnalaugin Mosfellsbæ, Háholti 14, Mosfellsbæ
Efnalaugin Nóatúni, Nóatúni 17, Rvík
Efnalaugin og þvottahúsið Drífa, Hringbr.119, Rvík
Efnalaugin Perlan, Langholtsvegi 113, Rvík
Efnalaugin Svanlaug, Engihjalla 8, Kópavogi
Efnalaugin Úðafoss sf., Vitastíg 13, Rvík
Fatahreinsun Kópavogs, Hamraborg 7, Kópavogi
Fatahreinsunin Snögg sL, Stigahlíö 45-47, Rvík
Nýja Efnalaugin, Ármúla 30, Rvík
Nýja fatahreinsunin, Reykjavíkurvegi 68, Hafnarf.
Þvottahús og efnalaug, Hraunbrún 40, Hafnarfirði
Hæsta verð
Mismunur á lægsta og hæsta verð
Jakki Buxur Pils Peysa Jakka- peysa Silki- blússa Kápa Kápa með hettu/ skinnkraga Ryk- frakki Glugga- tjöld pr. kg.
580 f 580 580 450 450 650 990 990 990 580
585 585 585 450 450 650 1000 1000 1085 650
575 575 575 460 575 650 1150 1250 1150 575
595 595 550 480 520 695 1040 1100 1100 690
620 620 620 380 380 750 990 1105 1050 1)
570 570 570 370 550 540 990 990 990 570
590 590 590 400 400 570 990 1050 1050 590
605 605 605 495 495 760 1065 1065 1065 605
595 595 595 425 500 425 1010 1010 1010 570
595 575 530 495 595 575 1150 1200 995 595
585 ! 585 585 300 500 600 900 975 975 585
595 595 595 395 595 690 1085 1085 1145 595
580 580 580 370 550 690 950 1070 1070 580
540 540 540 340 340 430 880 880 890 540
595 585 585 370 595 680 1000 1100 1100 595
590 590 590 380 590 680 1050 1050 1050 590
550 550 550 400 550 650 1000 1000 1000 550
580 580 580 460 580 700 1030 1030 1030 580
550 550 550 480 480 500 990 1090 1090 600
560 560 560 450 560 680 1010 1010 1010 560
580 580 580 475 475 680 1000 1000 1000 620
580 580 580 430 430 660 975 975 1045 620
580 580 580 450 450 520 980 980 980 620
550 550 550 440 550 600 1000 1000 1000 500
595 585 585 370 595 680 995 1200 1200 595
590 590 590 400 590 690 990 1000 990 600
540 540 540 400 400 450 900 900 900 540
540 540 530 300 340 425 880 880 890 500
620 620 620 495 595 760 1150 1250 1200 690
15% 15% 17% 65% 75% 79% 31% 42% 35% 38%
8 1) Kr. 220 m2