Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 48
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
a
A hvolf, á hlið og í hringi
LEIKUR
Forsaken, leikur fyrir Nintendo 64
frá Acclaim.
FYRIRTÆKIÐ Acclaim hefur
hefur átt miklum vinsældum að
fagna vegna leikja sinna og þá
ekki síst þrívíddarleikja. Leikur-
inn Forsaken er þar engin und-
antekning.
Þegar Forsaken kom fyrst út
naut hann mikilla vinsælda og
fékk mikið lof fyrir frábæra
grafík og spilagildi, nú hefúr
Acciaim gefið hann út fyrir Nin-
tendo 64 og hefur engin breyt-
ing orðið þar á, grafíkin er eins
og á PC-tölvu með þrívíddar-
korti.
Forsaken gerist í fjarlægri
framtíð þar sem ræningjar ráfa
um og stela öllu steini léttara úr
yfírgefnum borgum og fyrir-
tækjum, Þú ert einn þessara
ræningja og átt að drepa og
ræna öllu sem á vegi þínum
verður til þess að komast af.
Þrívíddarleikir eins og við
þekkjum þá eru leikir eins og
Quake, Unreal og Duke Nukein
3D en þegar leikir eins og For-
saken eru spilaðir öðlast orðið
nýja merkingu. í Forsaken get-
urðu farið á hvolf, á hlið, skotist
niður í göng sem snúast og fara
í hringi, i stuttu máli: Ringlandi.
Upplifunin er sérstaklega
skemmtileg í Nintendo 64 þar
sem leikurinn fer aldrei hægt
vegna of hægvirkrar töivu,
aldrei er nein bið eftir borðum
og ótrúlega þægilegt er að stýra
með Nintendo fjarstýringunni
eftir að hafa spilað leikinn á
lyklaborði svo lengi.
Níu ræningjar
Oftast þegar Nintendo leikir
eru flottir eru þeir einnig stuttir
vegna þess hve leikjakassetturn-
ar rúma lítið en Forsaken virðist
vera undantekning, mikið er af
borðum í leiknum og eru borðin
leikin með fimm stflum, í sumum
Hvað um
Windows
CE?
átta Mb gerðina, verðmunur er
ekki það mikill miðað við aukningu
á vinnsluhraða og ýmsa möguleika
aðra sem það gefur að hafa meira
minni. Einnig er einfalt að bæta við
minni þó ekki verði komist hærra
en í 10 Mb, að minnsta kosti ekki
sem stendur.
Innbyggð upptaka
Skjárinn á tölvunni er 640x240
myndeindir og hægt að baklýsa
hann til að sjá betur. Einnig er
hægt að stækka skjámyndina ef svo
ber undir. Nýtt er í Psion 5-línunni
að skjárinn er snertiskjár og flestar
aðgerðir framkvæmdar með því að
snerta skjáinn, ýmist með fingrun-
um, sem kámar hann reyndar út,
eða með sérstökum „penna“ sem
smellur út úr rauf á hlið tölvunnar
þegar ýtt er á hann. Tölvan er með
tengi fyrir farsíma og því hægt að
tengja hana síma beint og tengjast
Netinu til að sækja eða senda
tölvupóst eða skoða vefsíður. Fyrir
hliðræna símatengingu þarf sér-
stakt mótald. Einnig er á henni inn-
rautt tengi til að senda gögn í aðra
slíka tölvu, eða beint í PC-tölvu eða
á prentara.
Skemmtileg viðbót er að á tölv-
unni er hljóðnemi og innbyggður
hátalari og þannig er hægt að nota
hana til að hljóðrita stutt skilaboð
eða lengra spjall, því upptaka getur
orðið allt að 40 mínútum á 10 Mb
minnishylki og einfalt að skipta um
ef taka þarf upp lengur. Hljómgæði
eru þó ekkert til að hrópa húrra
fyrir en meira en nóg ef taka á upp
minnispunkta eða stutt spjall eða
viðtal.
Mikið af hugbúnaði fylgir tölv-
unni, ritvinnsluforrit, töflureiknir,
dagbókarforrit, gagnagrunnur,
reiknivél og heimsklukka. Einnig
er hægt að bæta allskyns hugbún-
aði við, ýmist ókeypis eða
ódýrum deilihugbúnaði.
Þannig er hægt að fá ýmisleg-
an viðskiptahugbúnað í tölvuna
eða allskyns uppflettirit, þýðingar-
forrit, landfræðiupplýsingar og svo
mætti telja, en einnig er mikið safn
leikja til. Hugbúnaðinn er hægðar-
leikur að nálgast á Netinu og úrval-
ið mikið.
Makka-eða
Pésatengi
Psion 5 fer vel í hendi, en hún er
þannig hönnuð að þegar hún er
opnuð gengur lyklaborðið fram, en
skjárinn hallast upp. Það gerir sitt
til að gera lyklaborðið þægilegra í
notkun og veitir ekki af ef menn
ætla að standa í skriftum á tölv-
unni.
Með tölvunni fylgir PsiWin-bún-
Eins og getið er í greininni um
Psion 5 notar hún eigin stýri-
kerfi, EPOC32, sem er 32 bita
fjölvinnslustýrikerfi. Önnur vin-
sæl smátölva, PalmPilot, notar
einnig eigið stýrikerfi, PalmOS.
Hvort tveggja er vitanlega eitur í
beinum Microsoft sem setti sam-
an sérstaka fituskerta útgáfu af
'Windows, Windows CE, til að
bregðast við þessu. í kjölfarið
hafa síðan komið fjölmargar
gerðir af lófa- og vasatölvum frá
ýmsum framleiðendum sem nota
Windows CE, án þess að hafa náð
að ógna áðurnefndum tölvum svo
neinu nemur.
Að mati Microsoft eru kostirn-
ir við að nota Windows CE aug-
Ijósir og þeirra helstur að það
gefur aðgang að gríðarlegu hug-
búnaðarsafni sem einfalt væri að
flytja yfir í CE-umhverfið. Af
þeim framleiðendum sem tekið
hafa Windows CE upp á arma
sína má nefna Canon, Compaq,
-(Hewlett Packard og PhiIIips,
sem eru ýmist að fram-
leiða bara vasatölvur
eða bæði vasa- og Iófa-
tölvur. Margar tölvanna
eru bráðskemmtilegar, til
að mynda Compaq-tölvan,
HP-tölvan og Phillips Velo,
en nyög ólíkar, til að mynda
er Velo ekki með litaskjá.
Þótt vélbúnaðarframleiðend-
ur hafí tekið vel við sér og ver-
ið fljótir að koma á markað
„ Windows CE-töIvum stóð
Microsoft sig ekki eins vel og
vakti til að mynda athygli á
CeBIT í Hannover fyrr á árinu
að á bás Microsoft vildu menn
sem minnst kannast við Windows
CE. Gekk svo langt að starfs-
menn héldu því fram að enginn
væri farinn að framleiða eða
kynna slíkar tölvur sem kom
þeim á óvart sem nýlokið hafði
við að skoða vélar frá Sharp,
Compaq og Phillips.
Erfiðleikar Microsoft við mark-
aðssetningu og þróun á Windows
CE snerust ekki síst um það
hvernig ætti að samræma það að
selja gríðarstórt og flókið stýri-
kerfi, Windows 98, og á sama
tíma kynna annað lítið og nett,
Windows CE, sem gæti jafnvel
nýst stærstum hluta borðtölvu-
eigenda. Við þetta bætist svo að
fyrsta útgáfa af Windows CE var
afleit frá tæknilegu sjónarmiði og
hentaði ekkert sérstaklega vel í
vasa- eða lófatölvur.
Sl. fimmtudag kynnti
Microsoft loks nýja útgáfu af
Windows CE, svonefnda Hand-
held PC Professional útgáfu, og í
tilkynningu á vefslóð Microsoft
má lesa að búið sé að berja í
brestina. Nettenging og póst-
vinnsla er mjög bætt, aukinheld-
ur sem betri stuðningur er fyrir
^vélbúnað og samræmingu gagna
á milli tölva. Gagnagrunnsteng-
ing er líka bætt, aukinheldur sem
endurbættar útgáfur eru af
Pocket Word, Pocket Excel og
Pocket PowerPoint.
FYRR á árinu héldu stjórn-
endur Phillips í Evrópu
markaðsfund hér á landi.
Meðal gesta þar var Simon
Bambach, forsvarsmaður jaðar-
tækjasviðs Phillips í Evrópu. I
spjalli við Morgunblaðið lét hann
þau orð falla að í viðskiptaheimi nú-
tímans skipti einstaklingsfram-
leiðni mestu máli; það skipti öllu að
fylgjast vel með; að vera í sambandi
hvaðan sem er hvenær sem er. I
spjallinu var Bambach meðal ann-
ars að mæra Velo-vasatölvu
Phillips, sem þykir um margt bráð-
vel heppnuð, en þó hún hafi gengið
vel eftir að hún kom út og sé reynd-
ar vinsælust þeirra véla sem keyra
WindowsCE, borgar sig að skoða
fleiri kosti, til að mynda Psion-
vasatölvuna.
Fyrsta Psion-tölvan kom á mark-
að fyrir fjórum árum og náði þegar
talsverðri hylli. 3-línan af Psion er
sú vinsælasta hingað til og hefur til
að mynda verið mest selda vasa-
tölva síðustu ára. Skammt er síðan
ný gerð af Psion kom á markað,
svonefnd 5-lína. Sú er með nýja
gerð af örgjörva, 18 MHz
ARM7100 RISC og stýrikerfið er
einnig nýtt af nálinni, EPOC32,
sem er 32-bita fjölvinnslu-
stýrikerfi. Fyrir vik-
flugvél að mestu aðgerðalaus þegar tíman-
um mætti verja til vinnu, lestrar tölvupósts
eða bréfaskrifta. Árni Matthíasson brá sér
til Parísar með Psion 5 í farteskinu.
Lyklaborðið
gengur fram,
en skjárinn
hallast upp
ið getur 5-línan ekki keyrt hug-
búnað sem skrifaður var fyrir 3-
línuna, en öll gögn er einfalt að
flytja yfir með aðstoð Pésa
eða Makka; hugbúnaður
sem fylgir breytir gagna-
sniðinu sjálfkrafa.
er að fá tölv-
urnar með fjögurra
eða átta Mb innra
minni, en sjálf-
sagt að fá sér
Á tölvunni er
hljóðnemi og
innbyggður
hátalari
Landssöfnun SÍBS fyrir endurhæfingu á Reykjalundi
Síminn er opinn
9-17 virka daga
Bankareikningur
0301-26-002600
í Búnaðarbanka íslands
Innleggsseðlar liggja frammi í Búnaðarbanka og Sparisjóðum.
Einnig er hægt að leggja inn rafrænt á interneti eða í heimabanka.
*
Yi'
••
Oflug og
handhæg
vasatölva
Fátt er leiðinlegra en sitja á flugstöð eða í