Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 49 MARGMIÐLUN aður, tengisnúra og hugbúnaður. Þegar búið er að tengja tölvuna kemur hún fram eins og hver annar harður diskur á skjáborðinu og hægt að lesa þangað skjöl eða lesa af henni skjöl, aukinheldur sem hægt er að láta dagbókarforrit á Psion-tölvunni sækja upplýsingar úr dagbókarfoiTÍti á PC-tölvunni. PsiWin samskiptafon-itið sér um að breyta gagnasniði eftir því sem skjöl eru dregin á Psion-tölvuna eða af, en það skilur gagnasnið helstu forrita eins og Word, Lotus og WordPerfect. Vert er að geta þess að Psion-tölvuna má eins tengja við Makka og flytja gögn á milli ef vill. I stuttri ferð til Parísar íyrir skemmstu var Psion 5 frá Japís með í för og reyndist bráðvel. Ein- falt var að halda utan um nöfn þeirra sem átti að hitta í ferðinni og allar athugasemdir og skýringar. Vélin fer bráðvel í vasa þó enn betra sé að geyma hana í hliðar- tösku eða bakpoka, og þægilegt að grípa til hennar meðan beðið var eftir lest eða flugvél. í því sam- bandi skipti ekki minnstu máli að hún notar tvær AA-rafhlöður, en ekki níðþungar sérstakar rafhlöð- ur. Hver rafhlöðuskammtur dugir síðan í um 35 tíma vinnu sem verð- ur að teljast allgott. Eins og gefur að skila er ekki hlaupið að því að skrifa langan texta á Psion-tölvuna, enda er lyklaborðið ekki ætlað fyrir slíkt. Það gekk þó bærilega að skrifa þorra þessarar greinar á tölvuna þó hún hafí verið fínpússuð á PC-tölvu. Islenskt letur er ekki upp sett í tölvunni frá hendi framleiðanda, en einfalt að bæta því við því Japís- menn hafa iátið semja lítið forrit sem setur upp íslenskt letur á henni. Eins og getið er, er mikið til af hugbúnaði fyrir Psion 5, enda er sáraeinfalt að semja hugbúnað fyrir hana; það fylgir meira að segja þró- unarumhverfi fyrir OPL-forritun- ai-málið og leiðbeiningar á geisla- disk í pakkanum. Af ofangreindu má ráða að Psion 5 vasatölvan er öflug og handhæg tölva sem hentar vel fyrir þá sem eru mikið á ferðinni. Þægilegt er að halda utan um tengla á henni og dagbókarforritið kemur í góðar þarfir, aukinheldur sem það er mik- ill kostur að geta lesið tölvupóst nánast hvaðan sem er í heiminum ef hægt er að komast í síma á annað borð. Verðið ætti ekki að standa í þeim sem á annað borð þurfa á slíku apparati að halda. • Intel hefur í nógu að snúast; í vikunni kynnti fyrirtækið nýj- an 450 MHz Pentium II ör- gjörva sem kallast Xeon og nýj- ustu fréttir herma að fyrirtæk- ið stefni að því að miða Penti- um II í átt að 500 MHz. Xeon- örgjörvinn er ætlaður fyrir net- þjóna, enda er hann með mjög aukið biðminni og verðlagður eftir því. Væntanlegur er 64- bita örgjörvi frá Intel, Merced, en þróun við 32 bita örgjörva heldur áfram af fullum krafti og Intel segir að 1.000 MHz 32 bita örgjörvi, Foster, komi á markað árið 2000. Merced-ör- gjörvinn er væntanlegur á markað um mitt næsta ár, en þó hann sé ekki kominn í fram- leiðslu er vinna í fullum gangi við að þróa arftaka Merced, McKinley, sem kemur á mark- að árið 2001 ef að líkum lætur og þá á hraðanum 1.000 MHz, eða 1 GHz. • Verðstríðið í Pésaheiminum heldur áfram og nýjasta útspil- ið í því kemur í næstu viku þeg- ar nýtt fyrirtæki, Emachines, kynnh' 266 MHz PC-samhæfða tölvu sem ekki mun kosta nema um 30.000 kr. Tölvan verður með 266 MHz M2 örgjörva frá Cyrix. • Sega-menn vinna hörðum höndum að Dreamcast tölvu sinni sem kemur á markað austur í Japan í næsta mánuði og á Vesturlöndum á næsta ári. Nýjustu fregnir af vélbúnaði herma að í vélinni verði DVD- drif, en einnig er Sega á kafi i samningum við helstu leikja- framleiðendur. Á fimmtudag sendi fyrirtækið frá sér tilkynn- ingu um að samningar hefðu tekist við leikjaframleiðandann Turbine Entertainment um að hann hannaði fjölnotnendaleik fyrir Dreamcast-notendur. Leikurinn er geimferða- og könnunarleikur sem ætlaður er fyrir þúsundir notenda samtím- is. Sega-menn leggja áherslu á hversu einfalt verði fyrir al- menna notendur að tengjast Netinu með aðstoð Dreamcast- tölvunnar, aukinheldur sem Ieikendur geti haft samband hver við annan með sérstöku lyklaborði sem fáanlegt verður. Samningurinn við Turbine und- irstrikar náið samstarf Microsoft og Sega, enda er helsta verkefni Turbine að setja saman fjölnotendaleik fyr- ir Microsoft sem kallast Asherron’s Call. borðum áttu að verja eitthvað mikilvægt, í sumum sækja eitthvað, surnuni eyðileggja eitthvað, færa eða hreinsa eitthvað og í sumum áttu einfaldlega að eyðileggja risa- stóra ofuróvini sem bíða þín við enda borðsins. Níu ræningjar, hver með eig- in hæfileika og möguleika og sex vopn standa þér til boða í leiknum og það er þó fyrir utan þær sex tegundir af eldflaugum og þrjár tegundir af afar kraft- miklum jarð- (eða loft-)sprengj- um sem svífa á staðnum þar til einhver lendir á þeim eða þangað til tími þeirra er liðinn. Mikið er af ljöl- breytilegum óvinum í leiknum eða um fimm turnar sem eni alltaf kyrrir og skjóta ýmist eldflaugum eða geislum á þig, fjórir jarðbundnir óvinir eða óvinir sem treysta á belti eða lappir til að komast á milli staða og svo eru það sjö fljúgandi óvinir og sér spilari lík- lega mest af þeim í leiknum. Ef eigendur eiga meira en eina fjarstýringu geta þeir skipt skjánum í tvo eða fleiri liluta og spilað við vini sína. Forsaken er leikur sem fléttar saman flotta grafík og skemmti- legan leik á afar fagmannlegan máta og flestir ættu að hafa afar gaman af honum. AÐSENDAR GREINAR R-listinn og heilsu- gæsla í Grafarvogi HINN 8. september sl. voru heilbrigðisráð- herra afhent mótmæli yfir 1.000 Grafarvogs- búa gegn áformum um að leggja niður heilsu- gæslustöðina við Hverafold, þegar ný heilsugæslustöð rís í Spönginni, norðar í Grafarvogshverfi. Yildu þeir að fleiri en ein heilsugæslustöð þjónaði íbúum Grafar- vogs í framtíðinni. Áðurnefnd áform nutu stuðnings meiri- Ólafur F. hluta stjórnar Heilsu- Magnússon gæslunnar í Reykja- vík, nánar tiltekið þriggja stjórnar- manna, sem allir eru nátengdir R- listanum. Tveir stjórnarmenn voru andvígir þessum áformum, en það voru undirritaður, sem er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórninni, og fulltrái starfsfólks. í stjórn Heilsu- gæslunnar sitja fimm fulltrúar, þar af þrír fulltrúar Reykvíkinga, einn fulltrúi starfsfólks og einn fulltrúi ráðherra, sem jafnframt er stjórn- arformaður. Tillaga sjálfstæðismanna Á borgarstjórnarfundi hinn 17. september sl. fluttu borgarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins tillögu þar sem þessum áformum er mótmælt og lögð áhersla á að fleiri en ein heilsugæslustöð þjóni íbúum Graf- arvogs í framtíðinni. I greinargerð með tillögu sjálfstæðismanna er bent á, að þröngt er um starfsem- ina í Hverafold og brýnt að stækka húsnæði og fjölga starfsfólki heilsugæslu í Grafarvogi, en aðeins fjórir heimilislæknar eru starfandi í þessu mannmarga hverfi. Síðan segir í greinargerðinni: „Ekki hafa komið fram rök fyrir því að leggja niður heilsugæsluþjónustu í Folda- hverfi, þó að ný heilsugæslustöð rísi annars staðar í hverfinu. Þessar fyrir- ætlanir ganga þvert á vilja íbúanna eins og mótmæli yfir 1.000 Grafarvogsbúa bera vitni um. Benda má á, að samkvæmt skipu- lagi er frátekin lóð fyr- ir heilsugæslustöð fyr- ir sunnan þjónustu- miðstöðina við Hverafold.“ Vilji Grafarvogsbúa er skýr I dag búa íbúar í Foldahverfi við góða og nærtæka þjónustu varðandi skólagöngu barna sinna og heilbrigðisþjónustu. Þeir vilja að svo verði áfram og borgarfull- Aform R-listans um _______aðeins eina_________ heilsugæslustöð í Grafarvogi, segir _ Olafur F. Magnússon, samrýmast hvorki vilja né hagsmunum íbúanna þar, trúar Sjálfstæðisflokksins styðja sjónarmið íbúanna, með því að leggja fram áðurnefnda tOlögu í borgarstjóm Reykjavíkur. Sjálf- stæðismenn vilja tryggja íbúum í suðurhluta Grafai-vogs áframhald- andi heilsugæsluþjónustu á því svæði. Sjálfsagt er að koma á fót samsvarandi þjónustu í Spönginni fyrir norðurhluta hverfisins. Tvær heilsugæslustöðvar í Grafarvogi tryggja nálægari þjónustu og auka valfrelsi íbúanna. Þegar meirihluti stjórnar Heilsugæslunnar tók sínar ákvarð- anir um framtíð heilsugæslunnar í Grafarvogi sl. vor voru íbúarnir ekki spurðir. Þeir hafa nú sent heilbrigðisráðherra og borgar- stjóm Reykjavíkur skýr skilaboð. Viðbrögð R-listans Viðbrögð fulltrúa R-listans við tillögu sjálfstæðismanna voru þau að taka ekki efnislega afstöðu til hennar, heldur vísa henni til um- sagnar stjórnar Heilsugæslunnar. Hér er í raun verið að vísa tillögu sjálfstæðismanna frá, því vilji meirihluta stjórnar Heilsugæsl- unnar er skýr, þ.e. að aðeins ein heilsugæslustöð skuli þjóna öllu Grafarvogshverfi. I umræðum um tillöguna reyndu fulltrúar R-listans að leiða athygl- ina frá kjarna málsins, með því að ræða um forgangsröðun í upp- byggingu heilsugæslunnar í Reykjavík almennt. TOlaga sjálf- stæðismanna snýst hins vegar um það, hvort íbúar í suðurhluta Graf- arvogs búi áfram við heilsugæslu- þjónustu á því svæði eða ekki. Enginn ágreiningur er um nauðsyn þess, að hraða uppbyggingu heilsu- gæsluþjónustu annars staðar í Grafarvogi. Tryggjum Grafarvogsbúum tvær heilsugæslustöðvar Fyrir borgarstjórnarkosning- arnar í vor lögðu borgarfulltrúar R-listans áherslu á hverfalýðræði og áhrif fólksins á ákvarðanatöku í' hagsmunamálum þess. Áfoi-m R- listans um aðeins eina heilsugæslu- stöð í Grafarvogi samrýmast hvorki vilja né hagsmunum íbú- anna þar. Þess vegna verður að hnekkja þessum áformum. Höfundur er læknir og borgarfull- trúi í Reykjavík. Mannréttindi og geðheilbrigði í FYRRA var al- þjóðlegi geðheilbrigðis- dagurinn helgaður málefnum bama og unglinga. I kjölfar dagsins hefur heilmikil umræða og vinna farið af stað á geðheilbrigð- isstofnunum. Endanlegar tillögur Drög að tillögum um úrbætur í málefnum barna og unglinga sem kynntar voru í fyrra af starfshópi skipuðum af heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra eru nú orðnar endanlegar. hafa tillögurnar farið í margar hendur til að fá sem flest sjónarmið fram í þessum marg- flókna málaflokki. Samstaða hefur náðst um hvað ber að leggja áherslu á þannig að ætla mætti að næsta skref væri að bretta upp ermarnar - en svo einfalt er þetta ekki. Þjónustuaukning Tillögurnar fela í sér að auka þjónustu til barna og unglinga með geðræn vandamál. Þar má nefna bráðamóttökudeild og langtíma meðferðardeild fyrir unglinga. Það er ljóst að það þarf aukið fjármagn til geðheilbrigðismála svo að hægt verði að framkvæma tillögurnar. Eydís S veinbj arnar dóttir Á sl. ári gegnum Framkvænidaáætlun Nágrannalöndum okkar hefur reynst vel að gera framkvæmda- áætlanir til nokkurra ára þegar auka og bæta þarf þjónustu. Vonandi verður næsta skref að gera raun- hæfa framkvæmdaá- ætlun til a.m.k. næstu fimm ára sem nauð- synlegt er að fá þverpólitíska sam- stöðu um. Samfélagsvandi Vandi barna og unglinga með geðræn vandamál á ekki að verða pólitískt mál. Skort- ur á þjónustu við þennan hóp er samfélagslegt vandamál. Hvernig lýsir það sér? Mörg börn og ung- lingar eru frá skóla langtímum saman vegna geðrænna vandamála og skóla- og heilbrigðiskerfi getur ekki sinnt þeim eins og m.a. langir biðlistar bera vitni um. Sú stað- reynd eykur enn á það gífurlega álag sem fjölskyldur þeirra eru að fást við. Réttindi barna og geðheilbrigði I ár er alþjóðlegi geðheilbrigðis- dagurinn, 10. október, helgaður umræðunni um mannréttindi og geðheilbrigði. Sú umræða tengist einnig börnum og unglingum með geðræn vandamál eins og kemur fram hér að framan. Mannréttindi og geðheilbrigði tengist börnum og unglingum á margan hátt, sjálf- ræði, forræði, staða fjölskyldunnar og réttur í meðferð er meðal við- fangsefna sem huga þarf að. Ráð- stefnan „Beiting þvingunar í með- ferð og siðferði í starfi" sem haldin var í Hveragerði í september sl. af samtökum meðferðarstofnana fyrir börn og unglinga kom inn á ýmsar Geðheilbrigðisdagurinn er, segir Eydís Svein- bjarnardóttir, helgaður umræðunni um mann- réttindi og geðheil- brigði. áleitnar spurningar sem svara verður á geðheilbrigðisári helguðu mannréttindum. Hvað má og hvað má ekki í meðferðarstarfi með börn og unglinga? Hvaða reglur eru til? Hver er réttur barna og unglinga sem leggjast inn á geð- heilbrigðisstofnanir á íslandi? Málþing um „mannréttindi og geðheilbrigði" Haldið verður málþing um mannréttindi og geðheilbrigði í Odda, stofu 101, í Háskóla IslandsT tilefni Alþjóðlegs geðheilbrigðis- dags. Málþingið hefst kl. 15. Fram- mælendur koma úr ýmsum áttum og opna umræðuna um þema dags- ins - orð era til alls fyrst. Höfundur er hjúkrunarfram- kvæmdasljóri BUGL.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.