Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 70

Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 70
MORGUNBLAÐIÐ *70 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 Dýraglens Grettir 5/M^Tt AlA l' /UEJfCA FVRJR. /MKS eina TSL.rrAFJAK£>A£ PCR7A-HKIETU -RJÓ/MA- JS^EKKI -SATT? S/EISTO HME> EG 6/tTTl þEGIO? E/NROAU JfMPAV?6 7-11 Hundalíf ^ h/ýt fafa vz/í mtr um Arygp isuefní-. giagaa Ljóska Ferdinand Smáfólk Ég breyti inínu í sólblóm ... I HATETOTELLYOUTHIS, BUT 50ME0NE IN ANOTHER. OUTFIT HAS WRITTEN A POEM 50METHIN6 LIKE YOUR5.. „Á flæmingjaakrinum fjólurnar gróa ..." Mér finnst leiðinlegt að segja þér þetta, en einhver í öðrum bún- ingi hefur skrifað ljóð sem líkist þínu .... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Kenna þarf sjónvarpsmönnum á klukku Frá Pétri Péturssyni: GETUR ekki einhver kennt út- sendingarstjórum ríkissjónvarpsins á klukku? Eða eru þeir allir svo önnum kafnir við að spila tónlist- armyndbönd frá Jóni í Skífunni þar sem engil- saxneskir popp- söngvarar engj- ast eins og maðkar á öngli og hrína bruna- söngva og ástar- brímarapp á besta tíma fyrir kvöldfréttir? Brjóta með því sam- þykkt útvarpsráðs, virða að vettugi tillögu Haralds Blöndals er hann fékk samþykkta í útvarpsráði um að sneiða hjá erlendum söngvum á þessum tíma. Ekkert virðist megna að hrófla við sjálfdæmi útsendingarstjóra sjónvarpsins um tónlistarflutning. Niðurstaða könnunar um kunnáttu í móðurmáli hefði þó átt að nægja til þess að menntamálaráðherra reyndi að koma í veg fyrir ósómann, síbyiju engilsaxneskra söngva. Heyrst hefir að ráðherrann hafi án árangurs reynt að hafa áhrif á harkalið sjónvarpsins, enda sjálfur í hópi þeirra er beindu tilmælum til sjónvarpsins um flutning íslenskrar hljómlistar hér áður fyrr. Ráðherr- ann hefir engu tauti komið við Blöðruveldið. Utsendingarmenn sjónvarpsins kjósa fremur að fylgja málstefnu Eiðs Guðnasonar og Jóns í Skífunni. En hvað sem því líður. Þeir þurfa helst að læra að þekkja á klukku. Það nær engri átt að þeir ljúki sjónvarpsdagskrá klukkan hálftvö að nóttu rneö því að láta þul- inn segja: „Útvarp Reykjavík. Klukkan er tólf.“ Það gæti kostað stofnunina skaðabætur að segja rangt til um tímann. Hugsum okkur „vitnaleiðslur um atburð sem dóm- ari kannar. Hann leitar vitna. Þau segja. „Það var klukkan tólf. Ég hlustaði á fréttir, þar var tímans getið.“ Einhver í flokki gæðinga sem fá greitt fyrir „óunna yfirvinnu" ætti að drífa sig á klukkunámskeið og láta hlustendur njóta aukinnar menntunar í nýjustu tækni og vís- indum. Natósinnar ættu líka að hafa áhuga, minnugir örlagaríks tíma- mismunar þegar „klukkan hjá Rúss- um var eitt“. Svo held ég að Bene- dikt Sveinsson þjóðskjalavörður og þingforseti hefði ekki verið hrifinn af engilsaxneskum „rappsöngvum", Botnleðju, Skítamóral og klám- myndahljómlist „Club Fischer" í Fischersundi. En stefna Heimdallar verður vist að ráða. „Frelsi til að djamma" var eitt helsta stefnumálið, ítrekað með póstkorti fyrir borgar- stj órnarkosningar. Blessaður menntamálaráðherr- ann á ekki sjö dagana sæla með nei- kvæða niðurstöðu móðurmáls- kennslunnar og síbylju Jóns í Skíf- unni. En Chase Manhattan ræður nú sínu. Hvenær ætlar Björn ráðherra að útvega fríheitin og taka kór Menntaskólans við Hamrahlíð fram yfir óhljóðalýðinn? Jón Þórarinsson (Fuglinn í fjörunni, hrein perla í flokki íslenskra laga) ætti nú líka að geta látið gott af sér leiða. Hann var styrktur til náms í tvö ár gegn fyrir- heiti um holl áhrif á þjóðlegan tón- listarflutning. Harla lítið fer fyrir þeim áhrifum í sjónvarpsdagskrá. Samkeppnisstofnun ætti að hyggja að stöðu íslenskrar tungu í síbyljuheimi engilsaxneskra áhrifa. Hvert er hlutfall íslenskrar tungu í lofthelgi íslands? Hvað segir menntamálaráðuneytið um niður- stöðutölur þeirrar athugunar þegar daglega er tilkynnt um nýjar stöðv- ar sem útvarpa og sjónvarpa á ensku? I flestum skólum er enskan tungutamari en móðurmálið. PÉTUR PÉTURSSON, fyrrverandi þulur. Auðlindin og almúginn Frá Aðalsteini Sigurðssyni: DAVÍÐ Oddsson talar nú fjálg- lega um að veita almenningi tæki- færi til að kaupa hlut í úvegsfyrir- tækjum svo allir geti grætt á auð- lindinni. Hver er þessi almenning- ur? Eru það e.t.v. þeir, sem höfðu það litlar tekjur að þeir græddu engan tekjuskatt fyrh' síðustu skattalækkun, en fengu af náð og miskunn að vera með í skattgreiðsl- unum eftir að persónuafsláttur var lækkaður? Sú lækkun mun hafa ver- ið ákveðin til þess að fá svolítið upp í það, sem ríkissjóður tapaði á lægri skattgreiðslum hátekjumanna. Hvað sem Davíð segir, ætti það að vera öllum ljóst, að mikill hluti þjóðarinnar hefir ekki efni á því að leggja fé í útgerð, en það er líka jafn ljóst að landinu er ekki stjórnað með hagsmuni þess hóps í huga. Við þurfum fiskveiðistjórnun og ég sé ekki aðra leið betri en að nota kvóta. Ég sé hins vegar ekki að það sé nauðsynlegt að þeir, sem fá kvóta ókeypis, hafi leyfi til að braska með hann eins og nú tíðkast. AÐALSTEINN SIGURÐSSON, Vallai'braut 8, Seltjarnarnesi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.