Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 71
BRÉF TIL BLAÐSINS
MESSUR Á MORGUN
Hafa íslenskir knatt-
spyrnumenn ekkert
vit á fótbolta?
::
w
i
i
Frá Sveini Guðjónssyni:
í ÁRLEGU lokahófi knatt-
spyrnumanna útnefndu leik-
menn efstu deildar David
Winnie, varnarmann úr KR,
besta leikmann sumarsins. Við
val sitt hafa leikmenn sjálfsagt
stuðst við reynslu sína á knatt-
spyrnuvellinum og komist að
þeirri niðurstöðu að Winnie
hafi verið sá leikmaður, sem
erfiðast var að leika gegn á ný-
liðinni leiktíð. En á áhorf-
endapöllunum era alltaf til
menn sem vita betur og telja
sig þess umkomna að segja
öðram til, leikmönnum, þjálfur-
um og dómuram. I hópi þess-
ara sjálfskipuðu sparkfræðinga
era jafnvel menn, sem aldrei
hafa reimað á sig fótboltaskó.
Nú hafa tveir þjóðkunnh-
íþróttafréttamenn fundið sig
knúna til að setja ofan í við
leikmenn efstu deildar og
benda þeim góðfúslega á, að
David Winnie hafi alls ekki ver-
ið besti leikmaðurinn í sumar.
Það voru allt aðrir leikmenn.
Þetta vita þeir, íþróttafrétta-
mennirnir, manna best enda
hafa þeir fylgst grannt með
gangi mála af hliðarlínunni og
staðið í ströngu við að gefa ein-
kunnir, bolta, stjörnur og M
eftir hvern leik. Og útreiknuð
meðaltalseinkunn gefur allt
aðra útkomu en útnefning leik-
mannanna. Með öðrum orðum,
leikmennimir sjálfir höfðu rangt
fyrir sér, líklega vegna þess að þeir
hafa ekki nægilega mikið vit á fót-
bolta, ekki frekar en dómarar og
þjálfarar.
Sjálfur hef ég ekki hundsvit á
fótbolta þótt ég hafí gaman af að
fylgjast með mínum mönnum á
vellinum. Mér finnst til dæmis
Gummi Ben. besti knattspyrnu-
maður á íslandi og hef verið þeirr-
ar skoðunar allar götur frá því ég
sá hann fyrst í KR-peysunni fyrir
fjóram áram. En ég geri mér fylli-
lega gi-ein fyi-ir því að öðra fólki er
sjálfsagt nákvæmlega sama um
hvað mér finnst í þessum efnum. Á
sama hátt varðar mig ekkert um
hvaða tilfinningar Guðni Þ. Ölvers-
son ber til leikmannsins Milan
Stefáns Jankovic eða um álit Guð-
mundar Hilmarssonai- á Hlyni
Stefánssyni. Báðir era þessir leik-
menn góðir í fótbolta og sjálfsagt
miklir andlegir leiðtogar samherja
LEIKMENN sjaltir voldu þaim besta
úr sínum hópi og fyrir valinu varð
David Winnie.
sinna utan vallar sem innan. Og
engin ástæða til að gera lítið úr því.
Hitt er annað mál, að í hófinu í
Broadway var ekkert verið að
spyrja um það eða um álit okkar,
sem stöndum á áhorfendapöllun-
um, á einstökum leikmönnum. Það
vora leikmennirnir sjálfir, sem
voru að velja þann besta úr sínum
hópi og fyrir valinu varð David
Winnie. Er ekki lágmarkskrafa að
þeir fái að vera í friði með þá skoð-
un sína fyrir okkur spekingunum?
íþróttafréttamaður DV segir í
gi-ein sinni að með þessari útnefn-
ingu hafi leikmenn skotið í stöng-
ina, það er að valið hafi ekki verið
nægilega markvisst. Ef einhverjir
hafa brennt af í þessu máli era það
umræddir íþróttafréttamenn. Skrif
þeirra eru ekki aðeins dónaskapur
í garð David Winnie, heldur hrein
og bein móðgun við íslenska knatt-
spyrnumenn.
SVEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 65, Reykjavík.
Fleiri ferðamenn
Frá Valgeiri Tómasi Sigurðssyni:
HÉR á eftir koma ábendingar und-
irritaðs um hvernig fjölga megi er-
lendum ferðamönnum á lands-
byggðinni. Flestir erlendir ferða-
menn ferðast á ódýrastu fargjöld-
um Flugleiða og eiga þar af leið-
andi aðeins rétt á „stop over“ í þrjá
sólarhringa í annarri leiðinni. Svo
skammur tími gefur þeim ekki
tækifæri til að fara langt út fyrir
borgarmörkin.
Ótakmarkaður eða lengri tími í
„stop ovcr“ á báðum leiðum milli
Bandaríkjanna og Evrópu, eins og
var hér á árum áður, gæfi þessum
ferðamönnum tilefni og tækifæri til
að ferðast meira um landið og eyða
fleiri gistinóttum á Islandi. Slíkt
hefði óhjákvæmilega í fór með sér
auknar tekjur til allra sem að inn-
lendri ferðaþjónustu standa.
Umrætt „stop over“ fyrirkomu-
lag Flugleiða sér til þess að um-
ræddir farþegar beina viðskiptum
sínum, vegna tímaskoi’ts, að mestu
leyti til fyrirtækja Flugleiða á höf-
uðborgarsvæðinu.
VALGEIR TÓMAS
SIGURÐSSON,
Lúxemborg.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
CM
www.mbl.is/fasteignir
Guðspjall dagsins;
Hvers son er Kristur?
(Matt. 22.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi
eftir messu. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Fjölbreytt dagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN:Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Hjalti Guðmunds-
son. Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson. Messa kl. 20 í tilefni af
setningu kirkjuþings. Biskup ís-
lands hr. Karl Sigurbjörnsson pré-
dikar.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.15. Organisti Kjart-
an Ólafsson. Sr. Lárus Halldórs-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl.
11. Munið kirkjubílinn. Guðsþjón-
usta kl. 11. Barnakór Grensáskirkju
syngur undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur. Kirkjukór Grensás-
kirkju leiðir almennan safnaðar-
söng. Organisti Árni Arinbjarnar-
son. Fundur með foreldrum ferm-
ingarbarna að lokinni guðsþjón-
ustu. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
morgunn kl. 10. Listin og trúin:
Benedikt Gunnarsson, listmálari.
Messa og barnasamkoma kl. 11.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Jón D. Hróbjartsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Pavel
Manasek. Bryndís Valbjörnsdóttir
og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Messa kl. 14. Organisti Pavel
Manasek. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Sr.
Pétur Þórarinsson í Laufási prédik-
ar. Áshildur Haraldsdóttir leikur á
flautu. Prestur sr. Jón Helgi Þórar-
insson. Organisti Jón Stefánsson.
Kaffisopi í safnaðarheimilinu eftir
messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Organisti
Gunnar Gunnarsson. Prestur sr.
Bjarni Karlsson. Kyrrðarstund kl.
13 í Sjálfsbjargarsalnum í Hátúni
12. íbúar Hátúns 12 og 10 vel-
komnir. Kvöldmessa kl. 20.30.
Prestar sr. Bjarni Karlsson og sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir. Hljóðfæra-
leikarar Tómas R. Einarsson,
kontrabassi, Matthías Hemstock,
trommur, Kjartan Már Kjartansson,
fiðla, Sigurður Flosason, saxófónn
og Gunnar Gunnarsson píanó.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Opið hús frá kl. 10. Guðsþjón-
usta ki. 14. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Viera
Manasek. Prestur sr. Sigurður
Grétar Helgason. Barnastarf á
sama tíma.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Kirkju-
dagurinn: Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14. Kaffisala kvenfélagsins eftir
messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Vegna
framkvæmda og endurnýjunar í
kirkjunni verður guðsþjónustuhald
safnaðarins næstu tvo mánuði í
nýlegu og glæsilegu safnaðar-
heimili safnaðarins rétt ofan við
kirkjuna. Barnaguðsþjónusta kl. 11
í safnaðarheimilinu. Guðsþjónusta
kl. 14, einnig [ sal safnaðarheimilis-
ins við Laufásveg 13. Kaffisopi í
guðsþjónustulok. Organisti er
Guðmundur Sigurðsson. Öllum er
hjartanlega velkomið að taka þátt í
samfélaginu. Hjörtur Magni Jó-
hannsson safnaðarprestur.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í safnaðarheimilinu kl. 13.
Foreldrar boðnir velkomnir með
börnum sínum. Hátíðarmessa kl.
15.30 í tilefni af opnun Árbæjar-
kirkju eftir breytingar og endur-
bætur. Biskup Islands, herra Karl
Sigurbjörnsson, prédikar og helgar
nýtt altarislistaverk eftir listakon-
una Rúrí. Prestar safnaðarins ann-
ast altarisþjónustu. Kór Árbæjar-
kirkju syngur. Organleikari Pavel
Smid. Alda Ingibergsdóttir syngur
einsöng. Ilka Petrova flytur tónlist
ásamt Violetu Smid á undan guðs-
þjónustunni. Prestar og sóknar-
nefnd.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Útvarpsguðs-
þjónusta á sama tíma. Stúlknakór
Breiðholtskirkju syngur. Inga
Backman syngur einsöng.
Organisti Daníel Jónasson. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kl. 11 messa
og sunnudagaskóli á sama tíma.
Organisti er Bjarni Þ. Jónatansson.
Léttar veitingar eftir messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma. Umsjón Ragnar
Schram og Hanna Þórey Guð-
mundsdóttir. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11.
Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdótt-
ir. Hjörtur og Rúna aðstoða.
Sunnudagaskóli í Engjaskóla kl.
11. Prestur sr. Vigfús Þór Árnason.
Signý og Guðlaugur aðstoða.
Organisti Hrönn Helgadóttir. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Sigurði Amarsyni.
Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti Hörður Bragason. Ein-
söngur Garðar Þór Cortes. Einleik-
ari á básúnu Einar Jónsson. Fund-
ur með foreldrum fermingarbarna
úr Rima- og Húsaskóla. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Almenn guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Magnús Guð-
jónsson þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða söng. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 13. Allir hjartan-
lega velkomnir. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf
kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum.
Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga.
Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra en fundur verður með
þeim í Borgum að lokinni guðs-
þjónustu. Kór Kópavogskirkju
syngur. Organisti Kári Þormar.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Barnakór Seljakirkju
syngur. Allir krakkar og foreldrar
velkomnir! Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjudagur kvenfélags Seljakirkju.
Aðalheiður Jónsdóttir, fyrrv. ritari
kvenfélagsins prédikar. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir alt-
ari. Seljur, kór kvenfélagsins,
syngja. Organisti Gróa Hreinsdótt-
ir. Sóknarprestur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN:
Morgunguðsþjónusta að Bílds-
höfða 10, 2. hæð, kl. 11. Fræðsla
fyrir börn og fullorðna. Almenn
samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð og
fyrirbænir. Friðrik Schram prédik-
ar. Allir hjartanlega velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg:
Samkoma kl. 17. Þáttur um starf
Vindáshlíðar. Sigurbjört Kristjáns-
dóttir formaður og fleiri. Hugvekju
flytur Sigurður Pétursson sjávarlíf-
fræðingur. Barnagæsla og fræðsla
á meðan á samkomu stendur. Létt
máltíð að samkomu lokinni fyrir þá
sem vilja. Sigurbjörn Þorkelsson
framkvæmdastjóri.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Laugar-
dag kl. 13 laugardagsskóli fyrir
börn. Sunnudaga kl. 19.30 bæna-
stund. Kl. 20 hjálpræðissamkoma.
Majór Elsabet Daníelsdóttir stjórn-
ar og talar. Mánudag kl. 15 heim-
ilasamband fyrir konur. Guðrún
„Rúna“ talar.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Morg-
unsamkoma kl. 11. Fjölbreytt
bamastarf og kennsla fyrir full-
orðna. Eftir morgunstundina verða
seldar léttar veitingar. Kvöldsam-
koma kl. 20. Gloria og Michael
Cotten verða með okkur. Það er
fögnuður í húsi Drottins. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KLETTURINN: Krakkaklúbbur kl.
11 fyrir krakka á öllum aldri. Sam-
koma kl. 20, Jón Þór Eyjólfsson
prédikar. Allir velkomnir.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur sunnudaga kl. 10.30 og 14.
Messa kl. 18 á ensku. Laugardaga
og virka daga messur kl. 8 og 18.
Rósakransbæn: Október er mán-
uður rósarkransins. Rósakrans-
bænin verður beðin á hverjum degi
í kirkjunni kl. 17.30.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11.
(Rósakransbænin beðin 25 mínút-
um fyrir messuna). Messa laugar-
dag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
Mánudaga til föstudaga
rósakransbæn kl. 17.40.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa sunnudaga kl. 8.30.
Messa laugardaga og virka daga
kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu
7: Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag
kl. 17.
FÆREYSKA
SJÓMANNAHEIMILIÐ: Samkoma
á morgun kl. 14. Ath. breyttan
tíma.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Ath. breyttan tíma!
Kirkjudagur Kvenfélags Lágafells-
sóknar. Sigrún Ásgeirsdóttir fv.
safnaðarfulltrúi flytur hugvekju.
Kirkjukaffi í skrúðhússalnum.
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Bíll frá Mosfellsleið fer venju-
legan hring. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskólar kl. 11 í Strand-
bergi, Setbergs- og Hvaleyrarskól-
um. Guðsþjónusta kl. 11. Ferming-
arböm sýna helgileik. Organisti
Natalía Chow. Prestur sr. Gunnþór
Ingason. Tónlistarguðsþjónusta kl.
17. Prestur sr. Þórhildur Ólafs. Árni
Gunnarsson leikur á básúnu.
Organisti Natalía Chow. Prestur sr.
Þórhildur Ólafs.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón Andri, Ás-
geir Páll og Brynhildur. Guðsþjón-
usta kl. 14. Síra Bragi Friðriksson
messar. Kór Víðistaðasóknar syng-
ur. Organisti Úirik Ólason. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu kl. 11. Umsjón Sigríður Kristín,.
Helgadóttir og Órn Arnarson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Altarisganga. Kór
Vídalínskirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng. Sunnudagaskóli í kirkj-
unni á sama tíma í kirkjunni. Yngri
og eldri deild. Organisti Jóhann
Baldvinsson. Hans Markús Haf-
steinsson, sóknarprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barna-
starfið hefst sunnudaginn 11.
október kl. 11. Foreldrar hvattir til
að koma með börnum sínum.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli 11. október kl. 11.
Foreldrar hvattir til að mæta með
börnum sínum.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Messa kl.
14. Kirkjukór Njarðvíkur syngur
undir stjórn Steinars Guðmunds-
sonar organista. Að athöfn lokinni
verður fermingarstarfið kynnt
ásamt vetrarstarfinu og boðið
uppá kaffisopa. Sunnudagaskóli
kl. 11 í Ytri-Njarðvíkurkirkju og
verða börn sótt að safnaðarheimil-
inu kl. 10.45.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 árd. Munið skóla-
bílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Prest-
ur Ólafur Oddur Jónsson. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Einsöngv-
ari Dagný Jónsdóttir. Orgelleikari
Einar örn Einarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl.
10.30. Hádegisbænir kl. 12.10
þriðjudag-föstudags. Sóknarprest-
ur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
STRANDARKIRKJA í Selvogi:
Messa sunnudag 11. október kl.
14. Ræðuefni: Veiðimennska frá
kristnu sjónarhorni. Organisti Ro-
bert Darling. Félagar úr Söngfélagi
Þorlákshafnar leiða söng. Sr. Bald-
ur Kristjánsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Tónlistar-vesper
kl. 17. Jón Ragnarsson.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónustej^
kl. 14. Altarisganga. Sóknarprest-
ur.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA í
Fljótsdal: Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Baldur Gautur kveður söfnuð sinn í
Valþjófsstaðarsókn. Organisti Kri-
stján Gissurarson. Allir hjartanlega
velkomnir. Sr. Baldur Gautur Bald-
ursson.