Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 84

Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 84
FIMMFALDUR 1. VINNINGUR MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Flugleiðir semja við —■ Lufthansa FLUGLEIÐIR hf. hafa samið við þýska flugfélagið Lufthansa um samstarf í far- gjaldamálum. Talið er að samningurinn muni styrkja stöðu Flugleiða á meginlandi Evrópu og þá sérstaklega í Þýskalandi. Flugleiðir fljúga daglega til Frankfurt á sumrin og Ham- borgar allt árið og vonast for- ráðamenn félagsins til að samstarfíð verði tH þess að straumur þýskra ferðamanna . . til Islands stóraukist. Tímamótasamningur Samningurinn gildir frá 1. nóvember næstkomandi og mun hann hafa mikla þýðingu fyrir Flugleiðir og íslenska ferðaþjónustu að sögn Jóns Karls Ólafssonar, svæðis- stjóra Flugleiða á meginlandi Evrópu. „Þetta er tímamóta- samningur og mun eflaust bæta samkeppnisstöðu Flug- j leiða í Þýskalandi til muna. ''' Með samstarfinu tengjast Flugleiðir hinu víðfeðma leiðaneti Lufthansa og það hefur ótal spennandi mögu- leika í fór með sér fyrir okk- ur.“ ■ Styrkir stöðu/24 Morgunblaðið/Kristján Kári Stefánsson forstjóri ÍE um breytt gagnagrunnsfrumvarp Heilbrigðisráðuneytið hefur mætt gagnrýni „ÉG tel frumvarpið núna bera þess merki að heilbrigðisráðuneytið hafí tekið stór skref til að mæta þeim sem gagnrýnt hafa frumvarpið og ráðuneytið hefur fundið það tjáning- arform sem leiðir til eins mikillar sáttar og mögulegt er,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfðagreiningar, aðspurður um breytt drög gagnagrunnsfrumvarps. ~JÍ Drögin að nýju gagnagiunns- frumvarpi voru samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Guðmund- ur Bjömsson, formaður Læknafé- lags Islands, vildi ekki tjá sig um breytt framvarpsdrög í gærkvöld, sagði að þeim hefði verið dreift á að- alfundi félagsins sem nú stendur yf- ir og kvaðst vilja bíða með viðbrögð. „Eg tel að frumvarpið sé nú þannig sett fram að bæði sé hægt að framkvæma hugmyndina eins og hún er upphaflega hugsuð og ná þeirri samstöðu sem þarf til að frið- verði í heilbrigðiskerfinu og tel innu ráðuneytisins hafa verið með ágætum," sagði Kári Stefánsson ennfremur. „Eg ætla ekki að spá að þetta fijúgi gegnum þingið en segi nú eins og varðandi íyrri útgáfu að ég tel möguleika á að ná slíkri sátt að frumvarpið þurfi ekki að dvelja lengi í þinginu. JJjrÞað eru einstaka atriði sem ég hefði sett saman öðruvísi ef ég hefði Nefnd sjái um gerð og starf- rækslu gagnagrunnsins Læknar ræða frumvarpið á aðalfundi skrifað þetta, til dæmis samið ítar- legri kafla um aðgang annarra vís- indamanna að grunninum og reynt að gera þeim auðveldara að láta sér líða vel um það atriði." grunninum og senda Vísindasiða- nefnd reglulega skrá yfir fyrir- spurnir ásamt upplýsingum um fyr- irspyrjendur. Einnig er gert ráð fyr- ir að í reglugerð verði kveðið nánar á um starfsemi nefndarinnar um starfrækslu gagnagrunns á heil- brigðssviði. ■ Gagnagrunnur/14,30-35 Meðal breytinga á frumvarpinu má nefna að það gerir ráð fyrir ein- um miðlægum gagnagrunni og að einum aðila verði veitt tímabundið rekstrarleyfi, ekki til lengri tíma en 12 ára í senn. Það tekur ekki til starf- semi annarra gagnagrunna sem starfræktir era á afmörkuðum svið- um. Skilgreind eru hugtökin „dulkóð- un“ og „dulkóðun í eina átt“ og kveð- ið á um að persónueinkenni skuli dulkóðuð í eina átt þannig að ekki sé unnt að rekja upplýsingar til baka með greiningarlyldi. Kveðið er á um að starfsmenn heilbrigðisstofnana skuli annast dulkóðun heilbrigðis- upplýsinga og persónueinkenna íyrir flutning þeÚTa í gagnagrunninn. Þá er gert ráð fyrir að ráðheraa skipi þriggja manna nefnd til að hafa umsjón með gerð og starf- rækslu gagnagrunnsins og samning- um jeyfíshafa við heilbrigðisstofnan- ir. A hún að fylgjast með öllum fyr- irspurnum og úrvinnslu úr gagna- Morgunblaðið/Guðmundur St. Valdimarsson Rússneskt álskip ÁLETRANIR á rafmagnstengibox- um benda til þess að skipsflakið sem varðskipið Ægir tók í tog í fyrradag sé rússneskt og sennilega hefur það verið notað sem kapal- skip á vegum sjóhersins. Svo virðist sem skipið hafí flotið á tromlunni, því engin loftrými eru sjáanleg. Flakið er úr áli, um 13 metra langt og 4,5 metrar á breidd. Það liggur nú í fjörunni í Seyðisfírði og varðskipsmenn hafa dælt úr því sjó. Ekki hefur verið ákveðið hvað gert verður við það. ■ „Draugaskipið“/4 Slegið ci Igííe strengi ÞAU slógu á létta strengi, Sig- rún Hjálmtýsdóttir og Krislján Jóhannsson, á æfingu í gær, fyrir tónleika sem hefjast í íþrótlahöllinni á Akureyri í dag. Þetta eru minningartónleikar um Jóhann Konráðsson, föður Kristjáns, sem lést árið 1982, en hann hefði orðið áttræður síð- astliðið haust. Anna María Jóhannsdóttir hefúr unnið að undirbúningi tónleikanna og segir hún að hún hefði aldrei farið út í það hefði hún vitað að þetta yrði svo mikið mál en tónleikarnir eru mjög umfangsmiklir. Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands leikur, undir sljórn ftalska hljómsveitarstjórans Giovanni Andreoli, og fær sveitin til liðs við sig hljóðfæraleikara úr Sin- fóníuhljómsveit Islands. ■ Alltaf spennt/21 Hvalreki á Suður- nesjum LÖGREGLUNNI í Keflavík var tilkynnt um hvalreka í landi Bakkakots í Leiru í gær. Tegund hvalsins er andar- nefja, en ekki er vitað nánar um stærð hennar eða aldur. Náttúrafræðistofnun var gert viðvart og mun sérfræðingur hennar kanna hræ hvalsins eftir helgina. Þykkvibær Alftaveiðar rannsakað- ar á þremur stöðum SÝSLUMAÐURINN á Hvolsvelli hefur fengið upplýsingar frá Nátt- úrafræðistofnun um ákveðin félaga- samtök og veitingahús, sem Nátt- úrufræðistofnun telur víst að hafí boðið upp á álftir í veislum og á sæl- kera- og villibráðakvöldum síðast- liðna tvo vetur. Ekki fæst gefið upp hvaða aðila hér um ræðir en fram- hald málsins verður í höndum sýslu- manns, sem mun ákveða hvort ástæða þyki til að sauma frekar að viðkomandi aðilum. Sýslumaður hefur sent rannsókn- argögn og beiðni um rannsókn til lögregluembættisins í Hafnarfirði og á Isafirði vegna álftaveiðanna í Þykkvabænum. Tveir veiðimann- anna era af Vestfjörðum, sá þriðji er búsettur erlendis og sá fjórði er úr Hafnarfirði. Þrátt fyrír töluverða leit lögreglu á Hvolsvelli úr lofti og á láði hefur ekkert álftarhræ fund- ist og því talið sennilegast að menn- irnir hafi tekið þau öll með sér er þeir héldu brott frá Þykkvabænum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.