Morgunblaðið - 18.10.1998, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 11/10 -17/10
Ææ
►HALLDÓR Ásgrímsson,
utanríkisráðherra og for-
maður Framsóknarílokksins,
segir að ekki komi til greina
að fóma Þjórsárvemm eða
flytja Jökulsá á Fjöilum eða
eyðileggja Dettifoss vegna
virkjanaframkvæmda.
Einnig segir hann að Fijóts-
dalsvirkjun verði ekki hægt
að reisa nema með því að
setja Eyjabakka undir uppi-
stöðulón.
►INGIBJÖRG Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra segist
gera ráð fyrir að áður en
rekstrarleyfi verði gefið út
vegna gerðar og starfs-
rækslu miðlægs gagna-
gmnns á hcilbrigðissviði
verði samið við rekstrarleyf-
ishafa um að þjóðin njóti við-
bótararðs í formi hlutdeildar
í hugsanlegum hagnaði
rekstrarleyfishafans.
►HITAVEITA Suðurnesja,
Hafnarfjarðarbíer, Garða-
bær og Bessastaðahreppur
undirrituðu á flmmtudags-
kvöld samkomulag um að
kanna möguleika á samstarfi
og samvinnu varðandi nýt-
ingu jarðhita og aðra alhliða
samvinnu í orkumálum.
Helsta markmið sveitarfé-
laganna er að nýta jarðhita-
auðlindir innan sveitarfé-
lagsins og eftir atvikum víð-
ar á landinu.
►RÍKISSTJÓRNIN sam-
þykkti á miðvikudag að
smíði nýs varðskips skyldi
fara fram hér á landi. Ríkis-
kaup og Björn Friðfinnsson,
ráðgjafi ríkisstjómar fslands
í EES-málum, telja að bjóða
verði út smíði varðskips fyr-
ir Landhelgisgæsluna á Evr-
ópska efnahagssvæðinu og
vara við þvf að útboð innan-
lands kynni að leiða til kæm
sem gæti tafið málið um 1-2
ár.
Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir látin
GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir for-
setafrú lést á sjúkrahúsi í Seattle í
Bandaríkjunum skömmu fyrir miðnætti
á mánudagskvöld, 64 ára að aldri. Hún
hafði barist við illvígan sjúkdóm í rúm-
lega eitt ár.
Biðtími eftir
meðferð lengist
BIÐTÍMI eftir meðferð fyrir unga vímu-
efnaneytendur hefur lengst úr 53 dögum
á árinu 1997 í 240 daga, eða 8 mánuði, á
árinu sem er að líða. Bragi Guðbrands-
son, forstjóri bamavemdarstofu, segir
að hækkun sjálfræðisaldurs í 18 ár um
síðustu áramót hafi kollvarpað tilvist nú-
verandi meðferðarkerfis ríkisins fyrir
ungmenni þar sem tveir árgangar hafi
bæst við skjólstæðingahópinn.
Skattaafsláttur
fyrir sparnað
RÍKISSTJÓRNIN hyggst gera fólki
kleift að leggja 2% tekna sinna til hliðar
skattfijálst. Jafnframt ætlar stjómin að
hækka á ný skattaafslátt vegna hluta-
bréfakaupa. Hann verður 60% af um
130.000 krónum, eða tæplega 78.000
krónur. Þetta kynnti Geir H. Haai'de
fjármálaráðherra á ríkisstjómarfundi.
Túnfiskveiðiskip
strandaði
JAPANSKT túnfiskveiðiskip strandaði á
Jömndarboða í Skerjafirði á þriðjudags-
kvöld. í áhöfninni vom 22 menn og vom
þeir fluttir um borð í varðskipið Ægi.
Rúmum tveimur tímum eftir strandið
losnaði skipið og var það þá dregið til
Reykjavíkur.
Náttúruvernd
aðstoðar ekki
NÁTTÚRUVERND ríkisins hefur hafn-
að beiðni Landsvirkjunar um mat á um-
hverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar þar
til fyrir liggur hvaða meðhöndlun mats-
skýrslan muni fá.
Árásum NATO vegna
Kosovo afstýrt
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
(NATO) ákvað á fostudag að veita
Slobodan Milosevic, forseta Júgó-
slavíu, tíu daga frest til viðbótar til að
binda enda á valdbeitingu Serba í
Kosovo-héraði.
NATO áréttaði að
bandalagið myndi
gera loftárásir á
hemaðarleg skot-
mörk í Júgóslavíu
ef Milosevic sendi
ekki öryggissveitir
sínar úr héraðinu
áður en fresturinn
rennur út.
Á mánudags-
kvöld hafði NATO samþykkt að skipa
herjum bandalagsins í viðbragðsstöðu
vegna deilunnar í Kosovo. Stjórninni í
Belgrad vora gefnir fjórir sólarhring-
ar til að fara að fullu að kröfum ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þá
féllst Milosevic loks á, eftir margra
sólarhringa viðræður við Richard
Holbrooke, erindreka Bandaríkja-
stjórnar, að kalla herlið Serba á brott
frá Kosovo, heimila eftirlitsmönnum
Öryggis- og samvinnustofnunar Evr-
ópu að fylgjast með brottflutningnum
og leyfa flóttamönnum Kosovo-
Albana að snúa aftur til síns heima.
Tímamótafundur?
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
ræddi á fimmtudag í Washington við
þá Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra Israels, og Yasser Arafat, for-
seta heimastjórnar Palestínumanna,
en á vinnufundi á búgarði í Maryland-
ríki sem Madeleine Albright, utanrík-
isráðhema Bandaríkjanna, stýrír og
stendur fram á þessa helgi, er vonast
til að takast muni að koma viðræðun-
um um frið við botn Miðjarðarhafs
aftur af stað eftir langt hlé.
► ROMANO Prodi, starfandi
forsætisráðherra ítalfu, gafst
á fimmtudag upp á að reyna
að koma saman nýjum
stjórnarmeirihluta. Oscar
Luigi Scalfaro, forseti Italíu,
fól á föstudag Massimo
D’Alema, leiðtoga stærsta
vinstriflokksins á þingi, um-
boðið til að reyna að finna
lausn á stjórnarkreppunni.
► FINNSKIR íhaldsmenn,
sem aðild eiga að ríkisstjórn
með jafnaðarmönnum undir
forsæti Paavos Lipponens,
lögðu á fimmtudag fast að
forsætisráðherranum að
hann svaraði fyrir fullt og
allt ásökunum þess efnis að
hann hefði logið að þinginu í
tengslum við ársgamalt póli-
tískt hneykslismál sem snýst
um niðurfellingu sektar sem
fyrrverandi formaður jafn-
aðarmannaflokksins hafði
verið dæmdur til að greiða.
► ALLT að ein og hálf millj-
ón Norðmanna tók þátt í
tveggja klukkustunda vinnu-
stöðvun á fimmtudag til að
mótmæla hugmyndum ríkis-
stjórnarinnar um að fækka
frídögum um einn í því skyni
að skera niður ríkisútgjöld.
► ÞÝZKIR hægrimenn hafa
gagnrýnt harkalega áform
jafnaðarmanna og græningja
um að breyta lögum um
þýzkan ríkisborgararétt
þannig, að milljónum útlend-
inga, sem búa í Þýzkalandi,
verði gert auðveldara að
eignast þýzkt ríkisfang.
► NORÐUR-írsku stjórn-
málamennirnir John Hume
og David Trimble deila frið-
arverðlaunum Nóbels í ár
fyrir þátt sinn í tilraunum til
að binda enda á 30 ára
vargöld á Norður-írlandi.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
KARL Sigurbjörnsson biskup flytur bæn við kistu Guðrúnar Katrínar. Forsetinn og dætur hans standa hjá.
„Hlýtt er þel alþjóðar
sem umvefur ykkur“
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, og dæturnar Svanhildur
Dalla og Guðrún Tinna ganga frá borði flugvélarinnar, sem flutti kistu
forsetafrúarinnar frá Seattle.
KISTA Guðrúnar Katrínar Þor-
bergsdóttur forsetafrúar kom til
landsins frá Seattle í Bandaríkjun-
um í gær. Forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og dætur hans,
Guðrún Tinna og Svanhildur Dalla,
fylgdu kistunni heim. Frá Keflavík-
urflugvelli, þar sem móttökuathöfn
fór fram, var kistan flutt í Bessa-
staðakirkju og fór þar fram stutt at-
höfn þar sem nánasta fjölskylda
Guðrúnar Katrínar kvaddi hana.
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
lést 12. október sl. á sjúkrahúsi í
Bandaríkjunum eftir erfið veikindi.
Hún fór til Bandaríkjanna 23. júní
sl. þar sem hún gekkst undir læknis-
meðferð, en hún náði ekki þeim bata
sem vonast var eftir.
Flugfélagið Cargolux flutti kistu
forsetafrúarinnar heim frá Seattle.
Flogið var frá Seattle með viðkomu í
San Fransisco. Flugferðin tók sam-
tals á tólfta klukkutíma.
Flugvél flugfélagsins lenti á
Keflavíkurflugvelli kl. 13.12. Stuttu
eftir að hún lenti byrjaði að snjóa. Á
flugvellinum biðu handhafar forseta-
valds, Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, Ólafur G. Einarsson, forseti
Alþingis, og Pétur Hafstein, forseti
Hæstaréttar, og makar þeirra. Þar
var einnig ríkisstjórn landsins, mak-
ar ráðherranna, Karl Sigurbjörns-
son, biskup Islands, embættismenn,
starfslið forsetans og nánustu ætt-
ingjar Guðrúnar Katrínar, þeirra á
meðal eldri dætur Guðrúnar Katrín-
ar, Erla og Þóra Þórarinsdætur,
systkini hennar og barnabörn.
Sorgarlög eftir
fslensk tónskáld
Átta lögreglumenn stóðu heið-
ursvörð þegar Ólafur Ragnar
Grímsson gekk frá borði ásamt
dætrum sínum. Þau heilsuðu hand-
höfum forsetavalds og öðrum sem
viðstaddir voru athöfnina. Að því
búnu gekk forsetinn til biskups ís-
lands og viðstaddir minntust hinnar
látnu með hálfrar mínútu þögn.
Átta lögreglumenn báru kistu
Guðrúnar Þorbergsdóttur frá borði.
Á meðan lék Lúðrasveit verkalýðs-
ins sorgarlög eftir íslensk tónskáld.
Þeirra á meðal var „Sorgarmars“
eftir Helga Helgason, en hann var
einnig leikinn er kista Jóns Sigurðs-
sonar kom til landsins. Marsinn var
fluttur í útsetningu Ellerts Karls-
sonar. Lúðrasveitin flutti „Heyr
himna smiður" eftir Þorkel Sigur-
björnsson og „Víst ertu Jesú kóngur
klár“, íslenskt þjóðlag/Páll ísólfs-
son, en bæði lögin voru útsett af
þessu tilefni af stjórnanda sveitar-
innar, Tryggva Baldvinssyni.
„Sál hennar fagnar nú“
Þegar kistan hafði verið borin frá
borði gekk Karl Sigurbjömsson
biskup að höfðagafli kistunnar og
mælti nokkur blessunarorð.
„Haustsvalinn umlykur ykkur, kæra
fjölskylda, en hlýtt er þel alþjóðar
sem umvefur ykkur, almenn samúð,
dýpsta virðing, kærleikur, fyrirbæn.
Velkomin heim,“ sagði biskup meðal
annars og flutti síðan bæn. „Guðrún
Katrín er nú komin heim. Líkami
hennar hvílir hér. Lát okkur með
sálarsjónum sjá að sál hennar fagn-
ar nú á blíðri strönd föðurlands vors
sem er á himni,“ sagði biskup meðal
annars í bænarorðum sínum.
Að orðum biskups loknum var
þjóðsöngurinn fluttur. Lögreglu-
menn báru síðan kistu Guðrúnar
Katrínar í líkbílinn. Frá flugvellin-
um var ekið að Bessastöðum þar
sem kista hinnar látnu var borin í
Bessastaðakirkju. í kirkjunni var
stutt athöfn þar sem nánasta fjöl-
skylda Guðrúnar Katrínar kvaddi
hana.
Útför Guðrúnar Katrínar verður
gerð frá Hallgrímskirkju næstkom-
andi miðvikudag. Forsætisráðherra
hefur ákveðið að fánar skuli dregnir
í hálfa stöng við opinberar stofnanir
á útfarardaginn.
FJÖLSKYLDA Guðrúnar Katrínar féllst í faðma á flugvellinum.