Morgunblaðið - 18.10.1998, Page 28
28 SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/RAX
RAGNAR og Birna dóttir hans, sem rekur fyrirtækið með honum, ræða málin í sýningarsalnum f Bólstrun Ragnars, Dalshrauni 6 í Hafnarfirði.
Tugþúsundir Islendinga
sofa í rúmum frá Ragnari
Hann er áttatíu og tveggja ára og iðar af
lífí og áhuga, vinnur hvern virkan dag í
fyrirtæki sínu, Bólstrun Ragnars Björns-
sonar í Hafnarfírði, þar sem nær 20
starfsmenn vinna, og er langumsvifamesta
fyrirtæki á Islandi í framleiðslu á rúmum
og hönnun springdýna. Mörg þúsund
Islendingar sofa í rúmum frá Ragnari
Björnssyni. Hann er búinn að vera í
bransanum í um það bil hálfa öld og mörg
undanfarin ár hefur fyrirtækið framleitt
2.000-3.000 rúm á ári og 7.000 springdýn-
ur. Hann hefur alla tíð lagt kapp á topp-
gæði, en heimssamtökin ISPA buðu
honum aðild á síðasta ári. ISPA stendur
fyrir gæðasamtök fyrirtækja sem sérhæfa
sig í framleiðslu og hönnun springdýna.
Árni Johnsen ræddi við Ragnar um fjaðrir
og festingar í lífshlaupi hans.
RAGNAR í símanum á fullri ferð að selja.
Ð SETJAST
helgan
stein er eitt-
hvað sem
Ragnar
Björnsson
, bólstrari í
lafnarfirði
hefur ekki haft tíma til að hugsa
um. Hvem dag gengur hann til
verka í verksmiðju sinni. Það er
sama hvenær maður lítur inn,
alltaf er Ragnar á vaktinni, að
sinna viðskiptavinum á staðnum
eða í símanum, en Birna dóttir
hans stjórnar rekstrinum við hlið
hans og afbragðsgott starfsfólk
fyrirtækisins vinnur sem ein hönd
við verkefni dagsins. í tilefni af 70
ára afmæli Meistarafélags bólstr-
ara héldu þeir viðamikla sýningu í
Perlunni í haust, sýningu sem bar
fagurt vitni vönduðu og fallegu
handbragði íslenskra bólstrara.
Þama var kjaminn úr liði íslenskra
bólstrara, en Ragnar Bjömsson
átti stærsta básinn, enda mikilvirk-
ur og reyndur í faginu.
„Að lifa tímabilið frá
klifberanum til þotunnar"
„Því miður,“ sagði Ragnar, „em
ekki nema á milli 20 og 30 bólstrar-
ar í landinu, það hefur engin end-
urnýjun átt sér stað í 20 ár. Frá því
að ísland gerðist aðili að EFTA