Morgunblaðið - 18.10.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1998 57
t
Góð myndbönd
Stikkfrí ~krkH.'i
Hér tekst það vandasama verk að
búa til kvikmynd sem höfðar til
bama og fullorðinna. Myndin er
fersk og skemmtileg, auk þess sem
hún tekur á áhugaverðu málefni,
þ.e. hinu algenga fráviki frá
kjarnafjölskyldunni sem finna má í
íslensku samfélagi.
Litla Hafmeyjan kkk
Litla hafmeyjan vakti teiknimynd-
ina af löngum dvala þegar hún
kom út árið 1989, af þeirri einföldu
ástæðu að hún er stórkostlegt
ævnitýri fyrir alla fjölskylduna
sem yngstu meðlimirnir fá ekki
nóg af.
Thirdspace,
Þriðji geimur kkk
Góð blanda af hryllingi H.P.
Lovecraft og geimvísindaskáld-
sögu, hröð atburðarás og mikið um
tækibrellur ættu að sefa þorsta
áhugamanna um vísindaskáldsög-
ur.
Wedding Singer,
Brúðkaupssöngvarinn kkV.í
Léttvæg rómantísk gamanmynd,
sem er stundum of sykursæt.
Sandler er ekki sannfærandi í
hlutverki sínu en allir aðrir standa
sig vel.
Hard Rain,
Hellidemba kkk
Hriplek en mjög flott mynd sem
byrjar í 5 gír og hægir aldrei ferð-
ina.
XXL,
Af stærstu gerð kk'h
Byi-jar brösuglega en tekst síðan á
flug með stórskenmtilegum sam-
leik aðalleikaranna.
Ogre,
Vomurinn lh
Prábær mynd um hvernig hug-
myndafræði nasismans er hafin til
skýjanna í augum einfeldings, sem
vill vernda börn en er í raun að
senda þau út í dauðann.
Dark City,
Myrkraborgin 'h
Stórglæsileg vísindaskáldsaga sem
gerist í borg þar sem minningar
em fáar og nóttin er það eina sem
fólk þekkir.
DJÚPIÐ
Notalegur veislusalur
fyrir 15-30 manna hópa.
Upplýsingar í símum
551 3340 og 892 8060.
HORNIÐ/DJÚPIÐ
Hafnarstræti 15
FOLK I FRETTUM
Jordan sigrar líka
í réttarsalnum
►ÞAÐ VIRÐIST sama hveiju Michael Jordan
kemur nálægt - hann ber alltaf sigur úr býtum.
Engu skiptir hvort það er á körfúboltavellin-
um eða í réttarsalnum, eins og kom í ljós í
vikunni.
Kviðdómur sýknaði hann á fimmtudag
af því að hafa brotið samninga og spillt
draumum kvikmyndagerðarmanna um að
gera körfuboltamynd. Höfðu menn velt því
upp fyrir réttarhöldin hvaða kviðdómur í
Chicago myndi svo sem sakfella kapp-
ann. Var talað um að þetta væri eins
og að „lögsækja Guð í himna-
ríki“.
Það var kvikmyndafýrir-
tækið Heavens Corp sem
lögsótti körfuboltaguðinn
og krafðist 1,5 milljarða í
skaðabætur á þeim for-
senduin að hann hefði
heitið því að leika
aðalhlutverk í
myndinni „Himna-
ríki er leikvöllur“.
Jordan neitaði því
og sagði að báðir
aðilar hefðu kom-
ist að samkomu-
lagi um að fresta
gerð myndarinn-
ar.
MYNDBÖND
Töfrandi ofurefni
Flubber____________________
Fjölskyldu-/gaman-
IIIVII (1
★ ★Vi2
Framleiðsla: John Hughes og Ric-
hardo Mester. Leikstjórn: Les Mayfi-
eld. Handrit: John Hughes og Bill
Walsh. Kvikmyndataka: Dean
Cundey. Tónlist: Danny Elfman. Að-
alhlutverk: Robin Williams og Marcia
Gay Harden. 90 mín. Bandarísk.
Sam-myndbönd, október 1998.
Öllum leyfð.
„FLUBBER" er kunnugleg saga
um sérvitran vísindamann sem ger-
ir ótrúlega uppgvötvun sem hefur
ótrúlegar afleiðingar. Helsti galli
myndarinnar er um leið ákveðinn
kostur. Sagan sver sig fullkomlega í
ætt sína og víkur hvergi frá stífmót-
aðri, og gi-einilega hálf-úreltri, for-
múlu hliðstæðra
ævintýramynda
Disney-risans frá
fyrri áratugum.
Hér er fátt sem
kemur miðaldra
þrjúbíóförum að
nokkru leyti á
óvart, þótt tæknin
hafi tekið ótal
langstökk frá
gullöld Gamla bíós. En þótt frá-
sagnarformið sé gamaldags er það
sígilt að vissu marki. Myndin ætti
því að höfða ágætlega til yngri
áhorfenda en getur virkað sem
dýrðaróður til horfinna tíma íyrir
foreldrana. Þótt „Flubber" marki
varla spor í kvikmyndasögunni, ætti
myndin að vera hin ágætasta fjöl-
skylduskemmtun.
Guðmundur Ásgeirsson
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980.
MISSTU EKKI A F EINSTÖKU TÆKIFÆRI!!!
GRUNNNAMSKEIÐ I VOGA
orka - jafnvægi - árangur
Pétur Valgeirsson er
reyndur yogakennari
og er nýlega kominn
frá einni þekktustu
yogastöð
Bandaríkjanna, þar
sem hann kenndi
undirstöðuatriði í
Hatha Yoga o.fl.
Planet Pulse býður nú grunnnámskeið í yoga
hjá einum hæfasta yogakennara á fslandi,
Pétri Valgeirssyni
Námskeiðið er haldið í fallegu og róandi
umhverfi Planet Pulse á Hótel Esju og er
öllum opið.
Námsefnið er eftirfarandi:
• Grunnstöður í Hatha yoga
• Öndunaræfingar
• Slökun
• Hugleiðsia
• Hugmyndafræði
o.fl.
Kennt er tvisvar í viku, 90 mínútur í senn í fjórar vikur.
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFJAST 15. OKT. OG 22. OKT.
Einnig bjóðum við kennslumyndbönd í yoga
UPPLÝSINGAR OG
INNRITUN í SÍMA 588 1700
Örvaðu samskiptin
með náttúrulegum fjörefnum
G er Síberu ginseng sem viðheldur
þreki og eykur úthald.
P er pollen, blómafrjókorn full af
kjarngóðum næringarefnum.
E er e-vítamín sem eykur frumöndun,
eflir bandvefs- og vöðvamyndun,
stuðlar að heilbrigðri starfsemi
heiladinguls og kynfæra.
Royal Jelly drottningarhunangið
sérframleitt af býflugunni til að
auka orku og frjósemi.
G-P-E
Éh
Eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu, Akureyri
I