Morgunblaðið - 29.10.1998, Page 12

Morgunblaðið - 29.10.1998, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mikið ber í milli meinatækna og Ríkisspítala og deilan er sögð á byrjunarreit Nauðsynlegum rannsóknum aðeins sinnt að litlu leyti ____Mikið ber í milli í viðræðum_ meinatæknanna 47, sem sagt hafa upp ____starfi á Landspítalanum frá__ mánaðamótum, og viðræðunefndar starfsmannahalds sjúkrahússins. Talsmaður meinatækna sagði að loknum fundi í gær að deilan væri komin á byrjunarreit. Samanburður á launum meinatækna og hjúkrunarfræðinga frá 1976-1998 miðað er við byrjunarlaun í fyrsta launaþrepi Ath.: tölur fyrir 1976 eru gamlar krónur Mismunur Hjúkrunarfr. Meinatæknar kr. % 1976 B10 84.026 B12 84.026 5.884 +7,00% 1985 134 23.435 62 23.435 -1.345 -6,09% 1998 A2 106.632 A1 106.632 -7.727 -7,81% Breyting 1976-1998 -14,81% Deildar- hjúkrunarfr. Deildar- meinatæknar Mismunur kr. % 1976 B14 95.798 B14 95.798 0 0,00% 1985 136 24.862 65 24.138 -724 -3,00% 1998 B1 129.404 A5 111.416 -17.988 -16,15% Heimild: Meinatæknar á blóð- og meinaefnafræðideild Landspítalans Breyting 1976-1998 -16,15% MIKILL vandi blasir við í rekstri Landspítalans komi uppsagnir meina- tækna til framkvæmda um næstu mánaðamót. Neyðaráætlun gerir ráð fyrir að einungis verði unnt að sinna 15-20% af algengustu rann- sóknum, sem þarf til að með- höndla bráðaveikindi, að sögn Jóns Jóhannesar Jónssonar, for- stöðulæknis meinefnafræðideildar sjúkrahússins. Jón Jóhannes segir að nú sé búið að setja upp neyðaráætlun sem miðast við að uppsagnimar taki gildi um mánaðamót. „Við munum í raun ekki geta sinnt nema litlum hluta af þeim verkefnum, sem við sinnum að jafnaði,“ sagði hann. Jón Jóhannes segir að áætlunin miðist við að halda uppi þeirri starfsemi sem hægt verður með þeim 13 meinatæknum sem eftir verða í starfí á blóðefna- og meinefna- fræðideild. „Annars vegar skerum við mjög mikið niður þær tegundir rannsókna, sem við getum boðið upp á. Við munum ekki geta gert nema einföldustu og algengustu rannsóknir og þær rannsóknir sem mest tengjast meðferð á bráða- veiku fólki,“ sagði hann. Hann sagði þetta þó ekki nóg því líka yrði að draga verulega úr fjölda bráðarannsókna. Spilaborgin hrynur eftir fáeina daga „Við metum það svo að við get- um með góðu móti sinnt 15-20% af þessum algengu rannsóknum, sem þarf að gera til að meðhöndla bráðaveikt fólk,“ segir Jón Jóhann- es. Þrátt fyrir að niðurskurðm- þjón- ustunnar sé þetta mikill strax og neyðaráætlun kemur til fram- kvæmda, segir Jón Jóhannes að ástandið muni enn versna að fáein- um dögum liðnum. Rannsóknastof- ur í blóðefna- og meinefnafræði eru opnar allan sólarhringinn, alla daga ársins. Frá því að neyðará- ætlunin tekur gildi verður mjög mikið álag á það starfsfólk sem eft- ir verður. „Við verðum með fátt fólk, sem vinnur vaktavinnu. Eftir fáeina daga hrynur spilaborgin. Þetta er ástand sem getur ekki varað lengi,“ segir hann. Starf meinatæknanna, sem eru að hætta, felst einkum í rannsókn- um, sem eru nauðsynlegar við meðferð sjúklinga á legudeildum, göngudeildum og bráðamóttöku Landsspítalans. Jón Jóhannes var spurður hvaða áhrif samdráttur á rannsóknarstofunum mundi hafa á starfsemi annarra deilda spítalans og innlagnir sjúklinga. Hann segir erfitt að sjá fyrir hvernig sjúkrahúsið muni geta tek- ið við þeim sjúklingum, sem það tekur við að jafnaði, miðað við þá miklu skerðingu sem verður á rannsóknaþjónustu gangi meina- tæknarnir út. Stærsta og sérhæfðasta sjúkrahús landsins „Að hluta er hægt að bregðast við með varkárni í því hvaða rannsóknir eru gerðar en það er erfítt að sjá hvemig það geng- ur upp,“ segir hann. „Þegar svona vandi kemur upp á Landspítal- anum verður heilbrigðiskerfíð í heild sinni að bregðast við. Þetta er stærsta og sérhæfðasta sjúkrahús landsins." Hann sagði að forstöðumenn rannsóknastofanna litu svo á þeir ættu mestum skyldum að gegna við þá sjúklinga, sem þegar liggja á Landspítalanum. Því teldu þeir eðlilegast að reynt yrði fyrst og fremst að sinna þeirri starfsemi sem ekki er stunduð annars staðar en á Landspítalanum. Mikið ber í milli Jón Jóhannes er ekki beinn aðili að samningaviðræðum meina- tækna og starfsmannahalds spítal- ans en hefur komið að viðræðun- um. Hann segir það sitt mat að mikið beri í milli deiluaðilanna. í sama streng tók Guðlaug Björns- dóttir, starfsmannastjóri Ríkisspít- ala, fyrir fund deiluaðilanna í gær. Guðlaug sagði að í þessum við- ræðum steytti á launakröfum meinatækna. „Það er búið að koma að vissu leyti til móts við meina- tækna en þetta er spurning um krónur og aura,“ sagði hún. Meina- tæknar telja sig hafa dregist mjög aftur úr í samanburði við kjör hjúkrunarfræðinga á undanförnum árum, eins og fram kemur í skýr- ingarmynd hér til hliðar en Guð- laug sagðist ekki telja að deilan snerist um slíkan samanburð. „Ef það hefur orðið eitthvert misvægi milh launa við kjarasamninga, sækja menn það væntanlega við það borð þar sem menn hafa tapað því. En þessir hópar eru á mjög svipuðu róli í dag, miðað við það sem við er- um að bjóða.“ Meinatæknar hafa lýst óánægju með það hvernig starfsmannaskrif- stofa Ríkisspítalanna hefur kosið að túlka úrskurð aðlögunarnefndar á grundvelli kjarasamninga en Guðlaug kvaðst ekki vilja tjá sig um þá óánægju og ítrekaði að hún teldi þessa deilu ekki snúast um annað en hreinar og klárar launa- hækkanir. Hún sagði að kröfur meinatækna jafngiltu verulegum launahækkunum, en vildi ekki fara nánar í saumana á þeim. „Við vilj- um helst leysa þetta innanhúss en ekki í fjölmiðlum,“ sagði hún. Hún sagði hins vegar ljóst að það hefði mjög mikil áhrif á starf- semi sjúkrahússins ef uppsagnim- ar kæmu til framkvæmda því starf meinatæknanna, sem sagt hafa upp, felst í því að vinna ýmsar rannsóknir, sem að gagni koma við meðferð þeirra sjúklinga, sem liggja á öðrum deildum sjúkra- hússins. „Auðvitað eru meinatæknar í þannig störfum að læknar eru í mörgum tilfellum illa staddir án meinatækna, þannig að meina- tæknar era í mjög sterkri aðtöðu til að skaða starfsemina. Þetta hef- ur áhrif á störf lækna mjög víða á spítalanum. Þarna eru sýni rann- sökuð, og á grandvelli niðurstöð- unnar er bragðist við um meðferð- ir,“ sagði hún en vísaði að öðra leyti á forstöðu- lækna rannsóknarstof- anna. Eins og fram hefur komið snýst deilan um kjör meinatækna á blóð- efna- og meinefnafræðideild Landsspítalans en meinatæknar era víðar í störfum hjá sjúkrahús- inu. Alls starfa þar um 140 meina- tæknar í um 110 stöðugildum. Auk rannsóknastofunnar í blóðefna- og meinafræðum starf'a meinatæknar til dæmis við rannsóknastofur í sýklafræði og veirafræði. Guðlaug sagði að ekki væri hægt að draga úr áfallinu með því að láta meina- tækna á öðrum deildum vinna þeir rannsóknir sem sinnt hefur verið á blóð- og meinefnafræðideild. „Þetta fólk er með sérþekkingu og gengur ekki auðveldlega milli starfa, auk þess sem fólk á öðram rannsóknastofum er störfum hlað- ið,“ sagði Guðlaug. Deilan á byrjunarreit Meinatæknarnir og viðsemjend- ur þeirra hittust á fundi í gær og að honum loknum sagði Anna Svanhildur Sigurðardóttir, tals- maður meinatæknanna, að staðan í deilunni væri á byrjunarreit. Hún sagði að fulltrúar starfs- mannaskrifstofu Ríkisspítalanna segðust ekki hafa umboð til að bjóða meira en þegar væri á borð- inu. Hún sagði að fulltrúar fjár- mála- og heilbrigðisráðuneytis hefðu ekkert komið að samninga- borðinu, enn sem komið væri, og að um þessar mundir mótaðist starfið á blóð- og meinefnafræðideild af því að verið væri að undirbúa gild- istöku neyðaráætlunar um mán- aðamótin. Byrjunarlaun meinatækna, sem ljúka B.Sc.-prófí, að loknu um 3 ára námi á háskólastigi, era nú 98.905 krónur. Anna Svanhildur sagði að deild- armeinatæknir kæmist varla ofar í launaskalanum en í 135 þúsund krónur. Meinatæknarnir 47, sem sagt hafa upp, eru eingöngu konur. „Þetta er kvennastétt og hún er launuð í samræmi við það,“ sagði Anna Svanhildur. Meinatæknar hafa borið laun sín saman við laun hjúkrunarfræðinga og era ósáttar með þróun mála í þeim samanburði síðustu ár, en gerð er grein fyrir tölum um þann samanburð annars staðar á síðunni. Anna Svanhildur sagði að mikill munur væri á þeim launum sem sjúkrahúsin greiða meinatæknum og því sem í boði er á almennum vinnumarkaði, þar sem ekki er boðið minna en 200 þúsund krónur fyrir þessi störf. Hún sagði að mannekla væri þegar á rannsókna- stofum spítalanna en fullreynt virt- ist að ekki þýddi að auglýsa störf meinatækna þar laus til umsókna vegna launanna, auk þess sem mik- ið vinnuálag er á deildinni. Eru opnir fyrir ýmsum möguleikum Anna Svanhildur segir að meina- tæknar á blóð- og meinefnafræði- deild hefðu ekki metið kröfur sínar í viðræðum við Ríkisspítalana til ákveðinna prósenta. „Við eram opnir fyrir ýmsum möguleikum og við erum opnar fyrir þeim tillögum sem koma fram,“ sagði hún. Samkvæmt þeim kjarasamningi, sem meinatæknar gerðu um kjör sín á síðasta ári, skyldi gera aðlög- unarnefndarsamning um fram- kvæmd kjarasamningsins. Samningar náðust ekki í aðlögun- amefnd og féll úrskurður í júlí sl. með atkvæðum vinnuveitenda og oddamanns. Sá samningm- kom til framkvæmda 1. september og hafa meinatæknar lýst óánægju með túlkun starfsmannaskrifstofu á þeim samningi en samkvæmt þeim hafi 80% meinatækna verið flokkuð í svokallaðan A-ramma, sem þýðir að störf þeirra era skilgi-eind þannig að þau séu unnin á annarra ábyrgð. Eng- inn meinatæknir er flokkaður í C-ramma fyr- ir ábyrgðarmestu störfín. Meinatæknar hafa jafn- framt þrýst á um að fram fari starfsmat, þar sem álag og ábyrgð verði metin til launa. Anna Svanhildur hefur sagst telja að innan ramma aðlögunar- nefndarúrskurðarins ætti að vera svigrúm til að koma til móts við kröfur meinatækna. Samninga- menn Ríkisspítala hafa kynnt meinatæknum hugmyndir um starfsmat að danskri fyrirmynd en talið er að það muni taka mánuði að hrinda því í framkvæmd. Meinatæknar telja því að líta eigi á það sem framlag til næstu kjara- samningaviðræðna en að það sé ekki til þess fallið að leysa þessa deilu. Aðeins fáir starfsmenn munu vinna vaktavinnu Engar um- sóknir um störf vegna lágra iauna Þörf á að- stöðu til að geyma tölvugögn HINN 15. september 1997 skipaði menntamálaráðherra nefnd um varðveislu tölvugagna sem verða til í stjórnsýslunni. Nefndin hafði það hlutverk að gera tillögur að reglum um skil tölvugagna til þjóðskjala- safns eða héraðsskjalasafna, reglum um varðveislu tölvugagna hjá upp- hafsaðila, geymslufoiTn gagna, skila- tíma, varðveisluskilyrði og hvernig búa skuli geymsluhúsnæði í Þjóð- skjalasafni. Þá var nefndinni gert að gera áætlun um kostnað við að koma upp í Þjóðskjalasafni nauðsynlegri aðstöðu til geymslu tölvugagna. Nefndin lauk starfí sínu 15. júlí sl. og skilaði skýrslu til menntamálaráð- herra. I niðurstöðum nefndarinnar segir m.a. að flest bendi til þess að stjómsýslan færist í átt til aukinnar pappírslausrar starfsemi og því sé biýnt að koma upp í Þjóðskjalasafni aðstöðu til varðveislu tölvugagna. Nefndin fjallar einnig um þörfina á því að tölvugögn verði gerð jafnrétt- há pappírsgögnum að lögum og telur slíkt forsendu þess að tækniframfarir á sviði rafrænnar skjalavörslu og skjalavinnslu nái fram að ganga. Skipaður hefur verið viðræðuhóp- ur menntamálaráðuneytisins og Þjóðskjalasafns til að vinna áfram að málinu á grundvelli tillagna nefndarinnar. Pétur Ásgeirsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti, var formaður nefndarinnar. Auk hans sátu í nefndinni Bjarni Þórðarson, fjár- málastjóri í Þjóðskjalasafni, Krist- jana Kristinsdóttir, forstöðumaður skjalavörslusviðs Þjóðskjalasafns, Þóra Gylfadóttir, bókasafnsfræðing- ur hjá Hagstofu Islands, Jóhann Gunnarsson, deildarstjóri í Hag- sýslu ríkisins, og Svanhildur Boga- dóttir, borgarskjalavörður. Skýrslu nefndarinnar er að fínna á heimasíðu menntamálaráðuneytis- ins. Vefslóðin er www.mm.stjr.is. --------------------- Athugasemd vegna skrifa um SUS og lög- leiðingu fíkniefna Vinnubrögðum DV harðlega mótmælt MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beðið að birta eftirfarandi athuga- semd: A síðustu dögum hafa DV og Fókus gefið í skyn að Samband ungra sjálfstæðismanna hafi á dög- unum samþykkt ályktun þess efnis að neysla fíkniefna skuli lögleyfð hér á landi. Var það fyrst gert í Fókus sem birtist föstudaginn 23. okt. sl. og síðan fylgt eftir með al- varlegum rangfærslum í Dagfara mánudaginn 26. okt. Undirrituð vilja taka það skýrt fram að í ályktun þeirri sem SUS samþykkti á umræddu málefnaþingi um frelsi einstaklingsins, er hvergi að finna hvatningu í þá átt að fíkni- efni verði lögleidd hér á landi. Það sem meira er, ekki er minnst einu orði á „fíkniefni" eða „eiturlyf" í um- ræddri ályktun. Blaðamanni DV var gerð grein fyrir því áður en greinin birtist en engu að síður var látið að því liggja að svo væri í inngangi um- ræddrar greinar sem birtist í Fókus. Slík vinnubrögð eru ámælisverð. Undirrituð harma að Samband ungi-a sjálfstæðismanna hafi verið dregið inn í þessa umfjöllun með framangreindum hætti. Ásdís Halla Bragadóttir, formað- ur SUS. Jónas Þór Guðmundsson, 1. varaformaður SUS. Sigurður Kári Kristjánsson, for- maður málefnanefndar SUS um Freisi einstaklinganna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.