Morgunblaðið - 29.10.1998, Qupperneq 44
*44 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Endalok sögunnar
eða hvað?
FYRIR nokkrum árum
gaf bandarískur fræði-
maður út bók sem fjall-
ar um, að með endalok-
um kalda stríðsins sé
ekki aðeins ákveðnu
tímabili lokið í sögu eft-
irstríðsáranna, heldur
endalok hugmynda-
fræðilegrar þróunar
mannkynsins - alþjóða-
væðing frjálslynds lýð-
ræðis vestrænna ríkja
sem endanlegt stjórn-
arform ríkja heims.
Þessi framtíðarsýn
minnir á stefnuræðu
forsætisráðherrans, um
hættuna af sameigin-
legu vinstra framboði, á
að vikið verði af beinni braut ríkis-
stjórnarinnar. Þessi spádómur er
þröngsýnn líkt og stefnuræðan sem
og aðrar ræður ráðherra, sérstak-
lega dóms- og kirkjumálaráðherra,
sem af fremsta megni, með höndum
og heila, reyndi að sannfæra þjóðina
um hversu óábyrgt og gamaldags
#æri að hafa hugsjónir um jafnrétti,
frelsi og bræðralag. Þar vitnar hann
til gamalla tíma, þegar skilningur
manna á hugtökunum var skekktur
og ytri aðstæður allt aðrar, hvort
sem litið er til innan- eða utanríkis-
mála. Tilraunir ríkisstjórnarinnar til
að útbía framboðið segir meira um
eðli og innræti ríkisstjórnarinnar en
nokkurn tímann um framboðið eða
„bræðinginn“ eins og
forsætisráðherrann
kallar það í niðrandi til-
gangi.
Flestir skilja, að þeg-
ar byggja á hús er
nauðsynlegt að hafa
teikningu, annars verð-
ur húsið bjagað og
hrynur jafnvel til
grunna þegar minnst
varir. Með skýrri teikn-
ingu er hægt að forðast
slíkan ófögnuð og fá yf-
irsýn yfir verkið. Þetta
þýðir ekki að hægt sé
að byrja á miðju verki
eða á öfugum enda.
Þótt kalda stríðinu sé
lokið er það ekki sönn-
un þess að frjálst markaðskerfí hafi
sigrað heiminn, að halda slíku fram
er skortur á framsýni og tilfinningu
fyrir sögulegu samhengi ef sagan
hefur þá verið lesin. Hvernig er
hægt að sigra eitthvað sem aldrei
hefur verið til? Skynsamt fólk sér,
að raunverulegur kommúnismi hef-
ur aldrei verið til. Frjálst markaðs-
kerfi er aðeins tímabundið ástand;
undanfari einhvers sem koma skal.
Það vita þeir sem hafa framtíðarsýn
eða einhvers konar „uppdrátt" að
heildarskipulagi lífsins. Kommún-
isminn er nefnilega ekki uppfinning
mannanna, heldur liggur það í eðli
lífsins að þróast frá lægra til æðra
stigs. Fyrirmynd okkar, náttúran,
Látum ekki telja okkur
trú um að það sé
barnalegt og væmið,
segir Bjarndís Arnar-
dóttir, að eiga sér hug-
sjónir um lýðræðis-
legra samfélag.
sýnir t.d. á ljóslifandi hátt að sólin
skín ekki aðeins á ríka eða forrétt-
indastéttir, heldur á alla menn; ríka,
fátæka, öryrkja, gamalmenni, konur
og karla. Sólin er eins og óskekktur
kommúnismi sem skín jafnt á allt
sem lifir.
Kommúnismi hefur fengið slæma
útreið í gegnum tíðina. Þeir sem að-
hyllast markaðshyggjuna blint láta
blekkjast og halda, að skilningurinn
á hugtakinu og sá neikvæði blær
sem loðir við það sé sönnun þess að
kommúnisminn sé dauður. I þessari
blekkingu lifa æðstu ráðamenn þjóð-
arinnar og reyna að hrífa almenning
með sér. Þeir birtast í fjölmiðlum
líkt og refir í slitinni gæru, og for-
sætisráðherranum hefur ekki tekist
að leyna hrokanum og fyrirlitningu
sinni á öðru fólki þegar stöðu hans
og valdi er ógnað af öðrum skoðun-
um en hans. Hann skilur ekki að
Bjarndís
Arnardóttir
gildi hans sem manns er nákvæm-
lega sama og gildi hans sem með-
bróður. Hugsandi fólk, hefur áttað
sig á smæð sinni í óendanlegum al-
heimi, og skilur, að ósanngjarnt er
að álása barni fyrir að vera ekki full-
orðið. Að þessu leyti hagar forsætis-
ráðherrann sér eins og barn sem
skilur ekki enn þetta grundvallar-
stærðfræðidæmi lífsins. Slík lífsaf-
staða er ekkert óvenjuleg; margir
halda sig meiri og merkilegri en
annað fólk af ýmsum ástæðum. Slík-
h- einstaklingar láta blekkjast því
líkur sækir líkan heim. En hugsandi
fólk sér í gegnum sjónhverfingar og
skilur þörfina á nýrri skilgreiningu á
raunsæi - ólíkri fornri skilgreiningu
ríkisstjórnarinnar, um að raunsæi
felist í að vera jarðbundinn, gleði-
snauður og vísindalegur efnis-
hyggjumaður, án fagurra hugsjóna
um mannlegri heim. Þvert á skilning
ríkisstjórnarinnai- er aldrei mikil-
vægara, en einmitt nú, að hafa hug-
sjónir eða skýra framtíðarstefnu
sem miðar að „samvinnu" við nátt-
úrulögmálin; að frelsi, jafnrétti og
bræðralag verði lifandi staðreynd.
Það tekur tíma, en mikilvægt er að
skilgreina hvað mannlegir eiginleik-
ar eru og hvað ekki, hvað ber að
rækta og hverju ber að eyða til að
treysta hinn samfélagslega grunn.
Ríkisstjórnir með hugarfar
hrokans, flokksræði og foringja-
dýrkun eru á undanhaldi í siðmennt-
uðum vestrænum heimi því þær
hindra framgöngu lýðræðisins og
henta aðeins fólki sem nennir ekki
að hugsa. Bak við hrokann kraumar
sú skoðun, að almenningur sé
heimskur og fáfróður um tilveruna,
að honum sé ekki treystandi til að
lifa í of lýðræðislegu samfélagi þai'
sem málin eru rædd á opnum vett-
vangi, skoðuð frá öllum hliðum af
sem flestum þjóðfélagsþegnum sem
komnir eru til vits og ára. Þótt slík
skoðun hafi verið staðreynd í den,
mun hún úreldast hratt á 21. öldinni.
Nýjar kynslóðir koma sem gera
kröfur um lýðræðislegra samfélag -
samfélag sem byggist á andstæðu
hrokans - samfélag sem örvar skap-
andi og sjálfstæða hugsun - samfé-
lag sem lætur almenning finna fyrir
mikilvægi sínu varðandi uppbygg-
ingu og sköpun samfélagsins - sam-
félag sem virðir sveigjanlega og
frjálsa hugsun sem tekur mið af að-
stæðum og nýjum áhrifum hverju
sinni - samfélag sem skilur að tími
steingerðra skilgreininga er að fjara
út - samfélag sem þjónar - samfélag
sem elskar manninn.
Tíminn vinnur með þeim sem hafa
mannleg gildi í framtíðarsýn sinni -
á móti þeim sem lifa i fornu fari.
Þeir sem hafa ekki frelsi, jafnrétti
og bræðralag á dagskrá og halda
það drauga fortíðar, eru eins og
smiðir án teikninga og vita ekki
hvert þeir stefna þótt þeir haldi sig
um skeið vera á beinni braut. Fyrir
slíkri byggingu fer eins og fyrir
byggingu sem reist er á sandi. Rík-
isstjórn sem telur framtíðina felast í
stríðsbandalögum, efnishyggju og
einræðistilburðum er dæmd til þess
að víkja fyrir bjartari öflum, fyrr
eða síðar, vegna ótraustrar undir-
stöðu. Lýðræðissinnar!!! Gatan okk-
ar er breið!!! Verum glöð, höldum
áfram að beina stefnunni í átt til sól-
ar, en látum ekki vaða yfir okkur á
skítugum skónum. Látum ekki telja
okkur trú um að það sé barnalegt og
væmið að eiga sér hugsjónir um lýð-
ræðislegi-a samfélag. Stöndum á
rétti okkar og breytum honum í
vald.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
SVELLANDI KRAFTUR
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5 • Akureyri
Simi 462 2700
Bílasala Keflavlkur
Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ
Sími 421 4444
Blley
Búðareyri 33 • Reyðarfirði
Sími 474 1453
Betri bílasalan
Hrísmýri 2a • Selfossi
Sími 482 3100
Tvisturinn
Faxastíg 36 • Veftmannaeyjum
Sími 481 3141
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sfmi 515 7010
Volvo V70 Cross Country er sniðinn fyrir íslenskan
vetrarakstur. Fullkominn aldrifsbúnaður, mikill tog-
kraftur á lágum snúningi, fjölliðaöxull með fullri
driflæsingu, háþróuð spólvörn, læsivarðir hemlar,
sjálfvirk hleðslujöfnun, mikil veghæð og góð þyngdar-
dreifing, gera allan vetrarakstur öruggari og ánægjulegri.
Aflið, bæði frá vél og hemlum, dreifist sjálfkrafa á milli
allra hjólanna, í samræmi við breytilegar aðstæður,
þannig að besta mögulegt veggrip er ávallt tryggt. Hafi
hjólin á annarri hhð bílsins betra grip, leitar meira afl
þangað og eitt hjól getur verið ráðandi þegar tekið er
af stað. Ahrifin eru einstakir aksturseiginleikar Volvo
V70 Cross Country við erfiðar aðstæður, hvort sem er
á leyndum hálkublettum eða í þungri færð á fjallvegum.
aldrifinn o g albúinn
VOLVO V70 XC AWD
CROSS COUNTRY
Upplifðu hann f reynsluakstri