Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 40

Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Einkavætt siðferði ,Það er ekkert til sem heitir samfélag; aðeins einstaklingar og Jjölskyldur þeirra. “ Margaret Thatcher Einn frægasti við- mælandi Sókratesar var Þrasímakkos, sem hélt því fram að réttlæti væri ein- faldlega það sem kæmi sér best fyrir þá sem meira mega sín. Andstætt þessari skoðun hélt Sókrates því fram að valdhafar ættu að stjórna með hag samfé- lagsins alls að leiðarljósi. Þessi skoðanaskipti áttu sér stað í Aþenu fyrh- um það bil 2.500 ár- um og er að fínna í samræðunni Ríkið eftir Platón. Deilan stend- ur enn. Þótt manni virðist viðhorf VIÐHORF Þrasímakkosar _____ alveg fraleitt við fyrstu sýn fer ekki hjá því að maður lau- mist til að hugsa sem svo, að hann hafí einfaldlega verið raunsær. Sókrates hafí verið skýjaglópur. Það hefur löngum verið vandkvæðum bundið að fá nokkurt vit í viðhorf Sókratesar og skoðun Þrasímakkosar því oft orðið ofan á á einhverskonar „svona er nú bara mannlegt eðli“-forsendum. Menn hafa gert ótal tilraunir til að komast undan því að samþykkja með þessum hætti nauðugir viljugir viðhorf Þrasímakkosar, og það hefur því í tímans rás orðið einna líkast siðferðislegri áskor- Eftir Kristján G.Arngrímsson Ein nýjasta tilraunin til að verða við þessari áskorun er fólgin í því að ætla markaðslög- málunum að ráða því hvað má og hvað má ekki. Hið „rétta“ svar við spurningum um hvað manni beri að gera er þá ein- faldlega það hvaða gildimaður getur „selt“ og þeir sem eru lunknastir í markaðssetningu fá sín gildi samþykkt sem „rétt“. (En á markaði hugsar hver og einn um sinn hag - en ekki allra - og því líkist þetta reynd- ar strax grunsamlega mikið við- horfí Þrasímakkosar.) En ástæða þess að orð Þra- símakkosar verða ofan á, frem- ur en orð Sókratesar, er þó kannski oftast sú að það verður ekki séð hvernig hægt er að ræða um „hag heildarinnar" nema byrja að nefna einhvers- konar sósíalisma - og það má síst af öllu nú á dögum. Einnig gæti virst sem „heildarhags- munir“ sé í rauninni ekkert annað en fagurgali sem hylji raunverulega valdbeitingu ráða- manna sem hafi ætíð eigin hagsmuni og lífsgildi að leiðar- ljósi. Þá sé betra að nefna hlut- ina sínum réttu nöfnum. Þessir erfíðleikar við að fá botn í heildarhagsmuni hafa oft orðið til þess að hugmyndinni er algerlega hafnað, eins og Marg- aret Thatcher gerði, og liggur í orðum hennar sem vitnað er til hér að framan. En það er mis- skilningur að álykta sem svo, að ef „heildarhagsmunir" séu orðin tóm, þá hljóti bara „einkahags- rnunir" að vera eftir sem ein- hverskonar óumflýjanlegur raunveruleiki og tilgangslaust sé að ræða málin frekar. Hinn vestræni heimur hefur verið meira og minna á hvolfí undanfaima mánuði vegna framhjáhalds og meintrar ósannsögli Bandaríkjaforseta. Astæða þess að þetta mál hefur notið þeirrar athygli sem raun ber vitni er auðvitað að hluta til sú, að nú hefur sómakæru fólki gefíst kostur á að velta sér upp úr svolitlum siðleysisflór undir yfirskini réttlætisástar. En önn- ur og veigameiri ástæða er sú að málið hefur dregið fram í dagsljósið spurningar sem varða siðferðisleg mál og allir þurfa að fást við i sínu eigin lífi. Eitt af því sem kemur í ljós er að það er alls ekki á hreinu hvernig best er að fara að því að leita svara við þessum spurningum - því síður blasir við hver svörin eru. Hvernig má leita svara við siðferðislegum spurningum? Ja, það má alltaf gera skoðanakannanir og at- huga til dæmis hvort fólk er til í að hafa svona forseta yfír sér, eða hvort það telur Kenneth Starr hafa ráðist gróflega inn í einkalíf forsetans. Stjórnmála- skýrendur segja ábúðamiklir að „vilji kjósenda" sé á endanum það sem öllu skipti. Þannig er spurningin sett á markað: einstaklingar eiga að ákveða hver í sínu lagi hvort þeim fínnist gjörðir Bills Clint- ons réttlætanlegar, og útkoman er mæld með kosningum. Hin ósýnilega hönd lyftir hvítu flaggi eða rauðu. Með þessum hætti á að komast undan því að ræða vandræðaleg hugtök á borð við „siðferðisgildi“ sem raunsætt fólk tekur sér ekki í munn ódrukkið. En vandinn við þessa einka- væðingu siðferðisins er fyrst og fremst sá, að hún virðist gera einstaklingum ókleift að svara siðferðislegum spurningum. Ef rétt og rangt er háð mark- aðslögmálum, þá getur maður ekki fellt siðferðisdóma upp á eigin spýtur. Það sem meira er - og öllu verra: Maður gæti ekki einu sinni komist að niður- stöðu í málum sem varða engan nema mann sjálfan nema með því að bera sinn eigin siðferðis- vanda á (markaðs)torg til að láta markaðinn kveða upp úr- skurð. (Þetta gera Bandaríkja- menn iðulega í sjónvarpsspjall- þáttum.) Ef þetta virðist ruglingslegt þá er það líklega vegna þess að þetta er tómt rugl. Það er engin leið að fá nokkurt vit í einka- vætt siðferði. Til að finna svör við siðferðislegum spurningum verður að huga að þeim gildum sem liggja til grundvallar sið- ferðislegum dómum, og jafnvel gagnrýna þessi gildi harkalega. Það er ekki hægt að láta sem þau séu ekki til. Ekki er þar með sagt að Sókrates hafi haft rétt fyrir sér. En áskorun Þra- símakkosar virðist enn standa. Hinn frjálsi markaður hefur reynst ófær um að leysa vand- ann. Allt leyfílegt? FYRIR skömmu birtist hér í Morgun- blaðinu frétt af dómi Héraðsdóms Reykja- víkur þar sem vafi var talinn leika á því hvort bann við áfeng- isauglýsingum sam- ræmdist _ stjórnar- skránni. Ymsir hafa verið til þess að gagn- rýna lagákvæði sem skerða tjáningarfrels- ið, en þess er þá ekki getið af hvaða tilefni skerðingin er sett. Það er grundvallar- regla þeirrar réttar- heimspeki sem ís- lenskur stjórnskipunarréttur á ættir til að nauðung réttlætist af því einu, að verknaður sem komið er í veg fyrir, sé öðrum til tjóns. Þannig ber maður einungis ábyrgð gagnvart samfélaginu á þeim athöfnum sínum sem aðra varðar. Tóbaksframleiðendur hafa haldið því fram að þeir ættu stjórnskipulegan rétt á að hvetja til neyslu á sínum lögmætu vörum með auglýsingum, enda væri hvorki sannað að tóbaksreykingar veldu tjóni, né væru vanabindandi eða heilsuspillandi þótt annað hafí komið á daginn. Alþjóðlegir sígar- ettuframleiðendur í Þýskalandi hyggja enn á málshöfðun í nafni tjáningarfrelsisins gegn ESB til að hnekkja lögum, sem banna tó- baksauglýsingar og samþykkt voru nýlega. Þótt lagasetning vegna tóbaksmála sé umtalsverð á vettvangi ESB, eru áfengismál einnig ofarlega á baugi. Stefna ESB er að draga úr áfengis- neyslu, einkum til að fyrirbyggja félagslegar og heilsufarslegar af- leiðingar neyslunnar. Einstök að- ildarlönd sambandsins, t.d. Frakkland, eitt umfangsmesta vínframleiðslulandið, hefur bannað áfengis- auglýsingar. Ástæðan fyrir þessu banni er fyrst og fremst heil- brigðissj ónarmið. WHO hefur einnig sett fram það mark- mið að minnka berí áfengisneyslu í Evr- ópu um 25% fyrir árið 2000. Áfengisneysla í Evrópu er mest í Frakklandi, Þýska- landi, Spáni og í Dan- mörku. I þessum löndum er greinilega um umfangsmikla of- neyslu að ræða. Áfengistengdir sjúkdómar eru þar algengari en t.d. á íslandi þar sem neyslan er minni. Áfengis- sýki og tengd vandamál virðast Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur virðist, segir Skúli Thoroddsen, með tilliti til almannaheillar, lögfræðilega röng. hins vegar algengari á íslandi þar sem um það bil 15% þjóðarinnar mynda fíkn við neyslu efnisins. Drykkjusiðii- eru hér líka með örðum hætti en tíðkast hjá Dönum eða Mið- og Suður-Evrópubúum, þar sem dagleg ofneysla öls og víns er algeng. Þá er kunnugt að hvergi er enginn einn þáttur jafn- ríkjandi í alvarlegum umferðar- slysum og ölvunarakstur. Fyrir Islendinga yrði það öfugþróun að slaka á klónni í áfengis- og vímu- efnavörnum miðað við þá stefnu sem Evrópa er að feta sig eftir og þá þekkingu sem til er um það tjón sem áfengisneysla skapar bæði einstaklingum og samfélagi. Þótt persónufrelsi sé hátt virt í okkar samfélagi ætti hver einstak- lingur að hafa rétt til að fá upplýs- ingar um þekkta áhættuþætti heil- brigðis og afleiðingar þeirra út frá sjónarmiði heildarinnar og samfé- lagsins. Áfengi getur myndað fíkn og áfengisneysla er talin til alvar- legustu heilbrigðisvandamála í vestrænu samfélagi, því er ástæða til þess að umgangast efnið af fyllstu varkárni. Reglum um bann við áfengisauglýsingum er ætlað að draga úr neyslu eða a.m.k. að koma í veg fyrir að hvatt sé til notkunar efnisins til að koma í veg fyrir að valda öðrum og samfélag- inu í heild tjóni. Samfélag án áhrifa, án vissrar þvingunar i þágu samfélagsheildarinnar er óhugs- andi. Menn þurfa frelsi en ekki endilega þannig frelsi að engu sé að tapa. Það hlýtur að vera skylda okkar að grípa inn í áfengismis- notkun og fíkniefnaneyslu og jafn- vel leita hana uppi til að þvinga menn til að takast á við sinn vanda ef ekki sjálfra sín vegna, þá vegna aðstandenda sinna og samfélags- ins. Áfengisauglýsingum eru ætl- að hið gagnstæða, að hvetja til aukinnar neyslu, að selja meira vín og við því vandamáli þarf sam- félagið að bregðast. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur virðist, með tilliti til almannaheillar, lögfræðilega röng. Með dómnum sýnist líka skorta bæði siðferði og þann sjálf- saga sem hvert samfélag þarfn- ast. Það er hlutverk dómstóla að tryggja að svo sé, að öðrum kosti virðist allt leyfilegt? Höfundur er lögfræðingur sem starfar að heilbrigðismálum hjá ESB. Skúli Thoroddsen Sigríður Anna fyrst og fremst Nú er komið að því að Sjálfstæðismenn velji sér frambjóðend- ur á Reykjanesi fyrir komandi alþingiskosn- ingar. Þeir kusu enn að nota prófkjör til þess að komast að nið- urstöðu, enda eru ýmsir þeirrar skoðun- ar að með þeirri að- ferð sé kröfum lýð- ræðisins fullnægt. En það er öðru nær. Miklu meiri skum- skælingu á lýðræðinu er varla hægt að hugsa sér. Um þetta mætti skrifa langt mál en látið skal nægja að benda á að þetta er þénanlegt þeim, sem þekktir eru í þjóðfélaginu og hin- um, sem hafa yfír miklum fjár- munum að ráða svo ekki sé talað um þegar þetta fer saman. En það sem er þó daprast er að alltof margir sem mikill fengur væri 1 að fá til þess að taka þátt í stjórnmál- um eru með öllu ófáanlegir til að eyða fé og orku í að lemja á eigin liðsmönnum. Engu að síður kemur þessi óvinafagnaður ekki algjör- lega í veg fyrir það að ágætt fólk skelli sér í slaginn og taki því sem að höndum ber. Sjálfstæðisflokkurinn hefur all- ar götur átt miklu fylgi að fagna á Reykjanesi og svo er enn. Því ríð- ur á að vel takist um val á forystu- manni til að annast verkstjórn og fara fyr- ir sínu liði í þeirri bar- áttu sem í hönd fer. Sá sem hér stýrir penna er í engum vafa um að Sigríður Anna Þórðar- dóttir alþingismaður er til þessa verkefnis best fallin og fyrir því eru mörg gild rök. Hún hefur öðlast víð- tæka reynslu í stjórn- málum og ávallt hefur henni verið falin for- ysta. Fyrst oddviti í Grundarfirði, þá for- mennska í mennta- málanefnd Alþingis og um leið eftirminnileg verkstjórn á smíði nýrrar skólalöggjafar á sama vettvangi, þar sem hlutast var til um að færa grunnskólann þangað sem hann á heima, frá ríki til sveit- arfélaga. Þannig skilar þekking og reynsla góðu starfí á Alþingi ís- lendinga. Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa metið störf Sigríðar Önnu að verðleikum og kusu hana á þessu ári einum rómi formann þingflokksins og undirstrikuðu þannig hæfileika hennar til að stjórna. Lengi býr að fyrstu gerð og vís- ast mun Sigríður Anna lengi búa að því að hafa alist upp í sjávar- plássi og þekkja til hlítar kjör þess fólks og aðstæður allar. Nú er brýnna en nokkru sinni að efla Til þess að hið mikla fylgi Sjálfstæðis- flokksins skili sér á kjördegi þarf samstöðu um öfluga forystu flokksins í héraði. Að -------------f-------------- mati Arna M. Emiissonar er Sigríður Anna Þórðardóttir kjörin til slíkrar forystu. byggðir landsins alls, og þá skiptir miklu að það fólk sem þekkir til, láti muna um sig í störfum sínum á Alþingi. Sigiíður Anna saltaði síld á Siglufirði í æsku og starfaði með því fólki sem meistari Þórbergur kallaði með réttu „íslenskan aðal“. Slík reynsla skilar sér þegar tekist er á við margvísleg úrlausnarefni á Alþingi. Til þess að hið mikla fylgi Sjálfstæðisflokksins skili sér á kjördegi þarf samstöðu um öfluga forystu flokksins í héraði. Sigríður Anna er kjörin til slíkrar forystu og því munu Reyknesingar velja hana í fyrsta sæti listans í próf- kjörinu sem fram fer 14. nóvember næstkomandi. Höfundur er útibússtjóri Búnaðar- bankans í Garðabæ. Árni M. Emilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.