Morgunblaðið - 29.10.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 27
GRÆNLAND
Gekk úr rúmi
fyrir Motzfeldt
AASIAAT er lítill bær. Þar búa
3.200 manns og þar er aðeins
eitt hótel, hótel Nanoq, auk sjó-
mannaheimilis. Fyi'irmennin,
sem komu til bæjarins í tilefni
opnunar flugvallarins, urðu að
fá inni á meðan á hátíðarhöld-
unum stóð. I hótelinu eru aðeins
6 herbergi og 3 þeirra voru
bæði svefnherbergi og skrifstof-
ur íslenzku yfirmannanna.
Það kom því í hlut blaða-
manns að ganga úr rúmi fyrir
Jonathan Motzfeldt. Eg vaknaði
snemma og tók saman dótið
mitt, stúlkan kom og snyrti til
og herbergið var til á auga-
bragði. Það sama gerðist um
kvoldið. Mosfeldt fór um kl. 19
og hálftíma síðar var herbergið
aftur mitt.
Þá var það einnig skemmtileg
uppákoma iniðdegis þegar
Daniel Skifte og Inge kona hans
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
ÞAÐ fór vel á með Jonathan Motzfeldt og Jóhanni G. Bergþórssyni
er þeir ræddu málin í veizlu, sem bæjarstjórnin hélt fyrir helztu for-
ystumenn Grænlands. Milli þeirra situr Henrik Lund konsúll.
komu upp á hótelið. Þau áttu
einnig að fá inni á hótelinu en
höfðu enga lykla. Við buðum
þeim upp á kaffi í eldhúsinu á
meðan hringt var út í bæ eftir
lyklum. Þetta voru mjög geðug
hjón og við notuðum tækifærið
til að fá smá nasasjón af pólitík-
inni. Skifte er í hægriflokknum
sem kallast Atassut og eru þeir
með tæp 38% atkvæða. Þeir
sitja í sterkri sljórn með Motz-
feldt. Hann stýrir Siumiut sem
er krataflokkur með liðlega
38%. Þrír flokkar sitja á lands-
þinginu og þriðji flokkurinn er
IA (Inuit Ataqatigiit) eða
vinstrimenn sem er með um
24% og 7 menn á þingi en á
landsþinginu í Nuuk situr 31
þingmaður.
Qaanaaq
- (Thule)
KALAALLIT
NUNAAT
Upernavik.(GRÆNLAND)
Ummannaq* Hloqqortoormiut
Aasiaat i ^<(Scöresbysund)
SlsimiyU : '
• — Maniitsoq JVnMSKAUTSgitíS!®'
• Tasiilaq Akureyri.
Nuuk® (Godtháb) (Ammassalik) ÍSLAND
Paamiut* Keflavík
Narsarsuaq* /
Hvarf
m háar og búa þannig til brautina.
Framkvæmdir Islenskra aðalverk-
taka hófust í júlí 1996 og var unnið til
loka nóvember það ár. Hófust fram-
kvæmdir formlega f ágúst 1996 með
því að bæjarstjórinn í Aasiaat, frú
Ane Hansen sprengdi fyrsta skotið
að viðstöddu fjölmenni úr bænum.
Þá var unnið frá apríl fram í nóvem-
ber 1997 og frá mai til nú í október
1998, þegar flugvellinum er skilað á
áætlun, tilbúnum til notkunar.
Gott samstarf
Að framkvæmdum þessum hafa
komið margir íslendingar. í Aasiaat
hafa að jafnaði verið um 10 til 15 ís-
lendingar að störfum þessi þrjú ár
sem framkvæmdir hafa staðið. Á ár-
unum ‘97 og ‘98 hafa því verið starf-
andi milli 20 og 30 Islendingar á
vegum íslenskra aðalverktaka við
báðar þessar framkvæmdir á Græn-
landi. Framkvæmdir við brúna
hófust vorið ‘97 og var brúnni skilað
á umsömdum tíma og hún vígð og
tekin í notkun með flugvellinum,
veginum og flugstöðvarbyggingunni
í Sisimiut, 3. október síðastliðinn.
Gott samstarf og samvinna við
heimamenn hafa frá upphafi ein-
kennt þessa vinnustaði. Við flugvall-
arframkvæmdina í Aasiaat hafa Is-
lenskir aðalverktakar notað meira af
grænlenskum fyi'h'tækjum en gert
hefur verið í hinum flugvallai'verk-
tökunum, ásamt þvi að nota mikið af
Grænlendingum til vinnu. Til þess
að þeir nýttust sem best þá var sett
hér upp sérstakt menntunar- og
þjálfunarkerfi fyrir þessa starfs-
menn. Hefur þeim í framhaldi af því
verið kennt á flest þau tæki sem not-
uð eru hér við framkvæmdina, svo
og notkun og meðferð sprengiefnis.
Þegar íslenskir aðalverktakar yf-
irgefa Aasiaat og skilja eftir sig
þetta stór spor í granít klappirnar
fyrir utan bæinn, þá skilja þeir
einnig eftir sig mikla verkkunnáttu
hjá mörgum ungum mönnum sem
hér hafa starfað fyrir þá. Hér verða
eftir þjálfaðir bflstjórar og gröfu-
menn og alhliða vélamenn ásamt
mönnum sem nú eru orðnir einfærir
um að sjá um sprengingar. Það var
forstjóri íslenskra aðalverktaka,
Stefán Friðfinnsson, sem frá upp-
hafi lagði á það áherslu að með þess-
um hætti skyldi staðið að verki.
Að lokum má geta þess að æðstu
forsvarsmenn vinnuveitendasam-
bandsins á Grænlandi, Gronlands
Ai'bejdsgiverforening, hafa gefið ís-
lenskum aðalverktökum hæstu ein-
kunn fyrir framkvæmdirnar.
Athygli er vakin með auglýsingu í Morgunblaðinu
Eftirtekt fólks er mest árla morguns. Auglýsingin þín
í Morgunblaðinu er oft með fyrstu auglýsingum sem
fólk sér yfir daginn og nýtur þvi óskiptrar athygli.
Það borgar sig að auglýsa í Morgunblaðinu.
60% þjóðarinnar lesa blaðið að
meðaltali á hverjum degi og 71%
Ibúa höfuðborgarsvæðlsins.