Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 65*
FÓLK í FRÉTTUM
Skemmtileg
afþreying
TÖNLIST/
KVIKMYNP
Bíóborgin
POPP í REYKJAVÍK
Tónlistarkvikmyndin Popp í Reykja-
vík. I myndinni koma fram Bang
gang, Bellatrix, Botnleðja, Curver, Dj
Addi, Ensími, Gusgus, Hringir,
Magga Stfna, Maus, Móa, Páll Óskar
& Casínó, Quarashi, Sigur rós,
Slowblow, Spitsign, Stjörnukisi, Stol-
ia, Subterranean, Súrefni, Svanur,
Vector og Vínyll. 101 ehf. gerði
myndina, leikstjóri Ágúst Jakobsson.
FRÆG ER í íslenskri rokksögu
kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar Rokk í Reykjavík. Sú mynd
var heimildarmynd um rokkbylt-
inguna hér á landi í upphafí ní-
unda áratugarins og bráðvel
heppnuð sem gildi hennar verður
meira með hverju árinu. Popp í
Reykjavík á ekkert sameiginlegt
með mynd Friðriks nema þá að í
myndinni er mikið af tónlist með
viðtalsinnskotum og svo að nöfn-
unum svipar nokkuð saman. Þrátt
fyrir það er gagnlegt fyrir þá sem
gaman hafa af rokki og því sem
tilheyrir að bera saman þessar
tvær myndir, ekki síst til að átta
sig á hvað hefur breyst og hvað
ekki.
Tónlistin í Popp í Reykjavík er
að mestu tekin upp á þrennum
tónleikum sem haldnir voru í
Loftkastalanum og Héðinshús-
inuu í sumar. Á þá tónleika var
smalað saman úrvali íslenskra
hljómsveita og reyndar mun fleiri
en komust í myndina. Einnig voru
sumar sveitanna myndaðar ann-
ars staðar, í æfingarhúsnæði eða
utan dyra. Inn á milli er síðan
skeytt viðtölum og skemmtiatrið-
um með sveitunum og einstöku
tónlistarmönnum. Viðtölin gjalda
nokkuð hugmyndafátæktar
spyrils og sum eru óáhugaverð.
Þannig er viðtal við hljómsveitina
Maus í upphafi klént, Dj Addi hef-
ur ekkert til málanna að leggja,
Þórhallur Skúlason ekki heldur
og einnig er mjög misheppnað
viðtal við Móu í baði, þó atriðið sé
ágætlega útfært. Viðtal við
Damon Albarn í lokin er úr hófi
kauðskt.
Eðli málsins samkvæmt er lítill
söguþráður í mynd sem þessari,
en leikstjóri og framleiðendur
grípa til þess ráðs að fá Pál Óskar
Hjálmtýsson til að binda myndina
saman. Langt viðtal við hann er
klippt inn í myndina hér og þar til
að gefa henni þráð og framvindu.
Páll fer á kostum að vanda og ber
myndina uppi á köflum; stjarna
Popps í Reykjavík.
Tónlistin í Popp í Reykjavík er
gagnlegt yfirlit yfir það sem var
að gerast í íslensku rokki í sumar.
Sveitirnar eru reyndar misjafn-
lega marktækar og sumu hefði
gjarnan mátt sleppa, til að mynda
Vector, Dj Adda, Hringjum og
Svani þótt ekki væri nema til að
gera myndina markvissari og
framvinduna beinskeyttari.
Rokksveitarinnar Slowblow hefði
heldur ekki verið saknað; sitthvað
gott er að gerast inni í æfinga-
skúrnum, en á sviði er hún eins og
þorskur á þurru landi.
Af rokksveitunum kemur á
óvart hversu Maus kemur illa út,
lag sveitarinnar virkar dauft og
myndataka ómarkviss. Aðrar
sveitir standa sig mun betur, til
að mynda er Spitsign skemmti-
lega ungæðisleg í sínum hama-
gangi, ein skemmtilegasta sveitin
í myndinni og fékk verðskuldaðar
viðtökur hjá bíógestum. Ensími
kemur líka þokkalega út en Vínyll
síður. I tæknideildinni hljómaði
Gus Gus-lagið eins og gamaldags
techno, en útlit glæsilegt og vel —
útfært. Súrefnislagið virkar líka
gamaldags, enda var það spilað
mönnum til óbóta í útvarpi í sum-
ar.
Hljómsveitir sem standa sig vel
eru aftur á móti Sigur rós, sem á
frábært lag, Stjörnukisi og rokk-
hetjur Islands, Quarashi, þó tón-
leikar þeirra hafi jaðrað við al-
gjöra óreiðu eins og sjá má í
myndinni. Subterranean eru og
góð á sviði, en viðtalið út í hött, og
Magga Stína var framúrskarandi.
Móeiður er líka góð að slepptu
viðtalinu.
Botnleðja á aftur á móti lang-
skemmtilegasta innleggið, veit
best hvað hún vill upp á svið o£
lagið hreint afbragð; þeir Botn-
leðjungar eru langflottastir.
Popp í Reykjavík er skemmti-
leg afþreying og góð heimild um
stöðu mála sumarið 1998. Myndin
ætti að höfða til allra þeirra sem
gaman hafa af tónlist og reyndar
þeirra sem eru á annað borð
áhugasamir um íslenska menn-
ingu. Kvikmyndataka er yfirleitt
góð og hljómur framúrskarandi.
Árni Matthíassoo
buxna- og pilsdragtir
mei vestum frá Aría
Tilboð meðan birgðir endast
Ullar blazer-jakkar kr. 8.900 áður kr. 13.600
Buxur kr. 4.800 áður kr. 6.800
Ullar hálf-kápur kr. 13.800 áðurkr. 24.600
Opið á laugardögum
frá kl. 10.00 til 14.00
omiarion
Reykjavíkurvegi 64, sími 565 1147
FiiuélsIakKI f
kr. 10.900
V-hálsmáispev;
únúlpa
íúliukraqa
.