Morgunblaðið - 29.10.1998, Page 42

Morgunblaðið - 29.10.1998, Page 42
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Baunin og balinn '■ ÉG HEF oft verið að velta því fyrir mér hvað gerir það að verk- um að einlitur og órökstuddur áróður í fjölmiðlum ratar oft sem tær sannindi inn í heilabu almennings. Þetta er í fyrsta skipti sem ég skrifa svona al- mennt „nöldurbréf* í opinbert blað, því nú get ég ekki orða bund- ist. Nú veit ég ekki hvort ég er bara svona smámunasamur nöldr- ari eða nákvæmur og gagnrýninn, en frelsið til að tjá sig á víst að vera stjórnarskrárbundið og þann rétt ætla ég að nýta mér. Tilefnið er nýieg frétt á sjónvarpsstöð hér í bæ. Þar kom fram, í máli viðmælanda fréttamanns, að ekk- ert dulkóðunarkerfi væri 100% öruggt, en eftir nýlega breytingu á frumvarpi því, sem tengist miðlæga gagnagrunninum margrædda, þá gerir eitthvert þriggja þrepa kerfi það „býsna öruggt“, eins og viðmælandinn mrðaði það. Nú er ég alls ekki að ráðast að persónu þessa viðmælanda. Þetta virtist vera mætur maður og ég hef enga ástæðu til að draga störf hans eða heiðarleika í efa. Ég er hins vegar að velta því fyrir mér hvað þetta „býsna öruggt“ þýðir nákvæmlega. Ef það þýðir eitthvað tæplega 100%, segjum t.d. 99% öruggt, þá hef ég á til- finningunni að það þýði einfaldlega óöruggt, hvort sem það er 1% eða 99%. Þegar öryggi er ann- ars vegar, sé það sá þáttur sem skiptir ein- hverju máli varðandi þennan miðlæga gagnagrunn, þá gæti allt oltið á þessu eina prósenti, ef svo færi að það réði úrslitum miðað við einhverjar aðstæður og forsendur í fram- tíðinni. Mínar upplýsingar segja mér reyndar að öruggustu kóðunarað- ferðir séu það öflugar að það tæki allar tölvur heimsins milljónir ára að kanna alla möguleika. Það er reyndar hægt að hitta á réttu lausnina á fyrsta degi, en það er önnur saga. Annað, sem ég hjó eftir í orðum annars viðmælanda í sömu frétt, var að svo þetta mætti takast vel þyrfti víðtæka samstöðu og sátt um hið nýja frumvarp. Almennt séð, þegar þetta orðalag er viðhaft, sérstaklega í stjórnmál- um, þá finnst mér eins og það sé gert ráð fyrir því að allir séu heið- Fólk í viðskiptum og stjórnmálum virðist, að mati Péturs Einarsson- ar, geta stjórnað fréttafólki eins og strengj abrúðum. arlegir. Nú veit ég ekki nákvæm- lega lið fyrir lið hvort og þá hvernig svona miðlægur gagna- grunnur kemur til með að gagn- ast fólki. Ég efast reyndar ekki um, eins og ég skil stöðuna, að ef þetta gengur upp þá muni þetta verða fólki til góðs á komandi ár- um. Spurningin er bara þetta EF, sem þá innifelur t.d. spurninguna um breyttar forsendur í fram- tíðinni. Ég velti því einfaldlega fyrir mér hvernig komandi kynslóðir, kynslóðir sem munu þá væntanlega bæði halda um stjórn- artauma hér og svona miðlægan gagnagrunn, muni skilgreina hug- tökin sátt og samstöðu. Sumir hafa t.d. velt því fyrir sér hvort hægt verði að misnota upplýsing- ar úr svona miðlægum gagna- grunni gegn komandi kynslóðum, t.d. í sambandi við atvinnumögu- leika o.fl. Ofangreind frétt sagði mér sem sagt ekki neitt, ekki baun í bala. Ég er engu nær um hvort þessi Pétur Einarsson miðlægi gagnagrunnur er öruggur eða ekki og ég hef ekki hugmynd um hvort ég á að einbeita mér að bauninni eða balanum þegar ég sé fréttir um þennan miðlæga gagna- grunn, eins og fréttir eru mat- reiddar í dag. Ég geri hins vegar ráð fyrir því að þegar ég verð búinn að sjá nokkra tugi svona frétta á næstunni, þá fari ég hreinlega að trúa því innst inni að þessi miðlægi gagnagrunnur sé hið besta mál að öllu leyti. Kannski er hann það og verður, kannski ekki. Ég er ekki 100% viss. Hvernig er t.d. með eftirlit og meðferð persónuupplýsinga þar sem þær upplýsingar eru dulkóðaðar? Hver sér um að koma þessum upplýsingum til þess aðila sem sér um þessa dulkóðun og hvað er síðan gert við þær upplýs- ingar (skjöl og skýrslur) sem búið er að dulkóða? Fara þessi skjöl og skýrslur aftur inn í heilbrigðis- kerfið á sinn stað og talandi um öryggi, hvernig er leynd upplýs- inga tryggð innan heilbrigðiskerf- isins? Hversu margir hafa aðgang að því sem skilgreint er sem viðkvæmar trúnaðarupplýsingar? En aftur að miðlæga gagna- grunninum margrædda. Hvað sem svo verður þá óska ég Kára og samstarfsfólki hans velgengni. Ég vil jafnframt beina því til fjölmiðlafólks að það mætti vera nokkrum sinnum nákvæmara þeg- ar það spyr spurninga (um hvaða mál sem er) og eins mætti það ganga betur á eftir ítarlegi’i svör- um, sem ætti að vera hægt á málefnalegum og faglegum grunni án þess að fara út í hroka, frekju og niður á persónulegt plan. Ég er alls ekki að segja að fréttafólk sé hrokafullt og frekt. Akveðni er allt annar hlutur, þótt hann virki kannski svipað við fyrstu sýn. Ég vil fá skýr svör við svona grund- vallarspurningum, en eins og stað- an er í dag þá virka flestir fréttaþættir á mig eins og hvert annað skemmtiefni, sem í fæstum tilvikum er hægt að taka alvar- lega, þar sem hagsmunahópar, eins og t.d. fólk í viðskiptum og stjórnmálum, virðast geta stjórnað fréttafólki eins og strengjabrúðum og komið á fram- færi einlitum áróðri og ófullnægj- andi svörum og þar með haft af- gerandi áhiif á almenningsálitið, burtséð frá staðreyndum. A Is- landi eru að mínu mati til fyrsta flokks fréttamenn, fáir þó, og mættu hinir taka þá sér til fyrir- myndar. Svo er bara spurning hvort fyrsta flokks fréttamenn fái tækifæri til að njóta sín, séu þeir nógu gagnrýnir. Að lokum, fyrst ég er að blaðra þetta í blaðið á annað borð, þá vil ég hvetja konur (þótt ég telji jafn- rétti snúast um hæfileika en ekki kynferði) til þess að trana sér meira fram á sviði viðskipta, vís- inda, stjórnmála, lista o.s.frv, því ég vil ekki trúa því að konur séu í verri stöðum og á lægri launum, eins og raun ber vitni, eingöngu vegna þess að þær hafi minni hæfileika en við karlamir, sem allt þykjumst vita og geta. Höfundur er tölvari. FORYSTA LÍÚ er þekkt að öðru en að bruðla með fé um- bjóðenda sinna. En nú hafa útvegsbændur tekið upp veskið. I nýj- ustu sjónvarpsauglýs- ingunni, sem m.a. var sýnd 26. okt., eru loka- prðin efnislega svona: Við skulum viðhalda fiskveiðistjórnunarkei’fi sem skapar hámarksarð fyi-ir íslensku þjóðina og við skulum skila auðlindunum óskemmd- um til komandi kynslóða. Meginspurningar Að slepptum ruglingnum á fisk- veiðistjórnun og eignarhaldi eru þetta meginspurningar kvótamáls- ins: Dugar núverandi eignarhald á fiskistofnum, gjafakvóti eða einka- kvóti, til að koma arðinum af fiski- stofnunum til þjóðarinnar og kom- „^andi kynslóða? Ég skil vel að út- vegsmenn vilji trúa því af alefli, en svarið er hérumbil örugglega nei. Orsakanna verður sumpart að leita með svolítið en ekkert skelfilega flókinni hag- fræði, en ég held það sé hægt að gefa sýnishorn á mannamáli. Til þess má vísa í grein sem Sig- urður Einarsson í Vest- mannaeyjum skrifar í Morgunblaðið 27. okt. um væntanlega fækkun starfa í sjávarútvegi. Kjarabætur fyrir þjóðina? Til þess að breyting- ar á atvinnuháttum bæti kjör á íslandi verða þær að skapa ný störf eða auka samkeppni um ís- lenska viðskiptavini. Eins og Sig- urður lýsir svo glöggt fækkar kvótahagræðingin störfum þótt hún auki afla og þegar uggum fjölgar upp úr sjó verður sölusamkeppnin um útlenda neytendur. Hvorugt bætir kjör á íslandi. Það er því mjög ólíklegt að hagræðing kvóta- kei'fisins auki kaupmátt íslenskra fjölskyldna til lengri tíma litið. Hitt er annað mál að þegar skilyrði breytast getur sjávarútvegurinn skapað sveiflur meðan aðrar starfs- greinar eru að aðlagast. Það er galli en ekki kostur, því sveiflur torvelda uppbyggingu. Það er því hrein ósk- hyggja og misskilningur hjá útvegs- mönnum að þeir séu að gera þjóðinni einhvern greiða með því að fá ókeypis kvóta. Hagur komandi kynslóða? Hvað varðar komandi kynslóðir er málið jafnvel verra. Setjum sem svo að lífeyrissjóðirnir í landinu eignist með tímanum mestallan kvóta, og það er ekki ólíklegt. Fyrst kvótakerfíð hækkar ekki laun í landinu og launin ráða stærð sjóðanna verður þetta ekki viðbót, heldur munu sjóðirnir eiga sem því nemur minna af öðru. Gjafakvótinn Það er hrein óskhyggja hjá útvegsmönnum, segir Markús Möller, að þeir geri þjóðinni greiða með því að fá ókeypis kvóta. færir því þjóðinni og komandi kynslóðum ekkert, nema þessum örfáu erfingjum. Heiðarleg athugun! Þessi einföldu dæmi rétt tæpa á allflóknu máli. Að störfum er nefnd í auðlindamálum sem á að skoða hvaða úrræði koma þjóðinni best. Að vísu eru einungis tveir í nefnd- inni sem ekki hafa fyrir löngu gefið sig upp í kvótamálinu, en þeir eru oddamenn. Það verður að treysta á þessa menn til að skoða málið í botn af vandvirkni og heilindum, leita ráða hjá færustu sérfræðing- um hér og erlendis og gera svo sitt allra besta fyrir íslenskan almenn- ing. Það eru réttu vinnubrögðin. Þau tryggja því miður ekki alltaf bestu niðurstöðu, en meira býður mannlífið einfaldlega ekki upp á. Það skaðaði hins vegar ekki ef al- menningur minnti forystumenn þjóðarinnar á hvaða hagsmuni þeir eiga að setja í forgang. Höfimdur er hagfræðingur og tekur þátt iprófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykjnncsi. MEÐ LÖGUM um fjöleignarhús sem sett voru á Alþingi 1994, var öllum eigendum fjöleignarhúsa gert skylt að láta gera eignaskiptayfirlýsingu yfir eign sína, enda liggi ekki fyrir þinglýstur fullnægj- andi og glöggur skipta- samningur. Er þar gert að skilyrði þinglýsingar eignayfir- færslu, að eignaskipta- yfirlýsing liggi fyrir. Bráðabirgðaákvæði gera ráð fyrir aðlögun- artíma tfi 1. janúar 1999 og sýnist mér að skynsamlegt geti verið framlengja því ákvæði, þvi enn er langt í land að slíkar yf- irlýsingar séu til í öllum fjöleignar- húsum. Efni eignaskiptayfírlýsinga I eignaskiptayfirlýsingum kem- ur m.a. fram auk nafns og stað- setningar húss, almenn lýsing á húsinu, stærð þess og gerð og hvers eðlis húsið er. Einnig kemur fram lýsing á hverjum séreignar- hluta stærð hans og staðsetningu. Að auki kemur þar fram hver sé hlutfallstala hvers séreignarhluta, hvort séreignarhluta fylgi bílskúrsréttur og eða annar bygg- ingaréttur. Þessu til viðbótar kem- ur þar fram greinargóð lýsing á allri sameign hússins og sameigin- legum búnaði, bæði innan hús og utan, þar með talin lóð. Hlutverk byggingarfulltrúa í lögunum kemur fram að eignaskiptayfirlýsing, ásamt teikningum og öðrum gögnum, skuli afhent byggingarfulltrúa til staðfestingar og er honum skylt að senda Fastejgnamati ríkisins afrit af henni. A þeim tíma sem liðinn er frá gildistöku laganna hefur fjöldi þessara yfirlýsinga aukist jafnt og þétt og er nú svo komið að af- greiðslutími eftir stað- festingu byggingafull- trúaembættisins í Reykjavík er nú fjórir og hálfur mánuður og hefur stundum verið lengi'i. Það var því að gefnu tilefni að bygg- ingarnefnd Reykjavík- ur fól byggingafull- trúa að verkefnaráða nú þegar löggilda aðila til þess að yfir- fara eignaskiptayfir- lýsingarnar til viðbót- ar við þá starfsmenn sem hafa haft þetta verkefni með höndum. Með því móti ætti að nást að vinna niður þann biðlista sem upp hefur safn- Það var að gefnu til- efni, segir Oskar Bergsson, að fenginn var liðsauki í að yfir- fara eignaskiptayfirlýs- _________ingarnar.____________ ast. Við munum láta vinna niður þann biðlista, sem liggur fyrir, strax nú í haust og síðan munum við fylgjast náið með hvernig mál þróast á næsta ári. Rétt er að geta þess að í dag eru á annan tug þúsunda eigna í Reykjavík án eignaskiptayfirlýsinga þannig að vei'kefnið framundan er risavaxið. Samþykkt byggingarnefndar Reykjavíkur er til þess gerð, að bæta þjónustuna við þá sem nú þegar eru farnir að láta gera slík- ar yfirlýsingar þannig að bið eftir lögbundinni staðfestingu bygg- ingafulltrúa taki ekki marga mán- uði. Höfundur er vai'aborgarfulltrtíi Reykjavíkurlistans og formaður byggingarnefndar Reykjavíkur. Breiðsíður LÍÚ og aðalatriði kvótamálsins Markús Möller Eignaskipta- yfírlýsingar Óskar Bergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.